Morgunblaðið - 07.11.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
B 11
Tveir af aðalleikurum myndarinnar í hlutverkum sínum, þau Miike
Myers og Nancy Travis.
Stjömubíó sýnir Ég
giftist axarmorðingja
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýningar á bandarísku gamanmyndinni
Eg giftist axarmorðinga eða „So I Married an Axe Murderer“ með
Mike Myers (Wayne’s World) og Nancy Travis (Three Men and a
Baby). Leikstjóri er Thomas Schlamme og framleiðandi er Robert
N. Fried.
lærði af þessu að í viðskiptum eiga
menn að treysta hveijir öðrum.“
Fleiri á ferli en að jafnaði sáust
Á hlaðinu í Bæ eru mörg íbúðar-
hús. í einu þeirra búa Olafur og
Auður kona hans. Þar inni í eld-
húsi er mér boðið uppá góðgerðir.
Auður segir mér að þau hafi byij-
að búskapinn í gamla íbúðarhúsinu
í Bæ og þar hafí böm þeirra fjög-
ur fæðst. Eitt þeirra dó ungt og
annað á fullorðinsárum. Meðan
Auður gekk með tvö yngri börnin
átti hún ónæðisama daga í gamla
húsinu í Bæ. „Ég varð fljótlega
vör við að fleirj voru í húsinu en
þeir sem að jafnaði sáust,“ segir
hún. „Einkum varð ég mikið vör
við gamla konu sem lengi hafði
verið þar í heimilinu en var látin
áður en ég kom í Bæ. Ég heyrði
í henni jafnt á nóttu sem á degi.
Hún hafði verið mikil utan um sig
og þung í spori, ég heyrði hana
iðulega mása og blása mæðinni
þegar hún settist á bekk, sem hún
hafði í lifandi lífí oft setið á. Ég
hætti að verða vör við hana eftir
að barnið fæddist og fékk nafn
hennar. Kona þessi hafði átt dóttur
sem dó skömmu síðar. Hana sá
ég oft og heyrði og litla dóttir mín
líka. Ég kunni þessu illa þótt ég
væri frá barnæsku vön að sjá og
heyra ýmislegt sem öðrum er hul-
ið, svo sem huldufólk, sem ég sé
enn í dag í klettunum hér fyrir
neðan túnið.“ Það kemur fram í
máli Auðar að hún hafi verið fegin
þegar gamla íbúðarhúsið var jafn-
að við jörðu og nýtt hús byggt.
„Ég kærði mig ekki um neitt úr
því húsi inn í nýja húsið,“ segir
hún fastmælt um leið og við kveðj-
umst.
Jarðarför aðkomustúlkunnar
Við Ólafur göngum aftur út í
kirkju, mig langar að skoða gömlu
klukkuna betur. „Mér finnst klukk-
an ekki svipur hjá sjón síðan hún
sprakk," segir Olafur og bendir
mér á sprunguna í gömlu kopar-
klukkunni. „Ef gert væri við hana
myndi hún verða sett á ramböld
og hengd upp í turninn svo hljóm-
ur hennar heyrðist um sveitina,"
bætir hann við meðan við göngum
fram kirkjugólfið. „Þú skrifar nú
í gestabókina,“ segir hann svo og
réttir mér skinninnbundna bók með
silfurskildi framan á. „Óskaplega
er þetta vegleg gestabók," segi ég
og munda pennann. „Já hún á sér
líka sérkennilega forsögu," svarar
Ólafur. „Þannig var að síðla sum-
ars árið 1941 var aðkomustúlka
borin til grafar hér í Bæ. Hún kom
hér sem kaupakona í nágrennið
og dó eftir skamma veru í vist-
inni. Húsbóndi hennar kom með
kistuna og óskaði eftir því að ung-
ir menn væru látnir bera hana til
grafar, fannst það við hæfí því hún
hafði verið rétt tvítug þegar hún
lést. Stúlkan var svo jarðsungin
og ég var einn líkmannanna.
Nokkru seinna kom í ljós að hús-
bónda hennar hafði láðst að láta
skyldulið stúlkunnar vita af frá-
falli hennar og jarðarför. Þegar
stúlkan ekki skilaði sér heim eftir
sumarvinnuna var farið að
grennslast fyrir um hana. Fólkinu
hennar brá mjög þegar það frétti
að hún væri dáin og grafin og
reyndi að fá líkið flutt á hennar
heimaslóðir, en kirkjuyfirvöld neit-
uðu því. Hljótt var síðan um þetta
mál til ársins 1967 er nýja kirkjan
var vígð í Bæ. Þá kom full rúta
af fólki til þess að leita uppi leiði
þessarar skammlífu aðkomu-
stúlku. Þegar í ljós kom að leiði
hennar var merkt og hirt gladdi
það fólkið svo mjög að það sendi
kirkjunni þessa glæsilegu gestabók
innbundna í skinn. Fólkið sem kom
í rútunni sagði mér að stúlkan
hefði verið búin að ráða sig í vist
í heimahögum sínum en snúist
hugur á síðustu stundu og sagst
endilega vilja komast í Borgar-
fjörðinn. Og hér hvílir hún,“ bætir
hann við og bendir mér á leiði með
hvítum krossi um leið og við
göngum frá kirkjunni.
Altari í fjárhúsi
Ég enda heimsóknina að Bæ úti
í fjárhúsi, þar geymir Ólafur gam-
alt altari. „Fyrir löngu var það í
kirkju hér, en var tekið þaðan þeg-
ar kirkjunni var breytt og þá sett
inn í gamla íbúðarhúsið. Konur
höfðu í því bollapör og því líkt.
Þegar það hús var rifið kærði kon-
an mín sig ekki um að fá neitt úr
gamla húsinu inn í nýja húsið, eins
og hún sagði þér áðan. Ég vildi
hins vegar ekki farga altarinu og
gerði það þess vegna að meðala-
skáp fyrir lömbin." Umrætt altari
hangir innst í kró fyrir miðju fjár-
hússins. Málningin á því er orðin
mjög máð en smíðin „á því hefur
ekkert gefið sig“. „Sjáðu hvemig
það er neglt, með eintómum tré-
nöglum,“ segir Ólafur og strýkur
mjúklega vinstri hlið altarisins.
„Hurðin fellur enn í falsið eins og
á fyrsta degi. Ég vildi ekki brenna
þessu, þetta er helgur skápur og
auk þess a.m.k. tvö hundruð ára
gamall," bætir hann við og opnar
altarið svo meðalaglös lambanna
blasa við. „Þeim ætti ekki að verða
misdægurt hjá þér lömbunum,"
segi ég út í hálfrokkið fjárhúsið.
„Eg vona ekki, ég er sjálfsagt tal-
inn óskaplega vitlaus í dag, en ég
hef gaman af kindum. Ég byija á
að tala við þær þegar ég tek þær
á gjöf, sest á hækjur mínar í miðja
króna og þá koma þær forvitnustu
til mín. Eg klappa þeim með einum
fíngri á snoppuna. Svo fara að
koma fleiri og um jól em þær farn-
ar að rífast um að komast að til
að fá klapp, á vorin get ég klappað
hverri einustu og nefni þær allar
með nafni. Við bændur vinnum
mikið og höfum sumir haft lítið til
hnífs og skeiðar, en það er þetta
sem bætir það upp. Það dásamleg-
asta sem hægt, er að upplifa er að
fara á fætur um sólarupprás um
sauðburðinn og fara að hyggja að
ungviðinu sem er að fæðast en það
versta sem ég veit er að fylgja
þessum vinuin mínum í sláturhús-
ið.
Myndin segir frá Charlie Mac-
Kenzie sem til þessa hefur verið
ákaflega óheppinn með kvenfólk.
Sherri vinkona hans var stelsjúk,
Jill var í mafíunni og Pam angaði
eins og kjötsúpa. Dag einn bregður
Charlie sér inn í kjötbúð til að kaupa
blóðmörskepp og hittir þar fyrir
siátrarann Harriet. Ekki líður á
löngu þar til Charlie fellur kylliflat-
ur fyrir Harriet og þrátt fyrir að
honum fínnist ýmislegt vera dular-
fullt í fari hennar ætlar hann að
____________Brids_______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridskvöld byrjenda
Sl. sunnudagskvöld 31. október var
að venju bridskvöld byrjenda. Spilaður
var Mitchell tvímenningur og urðu
úrslit kvöldsins eftirfarandi:
N/S-riðill
Anna Guðlaug Nielsen - Guðlaugur Nielsen 117
Karl Zóphaníasson - Unnar Jóhannesson 106
PéturAstbjartsson-GylfiÁstbjartsson 105
A/V-riðill
Álfheiður Gísladóttir—Pálmi Gunnarsson 130
ElínBjamadóttir-ÓfeigurFreysson 97
Magni Þórðarson—Ingþór Kristjánsson 97
Á hverju sunnudagskvöldi er spila-
kvöld byijenda í húsi BSÍ í Sigtúni
9. Ávallt er spilaður einskvölds tví-
menningur og hefst spilamennskan
kl. 19.30.
Bridsfélag Akureyrar
Nú er lokið 17 umferðum af 27 í
Akureyrarmótinu í tvímenningi. Staða
efstu para er nú sem hér segir:
MagnúsMagnússon-JakobKristinsson 220
Pétur Guðjónsson - Anton Haraldsson 164
Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 132
PállPálsson-ÞórarinnB.Jónsson 104
Reynir Helgason - Siprbjöm Haraldsson 99
Skúli Skúlason - Stefán Stefánsson 94
í Sunnuhlíð er nú spilað á vegum
bridsfélagsins á hverju sunnudags-
kvöldi. Síðastliðið sunnudagskvöld
urðu þeir Ormar Snæbjörnsson og
láta slag standa þar til mamma
hans sýnir honum blaðagrein um
axarmorðingjann dularfulla sem
drepur eiginmenn sína, skiptir um
nafn og giftist svo þeim næsta.
Charlie fær besta vin sinn Tony,
sem starfar í lögreglunni, til að
grenslast fyrir um axarmorðin og
ekki líður á löngu þar til Tony kemst
á sporið. En það er of seint í rass-
inn gripið því Charlie og Harriet
eru í brúðkaupsferð á afskekktu
hóteli uppi í sveit.
Sveinn Pálsson efstir með 134 stig. í
öðru til þriðja sæti urðu Jakob Krist-
insson og Kristján Guðjónsson annars
vegar og Reynir Helgason og Sigur-
björn Haraldsson hins vegar.
Eins og þegar hefur komið fram í
bridsdálkum dagbiaðanna þá heldur
Soffía Guðmundsdóttir opðið afmælis-
mót dagana 27. og 28. nóvember.
Skráning í mótið stendur nú yfír og
henni lýkur laugardaginn 20. nóvem-
ber. Hægt er að skrá sig á skrifstofu
BSÍ og á Akureyri hjá Frímanni Frí-
mannssyni, Hermanni Tómassyni eða
Páli Jónssyni.
Bridsfélag Suðurnesja
Lokið er tveimur kvöldum af fjórum
í hraðsveitakeppni, sem er minningar-
mót um Guðmund Ingólfsson. Sveit
Þorgeirs Vers Halldórssonar tók af-
gerandi forystu í mótinu sl. mánudag
en þá fékk sveitin risaskor eða 663
en meðalskor ,er 540.
Efstu sveitir eftir tvö kvöld:
Þorgeir VerHalldórsson 1.281
Jóhannes Sigurðsson 1.232
V alur Símonarson 1.181
Gunnar Guðbjörnsson 1.179
Eins og fyrr sagði var sveit Þor-
geirs með langhæstu skorina sl. mánu-
dag. Sveit Jóhannesar Sigurðssonar
var með 607 stig og sveit Gunnars
Guðbjörnssonar var með 593 stig.
Athygli vakti skor Sigfúsar Ingvason-
ar sem var með 550 en þar fara
óreyndir keppnisspilarar og er þetta
reyndar fyrsta keppnin sem a.m.k.
sumir þeirra taka þátt í.
Þriðja umferð verður spiluð nk.
Sigrún
Harpa átti
vænsta
diikinn
Höfn.
SLÁTRUN lauk hjá Kaupfé-
lagi Austur-Skaftfellinga á
Höfn í síðustu viku. Það
fækkaði í fjárstofninum um
25.586 einstaklinga sem að
meðaltali vógu 14,93 kg.
Besta meðalvigt þeirra er
lögðu til yfir 100 dilka kom
frá Múla III í Álftafirði en
hún mældist 17,27 kg.
Sláturfé fyrir utan kvóta var
gott, 2200 talsins og þau 34
tonn sem þar lögðust til fara
til útflutnings. Tekjur bænda
af þeirri framleiðslu eru ekki
umtalsverðar því í fyrra fengu
þeir um 160 krónur fyrir kílóg-
rammið. 4
Vænsti dilkurinn sem komið
var með til slátrunar reyndist
vera í eigu Sigrúnar Hörpu
Baldursdóttur í Bjarnanesi en
hann vóg 29,7 kg. Slátrun
stjórnaði Einar Karlsson á
Höfn.
- JGG.
■ SJÁLFSBJÖRG, landssam-
band fatlaðra, heldur námskeið um
kynlíf og hreyfihömlun dagana
27. og 28. nóvember nk. Fjallað
verður um tengsl fötlunar við til-
fínningalíf og sjálfsmynd, samlífs-
vandamál, líkamleg áhrif fötlunar í
á kynlíf, getnaðarvamir og kyn-
sjúkdóma, hjálpartæki kynlífsins
o.fl. Einnig verður boðið upp á hóp-
efli. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra
og hópstarf. Námskeiðið er ætlað
hreyfíhömluðu fólki. Makar/sam-
býlisfólk er einnig velkomið. Meðal
fyrirlesara eru Einar Hjörleifsson
sálfræðingur, Erla Jónsdóttir fé-
lagsráðgjafí, Jóna Ingibjörg Jóns-
dóttir hjúkrunar- og kynfræðingur
og Rannveig Pálsdóttir læknir.
Hreyfihamlaðir einstaklingar fjalla
um viðhorf til náinna samskipta og
kynlífs. Námskeiðið verður haldið í
húsnæði Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra í Reykjadal i Mosfellssveit.
Námskeiðsgjaldi verður stillt í hóf
og þátttakendur utan Stór-Reykja-
víkursvæðisins eru styrktir til þátt-
töku. Tilkynna þarf þátttöku fyrir
mánudaginn 15. nóvember til Lilju
Þorgeirsdóttur félagsmálafulltrúa
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra. Þar fást einnig nánari upplýs-
ingar um námskeiðið.
mánudagskvöld í Kristínu og hefst
spilamennskan kl. 19.45. Fjórða og
síðasta umferðin verður mánudaginn
15. nóvember en þá verða spiluð 20
spil og aðalfundur félagsins haldinn í
miðjum klíðum.
Bridsdeild Rangæinga
Hraðsveitakeppni félagsins er hafm
og er staða efstu sveita þessi eftir ?.
fyrsta kvöld:
Baldur Guðmundsson 462
Pálmi Steinþórsson 458
Lilja Halldórsdóttir 456
IngólfurJónsson 441
Norðurlandsmót eystra í
tvímenningi
Norðurlandsmót eystra í tvímenn-
ingi 1993 verður haldið í Hamri, Akur-
eyri (Félagsheimili Þórs), laugardag-
inn 13. nóvember og hefst kl. 10.
Spilaður verður barómeter með forg-
jöf. Þátttökugjald er 3.000 kr. fyrir
parið og greiðist á staðnum. Keppnis-
stjóri verður Páll H. Jónsson.
Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 20
fimmtudaginn 11. nóvembertil: Hauks
Jónssonar, hs. 25134, vs. 11710, fax
11148, eða Jakobs Kristinssonar, hs.
24171.
Jón Ben - Jón Bjarki
I frétt af hraðsveitakeppni BSA í
blaðinu sl. fimmtudag var rangt farið
með nafn á sveit. Sveit Jóns Ben frá
Egilsstöðum varð í 5. sæti með 974 .
stig. Sveitin var rangfeðruð - sögð
sveit Jóns Bjarka.
Morgunblaðið/Kristinn
Afram Hafnarfjörður
BÆJARYFIRVÖLD í Hafnarfírði stóðu að eins dags ráðstefnu um at-
vinnu- og byggðir í Hafnarfirði fyrir skömmu. Tilgangur ráðstefnunnar
var að efla umræður meðal fyrirtækja og annarra aðila í atvinnurekstri
í bænum. Var meðal annars rætt um atvinnumál frá sjónarhóli bæjaryfír-
valda, atvinnulífíð og möguleikar til sóknar, nýsköpun í atvinulífinu, fyrir-
tækjanet og viðhorf atvinnurekenda.