Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 2
2 C SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ VÖNDUÐ RYÐFRÍ HÚSASKILTI Sérhönnuð með eigin texta. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44, sími 623614. EITT það mikilvægasta sem hafa þarf í huga þegar gluggapóstar eru málaðir er að láta málning- una kyssa glerið aðeins, mála sem sagft aðeins útá glerið. Það á alls ekki að setja málara- límband á glerið og mála síðan póstana, svipað og gert er þegar CLASSICA Sterkbyggð gróðurhús fyrir íslenska veðráttu Heildverslunin Smiöshús - E. Sigurjónsdóttir, Smiðshúsi, 225 Bessastaðahreppi, sími 650800. málaðir eru veggir innan- dyra, því þegar límbandið er síðan tekið kemur smá- brún, sár, og þar á vatn greiðan aðgang inn undir málninguna með þeim af- leiðingum að hún flagnar mun fyrr en ella. Það á held- ur ekki að mála og skera síðan meðfram með rakvéla- blaði því það hefur sömu afleiðingar í för með sér. Rétt aðferð er að mála að minnsta kosti síðustu umferðina þannig að málað sé aðeins út á glerið þannig að ekkert sár myndist. Málningin lokar sem sagt leið vatnsins og endist Ieng- ur en ella. Áður en málað er þarf að skrapa.gluggapóstana og til þess eru til ágætar sköfur sem rétt er að fjárfesta í. Síðan þarf að setja grunn á bera fleti, þar sem sér í við- inn, þannig að viðloðunin verði betri. Grunnurinn er mun þynnri en málningin og drekkur sig því betur' inn í viðinn og kemur um leið í veg fyrir sveppagróður. Mismunandi er hvort menn nota hálfþekjandi eða þekjandi málningu á glugga. Liturinn er auðvitað einn- ig mismunandi, en rétt er að hafa í huga að dökkir litir draga í sig meiri hita en ljósir og því er hætt- ara við að málningin flagni ef dökk- ir litir eru notaðir. Þá er einnig hættara við að viðurinn springi ef dökkir litir eru notaðir, vegna hit- ans. í eina tíð var algengt að glugga- póstar inni væru stíflakkaðir og hefur slíkt færst í vöxt á síðustu árum. Póstarnir fá þá fallega glansáferð og að sögn málarameist- ara dugar lakkið ekkert síður en venjuleg málning. Það er talsvert meiri vinna að lakka gluggana en að mála þá því öll forvinna verður að vera mun betri og nákvæmari, eigi áferðin að vera fallega glans- andi. Gardena...fyrir gróður og garða! COMBISYSTEM § Sama skaftið fyrir fjölmörg áhöld! cs í|pGARDENA ■ ÞEGAR mála á hús er ágæt regla að mála þakið fyrst. Síð- an veggi og enda á þakskegginu, glugg- um og hurðum. Þó er rétt að benda á að gott getur verið að ljúka alveg við þakskeggið áður en veggur er málaður því ef reisa þarf stiga er gott að eiga eft- ir að fara eina umferð yfir vegginn. ■ SKJÓL VEGGIR eru mjög algengir og þeim þarf að halda við eins og öðru í garðinum. Þar sem skjólveggir eru tvö- faldir og borðin skarast getur verið mikil vinna að mála eða fúaverja inn á milli. Sumum hefur vaxið það mjög í augum að mála slíka veggi og hafa því notað málningar- sprautu. Ef slíkt er gert þarf að muna eftir að hafa stórt pappa- spjald við vegginn þannig að máln- ingin sprautist ekki í gegn og út um allt. Ekki er nauðsynlegt að bera jafn oft á viðinn inni í veggn- um eins og þá fleti sem snúa út, því þar er veðrunin mun meiri. ■ NAUÐSYN- LEGT er að halda öllu timbri vel við. Ef ekki er reglulegt eftirlit og viðhald á timburhúsum, timb- ursólpöllum og timburskjólveggjum er hætt við að viðurinn skemmist og þá kemur oft á hann grá slikja. Hæfilegt ætti að vera að mála ann- að hvert ár. ■ VARASAMT getur verið að mála timbur of oft og of mikið. Málningin get- ur þá lokast og komið í veg fyrir að loft berist í gegn, en það er nauðsyn- legt til að viðurinn fúni ekki. Þetta á reyndar einnig við um stein. Máln- jngin má ekki vera það þétt að hún nái ekki að anda. ■ ÞAÐ getur verið gott að nota dýr efni i fyrstu umferð ti! dæmis á steinveggi, t.d. Steinvara 2000, en nota síðan ódýrari málningu í aðra umferð. Hún er þá oftast með meiri glans og auð- veldara að þrífa hana auk þess sem loft nær þá frekar að komast að steininum. ■ ÍSLENDINGAR eru gjarnir á að ijúka upp til handa og fóta þegar sólin sést og fara að mála. Vari er tekinn við því að mála í miklu sólskini því málningin þornar of hratt og nær ekki að loða eins vel við yfirborðið og ætlast er til. Ákjósanlegasta veðrið til að mála í er þegar loft er rakt, jafnvel rigning, en flöturinn sem mála á þarf að sjálfsögðu að vera þurr þannig að ekki má rigna á hann. H EFNI sem þynna má með terpentínu má jafnvel nota þeg- ar frost er úti. Það má því rigna eldi og brennisteini, eða vera talsvert frost þegar málað er, svo fremi sem flöturinn sem mála á sé þurr. ■ MIKILVÆGT er að nota sama efnið og notað var síðast því ann- ars gæti svo farið að nýja efnið loði ekki nógu vel við það gamla. ■ HITALA GNIR í bílaplön og stéttir eru mjög algengar nú orðið. Hjá BYKO fengust þær upplýs- ingar að metrinn af rörunum kosti 53 krónur og það þarf um fjóra metra í hvern fer- metra. Að auki þarf festingar og annað þannig að reikna má með að fermetrinn kosti um 240 krónur. ■ ■ GÆTA verður þess ef verið er að slá með sláttuorfi að fara ekki of nálægt tijám. Ef girnið í orfinu vefst utan um stofninn og börkurinn skemmist allan hringinn er hætt við að tréð eyðileggist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.