Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 12
MÓRGUNBLÁÐÍÐ 12 c' SUNNUDAGUR 15. MÁÍ 1994 ENDURVINNSLA Moldarbætir unninnúr TALIÐ er að um 3-400 kg af garðaúrgangi falli til í meðalstórum húsagarði á ári, á landinu öllu samtals þúsundir tonna. Lengst af fór megnið af þessum úrgangi á haugana með sorpi en garðaúrgangur er ekki sorp heldur hluti af hringrás náttúrunnar og efni í næringar- ríka mold. Frá því að möguleiki opnaðist á að losna við garðaúrgang í sérstökum gámum á gámastöðvum Sorpu hefur stór hluti garðeig- enda nýtt sér þá þjónustu og þangað hafa borist um 3 þús. tonn af garðaúrangi árlega auk þess sem ómældu magni er ekið á jarð- vegstippa sveitarfélaganna og ljóst er að enn eru þeir til sem henda garðaúrgangi með húsasorpi. Fáir hafa enn sem komið er tekið málin í eigin hendur og endurunnið þann jarðveg sem til fellur í garðinum í safnhaugum. Hins vegar hefur Sorpa til þessa ekki nýtt möguleika til að búa til mold úr gróðurúrgangi en nú er að verða breyting á því. Á vegum Sorpu er nú farið að safna garðaúrgangi í svokallaðan moldarbanka, sem er með útibú á gámastöðvum Sorpu og höfuðstöðv- ar á sérstöku svæði við höfuðstöðvar Sorpu í Gufunesi. Þar er garðaúr- ganginum komið fyrir á sérstöku svæði þar sem hann verður með- höndlaður á þann hátt sem þarf til þess að hægt verði að búa til úr honum á innan við þremur mánuðum úrvalsjarðveg. Moldarbæti, kall- ar Magnús Stephensen deildarstjóri tækni- og þróunardeildar Sorpu afurðina, sem verður tilbúin síðla sumars. Morgunblaðið/Emil- MAGNÚS Stephensen viö stæðu of trjngreinum og gnröoirgongi sem senn veröur molaður og búinn til úr moldarbætir. Starfsmenn Sorpu fylgjast með að hitastig í haugunum sé rétt því ef út af bregður fer ferlið úr skorð- um. Einnig er fylgst með aðgangi súrefnis að efninu því án þess og rétts hitastigs ná örverurnar ekki að sinna sínu hlutverki. Þegar rétt er að verki staðið verður til úrvals lyktarlaus moldarbætir. Ekki skorni fslendingar þekkja illa þefjandi skarna sem framleiddur var á árum áður með endurvinnslu en Magnús segir að ekki sé um sambærilega afurð að ræða. í moldarbæti sé nið- urbrotið fullkomið og afurðin lyktar- laus. Igarðaúrganginum eru fólgin mikil verðmæti," segir Magnús, „ekki síst í landi þar sem er léleg mold og það litla sem við eigum af henni er að fjúka burt. Við megum ekki rjúfa lífkeðjuna með því að henda garðaúrgangi með húsasorpi," segir hann og skorar eindregið á alla þá sem ekki hafa aðstöðu eða áhuga á að koma upp eigin safnhaugum að afhenda Sorpu úrgang úr görðum sínum og láta hana breyta þeim í úrvalsjarðveg. 6 milljóno tilroun Magnús hefur umsjón með þeirri tilraun sem sveitarfélögin sem standa að Sorpu hafa ákveðið að ráðast í og veija til 6 milljónum króna. Á sérstakt svæði hefur frá því í apríl verið safnað saman tijám, tijá- greinum og afklippingum tijáa, mosa og grasi sem til fellur hjá garð- yrkjustarfsmönnum sveitarfélag- anna og því er blandað saman við þann garðaúrgang sem almenningur skilar á gámastöðvamar. Öllu er komið fyrir í sérstökum haugum þar sem Magnús og starfs- menn hans taka að sér að stýra því náttúrulega ferli sem kallað er com- posting á erlendum málum og gerir að verkum að úrvalsmold verður til á sem skemmstum tíma. FullunniA innnn 3 mónoAa Ákveðinnar óvissu gætir enn sem komið er um framleiðslutímann og hvort við íslenskar veðuraðstæður verði unnt að ná því marki að mold- arbætir verði tilbúinn á 10 vikum eins og þar sem þessi starfsemi er lengst á veg komin erlendis en stefnt er að því að hringrásinni ljúki á inn- an við þremur mánuðum. Í AUSTURRÍKI er framleiöslo á moldarbæti ó húu stigi. Myndina tók Magn- ús Stephensen þar í landi ú svæði þar sem veriö er að vinna moldarbæti úr garAaúrgangi. Hér er veriA oA snúa haugum eins og gera þarf reglu- lega þær 10 vikur sem endurvinnslon tekur. Sorpa hefur eignast vél eins og þú sem tengd er drúttarvélinni. Framleiðsla moldarbætisins fer þannig fram að í Sorpu er garðaúr- gangurinn malaður, blandað við hann úrgangstréflísum frá Sorpu og síðan settur í garða þar sem hann er látinn liggja undir yfirbreiðslu. Sérstök vél hefur verið keypt til landsins sem tengd er við dráttarvél og ekur um og snýr haugunum reglulega til þess að lofta um þá og tryggja aðgang súrefnis að úrgang- inum til að hraða fyrir starfi örver- anna sem bijóta niður úrganginn og breyta honum í jarðveg. Að sögpi Magnúsar Stephensens hafa sveitarfélögin sem eiga Sorpu; Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörð- ur, Garðabær, Mosfellsbær, Sel- tjarnames, Bessastaðahreppur og Kjalarneshreppur, enn sem komið er ekki ákveðið hvað gert verður við framleiðsluna þegar hún verður full- búin. Miðað við að takist að fram- leiða 8.000 rúmmetra af mold verður kostnaðurinn á rúmmetra ekki fjarri söluverði þeirrar sigtuðu moldar sem hér er á markaði. Hugsanlegt er að sveitarfélögin nýti moldarbætinn í eigin garðyrkju- starfi en engin ákvörðun liggur fyrir um það fremur en um það hvort almenningi verði gefinn kostur á að kaupa moldarbætinn til að blanda við jarðveg í eigin görðum. Óvíst hvaó gert verAur viA framleiAsluna Annar hugsanlegur möguleiki væri að verkefnið yrði nýtt til að ýta undir framleiðslu á hágæðagróð- urmold hér á landi þar sem moldar- bætinum yrði blandað saman við mold, pakkað niður og seldur á markaði hér á landi í samkeppni við innflutta gróðurmold. Þá hafa heyrst hugmyndir um að moldarbætir verði hafður á gáma- stöðvum Sorpu og þar géfist almenn- ingi, sem kemur á gámastöðvarnar að losa sig við garðaúrgang, kostur á að taka með sér heim tilbúinn moldarbæti. Góður moldarbætir er að sögn Magnúsar of sterkur og næringar- ríkur til að unnt sé að nota hann tii ræktunar einan sér; málið er að blanda honum saman við annan jarð- veg til að auka næringargildi hans, hvort sem er á flötum eða í beðum. Magnús segir að víða erlendis sé húsdýraáburður ekki notaður sem áburður heldur endurunninn ásamt garðaúrgangi og moldarbætirinn síðan nýttur til áburðar eða jarð- vegsbætingar. Magnús segir ekki vafa á að „komposering" eða moldarbætisgerð sé framtíðarstarfsemi hér á landi. í því sambandi nefnir hann t.d. að forsenda þess að íslenskur landbún- aður fáist viðurkenndur sem lífrænn erlendis sé að garðaúrgangur sé endurunninn í moldarbæti til jarð- vegsnæringar við framleiðsluna. Vilji íslenskir bændur eða rækt- endur fá viðurkennda lífræna fram- leiðslu þurfi nýting á endurunnum garðaúrgangi til jarðvegsbætingar því að vera þáttur í framleiðslu þeirra. Til að hægt sé að nýta garðaúr- gang í þá hringrás sem Sorpa ætlar að annast segir Magnús mikilvægt að fólk blandi ekki í garðaúrganginn timbri eða gijóti. Ekki er rétt að skilja ílát og poka eftir í gámum heldur skal hvolfa úr þeim. Ekki kemur að sök þótt lífilsháttar lífrænn úrgangur á borð við ávaxta- eða grænmetishýði fylgi með en þetta ferli miðast þó ekki við endurvinnslu á slíkum úrgangi. Það verkefni bíður framtíðar. ■ TIL að meta áburðarþörf gróðurs í garðinum er hægt að fá jarðvegssýni greind hjá Rann- sóknarstofnun land- búnaðarins. Mælt er með því að láta gera slíka rannsókn þegar garður er nýr og eftir það fjórða eða fimmta hvert ár. Hins vegar er til sú þumalputtaregla að í venju- legan garð þurfi 6-10 kg af blönd- uðum áburði á hveija 100 fermetra sé borið á á hveiju vori eins og mælt er með. Best er að bera á í þurru veðri, anhars er hætt við að áburður brenni gróður, og strá jafnt á allan garðinn. Pétur N. Ólason í Gróðrarstöðinni Mörk mælir með að ef húsdýraáburður er notaður sé honum blandað saman við tilbú- inn áburð. Gamall húsdýraáburður er talinn bestur. ■ VINSÆLDIR klifuijurta og vafn- ingsplanta hafa vaxið undanfarin ár en þær þykja henta vel til að lífga uppp á húshlið- ar, stóra steinveggi. eða girðingar. Bergflétta vex á veggnum án þess að hún sé bundin upp, skógartoppur er önnur vafningsplanta sem vefur sig um band eða grind. Humall er harðger og getur dafnað á skugg- sælum stað, vex afar hratt og vefur sig um band eða grind. Þá eru ýmsar rósir hentugar við veggi eða grind, svo og bergsóley. Ymsar inniplöntur er tilvalið að festa við grindur, svo sem hojur, jasmínur og þríburablóm. Timbron-grindur fyrir vafningsplöntur og klifuijurtir fást t.d í BYKO og Húsamsmiðj- unni og kosta frá 900 krónum. ■ MIKILVÆGT er að undirbúa jarðveg- inn áður en gróður- sett er til að loft og vatn geti leikið um moldina en það er forsenda þess að plönturnar nái öruggri rótfestu. Nauðsynlegt er að stinga vel upp og blanda í jarð- veginn áburði og bætiefnum. Varist að setja áburð óblandaðan beint í holur sem gróðursett er í. Hús- dýraáburður bætir alla mold og er heppilegast að stinga hann upp með moldinni svo hann blandist efsta laginu. Mýrarmold er gott að bæta með grófum sandi eða vikri sem blandast efsta laginu. í leirkennda mold er mælt með að blanda mosa og húsdýraáburði. Nauðsynlegt er að losa um fast undirlag til að ræt- ur komist í gegn. ■ GOTT er að gróðursetja í röku veðri, að morgni eða kvöldlagi, til að plönturnar þorni ekki í sól. Jafnan er rétt að vökva jarðveginn að lokinni gróðursetningu. ■ GOTT getur ver- ið að setja húsdýra- áburð neðst í holu þegar gróðursetja á tré og runna því þá ná ræturnar í áburð- inn næsta ár á eftir og er það talið auka vöxtinn og gera plöntunni gott. ILMBJÖRK EÐA BIRKI (Betula pubescens) Nú er rétti tíminn til að huga að vali og kaupum á skógarplöntum. Góðar skógarplöntur á góðu verði. Gerum ræktunarsamninga. Ráðleggjum um plöntuval. Sendum plöntur hvert á land sem er. ^ SÆKIÐ SUMARIÐ TIL OKKAR GRÓDKARSTÖÐIN i'l Í C' STJÖKMlOHÓr IH. SÍIUIHN2HH (írórtriirstiiO .m opinhi'i i styrltjii — 25sm SITKAGRENI (Picea sitchensis) ~í 20 sm — 15 sm — 10 sm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.