Morgunblaðið - 27.03.1994, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
KVIKMYNDIR/LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýninga myndina Tombstone sem Qallar
um frægasta skotbardaga Yillta vestursins, aðdraganda hans og eftirmál. Hetjurnar
eru hinir sögufrægu Wyatt Earp og Doc Holliday, leiknir af Kurt Russel og Val Kilmer.
Þeir góðu
WYATT Earp, bræður hans og Doc Holliday á leið að O.K. Corrall, til sögufrægs uppgjörs við hina illræmdu kúreka..
Vígaferli og
viðskipti
í Villta vestrinu
„LEIKURINN gerist í litlum bæ þar sem lögum og
reglu er kastað á glæ,“ sagði skáldið og gæti hafa
verið með kvikmyndina Tombstone í huga. Hún gerist
í samnefndum og sögufrægum bæ í eyðimörkinni vest-
ur i Arizona. Árið er 1880 og Villta vestrið stendur
undir nafni. Á skömmum tíma hefur Tombstone breyst
úr tjaldbúðum í 10 þúsund manna bæ því silfurnámur
er að finna í grenndinni. Þarna er misjafn sauður í
mörgu fé. Flestir skotglöðustu, skotvissustu og við-
skotaverstu ribbaldar og útlagar á þessum landnema-
slóðum hafa tekið saman höndum og kalla söfnuð sinn
Kúrekana. Tilgangur félagsskaparins er að sitja yfir
hlut manna, stunda ójöfnuð og vega mann og annan.
Lögreglusljórinn er flúinn úr bænum og búið að hengja
stjörnu hans á gamlan kall sem hefur lítinn strák sér
til aðstoðar og ræður hvorki við eitt né neitt. En þeg-
ar neyðin er stærst er hjálpin næst.
Ríður í bæinn Wyatt
Earp (Kurt Russel),
víðfrægur löggæslumaður
frá Dodge City í Kansas.
Sá hefur lagt sitt af mörkum
í erfiðri og mannskæðri bar-
áttu fyrir lögum og reglu
en gengur nú með þá snjöllu
hugmynd að setjast í helgan
stein í Tombstone, Arizona,
leggja frá sér byssuhólkinn
og ieggja fyrir sig viðskipti.
Með Wyatt í för eru bræður
hans tveir, Virgil (Sam Elli-
ott) og Morgan (Bill Paxton)
og konur þeirra. Einnig vild-
arvinur og fóstbróðir Wy-
atts, hinn harðskeytti og
vígfimi Doc Holliday (Val
Kilmer). Doc er tannlæknir,
kominn af hefðarfólki úr
Suðurríkjunum, en kann vel
að nota blýfyllingar frá Colt
til kvalafyllri hluta en tann-
viðgerða.
Margt fer á annan veg
en ætlað er og ekki virðist
það eiga fyrir Wyatt Earp
að liggja að hasla sér völl í
viðskiptalífinu. Hann reynir
að leiða óöldina hjá sér og
gera hosur sínar grænar
fyrir Josephine — hún syng-
ur og dansar á kránni —
en örlögin spinna sinn vef.
Einn góðan veðurdag ganga
Virgil og Morgan til liðs við
lögreglustjórann (Harry
Carey jr.) og strákinn (Ja-
son Priestley) og sverja þess
eið að knésetja Kúrekana.
Ber er hver að baki nema
sér bróður eigi og þar kem-
ur að Wyatt Earp stenst
ekki frýjunarorð bræðra
sinna. Doc Holliday hefur
haldið til við spilaborðið en
jafnskjótt og Wyatt spennir
á sig byssubeltið stendur
hann upp og gerir slíkt hið
sama. Nauðugur viljugur er
Wyatt Earp orðinn lögga á
ný og nú dregur til tíðinda.
I hópi hinna vondu eru
þeir verstir Curly Bill Broc-
ius (Powers Booth), Johnny
Ringo (Michael Biehn) og
Clanton-bræður. Eftir
skærur og taugastríð lýstur
fylkingum saman, 26. októ-
ber 1881. Vettvangur upp-
gjörsins er við rétt í útjaðri
bæjarins. Þar heitir O.K.
Corrall.
Þrátt fyrir sigur í fræg-
asta skotbardaga í sögu
Villta vestursins er fullnað-
arsigur ekki unninn. Nokkrir
Kúrekanna leika lausum
hala og hafa í hótunum við
bræðurna Earp og íjölskyld-
ur þeirra. Þegar Morgan
bróðir fellur fyrir föntunum
safnar Wyatt harðskeyttu
liði og strengir þess heit að
hreinsa þessa óværu úr bæn-
um í eitt skipti fyrir öll,
hvattur tii dáða af landeig-
andanum Henry Hooker
(Charlton Heston!).
Nú berst leikurinn upp til
fjalla og þar falla margir úr
hvoru liði. Johnny Ringo
stendur uppi sem foringi
Kúrekanna og skorar á Wy-
att í einvígi. Wyatt Earp
veit að strákurinn er sneggri
en sjálfur er hann reyndari,
klókari og ósigraður enn.
Auk þess er hann með Doc
Holliday í sínu liði.
Svona. var sagan í raun
og veru, ef marka frásögn
Wyatt Earp. Hann bar ekki
beinin í Tombstone heldur
varð að flýja þaðan ásamt
Josephine sinni til að komast
undan ákæru fyrir morðið á
Johnny Ringo.
Síðar fluttist Wyatt Earp
til Hollywood og meðal vina
hans þar voru fyrstu vestra-
hetjur hvíta tjaldsins, leik-
arnir Tom Mix og William
Hart. Wyatt Earp var tækni-
legur ráðgjafi við gerð fyrstu
vestranna sem gerðir voru í
Hollywood. Hann lést í hárri
elli árið 1929.
Leiða má getum að því
að dvölin í kvikmyndabæn-
um hafi ráðið miklu um það
að meiri ljómi er yfir minn-
ingu Wyatt Earps en ann-
arra vígamanna Villta vest-
ursins. Til dagsins í dag
munu 22 kvikmyndir hafa
verið gerðar um Wyatt Earp
og skotbardagann við O.K.
Corrall og í öðrum er fjallað
um daga hans í Dodge City.
Auk Tombstone er um þess-
ar mundir verið að frumsýna
mynd eftir Kevin Costner
um ævi kappans.
Aðstandendur Tombstone
segja myndina hafa sér-
stöðu. Annars vegar vegna
þess að nú sé í fyrsta skipti
rakið það sem gerðist eftir
bardagann við O.K. Corrall.
Hins vegar vegna þess að
ekki sé sami helgiljóminn
yfir hetjunni í þessari mynd
og hinum fyrri. Tombstone
sé í raunsæisanda Dances
with Wolves og Unforgiven,
myndanna sem gáfu Villta
vestrinu nýtt líf á hvíta
tjaldinu. Þá styðst sagan við
frásagnir Wyatt Earp II,
aldraðs bróðursonar hetj-
unnar, sem sagði sögurna
eins og frændi hafði sagt
frá, og fer að auki með
smáhlutverk í myndinni.
Helstu hvatamenn að
gerð myndarinnar voru Kurt
Russel og handritshöfund-
urinn Kevin Jarre, sem var
leikstjóri þegar tökur hófust
en fljótlega tók George Cos-
matos við leikstjórninni.
Til að myndin næði að
blanda andrúmi og umgjörð
gömlu vestranna frá sjötta
áratugnum við nýja raun-
sæið var lögð áhersla á að
tökur færu fram á söguslóð-
unum. Því var myndin tekin
í Tombstone.
í Tombstone, Arizona,
hefur tíminn staðið í stað
síðan Wyatt Earp reið í vest-
urátt. Þótt silfumámurnar
séu löngu tæmdar búa þar
enn nokkur hundruð manns.
Hins vegar fór það aldrei
svo að Wyatt Earp næði
ekki að setja svip sinn á
viðskiptalíf bæjarins. Til
Tombstone koma árlega
tugþúsundir ferðamanna að
feta í fótspor hetjunnar og
skoða O.K. Corrall. Sumir
taka með sér byssur og
skjóta upp í loft, fullir lotn-
ingar. Á hveijum sunnu-
degi, klukkan þijú, ganga
fjórir svartklæddir heima-
menn eftir aðalgötunni,
nema staðar hjá réttinni við
hæjarmörkin, draga upp
byssur sínar og skjótast á
við bófana, vinnufélaga sína
að viðstöddum fjölda áhorf-
enda. Sviðssetningin er
samkvæmt frásögn sjónar-
votta. Skothvellirnir glymja
um bæinn. Það flýgur ekk-
ert blý úr byssunum en vas-
ar áhorfendanna eru fullir
af silfri.
PG
Frá
blautu
barns-
beini
KURT Russel erfædd-
ur í Springfield í
Massachusetts árið
1951 og lékísinni
fyrstu kvikmynd 12
ára gamall þegar hann
fékk það hlutverk að
sparka í sköflunginn á
Elvis Presley í mynd-
inni What happened at
the World’s Fair. Áður
hafði hann leikið í sjón-
varpi um tíma og hélt
áfram að leika óslitið
fram á fullorðinsár,
framan af ferlinum
einkum í kvikmyndum
frá Disney. Árið 1979
komst Kurt Russel svo
á ný í tæri við Presley
en með öðrum hætti.
Þá lék hann Elvis í
sjónvarpskvikmynd
sem John Carpenter
gerði um ævi Elvis.
Þeim féll samstarfið
vel og Russel fékk
skömmu síðar aðal-
hlutverk í mynd Car-
penters, Escape From
New York.
Aðrar helstu, myndir
Kurt Russels á
fullorðinsárum eru:
Charley and the Angels
(1974), Superdad
(1978), The One and
Only (1979), Used Cars
(1980), The Thing
(1982), Silkwood (1983),
Swing Shift (1984), The
Mean Season (1985),
The Best of the Times
(1986), Big Trouble in
Little China (1986),
Overboard (1987), Tequ-
ila Sunrise (1988), Wint-
er People (1989), Tango
& Cash (1990) og Backd-
raft (1991).
Alls hefur Russel leik-
ið í um það bil 30 kvik-
myndum.
Kurt Russel er giftur
gamanleikkonunni
Goldie Hawn en þau léku
m.a. saman í myndinni
Overboard.
Goðsögnin
KURT Russel leikur
Wyatt Earp, eina sögu-
frægustu helju Villta
vestursins.