Morgunblaðið - 17.12.1993, Blaðsíða 1
HEIMILI
JH**gmiÞIafeffe
FOSTUDAGUR17. DESEMBER1993
BLAÐ
liflegnr
fasteigna-
markaóur
Að öllum jafnaði eru fast-
eignaviðskipti með
minnsta móti íkringum jól og
áramót. Fasteignamarkaðurinn
virðist hins vegar með allra Iff-
legasta móti nú. Af fjölda um-
sókna um húsbréfalán að dæma
eru óvenju margir að hugsa um
íbúðarkaup miðað við árstíma.
Þetta kemur m. a. fram í þætti
Grétars J. Guðmundssonar um
markaðinn. Þar segir, að fjöldi
umsókna í desember stefni í að
verða sfzt minni en verið hefur
á öðrum tímum þessa árs. Það
fari ekki á milli mála, að vaxta-
lækkunin að undanförnu hefur
aukið bjartsýni fólks. ^
Byggingarvisitala
Hækliun
mest á
dúlcalögn
Verðhækkanir í starfsgrein-
um byggingariðnaðarins
hafa verið mjög mismunandi
frá því í desember 1991, ef
marka má teikninguna hér til
hliðar, en þar er miðað við
hækkanir samkvæmt bygging-
arvfsitölu. Vinnuliðir eins og
ýmis verkamannavinna hafa
hækkað minnst, en hún hefur
aðeins hækkað um 1,5% á
þessum tíma og næst kemur
húsasmíðavinna, sem hefur
hækkað um 2,5%. Önnur vinna
hefur hækkað mun meira.
Þannig hefur málun hækkað
um 6,3% og pípulögn um 7,7%,
en dúkalögn og veggfóðrun
hafa hækkað mest eða um
8,8%.
Að meðaltali hafa verðhækk-
anir í starfsgreinum byggingar-
iðnaðarins verið um 4,4% á
þessum tíma. Þess ber þó að
geta, að þessir liðir hafa mis-
munandi mikil áhrif á bygg-
ingarvísitöluna. Þannig er vægi
húsasmíði 28,4% en vægi
ýmiss konar verkamannavinnu
er einungis 4,5%.
(Heimild: Hagtíðindi)
Hækkun
einstakra
þátta
byggingar
vísitölunnar
77% 1991-93
6,3%
5,2%
•S..C
4,3%
E
« (B
2,5%
Vægi einstakra þátta
Húsasmlðl 28,4
Múrverk 28,2
Raflógr. 5,5
Pípulögn 5,4
Málun 5,4
Teikningar 5,0
Opinber gjökl 5,0
Verkstjórn og ýmis verkam.v. 4,5
Aörirliðir 12,6
Frágangur lóðar 3,9
Dúkaiógn og veggfóðmn 3.7
Vélavinna, akstur, uppfylling 2,7
BJikk- og jámsmlði 1,4
Ýmislegt 0,9
BYQQINQARVÍSITALAN 100,0
4,9% 4,9% s-°*
4,4%
Hljóm-
buróur í
byggmgum
Samofin hönnun hljómburðar
og hljóðkerfa er orðin mik-
ilvægur þáttur í gerð allra stærri
bygginga nú á dögum. Hér á
landi hefur fyrirtækið Hljóð hf.
í Reykjavík látið mikið að sér
kveða á þessum vettvangi, en
starfsemi þess nærtil alhliða
hljóðtækni- og raftækniráðgjaf-
ar og fyrr á þessu ári hlaut fyrir-
tækið alþjóðleg verðlaun fyrir
hljóðtæknilega hönnun í Perl-
unni í Öskjuhlíð. Var þar um að
ræða sameiginlega hönnun á
hljóðtæknilegum eiginleikum og
hljómburði í byggingunni auk
allra hljóðtæknilegra kerfa þar.
í viðtali hér í blaðinu í dag við
þá Stefán Guðjohnsen og Hann-
es Sigurðsson, raftækni-
fræðinga hjá Hljóði
hf., erfjallað um
hljómburð í
byggingum.