Morgunblaðið - 17.12.1993, Qupperneq 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGINilR FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1993
ivivjivviuínu ru'mr u mm■ ■ m
Góónr liljóiiibui'óni'
fforsenda réttrar nýl-
ingar á byggingum
— segja hljóótæknifræöingarnir 8tefán
Guójohnsen og Hannes 8igurósson
SAMOFIN hönnun hljómburðar og hljóðkerfa er orðin
mikilvægur þáttur í gerð allra stærri bygginga nú á dög-
um. í sumum byggingum er gott hljóðkerfi forsenda yfir
því, að unnt sé að nota þær í þeim tilgangi, sem þeim er
ætlaður. Þetta á við um tónleikahallir, kirkjur og leikhús,
þar sem hljómburðurinn skiptir höfuðmáli en einnig við
um aðrar byggingar, þar sem margir koma saman t. d.
skólabyggingar og veitingahús. Hljómburður skiptir líka
miklu máli í margs konar atvinnuhúsnæði. Verksmiðjuháv-
aði getur verið svo ærandi, að hann valdi heyrnarskaða,
ef ekkert er að gert. Góð einangrun á milli íbúða og milli
hæða þykir mikill kostur í fjölbýlishúsum nútímans og í
skrifstofu- og þjónustubyggingum þarf fólk að geta unnið
í friði ótruflað af hávaða, hvort heldur utan af götu eða
annars staðar frá í sömu byggingu.
Fyrirtækið Hljóð hf. í Reykjavík
hefur látið mikið að sér kveða
á þessum vettvangi hér á landi, en
starfsemi þess nær til alhliða hljóð-
tækni- og raftækniráðgjafar. — I
_ því felst allt, sem
varðar byggingar-
hljóðtækni eða
“akústík“ eins og
það er kallað á
erlendum tungu-
málum, sagði
Stefán Guð-
eftir Magnús johnsen, rafeinda-
Sigurðsson tæknifræðingur
og eigandi Hljóðs hf. í viðtali við
Morgunblaðið. — Með þessu er í
fyrsta lagi átt við alls konar hljóm-
burðarútreikninga og ráðgjöf um,
hvemig hanna eigi byggingar til
þess að fá réttan hljómburð miðað
við fyrirhuguð not. I öðru lagi nær
þetta til hljóðeinangrunar, þegar
koma þarf í veg fyrir, að hávaði
berist frá einum stað til annars í
sömu byggingu, en það tengist
einnig hljóðdeyfingu og hljómburði.
— Fyrir utan þetta önnumst við
hjá Hljóði hf. hönnun á hljóðkerfum
og hvers konar hijóðbúnaði tengd-
um flutningi af tónlist, tali og öðru
slíku og raunar höfum við teygt
okkur enn lengra og veitt ráðgjöf
varðandi hvers konar rafeindakerfi
í byggingum.
Verðlaun fyrir Perluna
Fyrr á þessu ári hlaut Hljóð hf.
alþjóðleg verðlaun fyrir hljóðtækni-
lega hönnun í Perlunni í Oskjuhlíð,
en hönnuður þeirrar byggingar var
Ingimundur Sveinsson arkitekt.
Var þar um að ræða sameiginlega
hönnun á hljóðtæknilegum eigin-
leikum og hljómburði í byggingunni
auk allra hljóðtæknilegra kerfa þar.
Hljóð átti hér í samkeppni við mörg
leiðandi hljóðtæknifyrirtæki á al-
þjóðavettvangi. Þeir, sem unnu að
þessu verkefni á vegum Hljóðs,
voru auk Stefáns Guðjohnsens, sem
stjórnaði verkinu, þeir Hannes Sig-
urðsson og Viðar Geirsson. Hannes
er rafeindatæknifræðingur eins og
Stefán og báðir hafa þeir gert raf-
eindatækni og hljóðtækni að sinni
sérgrein. Viðar vann sem aðstoðar-
maður m. a. við gerð AudoCad-
teikninga.
Perlan er eins og allir vita mikið
hús og það er opið alveg frá kjallara
upp á efstu hæð með misstórum
opum á milli hæða. Þar af leiðandi
berst hljóð mjög auðveldlega frá ein-
um hluta hússins til annars. Bygg-
ingin er þar að auki nær eingöngu
úr steini, gleri og málmi, sem öll eru
mjög hörð efni, eins og kallað er á
fagmáli. Þetta er mjög neikvætt
fyrir góðan hljómburð, því að harðir
fletir hafa í för með sér langan
ómtíma, en ómtími hljóðs er sá tími,
sem líður frá því að hljóð myndazt
og þar til það deyr út.
Með sérstökum ráðstöfunum
tókst þeim félögum engu að síður
að skapa mjög góðan hljómburð í
Perlunni. Þetta var m. a. gert með
því að hafa ómtímann á fyrstu og
fimmtu hæð það langan, að tónlist
og söngur gætu notið sín en jafn-
framt það stuttan, að talað mál
skiljist vel.
Allt hljóðkerfi Perlunnar er tölvu-
stýrt og hefur stýrikerfið yfirum-
sjón með öllum þáttum hljóðkerfis-
ins svo sem hljóðblöndun, staðsetn-
ingu hljóðgjafa, hljóðnemum fyrir
uppköll, leiðum þeim, sem hljóðið á
að berast, uppköllum, bakgrunn-
tónlist, neyðartilkynningum, o. fl.
Þetta hljóðkerfið vaktar sig sjálft
alsjálfvirkt.
Ónnur nýbygging, þar sem þeir
félagar, Stefán og Hannes, komu
við sögu er nýja Morgunblaðshúsið,
en hönnuður'þeirrar byggingar var
Helga Gunnarsdóttir arkitekt. —
Vinnan þar var mjög markviss og
byrjað á því að kanna allar grund-
vallarforsendur, segir Stefán. —
Húsið er byggt í umhverfi, þar sem
ríkir mikill hávaði frá bílaumferð og
jafnvel loftumferð líka. Við byijuð-
um á því að grafa prufuholur í berg-
ið undir núverandi nýbyggingu og
mæla titring annars vegar frá um-
ferðarþunganum úti á Reykjanes-
braut og hins vegar frá prentvélan-
iðnum í prentsmiðjunni. Þetta var
nauðsynlegt til þess að fínna út,
hvað valda kynni hávaða í nýbygg-
ingunni. Á grundvelli þess var síðan
ákveðið að skilja að nýbygginguna
og prentsmiðjuna, sem áður var
MorgunblaðiðSverrir
Hannes Sigurðsson og Stefán Guðjohnsen. Mynd þessi er tekin í Grafarvogskirkju, en fyrsti áfangi hennar var
vígður sl. sunnudag. Þeir Hannes og Stefán hönnuðu hljómburðar- og hljóðkerfi kirkjunnar, sem reynzt hefur
mjög vel og notuðu þar m. a. tölvuforrit, sem gerir það kleift að sjá öll endurköst á hljóði frá einum stað til annars.
komin upp, til þess að draga úr yfír-
færslu á titringi frá vélunum í prent-
smiðjunni yfír í nýbygginguna. Þetta
eru því í rauninni tvær aðskildar
byggingar, í stað þess að vera ein
bygging steypt saman vegg í vegg.
Við þurftum líka að ákveða,
hvers konar gler ætti að vera í
byggingunni, en glerið deyfír hljóð.
í sama tilgangi ákváðum við, að
komið skyldi upp hljóðmön um-
hverfís húsið til þess að minnka
umferðarhávaða. Ennfremur var
lögð afar mikil áherzla á að hljóð-
deyfa hin ýmsu rými í húsinu. Þar
sem þar er um stór opin rými að
ræða, þar sem margir vinna, þá
voru þau hljódeyfð mjög vel og síð-
an hljóðeinangruð frá þeim stöðum,
þar sem einhver hávaði kann að
vera til staðar.
Sú spuming vaknar, hvort við
íslendingar séum á eftir á þessu
sviði. — Að mínu mati hefur þessum
þætti ekki verið nægilegur gaumur
gefínn í gegnum tíðina, segir Stef-
án. — Skilningur á nauðsyn á góðum
hljómburði í byggingum hér hefur
þó farið vaxandi. Sjálfur hef ég
starfað við ráðgjöf á þessu sviði í
fímmtán ár og Hannes hefur starfað
við þetta fyrirtæki í fímm ár.
Fjölnota íþróttahöll
— Við höfum glímt við margs
■
---------------------------.——W—'
Þeir Stefán og Hannes hafa m. a. séð um hönnun á hljómburði í hátíðasalnum í Selárskóla. Sá salur nýtist bæði fyrir kennslu og alls
konar uppákomur og leikstarfsemi í skólanum. Salurinn hentar jafnframt afar vel til flutnings á kammertónlist fyrir um 150 áheyrendur og
er sennilega með betri sölum, sem völ er á hér í borg í því skyni.
konar verkefni á þessu sviði á und-
anförnum árum og svo er að sjá,
sem þau fari vaxandi, heldur Stef-
án áfram. — Eitt áhugaverðasta
hljómburðarverkefnið, sem við
vinnum núna að, er íþróttahöllin á
Akureyri, en Akureyringar hafa
mikinn áhuga á að gera hana að
fjölnotahúsi, þannig að auk þess
að nota húsið sem íþróttahöll, verði
einnig hægt að nota það sem 1.000
manna sal fyrir klassíska tónlist
og sem 2.500 manna sal fyrir popp-
tónleika. Fjárhagsáætlun fyrir
þetta verkefni er nú í undirbúningi
og ekki ólíklegt, að það verði fram-
kvæmt í vor.
Höllin nýtur þess að hafa form,
sem er mjög hentugt fyrir tónleika.
Fyrir klassíska tónist verður salur-
inn stilltur á tvo vegu, annars veg-
ar fyrir symfóníutónlist og hins
vegar fyrir klassíska óperutónlist.
Þetta er gert með því að koma fyr-
ir lausum einingum. Við mjókkum
salinn og hagnýtum okkur það
bogadregna form, sem er á loftinu,
en breytum endurkasthorninu frá
því með þessum lausu einingum.
Það sem máli skiptir er að koma í
veg fyrir, að fólk skynji hljómburð-
inn eins og tvö hljóð. Þá verður til
bergmál og það er það, sem þarf
að forðast. í framtíðinni verður
vafalítið meira um það, að íþrótta-
húsin verði fjölnota hús og notuð
t. d. sem samkomuhús og tónlistar-
hús.
Þeir Stefán og Hannes vinna nú
að hönnun á hljómburði í þremur
nýjum kirkjum. Ein þeirra er Vídal-
ínskirkja í Garðabæ, en arkitekt þar
er Skúli Norðdahl. Hinar eru Grens-
áskirkja, en arkitekt þar er Jósef
Reynis og sú þriðja er Grafarvogs-
kirkja, en arkitektar þar eru þeir
Hilmar Þór Björnsson og Finnur
Björgvinsson. Á Akureyri vinna
þeir Stefán og Hannes að hönnun
á hljóðkerfí í Glerárkirkju og gert
er ráð fyrir, að það verði tekið í
notkun fyrir jól.
— Fyrsti áfangi af Grafarvogs-
kirkju var vígður á sunnudag og
að mati allra, sem á hlýddu, reynd-
ist hljómburður þar með ágætum,
segir Hannes, sem nú hefur orðið.
— Þessi kirkja er stórt hús og því
er þetta mjög krefjandi verkefni.
Þar notum við m. a. tölvuforrit,
sem gerir það kleift að sjá öll end-
urköst á hljóði frá einum stað til
annars. Pólskur heyrnartækni-
fræðingur, sem lengi hefur starfað
í Svíþjóð, hannaði þetta forrit, sem
nefnist Simul 3. Þetta forrit hefur
reynzt mjög vel og við notuðum
það einnig við hönnun á hljóm-
burði í Perlunni.
En við höfum líka hannað hljóð-
kerfi í kirkjur, sem eru með svo-
nefndum sjálfvirkum hljóðblöndur-
um. Þá þarf afar lítið til þess að
stjórna kerfinu, eftir að búið er að
stilla það. Þá er einungis kveikt á
einum hnappi og síðan sér hljóm-
kerfið sjálft um það sem eftir er.
Hannes var spurður að því, hvort
sumar opinberar byggingar væru
lítt hannaðar fyrir hljómburð? —
Það er nokkuð misjafnt, segir hann.
— Við höfurh unnið að hönnun og
endurbótum á hljómburði í nokkrum
skólum m. a. í hátíðasalnum í Selár-
skóla. Sá salur nýtist bæði fyrir
kennslu og alls konar uppákomur
og leikstarfsemi í skólanum. Salur-
inn hentar jafnframt afar vel til
flutnings á kammertónlist fyrir 150
áheyrendur og er sennilega með
betri sölum, sem völ er á hér í borg
í því skyni.
Þetta sýnir, að skilningur á þýð-
ingu góðs hljómburðar er mun meiri
hér en áður var. Við höfum líka
unnið að grunnhönnun og endurbót-
um á nokkrum íþróttahúsum með
tiliti til hljómburðar og hljóðdeyf-
ingar. Áður var meira um það, að
þá fyrst væri farið að gera eitt-
hvað, þegar vandamálið var komið-
í ljós. Nú er farið að leita lausna
fyrirfram.
í íþróttahúsinu í Grafarvogi og
íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í
Breiholti önnuðumst við hljóðtækn-
iráðgjöf í samráði við arkitektinn
Guðmund Þór Pálsson. Að okkar
ráði voru þar gerðar sérstakar ráð-
stafanir á göflum húsanna, sem
hefur í för með sér mjög jafna
hljóðdreyfingu og kemur í veg fyr-
ir endurkastshögg á milli gafl-
veggja.
Hannes víkur siðan að hávaða-
mengun á vinnustöðum og segir: —
Þar er víða pottur brotinn. Við ís-
lendingar höfum það samt fram
yfir mörg önnur lönd, að hér er lít-
ið um stóriðnað, en honum fylgir
gjarnan mikill hávaði, bæði út í
umhverfið og líka á vinnustöðunum
sjálfum. Yfirvöld hér á landi hafa
verið mjög virk á þessu sviði. Vinnu-
eftirlitð hefur t. d. mjög vandaðan
hljóðmælibúnað og mælir þar, sem
um er beðið til þess að greina vand-
ann og gefa leiðbeiningar, svo að
hávaðinn fari ekki yfír viss mörk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborg-
ar vinnur líka að því að mæla háv-
aðamengun á vinnustöðum og einn-
ig hávaðavandamál inni í íbúðar-
húsum jafnt sem hávaðaáreiti utan
frá. En þegar kemur að úrlausnum,
er gjarnan leitað til hljóðtækniráð-
gjafa.
Við hér höfum fengið mörg slík
verkefni. Nefna má, að þegar ís-
landsbanki flutti höfuðstöðvar sínar
í Hús verzlunarinnar, reiknuðum
við út og stjórnuðum nauðsynlegum
aðgerðum þar til hljóðdeyfingar og
hljóðeinangrunar, sem hafa reynzt
mjög vel.
Leita þarf lausna á
hönnunarstigi
En er þetta dýr þjónusta? — Hún
kann að virðast dýr, en með því
að leita lausna varðandi hljómburð
á hönnunarstiginu, verður við-
bótarkostnaðurinn af hljóðtækni-
legum aðgerðum sáralítill miðað
við þann kostnað, sem fylgir þeim,
ef þær eru framkvæmdar eftir á.
Þá geta þær kostað stórfé. Miðað
við þann ávinning, sem fæst af
réttri hljóðhönnun og tilheyrandi
ráðstöfunum, áður en ráðizt er í
byggingaframkvæmdir eða sam-
hliða þeim, þá er þetta því ekki
dýr þjónusta. Kostnaðurinn vegna
hennar er að mínu mati einungis
óhjákvæmilegur þáttur í bygginga-
kostnaðinum.
— Það er nánast regla nú út um
víða veröld, að hljómburðurinn eða
“akústíkin" er mikilvægur hluti af
hönnun á öllum meiri háttar bygg-
ingum, segir Hannes ennfremur. —
Þó má nefna einstök tilvik, þar sem
í íþróttahúsinu í Grafarvogi og iþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breið-
holti önnuðust þeir Stefán og Hannes hljóðtækniráðgjöf i samráði
við arkitektinn Guðmund Þór Pálsson. Þar voru gerðar sérstakar
ráðstafanir á göflum húsanna, sem hafa í för með sér mjög jafna
hljóðdreyfingu, en hún kemur í veg fyrir endurkast á milli gaflveggja.
þetta hefur ekki verið gert en þá
oftast með slæmum afleiðingum.
Sem dæmi má nefna byggingu
þýzka sambandsþingsins í Bonn.
Þegar hún var byggð, var ekki talin
þörf á sérstökum ráðstöfunum. Af-
leiðingin varð sú, að hljóðkerfín, sem
átti að nota inni í byggingunni, virk-
uðu svo illa vegna langs ómtíma,
að fólk þoldi blátt áfram ekki við
inni í henni. Ástandið var það slæmt,
að þingið varð að flytja út. Nú er
loksins búið að vinna á þessu bót
með svimandi kostnaði.
I-----J---------------------1
■ ~ félagHfasteignasala
IIIJSYANGUR
-£t faste/gnasala
“ BORGARTÚNI 29, 2. HÆÐ.
FAXNÚMER 621772.
62-17-17
Opið virka daga frá kl. 9.00-18.00
Opið laugardaga frá kl. 11.00-14.00
Lokað sunnudag - (lokað í hádeginu).
Einbýlishús
Sérhæðir
Einbýli óskast í Gbæ
Höfum kaupanda (sem búlnn er að
solja) að góðu oinbhúsi á einnl hæð
f Qarðabæ.
Lághoit-Mos. 1756
125 fm fallegt og vel við haldið einb. á einni
hæð ásamt ca 70 fm bílsk. 4 svefnherb.,
stofur o.fl. Fallegur garður. Skipti mögul. á
minna. Verð 12 millj.
Hlíðarvegur - m/bflsk. 1778
Ca 95 fm einb. í Kópavogi ásamt 32 fm,
bílsk. Laust nú þegar. Bílsk. innr. sem íb. í
dag. Áhv. ca 4 millj. V. 8,2 m.
Hverfisgata 1746
Vel byggt einb. við Hverfisgötu samtals um
200 fm auk geymsluriss. Mikil lofthæð.
Garður. Skiptímögul. á minna. V. 10,5 m.
Barrholt- Mos. 1719
Ca 142 fm falleg einb. við Barrholt með 70
fm fokh. kj. Bílsk. Skipti mögul. á minni
eign. Verð 13,5 m.
Bjargartangi - Mos. 1706
144 fm fallegt einb. með 50 fm bílsk. ásamt
fokh. kj. með 3ja metra lofthæð. Hús með
mikla mögul. Verð 13 millj. Skipti mögui. á
4ra herb. íb. í Reykjavík.
Ásbúð-Gbæ 1546
244 fm einb. á tveimur hæðum. Stór bílsk.
Skipti mögul. Verð 15 millj.
Bugðutangi - Mos. 1308
300 fm einbhús á tveimur hæðum m. bílsk.
við Bugðutanga. Skipti á minni eign mögul.
Raðhús
Logaland - m. bflsk. 1658
202 fm fallegt endaraðhús ásamt bílskúr.
. Parket. Flísalagt bað. Fallegur suðurgarður.
Verð 13,9 millj.
Suðurás-nýtt 1550
192 fm raðhús á tveimur hæðum. Bílsk.
Fullb. að utan, fokh. að innan. Verð 9,4 millj.
Seltjarnarnes 1631
Efri sérhæð í tvíb. við Melabraut. Parket.
Þvherb. og búr innaf eldhúsi. Laus. Áhv. 4
millj. húsbréf. Skipti á minni eign mögul.
Skipasund - laus 1692
85 fm björt og góð efri sórhæð í þríb. Sér-
hiti. Fallegt hús. Laus. V. 7,5 m.
Rauðalækur 1715
Ca 137 fm góð íb. á 1. hæð með bílsk.
Tvennar svalir. Verð 10,5 millj.
Austurbrún - laus 1551
110 fm góð laus sérhæð í vel byggðu húsi.
Stórar stofur. Bílskúr. V. 9,9 m.
Safamýri - m. bflsk. 1678
Ca 132 fm vönduð sérhæð. Bílsk. Fráb.
staösetn. Verð 11,5 millj.
Helgaland - Mos. 1637
Góð 90 fm efri sórh. í tvíb. Bílsk. Skipti
mögul. á minna. Verð 7,9 millj.
4-5 herb.
Hraunbær 1772
108 fm glæsil. endaíb. á 3. hæð með suð-
ursv. Nýtt eldhús. Parket á herb. Hús og
sameign nýstandsett. Skiptl mögul. á minni
eign. Verð 8,2 millj.
Laugarnesvegur 1702
92 fm falleg íb. á 2. hæð. 3 herb., stofa
o.fl. Stórar svalir. Verð 7,5 millj.
Eskihlfð 1777
101 fm íb. á 3. hæð i góðu fjölb. 2-3 svefn-
herb., 2 stofur ásamt íbherb. á jarðhæð
með aðgangi að snyrtingu. Verð 7 millj.
Hallveigarstígur 1677
95 fm gullfalleg íb. á tveimur hæðum. Suð-
ursv. Laus. Verð 8,5 millj.
Laugateigur m. láni 1695
97 fm falleg íb. á 1. hæð í þríb. Parket, stórt
eldh. m/nýl. innr. og tækjum. Áhv. 3,5 millj.
húsnlán.
Engjasel - m. bflg. 1755
Ca 110 fm gullfalleg 5 herb. íb. á 2. hæð í
góðu fjölb. Rúmg. svefnherb. Nýtt parket á
stofu. Suðursv. Mikið útsýni. Björt íb. ó eftir-
sóttum stað. Verð 8,5 millj.
Frostafold 1734
Ca 102 fm góð íb. á 2. hæð. Parket. Þvotta-
herb. í íb. Áhv. langtímalán ca 4.750 þús.
Verð 8750 þús.
Veghús - m. bflsk. 1773
165 fm íb. á 3. hæð og risi ásamt bílsk.
Stórar suðursv. íb. er tilb. u. trév. V. 7,6 m.
Efstasund - laus 1759
Ca 90 fm falleg lítið niðurgr. íb. í tvíb. Allt
sér. Góð staðsetn. Áhv. 4,0 millj. V. 6,6 m.
Hjarðarhagi - m. bflsk. 1735
Ca 102 fm endaíb. á 2. hæð í fjölb. ásamt
25 fm bílsk. Stutt í skóla og þjónustu. Áhv.
4 millj. Verð 8,5 millj. Skipti á 2ja herb. íb.
koma til greina.
Bólstaðarhlíð - m. láni 1709
121 fm falleg íb. á 1. hæð. 3-4 svefnherb.,
borðst. og stofa. Parket og flísar. 23 fm
bílsk. Góð lán áhv. Verð 9,3 millj.
Lundarbr. - Kóp. 1414
93 fm glæsil. íb. á 1. hæð í nýl. viðgerðu
fjölb. Allar innr. og gólfefni endurn. Fallegt
baðherb. Áhv. 3 millj. Verð 7,2 millj.
Engihjalli - Kóp. 1231
93 fm falleg íb. á 2. hæð. Parket. Suðursv.
Áhv. 3,5 millj. húsnlán. Verð 7,5 millj.
Nýbýlav. - m. bflsk. 1340
Ca 84 fm falleg íb. á 2. hæð. Suö-vestursv.
40 fm bílsk. Sérþvhús. Sérhiti. V. 8,9 m.
Ljósheimar - lyftuh. 9990
Ca 115 fm falleg íb. á efstu hæð. Stórar
svalir. Áhv. 6 m. Verð 7,9 millj.
Kleppsvegur-laus 1555
91 fm falleg íb. á jarðhæð. Gott hús. Áhv.
3,5 millj. húsnlán. V. 6,8 m.
Engihjalli-m. láni 1521
Ca 100 fm falleg íb. á 4. hæð í lyftuhúsi.
Parket. Áhv. 2,6 millj. Verð 7,7 millj.
Stelkshólar - laus 1533
105 fm góð íb. á 3. hæð. Parket. Nýl. flisar
á baðherb. Mögul. á 4 svefnherb. Laus.
Verð 7,8 millj. Skiptimögul. á minnieign.
Þingholtsstræti 1679
Ca 80 fm lúxusíb. á 4. hæð í lyftuhúsi. 2
stofur með parketi, forstofa og sólstofa með
Ijósum flísum. Austursv. Fráb. útsýni yfir
Tjörnina og miðborgina. Laus. V. 7,9 m.
Laugarnesvegur 1559
84 fm falleg Ib. á 2. hæð. Suðursv.
Ahv. 1,5 millj. byggsj.
3ja herb.
Jörfabakki 1642
Falleg 74 fm íb. á 2. hæð. Suðursv. Rúmg.
stofa. Hús nýviðgert. Verð 6,3 millj.
1
L
if
Guðmundur Tómasson, Helgi M. Hermannsson, Hjálmtýr i. Ingason, 'jteinunn Gísladóttir,
Þórunn Þórðardóttir, Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur - fasteignasali.
if
Þverholt 1667-8
Stórglæsil. nýuppgerðar íbúðir við Þverholt.
Sjá myndir og umfjöllun í sl. tölubl. Húsa
og hýbýla.
Rauðalækur 1761
Ca 99 fm björt og lítið niðurgr. kjíb. Ný eld-
húsinnr. Góður garður. Verð 6,9 millj.
Hagamelur - laus 1465
70 fm falleg íb. á 3. hæð í nýl. fjölb. Park-
et. Skipti mögul. á minni eign.
Suðurvangur - Hf. 1768
Glæsil. íb. á 3. hæð með góðu útsýni. Hátt
til lofts í stofu og eldhúsi. Áhv. 4,9 millj.
byggsj. Verð 8,5 millj.
Miðborgin - laus 1511
77 fm glæsil. mikið endurn. íb. við Lauga-
veg. Stílhreinár innr. og flisar.
Dúfnahólar 1345
76 fm góð íb. á 2. hæð. Fráb. útsýni. Vest-
ursv. Bílskplata. Verð 5,9 millj.
Sólvallag. - m. láni 1733
85 fm góð ib. á efri hæð í þríb. Laus. Áhv.
ca 5,5 millj. góð lán. V. 7,2 m.
Hagamelur - laus 1628
Ca 82 fm falleg íb. á 1. hæð. Parket. Suður-
verönd. Verð 7 millj.
Háaleitisbraut 1742
Góð kjíb. í fjölb. Baðherb. nýl. flísalagt.
Áhv. 2,2 millj. Verð 5,9 millj.
Álfheimar - nýtt 1697'
Tvær glæsil. íb. á jarðhæð í góðu traustu
fjölbhúsi. Lausar nú þegar.
Hverfisgata - m. láni 1684
Falleg og mikið endurn. ca 80 fm íb. á 2.
hæð í fjórb. 2 rúmg. svefnherb., stór stofa,
nýtt bað og eldhús. Áhv. ca 3,8 millj. Verð
6,5 millj.
Leifsgata 1755
91 fm rúmg. og falleg íb. á efri hæð í tvib.
Húsi og ib. mikið endurn. Verð 7 millj.
Skipti mögul. á stærri eign.
Freyjugata m. iáni 1217
78,4 fm góð íb. á 3. hæð. Parket. Áhv. 2,3
millj. Verð 6,0 millj. Skipti mögul. á minna.
2ja herb.
Smyrilshólar 1560
53 fm glæsll. íb. á jarðhæð m. sórgarði.
Parket. Laus. Áhv. 1,9 millj. Verð 4950 þús.
Laugarnesvegur 1618
Ca 70 fm björt og falleg íb. á 3. hæö í góðu
fjölb. Vestursv. Fallegt útsýni. Verð 5,9 millj.
Asparfell 1754
Ca 45 fm falleg einstaklíb. á 7. hæð í lyftu-
húsi. Parket og flísar. Gott útsýni. Hús og
sameign nýmálað og endurn. Verð 3,9 millj.
Frostafold - m. láni 1437
91 fm falleg íb. í litlu fjölb. á 1. hæð. Þvherb.
og búr í íb. Áhv. 4,5 m. húsnl.
Brávallagata 1614
74 fm íb. í kj. Nýstandsett, nýl. rafmagn,
gler og gluggar. Laus. Áhv. 1 millj. bygg-
sjóður.
Nesvegur 1680
Ca 46 fm risíbúð í 5-íb. húsi. Góð staðsetn-
ing. Getur losnað fljótlega. Verð 4,2 millj.
Vindás-laus 1699
60 fm falleg fb. á 1. hæð. Allar innr. úr eik.
Áhv. 1,7 millj. byggsj. Verð 5,4 millj.
Víkurás - m. láni 1564
Ca 60 fm góð íb. á jarðhæð í litlu fjölb.
Áhv. 2,7 millj. Verð 4,9 millj.
Tryggvagata 1689
56 fm íb. í lyftuhúsi. Einstakt útsýni yfir
höfnina. Suðursv. Laus. Áhv. 3,1 millj.
húsnLán.
Fálkagata 1583
Falleg ca 40 fm ósamþ. íb. á jarðhæð í
nýl. húsi. Áhv. 2,1 millj. Verð 3,7 millj.
Kaupendur
Athugið að í flestum
tilvikum koma eigna-
skipti til greina.
Upplýsingar og rnyndir
af öllnm eignum
í myndasal.
J