Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 C 9
GRASLAUST
Aldrei að slá!
HVERSU oft á sumri hefur mað-
ur bölvað í hljóði þegar grasið
er orðið það hátt í garðinum að
ekki verður lengur komist hjá
því að fara út og slá. „Ég skal
sko malbika þetta næsta sumar,“
hefur maður stundum hugsað en
hefur ekki látið verða af því -
ennþá.
Við Fannafold í Reykjavík er að
finna garð þar sem ekkert gras
er, bara möl og auðvitað runnar og
síðar meir er ætlunun að setja
blómabeð, en ekkert,_ gras. Þarna
búa hjónin Harald Óskarsson og
Marína Candi, en aðalástæðan fyrir
grasleysinu er að Marína er með
ofnæmi fyrir grasi.
„Maður hafði séð nokkra garða
þar sem mikið var um steina en
alltaf eitthvert gras. Við ákváðum
hins vegar að gera tilraun og stíga
skrefið til fulls. Við segjum oft í
gríni að ég hafi ofnæmi fyrir grasi
og Harald fyrir sláttuvélum þannig
að þetta hentar okkur ágætlega,"
sagði Marína i samtali við Morgun-
blaðið.
Hún sagði það nokkra vinnu að
halda garðinum við þrátt fyrir að
ekki þyrfti að slá. „Við erum nýbyij-
uð að standsetja garðinn, settum
jarðvegsdúk undir allt og sturtuðum
síðan tveimur bílhlössum af möl úr
Hvalfirði yfir, mölin þaðan er fal-
legri og það er aðeins litur í henni
þannig að hún er ekki eins grá.
Við finnum fyrir því núna að mölin
vill hreyfast dálítð og það þarf að
sópa henni á réttan stað. Eg held
samt að viðhald á garðinum verði
minna en við hefðbundna garða,
annars verður þú að tala við mig
eftir tíu ár, þá skal ég segja þér
hvernig til tókst, þetta er tilraun
hjá okkur,“ sagði Marína.
Hleðsla gijótveggja
er vandaverk
HLEÐSLA grjót-
garða er mikið
vandaverk og því
varla á færi annara
en handlaginna
manna. Nokkrir aðil-
ar á landinu hafa
sérhæft sig í hinni
fornu íslensku bygg-
ingarlist.
Einn þeirra sem gerir
mikið af því að
hlaða gijótgarða er
Steinþór Einarsson,
skrúðsgarðsmeistari
hjá Skrúðgarðaþjón-
ustunni. Hann er þessa
dagana að ijúka við
150 metra langan garð
hjá ÍSAL í Straumsvík
og er veggurinn rúm-
lega metri á hæð. En
er þetta ekki gríðar-
lega mikil vinna?
Morgunblaðið/Sverrir
ARNÓR Björnsson, til vinstri, Steinþór Einars-
son í miðið og Óskor Póll Björnsson ónægðir
við vegginn oð loknu stnrfi.
„Jú, þetta er mikil handavinna ef til vill eitthvað dýrari enda er
því það þarf að velja sérstaklega
allt gijót í hvem vegg og til að
það falli vel saman notum við
hamar og meitil til að meitla það
saman,“ segir Steinþór sem segir
að þetta sé hin forna íslenska
byggingarlist.
„Til að veggurinn standist ís-
lenska veðráttu þarf líka að gæta
að því að allt efni sem notað er í
vegginn og í kring um hann sé
frostþolið því annars getur farið
illa. Ef vandað er til verksins geta
veggir sem þannig eru hlaðnir
staðið um aldur og æfi.“
En eru svona veggir ekki miklu
dýrari en ef gerðir eru veggir úr
timbri eða steinsteypu?
Nei, það held ég ekki. Þeir eru
mikil vinna við að finna rétta
gijótið. Oft er grjótið sótt að
Hrauni í Ölfusi og þá þarf að
sprengja til að ná því, en í vegg-
inn í Straumsvík náði ég í gijót í
hrauninu fyrir ofan Hafnarfjörð
og þurfti að leita lengi áður en
ég fann góðan stað til að taka
það. Síðan gengur mikið af þegar
verið er að hlaða og ætli það geti
ekki oft verið um helmingur efnis-
ins sem komið er með á staðinn
sem ekki er hægt að nota. Lengd-
armetrinn í veggnum í Straumsvík
kostaði um fímmtán þúsund krón-
ur og ég held það sé ekki mikið
dýrara en veggir úr öðrum efn-
um,“ sagði Steinþór.
ALLAR STÆRÐIR SLATTUVELA
IFVRIR ALLAR STÆRÐIR GARÐAI
Morgunblaðið/Sverrir
^lÉítUvél m
alkq
SféttUVÓI Qop
MOf„,ey
MURREY:
Garðsláttuvélar, minitraktorar og
tætarar
ALKO:
Rafmagnssláttuvélar
handsláttuvélar
rafmagnsmosatætarar
rafmagnsorf
rafmagnsgreinakurlarar
rafmagnshekkklippur
safnkassar
ECHO:
Bensínorf
bensínhekkklippur
keðjusagir
kantskerar
Oregon keðjur í keðjusagir
Smiöjuvegi 4c,
Varahlutaþjonusta
■ METPOST stál-
stólpum, sem seldir
eru í BYKO og Húsa-
smiðjunni, er ætlað
að auðvelda uppsetn-
ingu á girðingum,
skjólveggjum og sólpöllum. Metpost
eru sérstakir fleygar sem reknir eru
niður í jörðina. Fleyglögunin er sögð
gera að verkum að engin hætta sé
á frostlyftingu. Ofan á fleygnum
er skór sem ber við jörð. Skórinn
er þannig hannaður að stálið fleyg-
ast inn í staurinn og heldur honum
föstum án þess að þurfi að bolta
eða skrúfa. Timbrið kemst ekki í
snertingu við jarðveginn og er sagt
að það eigi síður á hættu að fúna.
Metpost ef til í ýmsum gerðum
og stærðum. Stólpi fyrir 4“ staur
hefur kostað um 1.300 kr. og fyrir
3“ staur um 900 kr.
Auk fleyga eru til stólpar til að
bolta í steypt plön og til að steypa
í veggi. Seljendur segja að þessi
leið hafi þann óumræðanlega kost
að henni fylgi ekki allt það umstang
sem fylgir því að grafa fyrir undir-
stöðum og steypa þær niður.
Limgerðisplöntur, skógarplöntur, tré,
áburður, trjákurl og margt fleira.
Nýtt: Lífmold, ljúf til ræktunar.
Opið 8-19 - um helgar 9-17
skógræktarfélag reykjavíkur
Fossvogsbletti 1, fyrir neðan Borgarspítalann, sími 641770. Beinn simi söludeildar 641777