Morgunblaðið - 07.01.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994
C 7
í borginni Hue - bar stðð
TET-bardaginn í Víetnam
MEKONGfljótið á upptök sín í Tíbet en fell-
ur í Suður-Kínahaf suður af Saigon. A
fenjasvæðunum býr gestrisið fólk. Hópur
af fólki fylgdi okkur hvert fótmál og ekk-
ert var sjálfsagðara en að bjóða okkur í
nokkurs konar erfiveislu ættingja. Þarna
hittum við mann sem hafði unnið með
bandaríska hernum í stríðinu. Hann kunni
ágæta ensku og vildi æfa sig með því að
tala við okkur.
Bananasölukonur í Danang
Ljósmyndir/Dagný H. Bjarnadóttir
Hann sagði frá sínu lífi og sinni
reynslu á stríðstímanum og eftir
stríðið. Það voru reyndar margir
sem við hittum á ferð okkar sem
sögðu okkur svipaðar sögur frá
þessum tima og þá aðallega frá
endurmenntunarbúðunum svoköll-
uðu. Þangað voru þeir sendir eftir
að Víet Cong náði Saigon á sitt
vald. Þetta voru ekki fagrar sögur.
Til að halda lífi í búðunum átu þeir
skordýr. Dagskammturinn af mat
var skál af hrísgijónum sem nægði
ekki við þá þrælkunarvinnu sem
þeim bar að gera. Tilgangur búð-
anna var að fræða þá um komm-
únismann.
Á fenjasvæðinu heimsóttum við
eyju sem er kölluð Kókóshnetueyj-
an. Kókóshnetumunkar eins og þeir
kölluðu sig lifðu þarna einangruðu
lífi og lifðu á kókóshnetum. Þeir
bjuggu saman á þessari einangruðu
'eyju vegna þess að þeir vildu ekki
viðurkenna kommúnismann. Nú er
aðeins einn eftir og hefur hann í
um 20 ár verið ofsóttur af stjórn-
inni. Hann hefur lifað á eilífum
flótta í sínu eigin landi í öll þessi
ár og ætlar að eigin sögn aldrei að
gefast upp.
Kaþólskt daghelmili og
blóðugustu bardagar Víetnams
Frá Saigon flugum við til Danang
í Mið-Víetnam. Það tekur um 3
daga að komast landleiðina þar sem
vegir eru mjög slæmir, umferð hæg
og ökutækin varla ökufær.
í Danang er mjög lítið um ferða-
menn og hótel eða gistihús varla
finnanleg. Það var áberandi hve
verðið á gistingu og mat var hærra
í Danang en Saigon og áttum við
eftir að sjá enn hærra verð þegar
við komum norður til Hanoi. einnig
var það áberandi hvað fólkið var
alvarlegra eftir því sem norðar dró.
Á Mekongfljótinu
Kaþólska kirkjan í Danang var
byggð 1923 fyrir franska íbúa í
hverfinu en Frakkar voru við völd
á árunum 1887-1954. Enn þann
dag í dag sjást merki byssukúlna á
myndskreyttum gluggunum. Prest-
urinn tók á móti okkur og sýndi
okkur kirkjuna og talaði um stríðið.
Framhjá okkur gekk gamall blindur
maður. Sá er stríðshetjan þeirra,
hann var besta skyttan.
Kirkjan rekur dagheimili fyrir
fatlaða og öll önnur börn í Danang.
Nunnurnar reka heimilið sem er
fábrotið en einstaklega hlýlegt.
Aginn var áberandi. Með engum
fyrirvara var brugðið á leik fyrir
útlendingana. Allur þessi fjöldi af
börnum og hópurinn var sem einn.
Nunnan sem sýndi okkur heimilið
sagði okkur að stjórnvöld vildu eng-
in afskipti hafa af heimilinu. Þær
hafa beðið um að fá að stofna nokk-
urs konar sambýli fyrir fatlaða og
þroskahefta. Þeim var neitað á þeim
forsendum að nunnurnar hafí slæm
áhrif á börnin með því að ala þau
upp í kristinni trú. Þeir vilja að
börnin alist upp við boðskap komm-
únismans.
Það var í Danang þann 8. maí
1965 sem bandaríski herinn kom
að landi en það var ekki fyrr en
nær þremur árum síðar að þeir
mættu á vígvöllinn.
í Hue, 100 km frá Danang, áttu
sér stað blóðugustu bardagar
stríðsins. Innrás Víet Cong á Hue
hefur verið kölluð „Tet“ vegna þess
að hún var gerð þegar haldið er
upp á fæðingardag Búdda og nýtt
ár gengur í gárð. Mörg hundruð
hermanna féllu úr báðum liðum og
um 2.800 íbúar Hue voru líflátnir
og settir í fjöldagrafir. Bardaginn
stóð aðeins yfir í 26 daga eða þar
til 25. febr. 1968.
Afleiðingar stríðsins sjást mest í
Hue. Við fengum tvo herramenn til
þess að keyra okkur á mótorhjólum
til Hue og sýna okkur hina mörgu
og sögufrægu staði bæjarins. Önn-
ur leiðin tók 3-4 klst. um fjöll og
firnindi og var þetta hinn skemmti-
legasti ferðamáti þátt fyrir auð-
fengið rasssæri.
Á leiðinni voru áberandi skilti
sem bönnuðu fólki að fara út fyrir
alfaraleið. „HÆTTA JARÐ-
SPRENGJUR" stóð á þessum skilt-
um sem er óhugnanleg sönnun þess
að enn deyr fólk vegna falinna jarð-
sprengja.
Hue hefur sérstakt aðdráttarafl
vegna fegurðar, kyrrðar og sögu-
legra atburða sem þar hafa átt sér
stað. Þarna eru margar gamlar
keisarahallir sem lagðar voru í rúst
í bardaganum 1968 sem er nú ver-
ið að gera upp að nýju. Perfume
River liggur í gegnum bæinn eins
og lifandi listaverk. Það er ómögu-
legt að ímynda sér að fyrir 25 árum
var kyrrðin rofin og saklaust fólk
myrt á hrottalegan hátt.
Tæplega 30 km suður af Danang
eru hin svokölluðu Marmarafjöll og
hin fræga Kínaströnd. Marmara-
fjöllin eru fimm. Stærsta fjallið
heitir Thuy Son og hellirinn í því
heitir Huyen Khong. í þessum helli
hafði norður-víetnamski herinn
aðsetur og rak þar spítala. Hellirinn
er á hæsta tindi fjallsins sem gerði
Víet Cong kleift að fylgjast með
öllum aðgerðum Bandaríkjahersins
á Kínaströndinni sem er í um 2 km
fjarlægð frá fjallinu. Bandaríkjaher
skipti liði á ströndinni og þaðan
skipulögðu þeir árásir. Því vissi
norður-víetnamski herinn og Víet
Cong nákvæmlega hvenær næsta
árás skylli á. ■
Dagný H. Bjarnadóttir
Air Turkmenistan
lenti í Brussel
EFTIR að Sovetríkin liðuðust i sundur hafa sprottið upp fjölda-
mörg flugfélög í hinum nýju ríkjum innan samveldisins. Langflest
þeirra verða að láta sér nægja að nota gamlar Aeroflotflugvélar.
Nokkur hafa þó tekið á leigu vélar frá Evrópy einkum Boing sem
notaðar eru þegar fljúga þarf með tigna gesti.
Eitt þessara nýju flugfélaga er
Air Turkmenistan eftir samnefndu
lýðveldi sem á landamæri að Iran
og Afganistan. Það flýgur einkum
á leiðum þar á svæðinu.
Vélarnar eru sjaldséðir hvítir
hrafnar í Evrópu enn sem komið
er en þessi mynd var tekin á Za-
ventemvelli við Brussel nýlega
þegar vél lenti þar með nokkra
áhrifamenn flugfélagsins innan-
borðs sem hafa hug á að færa út
kvíarnar og telja að Belgía gæti
orðið heppilegur aðalstaður félags-
ins í Evrópu ef af verður.
Skíðafeiö
til Vail
FERÐASKRIFSTOFA Guð-
mundar Jónassonar skipu-
leggur nú þriðja veturinn hóp-
ferð með skíðafólk til Vail í
Bandaríkjunum og er farið
héðan þann 17. febrúar til
Baltimore og gist yfir nótt.
Morguninn eftir er flogið með
United Airlines til Denver og
ekið þaðan til Vail. Þar er
gist á Park Meadows Lodge
íbúðahótelinu til 3. mars að
haldið er heim á leið.
Bærinn Vail er í 2500 m hæð
og skíðað er úr 3400 m hæð og
er svæðið hið stærsta í Bandaríkj-
unum að sögn talsmanna ferða-
skrifstofunnar. Verðið er 139 þús.
kr. á mann miðað við tvo í íbúð
og innifalið í verði er flug, akstur,
gisting í 13 nætur og í nótt í
Baltimore. Flugvallarskattur er
ekki innifalinn.
Auk ferðarinnar til Vail verður
ferðaskrifstofan að venju með
skíðaferð til Crans Montana í Sviss
um páskana. ■
Hvað heitir
fl'jgvöliurinn?
Land Borg Flugvöllur
Alsfr Algeirsborg Houari Boumedienne
Angóla LKuanda Belas
Bahrein Manama Muharraq
Bermuda St. Georges Kindley Field
Costa Rica San Jose El Coco
Fflabeinsströndin Abidjan Port Bouet
Danmörk Kaupmannahöfn Kastrup
Ecuador Quito Marlscal Sucre
Gambia Banjul Yundum
fsrael Tel Aviv/Jerúsalem Ben Gurion
Iran Teheran Mehrabad
Kenya Nairobi Jomo Kenyatta
Kúba Havana Jose Martin
Óman Múskat Seeb
Paraguay Ascuncion Gen.Stroessner
Rwanda Kigali Kanombe
Singapore Singapore Changi
Zaire Kinshasa N'DjilÍ