Morgunblaðið - 05.01.1994, Page 5

Morgunblaðið - 05.01.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ AFLABROGÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 B 5 Prufukeyrsla á 5.000 hestafla aðalvélinni í nýju Guðbjörgina ■■■^^■■■■■■■■■^■■■i HÚN er engin smásmíði, Algeng stærð á vélum vélm sem fer um borð 1 í íslenskum togurum er um 2-3000 hestöfl nýju Guðbjörgina Jþeirrar Hrannarmanna á Isafirði. Vélin var prufukeyrð í Krupp MaK verksmiðjun- um í Kiel fyrir skömmu, að viðstöddum m.a. þjónustustjóra og yfirvélsljóra Hrannar, þeim Sigurþóri Sigurþórssyni og Víði Olafssyni. Þeir létu vel af rúmlega fimm þúsund hestafla vélinni, sem verður farin að knýja nýju Guðbjörgina í september á næsta ári og verður stærsta vélin í stærsta fiskveiðiskipi íslenska flotans. Hrönn hf. er nú með nýjan frystitogara í smíðum í skipa- smíðastöðinni Flekkefjord í Noregi og kemur skipið í stað ísfisktogar- ans Guðbjargar ÍS 46. Skipið er hannað af Bárði Hafsteinssyni, skipaverkfræðingi og samstarfs- mönnum hans hjá Skipatækni hf. Það verður um 2.100 tonn af stærð, 68,31 metri að lengd og 14 metrar að breidd og því nær helm- ingi stærri en tólf ára gömul Guð- björgin. Frystilestin tekur yfir 400 tonn af frystum afurðum og frysti- geta verður um 70 tonn á sólar- hring. Fiskimjölsverksmiðja verður um borð sem afkastar um 25 tonn- um á sólarhring og einnig verður rækjuvinnslubúnaður af fullkomn- ustu gerð. Kaupverðið er um 1,3 milljarðar króna með öllum bún- aði, Guðbjörgin verður tekin upp í kaupverð nýja skipsins á um 370 milljónir króna, en auk hennar verður að taka annan togara af skrá vegna kaupanna á svo stóru skipi. og yfirihanni gæðaeftirlits verk- smiðjanna, því Hrannarmenn vildu að sjálfsögðu tryggja að þeir fengju nákvæmlega það sem þeir vildu. Fimm þúsund hestöfl Vélin heitir M 552C og verk- smiðjan lofar minni olíubrennslu og smurolíunotkun, einfaldara við- haldi og betri endingu en á öðrum vélum. Eyðslan er gefin upp um Vélin prufukeyrð Umboðsaðili Krupp MaK vél- anna hér á landi, Atlas hf., efndi til ferðar til Kielar til að sýna vél skipsins starfsmönnum Hrannar hf. sem fylgjast áttu með prufu- keyrslu og slóst blaðamaður Morg- unblaðsins í hópinn. Það vakti fyrst athygli, þegar komið var að verk- smiðjunum, hve umfang þeirra er ótrúlegt. Þær teygja sig yfir 560.000 fermetra svæði og hvert stórhýsið tekur þar við af öðru. Hópnum var vísað inn í stóra skemmu, þar sem tilbúnar skipa- vélar af öllum stærðum stóðu í löngum röðum. Sumar þeirra virt- ust agnarsmáar innan um tröllin, sem eru notuð til að knýja stærstu skip heims. Vél Guðbjargarinnar var að finna innst í húsinu, þar sem prufu- keyrslan fer fram. Það var undar- legt að sjá flykkið vakna til lífsins, en gleði vélstjóra, tæknifræðinga og skipaverkfræðinga í hópnum var ósvikin þegar þeir gátu farið Steinþór Stemþórsson, þjónustustjóri hjá Hrönn hf. og Víðir Olafs- son, yfirvélstjóri, líta yfir vélina í nýju Guðbjörgina við prufukeyrslu í verksmiðjunum fyrir skömmu. að lesa af mælum og snudda í kringum urrandi vélina. Það var augljóst að þeim leist vel á það sem þeir sáu, enda stóðst vélin þessa fyrstu skoðun að öllu leyti. Síðan tóku við fundir með sölumönnum 180 grömm á kíolówattstund. Fimm þúsund hestöflin knýja skrúfu, sem verður 3,9 metrar í þvermál og er áætlaður ganghraði um 15 sjómílur. Algeng stærð á vélum í íslenskum togurum er um 2-3000 hestöfl, svo töluverður munur er þar á. Kostnaður við vél sem þessa er auðvitað mikill, en hún kostar um 115 milljónir króna. Til viðbótar kemur svo ýmiss ann- ar búnaður, s.s. gírar, svo segja má að vélin tilbúin til notkunar kosti hátt í 200 milljónir króna. Yfirstærð fyrir framtíðina Víðir Ólafsson, yfirvélstjóri á Guðbjörginni, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki veitti af stórri vél í nýja skipið, enda væri það mjög breitt, 3 metrum breið- ara en gamla Guðbjörgin, og mót- staðan í sjó því meiri. „Þá þarf mikla raforku til frystingarinnar og hún er tekin út af vélinni,“ sagði hann. „Þessi vél gerir okkur líka kleift að vera að veiðum í verra veðri en ella. Hingað til hafa skip verið smíðuð með tilliti til ríkjandi aðstæðna, en þróunin er sú að skip stækka sífellt. Við tökum þetta skip því ef til vill í yfirstærð miðað við ástand mála í dag, en þar með er líka tryggt að það stenst fyllstu kröfur lengur. Til samanburðar má nefna, að vélin í Guðbjörginni er 3200 hestöfl og var ekki fullnýtt fyrir nokkrum árum, en nálgast að vera það núna. Trollin og hlerarnir stækka og þyngjast og það kallar á stærri vél. Það er því betra að leggja upp með vél sem er of stór í fyrstu.“ Víðir segir að einnig þurfi að líta til þess að íslensk skip sæki í æ ríkari mæli á fjarlægari mið. „Þetta skip tryggir að við þurfum ekki að takmarka okkur ef slíkir möguleikar bjóðast. Stærri vél þýð- ir líka minna viðhald, því ef alltaf er keyrt á fullu þá slitnar vélin fyrr. Þessi vél snýst 500 snúninga á mínútu, en algengur snúnings- hraði véla í togurum hér er 700 og slitið hlutfallslega meira. Þá er viðhald léttara, til dæmis eru út- blástursventlar í sérstöku húsi og hægt að fjarlægja þá og vinna við þá án þess að taka húddið af vél- inni. Þetta er að vísu ekki nýtt af nálinni, en er mjög tímasparandi, því það þarf að slípa ventlana á 5000 tíma fresti,“ sagði Víðir Ólafsson, yfirvélstjóri. hann bætti því við, að þessi vél væri sú þriðja sem Hrönn hf. fengi frá MaK og hinar hefðu báðar reynst mjög vel. Krupp MaK hefur selt um 720 vélar af gerðinni M 552 og systur- vélinni M 551 og eru þessar vélar samtals 2,5 milljón kílóvött. Einbeita sér að framleiðslu díselvéla „AÐALFRAMLEIÐSLA okkar nú eru díselvélar í skip og raf- stöðvar, en áður fékkst fyrir- tækið einnig við framleiðslu á léttum skriðdrekum, ýmsa vara- hluti í kafbáta og eimreiðar. Sá hluti starfseminnar var seldur fyrir tveimur árum og ein ástæðan var sú, að sumir við- skiptavina fyrirtækisins voru óánægðir með að skipta við fyr- irtæki sem tengdist vopnafram- leiðslu. ímynd fyrirtækisins leið fyrir þann hluta starfseminn- ar,“ sagði Homeyer, upplýs- ingafulltrúi Krupp MaK verk- smiðjanna í samtali við Morgun- blaðið. Verksmiðjurnar hófu starfsemi í Kiel árið 1866 og hafa verið þar síðan, en fengist við ýmis konar framleiðslu. Um aldamótin voru starfsmenn þegar orðnir 1.000 talsins. Árið 1921 hófst fram- leiðsla á díselvélum í skip, sem fyrstu 30 árin vom merktar stóru D-i, tákni Deutsche Werke, en svo hét verksmiðjan þá. Slíkar vélar er enn að finna í fullu fjöri víða um heim. Veltan í díselvélafram- leiðslunni á þessu ári er áætluð 16 milljarðar króna, en þar við bætist svipuð velta systurfyrirtæk- isins Krupp Verkehrstechnik, sem framleiðir eimreiðar. Fjórði stærsti framleiðandi helms Homeyer sagði að skipaiðnaður- inn væri stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins. „Við framleiðum vélar af stærðinni 900 til 10.000 kílóvött og erum fjórði stærsti framleiðandi heims á þessu sviði,“ Homeyer, upplýsingafulltrúi Krupp MaK verksmiðjanna. sagði hann. „Vélarnar eru einnig mikið teknar í raforkuver, til dæm- is í Saudi-Arabíu, Indónesíu og Kína. Fimmtán hundruð manns starfa við framleiðsluna hér í Kiel.“ Homeyer sagði að um 180 vélar yrðu framleiddar í verksmiðjunum á þessu ári. „Við framleiðum sjálf- ir 55% vélarhlutanna, en kaupum aðra hluta frá öðrum framleiðend- um, til dæmis útblásturskerfi og setjum vélarnar saman hér. Vélin, sem fer í íslenska frystitogarann, er ekki aðeins notuð í stór fisk- veiðiskip, heldur einnig ferjur. Hingað var til dæmis að berast fyrir nokkrum dögum pöntun frá nörsku fyrirtæki, sem vill kaupa þessar vélar í stórar farþegafeijur og fara fjórar slíkar vélar í hvert skip. Stærsta skipið, sem er með vél frá okkur, er 60 þúsund tonna flutningaskip. í því eru tvær M 601 C vélar, sem eru þær stærstu sem við framleiðum.“ LANDAMR YTRA Þýzkaland Vika 1 (3.-7.1. 3.1. Engey RE 1 Bremerhaven 5.1. Sveinn Jónsson KE 9 Bremerhaven 6.1. Kambaröst SU 200 Bremerhaven Vika 2 (10.-14.1.) 10.1. Skagfirðingur SK 4 Bremerhaven 11.1. Hegranes SK 2 Bremerhaven 12.1. Haukur GK 25 Bremerhaven Vika 3 (17.-21.1.) 17.1. Viðey RE 6 Bremerhaven 19.1. Dala-Rafn VE 508 Bremerhaven 20.1. Bessi ÍS 410 Bremerhaven Vika 4 (24.-27.1.) 24.1. AkureyRE3 Bremerhaven 25.1. Drangey SK 1 Bremerhaven 26.1. Rán HF 4 Bremerhaven Vika 5 (31.1.-4.2.) 31.1. Engey RE 1 Bremerhaven 2.2. Skafti SK 3 Bremerhaven 3.2. Höfðavík AK 200 Bremerhaven Vika 6 (7.-11.2.) 7.2. Skagfirðingur SK 4 Bremerhaven 9.2. Ásbjörn RE 50 Bremerhaven 10.2. Már SH 127 Bremerhaven Vika 7 (14.-18.2.) 14.2. Viðey RE 6 Bremerhaven 16.2. Klakkur SH 510 Bremerhaken 17.2. Ólafur Jónsson GK 404 Bremerhaven Vika 8 (21.-25.2.) 21.2. Akurey RE 3 Bremerhaven 23.2. Gnúpur GK11 Bremerhaven 24.2. Rán HF 4 Bremerhaven Vika 9 (28.2.-4.3.) 28.2. Engey RE 1 Bremerhaven 1.3. Dagrún ÍS 9 Bremerhaven 2.3. Haukur GK 25 Bremerhaven Vika 10 (7.-11.3.) 7.3. Skagfirðingur SK 4 Bremerhaven 9.3. Jón Baldvinsson RE 208 Bremerhaven 10.3. Sturlaugur H. Böðvarsson AK 10 Bremerhaven Vika 11 (14.-18.3.) 14.3. Viðey RE 6 Bremerhaven 16.3. Drangur SH ðllBremerhaven 17.3. Sólberg ÓF12 Bremerhaven Vika 12 og 13 (21.3.-31.3.) 21.3. Akurey RE 3 Bremerhaven 23.3. Guðbjörg ÍS 46 Bremerhaven 24.3. Hegranes SK 2 Bremerhaven 25.3. Rán HF 4 Bremerhaven 25.3. Kolbeinsey ÞH 10 Bremerhaven 26.3. Otto N. Þorláksson RE 203 Bremerhaven 27.3. Ólafur Jónsson GK 404 Bremerhaven 28.3. Engey RE 1 Bremerhaven Vika 14 (4.-8.4.) 4.4. er frídagur. 5.4. Skagfirðingur SK 4 Bremerhaven Vika 15 (11.-15.4.) 11.4. Viðey RE 6 Bremerhaven 14.4. Björgúlfur EA 312 Bremerhaven Vika 16 (18.-22.4.) 18.4. Akurey RE 3 Bremerhaven 21.4. RánHF4 Bremerhaven Vika 17 (25.-29.4.) 25.4. Engey RE 1 Bremerhaven 27.4. Óskar Halldórsson RE 157 Bremerhaven Vika 18 (2.-6.5.) 2.5. Skagfírðingur SK 4 Bremerhaven 5.5. Már SH 127 Bremerhaven Vika 19 (9.—13.5.) 12.5. er frídag- ur. 9.5. Viðey RE 6 Bremerhaven Vika 20 (16.-20.5.) 16.5. Akurey RE 3 Bremerhaven 19.5. Hafnarey SU 110 Bremerhaven Vika 21 (23.-27.5.) 23.5. frídagur 18.5. Skafti SK 2 Bremerhaven Bretland Vika 1 (3.-7.1.) 3.1. er frídagur. 4.1. Kristbjörg VE 70 Hull 5.1. Skafti SK 3 Hull 6.1 Ottó Wathne NS 90 Hull Vika 2 (10.-14.1.) 10.1. Drangey SK 1 Hull 12.1. MárSH 127 Hull

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.