Morgunblaðið - 27.03.1994, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
Stórmeistari í heimsókn
47
verði að breyta um stfl, en Senna
hefur ekið með McLaren og lét þar
eins og kóngur í eigin ríki. Hann
kemst tæpast upp með slíkt hjá
Frank Williams, manninum sem
hefur rekið besta Formula 1 lið
heims síðustu ár, þrátt fyrir að vera
bundinn hjólastól eftir umferðarslys
eftir eina keppnina. Williams liðið
hefur 221 starfsmann í vinnu og
i höfuðstöðvar liðsins eru í Englandi.
i >,Það verður gaman að fást við nýju
bílana, sem eru ekki eins tækni-
væddir. Ég þarf að laga bílinn tals-
vert til, breyta afstöðu stjórntækja
og laga fjöðrunina. Það verður ný
reynsla að stilla bílnum upp fyrir
hvetja braut, mun meiri vinna en
síðustu ár,“ sagði Senna í samtali
við Morgunblaðið eftir æfingu á
Estroil kappakstursbrautinni. „Bíll-
inn er hraðskreiður, við náum í dag
nærri 320 km hraða, sem er meira
i en náðist á brautinni í fyrra. Ég
þurfti að gæta þess að fara ekki
of geyst, því ég er enn að læra á
bílinn. Ég ætla ekki að byija á ein-
hveiju stórkostlegu óhappi hjá nýju
Hði, þá er betra að slá aðeins af.“
Keppnisliðin eru mun jafnari í
ár, Benetton, Ferrari og McLaren
verða öll sterk í ár. „Eg þarf að
læra betur á Williams bílinn og lið-
ið í kringum hann, sem skiptir miklu
máli í harðri keppni. Ég var í mörg
ár hjá McLaren og þekki alla fram-
kvæmd mála þar. Nýi bíllinn reynir
mikið á líkamlegan styrk og það
hefur mikið að segja að rafstýrða
fjöðrunin er ekki leyfð, heldur bara
venjuleg fjöðrun. Líkamlegt ásig-
komulag skiptir því miklu máli,“
sagði Senna.
Hann hefur eigin þjálfara hvað
likamlegu hliðina varðar og metur
andlegan styrkleika mikils. Það er
líklega enginn sem getur einbeitt
sér betur en Senna í og fyrir keppni,
hann lokar sig frá öllu nema því
nauðsynlegasta áður en hann legg-
ur af stað. „Það þýðir ekki að eiga
í einhveiju fjölskylduvandamáli á
miðju keppnistímabili eða vera ást-
fanginn. Hugur þinn verður að vera
við kappaksturinn, þú verður alltaf
að gefa 100% af þér til að ná
árangri. Ég geri allt til að ná
árangri, en tek þó ekki glæfralega
áhættu. Ég gerði það á fyrstu árun-
um, en þykist hafa þroskast sem
ökumaður."
41 sigur á ferlinum
Senna hefur unnið 41 kappakst-
ursmót og varð heimsmeistari 1988,
1990 og 1991. Hann segir titlana
ekki skipta öllu máli, heldur það
að vinna hvert mót fyrir sig. Fyrsta
keppni ársins er í heimalandi hans,
Brasilíu, þar sem hann á tugmilljón-
ir áhangenda. „Mér finnst ekkert
þægilegt að byija á heimavelli, þar
sem allir vilja að þú vinnir. Það
hefði verið gott að fá meiri tíma
til að venjast nýja bílnum. Ég ek
með nýjum manni í liði og það tek-
ur tíma að venjast honum. Það tek-
ur á taugarnar að aka með öðrum
ökumanni í sama liði á samskonar
bíl. Eini ökumaðurinn sem ég hef
átt erfitt með að ná saman við er
Alain Prost. Ég átti góðar stundir
með Mika Hakkinen, sem nú ekur
á McLaren, Gerhard Berger og öðr-
um. Prost er sá eini sem hefur ver-
ið erfiður, eða ég erfiður honum,“
sagði Senna.
Frank Williams hefur mikið álit
á Senna og sagði: „Senna er sá fljót-
asti í heimi á Formula 1 bíl. Hann
ekur hratt við allar aðstæður á öll-
um brautum. Damon Hill á eftir
að læra ýmislegt af Senna og báðir
geta orðið heimsmeistarar.“ Will-
iams liðið leggur allt undir, liðið
náði heimsmeistaratitli í fyrra og
hefur því mikinn meðbyr í heimi
auglýsinga. Liðið bauð 400 blaða-
mönnum á kynningu á Estoril kapp-
akstursbrautinni á Spáni, sem segir
meira en mörg orð hve áhugi fjöl-
miðla á þessari íþrótt er mikill. Það
er því mikið álag á ökumönnum,
sem þurfa að svara ólíkustu spurn-
ingum. Á hverri keppni eru 800-
1.000 blaðamenn og þeir slást um
að ná viðtölum og myndum af bestu
köppunum, því tíminn er naumur.
Oft minnir baráttan á dýragarð,
slíkur er atgangurinn. En Formula
1 er engu lík. Þar er fylgst með
mönnum sem leggja lífið að veði á
yfir 300 km hraða meirihluta árs-
ins. Keppni um að vera fljótastur
er nútímafólki í blóð borin, hvort
sem það er á tveimur jafnfljótum,
hestum, skíðum eða á kappaksturs-
bílum. Hvað vinsældir varðar, er
Formula 1 toppurinn í íþróttaheim-
inum þegar talað er um keppni um
að vera fljótastur einhveija vega-
lengd.
Good Year flytur þúsundir dekkja á milli kappakstursmótanna sextán, sem
fram fara á hveru keppnistímabili. Sérstakir dekkjaflutningabílar með innbyggð
dekkjaverkstæði sjá keppnisliðunum fyrir dekkjum. Vinna tugir tæknimanna
við hveija keppni með tilheyrandi tækjabúnaði.
- L liimil IV, ■' ■■ »1 >íi! 10 ijivöi' I i : !!!'.•’ j i :
Jóhann Hjartarson tefldi
fjöltefli á Eyrarbakka
Eyrarbakka.
JÓHANN Hjartarson, einn sterkasti skákmaður á Islandi, var
í heimsókn á Suðurlandi dagana 22. og 23. mars.
Jóhann hélt fyrirlestur og tefldi
fjöltefli á Eyrarbakka sl. þriðjudag.
Mættir voru til leiks um 40 nem-
endur frá Eyrarbakka og Stokks-
eyri, auk nokkurra fullorðinna
skákmanna. Honum til stuðnings
voru félagar í SSON (Skákfélagi
Selfoss og nágrennis). Þátttakend-
ur í fjölteflinu voru á aldrinum 7
til 15 ára, auk hinna fullorðnu.
Að sögn Tómasar Rasmus sem
bar hitann og þungann af undir-
búningi þessa atburðar, voru menn
ákaflega ánægðir með heimsókn-
ina.
Fjölteflið fór þannig að tveir
náðu jafntefli við meistarann, þeir
Ingimundur Sigurmundsson, for-
maður SSON, og Erling Tómasson,
nemandi í 10. bekk Barnaskólans
á Eyrarbakka. Aðra andstæðinga
lagði Jóhann að velli.
Mjólkurbú Flóamanna veitti öll-
um keppendum Kókó og kókó-
mjólk, sem var vel þegið.
Skák er stunduð af kappi í
Barnaskólanum undir leiðsögn
Tómasar Rasmus, sem telur víst
að nú aukist áhuginn enn meir.
Óskar
Bestu kaupin í lambakjöti á aðeins 398kr./kg.
ínœstuvershm
*Leiðbeinandi smásöluverð
Verðið á 1. flokks
lambakjöti í
hálfum
skrokkum
lækkar um heil
20%. Fáðu þér
ljúffengt lambakjöt í
næstu verslun á
frábæru verði, aðeins
398 krónur kílóið.