Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 1

Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 1
HEIMILI c—l FOSTUDAGUR18. FEBRUAR1994 BLAÐ B Húsbréf Ávöxtun- arkrafan hækkar lítinega Avöxtunarkrafa húsbréfa og þar með afföll af þeim hafa verið að lækka frá því í haust. í byrjun nóvember sl., eftir að til- kynnt var um aðgerðir ríkis- stjórnarinnar til lækkunar á vöxtum, var ávöxtunarkrafan 5,90%. Eftir það tók hún að lækka jafnt og þétt og og fyrstu vikuna í febrúar fór hún niður í 5,08%. Nú hefur hún hækkað lítil- Iega á ný eða í 5,12%. Skýringin felst aðallega í heldur meira framboði nú. Skýringar á hinni lágu ávöxt- unarkröfu húsbréfa að undan- förnu er m. a. að leita í þvi, að eftir áramótin var mjög lítið framboð á húsbréfum um tíma. Að undanförnu hefur Seðlabank- inn keypt húsbréf fyrir um 250 millj. kr. miðað við 5,08% ávöxt- unarkröfu, en hann flýtti fyrir lækkun á ávöxtunarkröfunni, þegar hann hóf að gera tilboð i húsbréf á Verðbréfaþingi. Ekki er gert ráð fyrir neinum veruleg- um breytingum á ávöxtunar- kröfu húsbréfa á næstunni. Hús alda- mótanna ÆT Asíðari árum hefur verið gert stórátak í viðgerð á gömi- um húsum. Timburhús, sem byggð voru snemma á þessari öld, hafa notið þess að þykja falleg og eiguleg til íbúðar. Segja má, að þau hafi komizt aftur ítízku. Sennilega eru gömlu húsin þó fleiri, sem hafa orðið að víkja fyrir öðrum nýrri húsum, stærri og nýtízkulegri. Þannig kemst Bjarni Ólafsson m. a. að orði íþætti sfnum Smiðjan í dag, þar sem hann fjallar um eitt af húsum alda- mótanna, sem Iftið finnst um f skjölum nú, en nefndist upphaf- lega Hlíð. Bessastaóahreppnr í'llilutuii lóóa í nýju Iiverli NÚ er hafin úthlutun á lóðum f nýju hverfi f Bessastaða- hreppi. Hverfið hefur hlotið nafnið Vesturtún og á gatna- gerð þar að hefjast 1. aprfl, en byggingarframkvæmdir ættu að geta hafizt um miðjan maí. í fyrsta áfanga verður úthlutað lóðum undir 11 einbýlishús og 10 raðhús, en alls er þarna gert ráð fyrir 23 raðhúsaíbúðum og 34 einbýlishúsum en engum hefðbundnum fjölbýlishúsum. Landinu hallar þarna til suð- vesturs og því er gott útsýni út yfir sjóinn til Reykjanesfjall- garðsins og svo til nprðvesturs til Snæfellsjökuls. Áhugi á þessu svæði er mikill og hefur fjórum lóðum þegar verið úthlutað. í viðtali við þá Guðna Pálsson arkitekt, sem skipu- lagt hefur svæðið og Gunnar Val Gfsla- son, sveitarstjóra í Bessastaðahreppi er fjallað um þetta nýja byggingar- svæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.