Morgunblaðið - 31.05.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 B 9
og hversu margir sátu heima,“ sagði
Sigurður Jónsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna á Selfossi, en þeir töpuðu
manni í kosningunum og hafa nú
þijá bæjarfulltrúa í stað fjögurra.
„Við töpuðum þremur prósentum
og það kemur heim og saman við
þessa bylgju sem gekk yfir landið.
Hún er ein skýringin á okkar útkomu
en það eru önnur atriði hér heima
sem skipta máli. Okkar mál og okk-
ar áherslur hafa hreinlega ekki náð
til fólks á þann hátt sem við vildurn."
Aðspurður um framhald meiri-
hlutasamstarfs sjálfstæðismanna og
lista félagshyggjufólks, sagði Sig-
urður að gengið hefði verið til kosn-
inga með allt óbundið í þeim efnum
og allt væri ófrágengið um nýtt
meirihlutasamstarf. Hann vildi engu
spá um hvað úr yrði.
Kristján Einarsson
oddviti B-lista
Þreyta í
meirihluta-
samstarfinu
„VIÐ erum sigurvegararnir á Sel-
fossi, jukum fylgi okkar um 67%,
úr 22% í 35,7%, sagði Kristján Ein-
arsson, oddviti framsóknarmanna á
Selfossi, sem voru í minnihluta en
hlutu þijá af níu bæjarfulltrúum.
Kristján sagðist telja að brotthvarf
lista óháðra frá síðustu kosningum
hefði ekki haft mikil áhrif á fylgi
framsóknar, á sínum tíma hefði sá
listi sótt mest til sjálfstæðismanna.
„Eg held að við höfum verið með
heildstæðan lista og sett fram stefnu-
mál okkar af festu.“
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
lista félagshyggjufólks sem starfaði
á síðasta kjörtímabili hélt velli í kosn-
ingunum en samstarfsaðilamir
gengu óbundnir til kosninga. Að-
spurður álits á nýju meirihlutasam-
starfi sagði Kristján að þreifingar
væru að hefjast. „Við getum sagt
að það sé búið að bjóða góðan dag-
inn. Það kom fram í kosningabarátt-
unni að það var kominn brestur í
meirihlutasamstarfið." Kristján Ein-
arsson sagði að sínir óskasamstarfs-
aðilar væru þeir sem vildu skoða
stefnumál framsóknarmanna af al-
vöru og hjálpa til við að ná þeim
fram. Hann sagði að höfuðáhersla
yrði þá lögð á úrbætur í skólamálum
grunnskólans og atvinnumál.
Hveragerði
Knútur Bruun
oddviti D-lista
Treysttil að
láta hjólin
snúast
„ÉG HELD að okkur hafi verið treyst
betur en andstæðingunum til að
framkvæma hlutina og láta hjólin
fara að snúast að nýju í Hvera-
gerði,“ sagði Knútur Bruun, oddviti
D-listans í Hveragerði, sem vann
hreinan meirihluta af H-lista, Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags, Fram-
sóknarflokks og óháðra, með 52,8%
greiddra atkvæða.
„Við höfðum tvö slagorð í kosning-
unum: Blásum nýju lífi í Hveragerði
og Látum lvjólin fara að snúast á
nýjan leik. Undir þeim kjörorðum
fluttum við okkar kosningabaráttu.
Það hefur verið mikil deyfð í fram-
kvæmdum síðastliðin fjögur ár að
okkar áliti," sagði Knútur. Hann
sagðist telja að einnig hefði það skipt
máli að á D-listanum hefði verið
mikið af nýju fólki, ekki síst ungu
fólki og einnig að margir hefðu lagj;
fram mikla vinnu í langan tíma í
þágu listans.
Knútur Bruun sagði að fyrsta verk
hins nýja meirihluta sjálfstæðis-
manna yrði væntanlega að auglýsa
starf bæjarstjóra laust til umsóknar
og kjósa í trúnaðarstöður.
BÆJAR- OG SVEITARSTJORIMARKOSNINGAR 1994
Davíð Oddsson for-
maður Sjálfstæðis-
flokksins
Tvíþætt
úrslit
gagnvart
Sjálf-
flokki
TAP borgarinnar eru mikil von-
brigði fyrir sjálfstæðismenn, segir
Davíð Oddsson formaður Sjálfstæð-
isflokksins. Hann segir þó að fiokk-
urinn hafi komist vel frá mörgum
þáttum kosninganna og sé áfram
yfirburðaflokkur í höfuðborginni.
„Það má segja að úrslitin séu
tvíþætt gagnvart Sjálfstæðis-
flokknum," sagði Davíð. „Annars
vegar tapast borgin, sem eru auð-
vitað mikil vonbrigði vegna þess
að málefnastaðan þar var afar
sterk og kosningabaráttan öflug.
En það tókst að skapa stemmningu
í kringum framboð Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur og vekja
áhuga fyrir breytingum breyting-
anna vegna og það náðist ekki að
stöðva þá hreyfingu í tæka tíð.“
Davíð sagði að hins vegar hefði
Sjálfstæðisflokkurinn, sem forustu-
flokkur í ríkisstjórn á erfiðum tím-
um, komið vel frá mörgum þáttum
kosninganna. Hann væri áfram
yfirburðaflokkur í höfuðborginni og
með sterka stöðu í Hafnarfirði,
Kópavogi, Garðabæ og Seltjarnar-
nesi. Hins vegar lægju ekki fyrir
skýringar á falli meirihlutans í
Mosfellsbæ, þar virtust vera um
að ræða staðbundin vandamál. Þá
hefðu unnist góðir sigrar í Bolung-
arvík og Hveragerði og staðan
væri sterk í nýjum sveitarfélögum.
Allt lagt undir
í borgarstjórnarkosningum árið
1990 fékk Sjálfstæðisflokkurinn
60% fylgi og hefur því tapað miklu
fylgi þar síðan. Davíð sagði að ekki
væri hægt að gera þá kröfu til
nokkurs stjórnmálaflokks að hann
haldi slíku fylgi. „Það gerist nú í
fyrsta skipti, að allir flokkarnir
fara gegn Sjálfstæðisflokknum. Nú
töldu þeir sig ekki hafa neinar hug-
sjónir eða verkefnaskrá fram að
færa í eigin nafni heldur lögðu allt
undir til þess eins að ná völdum.
Það tókst því miður og ég óska
væntanlegum borgarstjóra velfarn-
aðar í þessu mikilvæga starfi. En
miðað við þá þekkingu sem ég hef
af þriggja flokka vinstristjórn í
borginni þá get ég ekki bundið
vonir við að um markvissa stjórn
verði að ræða. Ég býst við að það
verði eins og síðast mikið talað og
mikill sýndarskapur en minna um
athafnir."
Um það hvort samstarf flokk-
anna á vinstri vængnum um R-list-
ann gæti haft áhrif á íslenska
fiokkakerfið sagði Davíð að slíkt
sameiningartal hefði yfirleitt ekki
verið marktækt. Davíð sagði að
formaður Framsóknarflokksins
hefði kallað þetta tæknilegt kosn-
ingabandalag. „Þetta var ekki sagt
fyrir kosningar heldur að búið væri
að stofna sjálfstætt stjórnmálaafl.
Ég hefði gjarnan viljað að kjósend-
ur hefðu fengið að sjá myndina sem
er birt á forsíðu DV í dag nokkrum
dögum fyrir kosningar og að það
hefði verið viðurkennt sem formað-
ur Alþýðuflokksins sagði í sjón-
varpinu, að þetta væri bara til-
raunastarfsemi. Þar með viður-
I kenndi hann það sem Árni Sigfús-
son benti á að Reykvíkingar væru
tilraunadýr í þessari tilraun."
Á DV-myndinni sem Davíð vísar
til sést Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
fagna sigri ásamt formönnum Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks.
Jón Baldvin Hanni-
balsson formaður
Alþýðuflokksins
Merkileg
pólitísk
tilraun
ÚRSLIT sveitarstjórnarkosning-
anna voru vel viðunandi fyrir Al-
þýðuflokkinn að mati Jóns Baldvins
Hannibalssonar formanns flokks-
ins. Hann segir að samstarf flokk-
anna sem standa að Reykjavíkurf'
listanum sé merkileg pólitísk til-
raun um ný form í stað girðinga
flokkakerfísins.
„Það sem nær inn á spjöld sög-
unnar af kosningaúrslitunum er
sigur R-listans_ í Reykjavík," sagði
Jón Baldvin. „Ég hef orðað það svo
að þetta sé merkileg pólitísk til-
raun, þótt ég taki ekki undir það
að Reykvíkingar séu þar með orðn-
ir að tilraunadýrum. Þetta er til-
raun í besta skilningi þess orðs um
ný form í stað að mörgu leyti úr-
eltra giröinga gamla flokkakerfis-
ins. Nú munu menn fylgjast grannt
með því hvernig þessari tilraun
reiðir af,“ sagði Jón Baldvin.
Hann sagðist telja að víðtæk
samstaða um Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur sem borgarstjóraefni
hefði verið forsenda samstarfs inn-
an R-listans. „Á henni mun hvíla
mikil ábyrgð, bæði að því er varðar
borgarstjórn Reykjavíkur og einnig
gagnvarf spurningum sem bíða
svars um það hvorf þetta sé vísir
einhvers nýs sem koma skal í stað-
inn fyrir núverandi flokkakerfi,“
sagði Jón Baldvin.
Stjórnarflokkar gjalda
erfiðleika
Hann sagði kosningaúrslitin að
öðru leyti nálægt því sem við mátti
búast. Stjórnarflokkarnir, ekki síst
Alþýðuflokkurinn, hefðu legið und-
ir þungri gagnrýni, þar sem þeir
hefðu verið í stjórn á einhveiju
mesta erfíðleikatímabili sem gengið
hefði yfir þjóðina lengi. Slíkt bitn-
aði alltaf á stjórnarflokkum. Því
færi þó fjarri að Alþýðuflokkurin
hefði goldið afhroð í kosningunum
eins og skoðanakannanir bentu til.
I Hafnarfirði þyrftu menn að hafa
í huga að nýtt framboð Kvennalist-
ans hefði gert Alþýðuflokknum
ómögulegt að halda meirihlutanum
en þar hefðu Alþýðuflokksmenn
samt fengið stuðning 38% kjós-
enda. Annarstaðar á landinu hefði
flokkurinn fengið' mun betri út-
komu en honum var spáð í skoðana-
könnunum, nema á Akranesi þar
sem orðið hefði fylgisbrestur. Jafn-
framt sagði Jón Baldvin að niður-
staðan í Kópavogi hefði orðið óhag-
stæðari en hann gerði ráð fyrir.
Jón Baldvin sagði að stjórnar-
andstöðuflokkarnir hefðu styrkt
stöðu sína almennt séð, einkum
Alþýðubandalagið. „Það er eðlilegt
við þessar kringumstæður, en hægt
er að spyija hvers vegna forustu-
flokkur stjórnarandstöðunnar nýt-
ur þess ekki í meira mæli en úrslit-
in benda til. Einstök óheppileg
mál, eins og seðlabankastjóramál
og Tímamál kunna að vera hluti af
skýringunni.“
Ólafur Ragnar Gríms-
son formaður
Alþýðubandalagsins
Nýr veru-
leiki skap-
aður
ÚRSLIT sveitarstjórnarkosning-
anna voru sigur fyrir Alþýðubanda-
lagið og félagsleg viðhorf, að mati
Ólafs Ragnars Grímssonar for-
manns Alþýðubandalagsins. Hann
segir að með sigri R-listans í
Reykjavík hafi verið skapaður nýr
veruleiki í íslenskri pólitík og kröf-
ur verði gerðar til forystumanna
flokkanna, sem stóðu að listanum,
að flokkarnir standi ekki í vegi
fyrir að þessu sköpunarverki verði
haldið áfram.
„Kosninganóttin var mikil sigur-
nótt fyrir Álþýðubandalagið og hin
félagslegu viðhorf sem við höfum
boðað,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann
sagði að Alþýðubandalagið hefði
bætt við sig verulegu fylgi í 20
bæjarfélögum og kauptúnum. Sér-
staklega sagðist Ólafur Ragnar
vera ánægður með útkomu flokks-
ins í Reykjaneskjördæmi. Þá hefði
mikill fjöldi nýs fólks komið til liðs
við flokkinn, sem frambjóðendur á
listum og í kosningabaráttunni og
gífurlegur íjöldi af ungu fólki hefði
gengið til liðs við flokkinn í kosn-
ingunum.
Nýr hugmyndagrundvöllur
„Ég tel einnig að sigurinn í
Reykjavík feli í sér þau þáttaskil
að nýr hugmyndagrundvöllur hefur
fest sig I sessi. Hugmyndafræði
fijálshyggjunnar og einkavæðing-
arinnar hefur beðið mikinn ósigur
og áherslur félagshyggju og
jafnaðar vinna mikinn sigur. Það
er kominn afgerandi meirihluti
þjóðarinnar fyrir þessum félags-
legu viðhorfum," sagði Ólafur
Ragnar. Hann sagði að þetta hefði
verið viðurkennt af hálfu Árna
Sigfússonar, sem hefði áttað sig á
því að ef Sjálfstæðisflokkurinn átti
að eiga möguleika í Reykjavík þá
yrði hann að afneita fijálshyggj-
unni og einkavæðingunni.
Ólafur Ragnar sagði að í fram-
boði Reykjavíkurlistans hefðu þús-
undir verið samankomar til að
skapa nýjan veruleika í íslenskri
pólitík og gera kröfu til forustu-
manna flokkanna, sem stóðu að
R-listanum,' að þessu sköpunar-
verki yrði haldið áfram og flokkarn-
ir standi ekki í vegi fyrir því.
„Ég er sannfærður um að með
sama hætti og það var hreyfing
fólksins sem bjó til R-listann, þá
mun sú nýja sveit ungu kynslóðar-
innar halda áfram að skapa. Hvern-
ig það sköpunarverk verður að
forminu til, vil ég ekki fullyrða á
þessu stigi. En það fann sér form
sem hentaði í framboði Reykjavík-
urlistans og sótti Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur sem leiðtoga sinn
og sameiningartákn. Ég held að
þessi nýja hreyfing muni með sama
hætti finna sér það form sem hent-
ar og sækja sér það fólk sem ber
hæfileika og gæfu _til að leiða það
saman,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson.
Halldór Ásgrímsson
formaður
Framsóknarflokks
Almennt
ánægðir
með úrslitin
FRAMSÓKNARMENN eru al-
mennt ánægðir með niðurstöðu
sveitarstjórnai'kosninganna, að
sögn Halldórs Ásgrímssonar for-
manns Framsóknarflokksins.
„Mestu tíðindin urðu auðvitað í
Reykjavík en almennt má segja að
við í Framsóknarflokknum erum
ánægðir með okkar hlut. Við unn-
um á á allmörgum stöðum, annar-
staðar höldum við okkar hlut og á
einstaka stað dölum við lítillega,
aðallega þar sem við unnum á í
síðustu kosningum,“ sagði Halldór.
Hann sagði að Framsóknarflokk-
urinn hefði náð athyglisverðum
árangri víða á höfuðborgarsvæðinu
og þéttbýlissvæðinu við Eyjaljörð.
Hins vegar hlytu kosningaúrslitin
að vera mikið umhugsunarefni fyr-
ir stjórnarflokkana og þá ekki síst
Alþýðuflokkinn sem missti mjög
mikið fylgi.
„Ég var hins vegar þeirrar skoð-
unar að Alþýðuflokkurinn færi verr
út úr kosningum og Sjálfstæðis-
flokkurinn héldi betur sínum hlut.
En ég tel það á margan hátt
ánægjulegt að þar sem auglýsing-
um var mest beitt hér á höfuðborg-
arsvæðinu virðist það ekki hafa
skilað þeim árangri sem að var
stefnt. Ég hef aldrei orðið vitni að,
að jafn miklum peningum hafí ver-
ið eytt I kosningabaráttu og gerðist
nú,“ sagði Halldór.
Góður árangur
Aðspurður sagðist Halldór ekki
sjá það fyrir á þessari stundu að
sigur sameiginlegs framboðs flokk-
anna á vinstri vængnum í Reykja-
vík yrði fyrirmynd um víðtækara
samstarf flokkanna. „Ég bendi á,
að Framsóknarflokkurinn nær mjög
góðum árangi'i þar sem hann hefur
ekki boðið fram áður, svo sem í
Stykkishólmi og Mosfellsbæ og á
Hvammstanga. Víða þar sem fram-
sóknarmenn hafa verið í sameigin-
legu framboði á undanförnum árum
hafa þeir horfíð frá því og náð betri
árangri með öðrum hætti. Það var
hinsvegar mat manna að besta leið-
in til að ná málum í framkvæmd í
Reykjavík væri með sameiginlegu
framboði. Hvort það verður til
frambúðar er of snemmt að full-
yrða,“ sagði Halldór Ásgrímsson.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir þing-
maður Kvennalistans
Hlutverki
Kvenna-
lista
lokið
HLUTVERKl Kvennalistans er
ekki lokið, að mati Jónu Valgerðar
Kristjánsdóttur þingmanns
Kvennalista, þar sem hlutur kvenna
í sveitarstjórnun óx lítið í kosning-
unum á laugardag.
„Ég er mjög ánægð með úrslitin
fyrir hönd Kvennalistans. Við erum
hér í sigurvímu á ísafírði eftir að
hafa unnið fulltrúa í bæjarstjórn
og sama gerist í Kópavogi. Ég er
einnig mjög ánægð með hlut
kvenna í Reykjavík, ekki síst
Kvennalistakvenna,“ sagði Jóna
Valgerður.
Hún sagði að mörg ár væru síð-
an hún hefði myndað sér þá skoðun
að íslensk flokkapólitík væri orðin
úrelt. „Hins vegar hefur Kvenna-
listinn sannað tilvist sína og haft
veruleg áhrif þau 12 ár sem hann
hefur starfað. Mér sýnist ekki að
hlutverki hans sé lokið því hlutur
kvenna í sveitarstjórnum hefur að-
eins vaxið um 1% frá síðustu kosn-
ingum.“
Línur skerpast
Jóna Valgerður sagði það spurn-
ingu hvaða áhrif úrslitin og sigur
sameiginlegs framboðs í Reykjavík
hefðu. Hún benti á að Kvennafram-
boðið og Kvennalistinn síðar hefðu
hafíst í Reykjavík og það sem þar
gerðist hefði gjarnan áhrif út um
landið. „Því er ekkert óeðlilegt að
umræða hefjist um víðtækara sam-
starf en það er miklu stærra mál
að ná saman öllum flokkum á
landsvísu þannig að það verði að-
eins tvö framboð í Alþingiskosning-
um. Ég held því ekki að það gerist
svo fljótt en þróunin getur.orðið
sú, að línur skerpist. Menn hafa
verið að færast inn á miðjuna og
Sjálfstæðisflokkurinn ’nefur verið
að koma til móts við félagshyggju-
flokkana. Og það getur verið að
þróunin haldi svona áfram að það
verði meira afgerandi tveir pólar.
Almennt um kosningaúrslitin
sagði Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir, að fylgið hafi verið í átt frá
landsstjórninni. Hún sagðist hins
vegar hafa átt von á því að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi ekki gjalda
þess jafn mikið og raun bar vitni
þar sem skoðanakannanir hefðu
frekar bent til þess að Alþýðuflokk-
urinn yrði fyrir verulegu fylgistapi.