Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 12
12 C dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
Margar útgáfur
af Jólasögu
Á ÞEIM 150 árum sem liðin eru síðan Charles Dickens skrifaði Jóla-
sögu, eitt vinsælasta jólaævintýri síðari tíma, hafa ótal útgáfur verið
gerðar af því bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús. Dickens skrifaði
leikritið árið 1843, gerði sjálfur leikkgerð af sögunni og en fyrst birt-
ist hún á hvíta tjaldinu árið 1908. Síðan hafa verið búnir til söngleik-
ir, teiknimyndir, sjónvarpsmyndir, kvikmyndir og jafn vel kúreka-
mynd með James Stewart í aðalhlutverki, byggðar á sögunni. í ný-
legu hefti blaðsins People var gerð úttekt á nokkrum þessara mynda.
150 ár eru
síðan Charles
Dickens
skrifaði eitt
vinsælasta
jólaævintýri
seinni tíma,
Jólasögu, sem
fjallar um
nirfilinn
Skrögg
I myndinni Jólasögu sem gerð var
árið 1951 er nískupúkinn Skröggur
af gamla skólanum,
hvorki syngjandi
né dansandi. Það
er Alastair Sim
sem leikur Skrögg
og þykir hann mjög
breskur í meðförum
hans. Er þetta talin
vera ein besta end-
urgerðin á sögunni
sem gerð hefur verið.
Árið 1979 lék
Henry Winkler í
bandarískri útgáfu af
Jólasögunni og hét hún
þá Bandarísk jólasaga.
Sagan var látin gerast
í Nýja Englandi á árum
kreppunnar miklu og
segir í tímaritinu að ekki
sé mikið varið í þessa
útgáfu.
Fyrsta tónlistarútgáfan
af Jólasögu var sýnd á
NBC sjónvarpsstöðinni í Band-
aríkjunum árið 1956. Það var Basil
Rathbone sem söng hlutverk nirfils-
ins.
Teiknimyndin Jólasaga hr. Mago-
os var upphaflega gerð fyrir sjónvarp
árið 1962. Þessi klukkustundar langa
mynd breytir verulega út af sög-
unni, en tónlist Jules Stynes og Bobs
Merrills gerir hana að einni bestu
teiknimyndaútgáfunni.
en
Brúðulelkur -
Kermit frosk-
ur og Michael
Caine í hlut-
verkum sín-
um í Jólasögu
prúðuleikar-
anna.
Brúðuút-
gáfa af Jóia-
sögu hefur
auðvitað
verið gerð
og þar er
Prúðu-
leikur-
unum
blandað
saman við leik-
ara af holdi og blóði. Myndin
var gerð árið 1992 og ber nafnið
Jólasaga prúðuleikaranna og var
aðalhlutverkið í höndum Michaels
Caines.
Kvikmynd var gerð eftir sögunni
árið 1988 og hét hún einfaldlega
Skröggur. Gamanleikarinn Bill
Murray lék titilhlutverkið en með
aukahlutverk fóru ýmsir þekktir leik-
arar, svo sem Lee Majors og fímleika-
drottningin Mary Lou Retton.
hr-
sogunni
«S"“ð áðUr 8“'
Sígild - Jólasaga sem gerð var árið 1951 þykir sígild.
Kreppa - Henry Winkler í hlut-
verki sínu í Bandarískri jólasögu.
FÓLK
■ Richard Dysart, leikarinn
góðkunni út þáttunum Lagakrók-
um, segir að fólk leiti oft til sín
með lögfræðileg
vandamál, þótt
hann sé ekki lög-
fræðingur að
mennt. Hann segir
fólk gera lítinn
greinarmun á sér
og persónu sinni í
þáttunum, en þar
leikur hann Leland
McKenzie, einn
eigenda lög-
mannastofunnar. Dysart, sem er
64 ára, segir að eitt sinn hafi meira
að segja nágrannakona hans leitað
eftir ráðum til að losna við leigj-
anda. Þegar Dysart benti henni á
að hann væri ekki lögfræðingur og
gæti því ekki ráðlagt henni svaraði
hún að bragði: „Ég veit það vel,
en þú umgengst lögfræðinga.“
Jafnvel lögfræðingar eiga það til
að ruglast í ríminu, segir hann.
„Alltaf þegar ég er að tala við lög-
fræðinga tala þeir við mig eins og
ég skilji hvað þeir eru að ræða um.“
■ Andy Garcia
keypt sér nýtt hús.
Hingað til hefur
hann búið í rúm-
góðu húsi í San
Fernando dalnum
rétt utan við Los
Angeles en hann
festi kaup á villu
fyrir litlar tvær
milljónir dollara,
eða um 140 millj-
ónir króna.
Matt Roth og Laurie Metcalf
■ Systir Roseanne í samnefnd-
um þáttum, leikkonan Laurie
Metcalf, eignaðist son nýlega. Fað-
ir drengsins, sem hefur hlotið nafn-
ið Will Theron, er sambýlismaður
hennar og fyrrum kærasti í þáttun-
um, leikarinn Matt Roth.
■ Meira um Roseanne. Ný leik-
kona hefur verið valin til að leika
Becky, elstu dótturina í þáttunum,
og hefur ekki mikið farið fyrir skipt-
unum. Lecy Goranson hætti í þátt-
unum á síðasta ári til þess að fara
í háskóla. Hún gafst upp á því og
hefur nýlega
Garcia
Lecy Goranson og Sarah Chalke
er flutt aftur til Los Angeles. Hin
nýja Becky heitir Sarah Chalke.
Hún er 17 ára gömul og býr í
Vancouver í Kanada. Hún flýgur
á milli heimaborgar sinnar og Los
Angeles, þar sem þættirnir eru
teknir upp, og hingað til hafa for-
eldrar hennar ekki viljað að hún
baðaði sig í sviðsljósinu vegna anna
við ferðalög.
■ Sean Penn leikari, handrita-
höfundur, leik-
stjóri og fyrrum
eiginmaður Ma-
donnu, segist hafa
snúið baki við leik-
listinni. Talsmaður
Penns segir að
ákörðunin hafi
verið erfið, hann
hafí bara meira
gaman af því að
skrifa og leikstýra.
Næsta verkefni sem liggur fyrir
kappanum er að leikstýra Robin
Wright og Jack Nicholson í mynd-
inni „The Crossing Guard.“
Penn
■ Það þurfti talsverða skipu-
lagningu til þess að farða tvíbur-
ana, sem skiptu á milli sín hlut-
verki Puberts litla
í nýjustu myndinni
um Addams-§ö-
skylduna, en hún
var frumsýnd ný-
lega hér á landi.
Kaitlyn og Krist-
en voru rétt fimm
mánaða gamlar
þegar þær léku
myndinni. Móðir
þeirra segir förð- Kristen
unina hafa verið skipulagða af vís-
indalegri nákvæmni en í myndinni
var sett svart gel í hárið og auga-
brúnir á börnunum, þau förðuð með
hvítum farða og lokst límt á þau
yfírvaraskegg. „Fyrst var hárið
greitt,“ segir móðirin. „Þá lögðu
börnin sig. Á meðan þau voru sof-
andi var farðinn settur á, augnbrún-
irnar málaðar og loks skeggið límt
á.“ En þrátt fyrir torkennilegt út-
lit, slógu litlu leikararnir í gegn hjá
aðstandendum myndarinnar og
vöktu mikla athygli á meðan á upp-
tökum stóð.
BIOIIM I BORGINIMI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Fanturinn ★★Vi
Hið illa og góða togast á í tveimur
drengjum með voveiflegum afleiðing-
um. Góð afþreying þótt hún risti
grunnt.
Tveir á vaktinni ★ ★ V2
Um flest lík fyrri myndinni um lögg-
urpar seinheppnu. Engu að síður fram-
bærileg afþreying.
Rísandi sól ★ ★ V2
Philip Kaufman breytir metsölubók
Michaels Crichtons í of veigamiklum
atriðum til að myndin hans verði
spennandi en ekkert er til sparað og
hún er ágætlega kvikmynduð og leik-
urinn er góður.
Tina ★ ★ ★ Vi
Stormasamri sambúð Tinu og Ike
Tumers gerð glimrandi góð skil í þess-
ari frábæru ævisögulegu mynd um
„ömmu rokksins“. Leikararnir góðir
en Laurence Fishbume er stórkostleg-
ur sem karlrembusvínið Ike.
BÍÓHÖLLIN
Nýliði ársins ★ ★V2
Lítil og notaleg fjölskyldumynd um
dáðadreng í hafnabolta.
Líkamsþjófar ★★
Ný útgáfa „The Invasion of the Body
Snatchers“ hefur engu við að bæta
sína frægu forvera.
Flóttamaðurinn ★ ★ ★
Dr. Kimble, flóttamaðurinn frægi frá
árdögum sjónvarpsins, mættur til leiks
í nýjum búningi. Tekst enn á ný eink-
ar vel að hafa ofanaf fyrir áhorfend-
um.
Fyrirtækið ★ ★ V2
Ungur lögfræðingur blindast af gróða-
von um sinn. Langdregin, brokkgeng
en óaðfinnanleg útlits. Betri skemmt-
un þeim sem enn hafa ekki lesið bók-
ina.
Strákapör ★ ★ V2
Skemmtileg drengjamynd um stráka
sem leika hornabolta allan liðlangan
daginn og lenda í ævintýrum þegar
boltinn fer inn í garð nágrannanns.
Einu sinni var skógur ★ ★
Falleg teiknimynd með umhverfis-
vænu yfírbragði um lítil skógardýr
sem takast á hendur langt ferðalag.
Skógarlíf ★★★
Ein af gömlu Disneyperlunum segir
frá ævintýraferð drengsins Mógla úr
frumskóginum til mannabyggða.
Gamansemi og íjör allan tímann.
Tveir á vaktinni: Sjá Bíóborgina
HÁSKÓLABÍÓ
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Ungu Ameríkanarnir ★★
Nýir og verri tímar í undirheimaveröld
Lundúnaborgar aðallega vegna áhrifa
frá Bandaríkjunum. Einfeldningsleg
heimsmynd í stílfærðri breskri hasar-
mynd með lagi Bjarkar Guðmunds-
dóttur.
Hetjan ★V2
Basinger misráðin í bankaræningja-
hlutverk í linkulegri hasar- og spennu-
mynd. Terence Stamp og Val Kilmer
bjarga engu.
Indókina ★ ★ ★
Falleg, hádramatísk, frönsk stórmynd
um miklar ástir og umbrot í Indókína
undir Frökkum. Catherine Deneuve
ógleymanleg.
Rauði lampinn ★★★
Fínleg, döpur en minnisstæð mynd um
tilgangslitla jafnréttisbaráttu kvenna
gegn karlaveldinu í Kína.
Jurassic Park ★ ★ ★ V2
Ein af eftirminnilegu myndunum hans
Stevens Spielbergs hefur átt geysileg-
um vinsældum að fagna erlendis og
byijaði með látum hér heima. Stór-
kostleg ævintýramynd og ein af fáum
í seinni tíð sem er virkilega nauðsyn-
legt að sjá.
LAUGARÁSBÍÓ
Fullkomin áætlun ★ ★
Ef ekki hefði verið fyrir margumtalað
„hraðbrautaratriði" hefði þessi meðal-
unglingamynd um félaga í háskólaliði
í ruðningi fljótlega fallið í gleymskunn-
ar dá. Þriðji þátturinn ágætur og Caan
er góður sem þjálfarinn.
Launráð ★★
Heldur daufleg frönsk mynd um tvo
leigumorðingja með tveimur af þekkt-
ustu leikurum Frakka í aðalhlutverk-
um. Philippe Noiret ber ægishjálm
■yfir Christopher Lambert.
Hættulegt skotmark ★ ★ V2
Ofbeldið er sett ofar öllu í andstyggi-
legri en spennandi drápsmynd.
Prinsar í L.A. ★★
Oft skopleg endaleysa um bræður tvo
sem komast að því að þeir eru í raun-
inni prinsar í fjarlægu ríki.
REGNBOGINN
Spilaborg ★★
Ung stúlka bregst undarlega við ári
eftir að hún missir föður sinn. Athygl-
isvert efni fær alvöruþrungna með-
höndlun en máttlitla.
Svik ★
Áströlsk della um tryggingasvik og
vafasama karaktera. Myndin er nán-
ast svik við kröfuharða áhorfendur.
Hin helgu vé ★ ★ V2
Lítil og ljúf mynd um fyrstu reynslu
sjö ára drengs af ástinni og afbrýð-
inni. Yngstu leikararnir fara á kostum.
Óvenjuleg mynd frá Hrafni.
Píanóið ★★★
Einkar vel gerð og leikin nýsjálensk
verðlaunamynd um mállausa konu
sem kynnist ástinni í óbyggðum og
píanóið sem verður örlagavaldurinn í
lífi hennar. Gott mál.
SAGABÍÓ
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Dave ★ ★ ★
Tvífari forsetans gerist umsvifamikill
í Hvíta húsinu. Lengst af vel skrifuð,
bráðfyndin gamanmynd með ádeilu-
broddi. Kevin Kline og Frank Langella
í toppformi.
STJÖRNUBÍÓ
Hrói höttur: Karlmenn í sokkabux-
um ★★
Mel Brooks virðist fallinn fyrir ofur-
borð meðalmennskunnar en hér tekur
hann á goðsögninni um Hróa hött, sem
vissulega á það skilið.
Eg giftist axarmorðingja ★★
Rómantísk gamanmynd sem tekur
undarlega beygju í lokin og lendir
mjög utan vegar. Ágætir aukaleikarar
gera meira fyrir myndina en myndin
fyrir þá.
Svefnlaus í Seattle ★★★
Einkar aðlaðandi rómantísk gaman-
mynd um samdrátt manns og konu
sem teygir sig þvert yfír Bandaríkin.
Full af húmor og skemmtiiegheiturn
varðandi ástina og hjónalífíð.