Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 14
14 B
H
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn sungu nokkur lög til heiðurs afmælisbarn-
inu og sér og öðrum gestum til ánægju.
AFMÆLI
Sungið fyrir Þorgerði
Þorgerður Ingólfsdóttir kór-
stjóri varð fímmtug s.l. föstudag.
Af því tilefni tók hún ásamt eig-
inmanni sínum Knut Odegárd á
móti gestum í Perlunni. Margt var
um manninn enda Þorgerður búin
að stjóma kór Menntaskólans við
Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórnum
í rúman aldarfjórðung. Sungur
kóramir nokkur lög af þessu til-
efni og gamlir kórffélagar tóku
hraustlega undir.
Knut Odegárd og Þorgerður
Ingólfsdóttir ásamt foreldrum
hennar, Ingu Þorgeirsdóttur
og Ingólfi Guðbrandssyni.
GLENS
Uppákoma
í Hard Rock
SVOKALLAÐIR „Halloween-
dagar“ voru haldnir í Hard
Rock Café í Kringlunni um
síðustu helgi.
Fékk starfsfólkið senda bún-
inga frá Bandaríkjunum,
þaðan sem siðurinn er upprann-
inn.
Starfsfólkið ásamt förðunar-
meistaranum. F.v. Margrét
Valdimarsdóttir, Ásta Haf-
þórsdóttir, Margrét Jónsdótt-
ir, Nicola Gerber, Ingvar Þór
Geirsson, Jóhanna Karlsdóttir.
Morgunnblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Alfons
Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir „söngkona“ tekur hér við hijóð-
nemanum úr hendi Sigríðar Beinteinsdóttur söngkonu Stjómarinnar.
MANNFAGNAÐUR
Gaman að
syngja með
Siggu
Beinteins
HLJÓMSVEITIN Stjórnin hélt
fyrir skömmu tvo dansleiki í
félagsheimilinu Klifi á Ólafsvík.
Var fyrri dansleikurinn haldinn
fyrir bömin í bænum og var
hann mjög vel sóttur, enda er Sig-
ríður Beinteinsdóttir söngkona
hljómsveitarinnar í miklu uppá-
haldi hjá börnunum. Nokkur börn
fengu að syngja með hljómsveit-
inni og þótti þeim það mikil lífs-
reynsla.
ÆSKA
Atta ára og býr
til myndasögur
ÞRÁTT fyrir að Sigurður Hólm sé aðeins tælplega níu ára segist
hann ætla að gefa út teiknimyndasögu fyrir jólin. Hann hefur
samt ekki ákveðið hvað á að prenta hana í mörgum eintökum.
„Það verður alla vega ekki eins mörg blöð og Andrésblöðin," sagði
hann þegar blaðamaður heimsótti hann á Hjallaveginn.
Sagan íjallar um Lúlla, sem fer
að leita að Paradís og lendir
í hinum ýmsu ævintýrum. Leið
hans liggur til útlanda, þar sem
hann fer meðal annars inn í pýr-
amída og í höll, svo eitthvað sé
nefnt. Sigurður segist ekki ákveða
fyrirfram hvernig sagan á að vera
heldur semur hann um leið og
hann teiknar. Þegar hann er
spurður hvort vinir hans hafí séð
söguna svarar hann: „Kannski
bara Hlynur, en mér finnst best
að teikna einn á kvöldin áður en
ég fer að sofa.“
Sigurður er í 4VÓ í Langholts-
skóla en var áður í ísaksskóla.
Hann byijaði á sögunni um Lúlla
í september og er að vísu bara
kominn á þriðja kafla, en hefur
hugsað sér að þeir verði töluvert
fleiri, þannig að hann verður að
láta hendur standa fram úr ermum
ef markmiðið á að nást.
— Hvernig datt þér í hug að
búa til söguna?
„Mér datt hún í hug þegar ég
var að lesa Andrésblað.“
— Hefurðu teiknað fleiri sögur?
„Já, ég hef teiknað sögur eins
og Hvar er Valli? nema mín saga
heitir Hvar er Skralli núna?“ Og
Sigurður sýnir blaðamanni stór
blöð, sem hann hefur teiknað fullt
af köllum inn á ásamt mörgum
öðrum hlutum. Síðan á að finna
Skralla innan um alla hina kallana.
Sigurður hefur ekki bara gaman
af að teikna heldur á hann heilt
Legokubbaþorp, sem hann hefur
byggt á mörgum árum. „Mér
fínnst líka gaman að horfa á
myndbönd og svo æfí ég fótbolta
með 6. flokki í Þrótti,“ segir hann
pg bætir við með stolti: „Þeir urðu
íslandsmeistarar í öllum flokkum
í sumar.“
F.v. Karen, Helga og Birta belgja sig út og blása.
TILVIUUN
Þrjár bekkjarsystur
eiga afmæli sama dag
HELDUR óveiýuleg afmælisveisla var haldin í Reykjavík um síð-
ustu helgi, þrjár bekkjarsystur, þær Helga Harðardóttir, Karen Sif
Kristjánsdóttir og Birta Benónýsdóttir eiga allar afmæli sama dag-
inn, 31. október, og héldu sameiginlega veislu fyrir bekkjarsystkini
sín heima hjá Helgu. Stúlkurnar urðu allar sjö ára.
að gekk ekki lítið á, enda á
þriðja tug barna í bekknum
2EH í Austurbæjarskóla. Ekki
kom annað til greina en að öllum
yrði boðið. Það voru því slegnar
þrjár flugur í einu höggi og veisl-
an haldin þar sem húsrúm var
mest.
Borðhaldið var líflegt sem vænta mátti.