Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNIR
FÓSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1994
B 19
Daiunörk
í leit aó húsmunum
Þar kennir margra grasa...
Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, Kaupmannahöfn.
Þeir sem stöku sinnum eða oftar glugga í dönsk híbýla- eða kvennablöð
hafa örugglega einhvern tímann rekist á ljósmyndir af dúndur fallega
búinni íbúð, þar sem leðurhúsgögn eða önnur stásshúsgögn standa í röð-
um, ásamt skemmtilega máluðum eða útbúnum húsgögnum og allt á þetta
rætur að rekja til ruslagáma. Með öðrum orðum þá hafa húsráðendur hirt
húsgögnin í misgóðu ástandi í ruslagámum, eða hugsanlega komið að þar
sem var verið að tæma gamla hárgreiðslustofu, eða hreinsa út eftir dán-
arbú og fengið dýrindið fyrir ekki neitt, en auðvitað í miggóðu ástandi.
Og þar sem húsgögnin standa svona fín og falleg í íbúðinni, þá lítur þetta
allt svo fyrirhafnarlaust út. Bara að ganga út í næsta gám og finna dýr-
indis leðursófa, dýran hannaðan lampa eða eitthvað í þá áttina. En raunin
er öll önnur. Þetta er mest puð og það er langt á milli feitu dráttanna.
En mikið rétt, þeir eru þarna, það er mesta furða hvað fólki getur dottið í
hug að henda, en það tekur bara langan tíma að safna þessu saman. Með
hugviti, smá handlagni, þolinmæði og góðum skammti af hugmyndaflugi
verður hið mesta glæsidót úr því, sem í gámunum sýndist hið argasta drasl.
Fyrsta spurningin er auðvitað
hvar gámana sé að finna. Það
er nú einmitt fyrsta vandamálið, því
þeir eru hingað og þangað. Þannig
er að þegar verið er að gera upp
hús, gera stórtiltektir, gera upp dán-
arbú, eða eitthvað annað, þá er
hægt að panta ruslagám til að henda
því, sem þarf að losna við. Gámurinn
stendur yfirleitt stutt við áður en
hann er keyrður burt og innihaldið
með á ótiltekinn ruslahaug. Eina
leiðin til að finna gám er því að fara
í gámaleit upp á von og óvon. Mest-
ar líkur á gámum með forvitnilegu
innihaldi eru auðviðað í eldri og
grónari hverfum borganna. Þeir sem
gera út á gámaleit, eða hafa þær
sér að tómstundagamni eyða þá
gjarnan helgunum í gönguferðir um
borgina.
Bannað að hirða
Þegar gámur finnst er ekki þar
með sagt að allt sé fengið. Innihld
gámanna er nefnilega formlega séð
ennþá eign þeirra, sem eru að losa
sig við það. Því er í raun stranglega
bannað að hirða úr gámunum,
hvursu óréttlátt sem það nú kann
að virðast. Það er lögmætur réttur
hvers og eins að fleygja dóti, án
þess að aðrir hirði það. En sannar
gámarottur láta sér slík lög í léttu
rúmi liggja og láta ekki hafa af sér
gamanið, nema þær séu dregnar
burtu með valdi. Forhert gámarotta
getur auðvitað alltaf byrjað á að
setja upp sakleysissvip og láta sem
hún viti ekkert um þessar fáránlegu
reglur.
Um daginn kom ég að gám þar
sem verið var að gera stórtiltekt á
skrifstofu búðar, sem selur hljóm-
flutningstæki, sjónvörp og annað
slíkt. Eg krækti mér í loftnetssnúru
og aðrar nýtilegar rafmagnssnúrur,
um leið og verið að var læsa gámin-
um. Um kvöldið átti ég leið framhjá
gámnum. Stendur þá ekk lögreglu-
bíll þar og við hlið hans opinn bíll,
með sjónvarpi í og við hann tveir
ungir menn í yfirheyrslu. Svo virtist
sem þeir hefðu farið í læstan gáminn
og fundið þar sjónvarp. Samúð nn'n
var öll með piltunum, fyrst henda
átti sjónvarpinu, en var líka fegin
að enginn hafði neitt við snúrufund
minn að athuga.
Þar sem gámarnir eru yfirleitt
fremur háir, getur verið betra að
vera með einhveijum til að fá aðstoð
við að klifra upp á gáminn. Krakkar
eru bestu leiðsögumennirnir, liprir
og léttir og snöggir að vinda sér
upp. Síðan er að skoða og athuga
innihaldið og ekki síst að kveikja á
hugmyndafluginu til að geta séð
fyrir sér hvernig gamall og brotinn
skápur gæti hugsanlega umbreyst,
hvernig borðplata færi best ofan á
gamla borðfætur, hvaða áklæði gæti
lyft stólnum upp á boðlegt svið og
svo framvegis.
Ef eitthvað nýtilegt finnst, þá er
næsta skref að ná því upp. Þar sem
öllu hefur verið hrúgað hugsunar-
laust ofan í gáminn, þá vill það oft
vera svo að hið nýtilega er undir
öðru drasli eða skorðað fast af öllu
hinu. Það getur því verið nokkur
kúnst að ná því útvalda upp og hefst
nú hinn stritsami þáttur gámaveið-
anna. Mín reynsla er hins vegar sú
að vegfarendur, sem eiga leið um,
séu oft fúsir til að rétta hjálpar-
hönd. Þannig var það að minnsta
kosti þegar ég fann bob-borðið, sem
var svo blýfast undir öðru drasli.
Ef engir slíkir eiga leið um, þá er
ekkert annað að gera en að kalla
út liðsafla að heiman, eða senda
sveit heimilismanna síðar meir á
staðinn að sækja góssið. Viturlegt
er að gera það innan fárra klukku-
stunda, því eins og áður sagði þá
hafa gámarnir ekki langa viðstöðu.
Og ef hið útvalda er eitthvað stórt,
er auðvitað einnig nauðsynlegt að
kalla út aðstoð til heimflutninganna.
Þó gámarotturnar láti ekki mikið
yfir sér, þegar litið er yfir götur
Kaupmannahafnar, þá má iðulega
sjá tilvist þeirra í því hvernig rusla-
haugar á götunum hreyfast. Ef ver-
ið er að hreinsa út óverulegan
skammt af dóti, er oft borið út dót,
sem síðan er bara sótt af gámabíl.
Fyrir skömmu var skipt um nokkra
glugga í íbúðinni minni. Smiðirnir
báru gömlu gluggana út á götu og
ætluðu að sækja þá skömmu seinna.
Fyrsta daginn hurfu stærri glugga-
rnir, annan daginn hafði einhver
notað tækifærið og hent þarna
nokkrum brotnum og skældum borð-
stofustólum úr tré, í þeirri fullvissu
að þessu yrði öllu hent. Þriðja dag-
inn voru stólarnir horfnir, svo þegar
smiðirnir sóttu leifarnar var aðeins
smá spýtnarusl eftir.
Hvers er að vænta
Og hvað er svo hægt að bera úr
býtum á veiðunum, fyrir utan það
sem er að sjá í glæsidæmum blað-
anna? Sjaldgæft er að finna raun-
verulega fornmuni, því flestir hafa
víst vit á að koma þeim í verð, þó
dæmi muni um slíka fundi. Mest er
þetta dót frá því á þriðja áratugnum
og fram á okkar tíma. Við hliðina á
tölvunni minni stendur fyrirtaks
borð, fremur lítð með tréplötu, einni
skúffu og hliðarplötu á sterklegum
svörtum járnfótum með hjólum, ein-
mitt það sem þarf fyrir símann,
símaskrán og aðra hluti, sem gott
er að hafa við hendina. Borðið var
Frá Kaupmannahöfn. Þar er það orðið vinsæl tómstundaiðja að leita
að nýtilegum munum og húsgögnum í ruslagámum. Stundum má
finna þar jafnvel sérstæða og verðmæta fornmuni.
dregið upp úr gámi hér í nágrenninu
fyrir skömmu og þótti meiriháttar
fundur. Undir skrifborðinu mínu er
borðgrind á hjólum, án borðplötu,
sem er gott að nota undir skjala-
möppur, sem stundum þarf að grípa
til. Grindin átti upphaflega að verða
stofuborð, en var ekki komin lengra,
þegar stofuborðið fannst.
Það er vænt hjólaborð, sem hægt
er að keyra um, líklega ættað úr
verksmiðu eða einhveiju verkstæði,
en stóð hér úti á götu um daginn,
þegar verið var að henda dóti úr
kjallara hússins. Einhver tímann
verður það málað og skipt um borð-
plötuna og hilluna undir, en þangað
til hefur sjöáringurin í fjölskyldunni
fengið útrás fyrir hugmyndaflugið
með því að hnýta á það gamalt dót
af hjóli, gíra, standara og annað í
þeim stíl og það verður að segjast
eins og er að viðbótin klæðir borðið
fjarska vel.
í loftinu yfir borðinu hangir þó
líklega það merkilegasta sem við
höfum fundið, en það er kringlótt
textíllistaverk. Myndefnið er nokk-
urs konar hringiða í svörtu og hvítu,
sem er prentað á bómullarefni og
spennt á ramma. Sjöáringurinn á
heiðurinn af þessum fundi, en hann
fann verkið í göngutúr með vini sín-
um og móður hans, sem einnig er
gámarotta. Þegar þau komu að gám
nokkrum og fóru að gaumgæfa1
hann, fann sjöáringurinn listaverkið
og kom með það heim. A rammann
er skrifað fjölskyldunafn þekktrar
listamannaíjölskyldu, svo helst virt-
ist að dýrindið væri eftir einhvern
úr henni. Um daginn kom hins veg-
ar Dani í heimsókn og greip heldur
betur andann á lofti, þegar hann sá
verkið, ekki bara hversu skemmti-
legt það væri heldur af því að frænka
hans hafði gert það fyrir mörgum
árum. Þar með var upphaf þess fund-
ið.
Allt þetta hefur fundist fyrir til-
viljun, því þó ég sé gámarotta í and-
anum, hef ég aldrei gefið mér tíma
til að stunda þessa áráttu skipulega, ~
heldur einungis með höppum og
glöppum. Og þá er auðvelt að
ímynda sér hvað hægt sé að fmna
fyrir þá sem í raun stunda gámaveið-
arnar.
LAUFÁSl
\STEIGNASAU
SÍÐUMÚLA 17
812744
iHíE^ié
( j||
V ||p
iHpfe
„ aír ' Jfp
' ' * . Y,
éLlæ
Magnús Axeisson,
fasteignasali
Auöur Guðmundsdóttir,
sölumaður
Anna Friða Garðarsdóttir, Daniel Eriingsson,
sölumaður. sölumaður.
Fax: 814419
SAMTENGD
SÖLUSKRÁ
ÁSBYRGI
EIGNASALAIM
Opið mán.-fös. kl. 9-18.
Símatími laugardag kl. 1-3.
Einbýlis- og raðhús
HNJUKASEL V. 17,7 M.
Vandað ca 235 fm einbýlishús á
tveimur hæðum. Hús og lóð í sér-
flokki. Áhv. ca 2,2 millj. hagstætt lán.
+ * *
MELABRAUT V.17.5M.
Ca 215 fm einbýlishús á einni hæð
á Seltjarnarnesi m/tvöföldum bilskúr.
+ + *
♦ Hjallasel V. 14,0 m.
♦ Réttarholtsvegur V. 8,8 m.
4ra herb. og stærri
ALFHEIMAR
6 herbergja ca 150 fm neðri sér-
hæð í fjórbýlishúsi ásamt bilskúr.
Öll íbúðin ér nýmáluð og snyrtileg.
Laus strax.
444
ESPIGERÐI V.10.8M.
Ca 110 fm íbúð á 4. hæð í lyftu-
blokk. Suður- og austursvalir.
Geysilegt útsýni. Stæði í bílskýli.
Góð íbúð á þessum vinsæla stað.
»44
KAPLASKJÓL V. 8,5 M.
Ca 90 fm 4ra herbergja íbúð. á 3.
hæð í KR-blokkinni. Parket á her-
bergjum. Vandaðar eldhúsrinnrétt-
ingar. Svalir í suð-austur og norð-
vestur. Áhvílandi f hagstæðum
lánum ca 400 þús.
444
NÝI MIÐBÆRINN
Ca 130 fm 4ra herbergja íbúð.
Vandaðar innréttingar. Suðursvalir.
Bílskýli. Áhvílandi ca 6,2 millj. í
hagstæðum lánurn.
♦ ♦ ♦
SEUABRAUT V. 7,8 M.
Ca 114 fm 5 herbergja íbúð á 1.
hæð í litlu fjölbýli. Innangengt milli
bílskýlis og stigagangs. Áhvílandi
ca 2,0 millj. í hagstæðum lánum.
+ * +
SELTJARNARNES
Ca 125 fm 5 herbergja efri sérhæð
með sérinngangi. Nýtt gler. 32 fm
bílskúr fylgir. Ýmis skipti á minni
íbúðum koma til álita.
4 + 4
♦ Áiftamýri
♦ Ástún
+ Bólstaðarhlíð
♦ Dalsel
♦ Klettaberg
♦ Ljósheimar
V. 8,3 m.
V. 7,8 m.
7,9 m.
8,0 m.
8,3 m.
8,1 m.
V.
V.
V.
V.
3ja herb.
FROSTAFOLD V. 9,0 M.
Ca 90 fm falleg endaíbúð á 3.
hæð. Sérsmíðaðar innréttingar.
Suðursvalir. Þvottahús og geymsla
er í íbúðinni. Bílskúr. Áhvflandi í
hagstæðum lánum ca 4,7 millj.
* ♦ *
♦ ♦ ♦
SKIPASUND V. 7,3 M.
Ca 90 fm rúmgóð sérhæð í þríbýli
á 2. hæð. Nýlega búið að taka
húsið í gegn að utan. íbúðin er
laus strax.
♦ ♦ ♦
VESTURBÆR
BESTA ÚTSÝNIÐ í BÆNUM
Glæsileg piparsveinaíbúð á efstu
hæð í KR-blokkinni. Sérsmíðaðar
innréttingar. Laus strax.
♦ ♦ ♦
♦ Hellisgata V. 5,2 m.
♦ Langholtsvegur V. 6,3 m.
♦ Miðvangur V. 6,5 m.
2ja herb.
BLONDUBAKKI V. 5,3 M.
Óvenju stór ca 74 fm 2ja herbergja
íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Ný
eldhúsinnrétting. Nýgólfefni. Svalir
og mjög rúmgóð geymsla. Áhvfl-
andi ca 2,8 millj. í hagstæðum
lánum.
♦ ♦ ♦
♦ Þangbakki V. 5,5 m.
HÁALEITI V. 7,9 M.
Ca 100 fm endaíbúð á 2.
hæð. Nýstandsett að utan.
Ein íbúð á hæð. Skuldlaus.
Laus strax.
♦ ♦ ♦
HRAUNBÆR V. 6,5 M.
Ca 65 fm glæsileg íbúð á 3. hæð.
Parket á stofu og herbergjum.
Granít á baði og forstofu. Áhvflandi
f hagstæðum lánum ca 4 millj.
♦ ♦ ♦
NEÐSTALEITI V.11,3M.
Stórglæsileg 117 fm íbúð á þessum
vinsæla stað. Vandaðar innrétting-
ar. Suðursvalir. Mikið útsýni. Stór
og góð sameign. Bflskýli. Ahvflandi
ca 1,6 millj. f hagstæðum lánum.
I smíðum
HEIÐARHJALLI V. 9,5 M.
110 fm sérhæð ásamt ca 25 fm
bílskúr í fjórbýli. Getur afhenst til-
búin undir tréverk fljótlega. Áhvfl-
andi 3,6 millj. f húsbréfum.
♦ ♦ ♦
LAUFENGI V. 7,8 M.
3ja herbergja 95 fm íbúð í ný-
byggðu húsi. (búðin afhendist 1.
mai með öllum innréttingum en án
gólfefna.
Sumarbústaður
HÚSAFELL
Ca 40 fm sumarbústaður í Húsa-
fellsskógi. Verð 2,1 millj. Má greið-
ast með verðtryggðu skuldabréfi
til langs tíma.
LAUFÁSl
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
812744
Fax: 814419
Iðnaðarhúsnæði
ARMULI
Ca 120 fm verslunar- og lagerhús-
næði. Malbikað plan og upphitað
að hluta. Götulína 8 metrar.
♦ ♦ ♦
ÁRTÚNSHÖFÐI
Ca 450 fm stórgott iðnaðarhús-
næði. Grunnflötur ca 240 fm, milli-
loft 210 m. Mjög snyrtileg aðstaða
s.s. skrifstofur, kaffistofa og bún-
ingsherbergi. Stórar innkeyrsludyr
(4x4 m). Mikil lofthæð í hluta húss-
ins.
♦ ♦ ♦
ENGJATEIGUR V. 70,0 M.
Stórglæsilegt ca 1500 fm verslun-
ar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði,
auk þess er glæsileg íbúð á 3. hæð
hússins. Snyrtileg lóð. Staðsetning
og húsnæði er tilvalið fyrir fyrirtæki
sem leggur mikið uppúr snyrtilegu
umhverfi.
♦ ♦ ♦
LÁGMÚLI
TILSÖLU EÐA LEIGU
Tæplega 400 fm skrifstofuhúsnæði
í lyftuhúsi. Mjög góðar innréttingar
sem henta fyrir margskonar starf-
semi sem skiptist í 8 skrifstofuher-
bergi, fundarherbergi, almenning
(stórt fjölnotarými), kaffistofu,
skjalageymslur og snyrtingar. Frá-
gangur til fyrirmyndar. Frábært út-
sýni. Möguleiki á áberandi stað-
setningu skilta. Laust 1. mars nk.
♦ ♦ ♦
TANGARHÖFÐI V.17M.
Ca 480 fm iönaðarhúsnæði á
tveimur hæðum með þremur inn-
keyrsludyrum. Sérinngangur er á
aðra hæð hússins. Verð 35 þús.
pr. fm.
Félag fasteignasala
*