Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 B 5
DAGLEGT LÍF/FERÐALÖG
Ekki liggja í rúminu andvaka
Meðal þess sem nauðsynlegt er
að gera við svefnleysi er að minnka
rúmlegu. Þegar fólk liggur lengi og
byltir sér dottar það oft án þess að
vita það og minnkar þar með mögu-
leikann á að sofna fast. Jafnframt
þessu á sér oft stað ákveðin örvun
sem mikilvægt er að forðast og því
er best að liggja sem minnst vak-
andi í rúminu ef um svefnvandkvæði
er að ræða.
Dæmi um áhrif þess að dotta er
þegar barn sofnar í fimm mínútur í
bíl og sofnar fyrir bragðið tveimur
tímum síðar um kvöldið. Um leið og
fólk sofnar minnkar svefnþörfín.
Aðalatriðið varðandi langvarandi
svefnleysi er að hægt er að gera
mikið til að bæta ástandið til muna
og oftast á einfaldan hátt.
Meðferðin felst yfirleitt ekki í
lyfjagjöf heldur er reynt að breyta
svefnatferli fólks ásamt því að fræða
viðkomandi um svefn og svefnvenj-
ur.
Júlíus beitir sálfræðilegri meðferð
sem beinist að því að hjálpa fólki
að vinna bug á streitu, kvíða eða
öðru því sem veldur svefnleysinu.
Hann segir að svefnlyf dugi stundum
til að tjúfa vítahringinn. Slík ráð
duga oft sem skammtímalausn en
ekki til langframa. Við slíkar kring-
umstæður vinnur svefnlyfjanotkun
gegn tilgangi sínum.
Vantar djúpan svefn eöa
draumsvefn?
Fólk notar allskonar ráð gegn
svefnleysi, það drekkur flóaða mjólk,
fer í langar gönguferðir, liggur í
heitu baði.. . „Öll eru þessi
ráð ágæt, en það þarf
að gera margt annað
líka,“ segir Júlíus.
Eðlilegur svefn er
um það bil 20% djúpur
svefn og um 25%
draumsvefn. Sá sem er
syfjaður allan daginn
kann að vanta djúpan
svefn. Venjulega er
svefnmynstur næturinnar
fastmótað og frávik frá því
geta haft afleiðingar á líðan að degi.
Of mikill draumsvefn er sjúkdómur
sem þarf að meðhöndla sérstaklega,
öll vöðvaspenna dettur niður í
draumsvefni og þeir sem þjást af
þessu eiga það til að detta út af að
degi til líka.
Hvers vegna muna sumir
drauma sína en aðrir ekki?
— Nú muna sumir drauma og
aðrir ekki?
„Muni fólk drauma er það oftast
að vakna beint uppúr draumsvefni.
Ef fólk vaknar til dæmis úr 2. stigs
svefni man það venjulega enga
drauma. Draumsvefn kemur með
reglulegu millibili alla nóttina á um
það bil 90 mínútna fresti," segir
Júlíus. „Þegar einstaklingur fer allt-
af að sofa á sama tíma og vaknar
á sama tíma hittist oft þannig á að
hann vaknar ekki úr draumsvefni
og man því ekki drauma sína.“
Er átta tíma svefn
nauðsynlegur?
— Er fullorðnu fólki nauðsyn að
fá átta tíma svefn?
„Svefntími fullorðins fólk er frá
fjórum klukkustundum og upp í níu
tíma,“ segir Júlíus og bætir við að
sá meðaltími sem fólk þarf að sofa
sé 8 tímar, en auðvitað er svefnþörf-
in mest hjá börnum og á unglingsár-
unum. Þessi mikla svefnþörf er af
mörgum orsökum, en vitað er að í
djúpum svefni losnar vaxtarhormón
og því er djúpi svefninn mikilvægur
til vaxtar og viðhalds líkamans.
Kaffi og áfengl er ekki gott fyrir
svefnínn
— Sumir halda því fram að þeir
sofni ekki ef þeir drekki kaffi og
öfugt?
Kaffi er örvandi og fólk sem
drekkur mikið kaffi fyrir svefninn
sefur sundurlaust, það er engin
spurning, og oft án þess að fólk viti
það sjálft. Það sofnar kannski strax
eins og þeir gera líka sem drekka
áfengi, en svefninn verður ekki eðli-
legur og oft nær fólk ekki nægum
djúpum svefni.
— Eigi fólk í erfiðleikum með
svefn getur það þá leitað beint til
ykkar?
„Það má hringja beint í okkur,
en það er takmarkað hvað við getum
sinnt mörgum í einu. Við gerum eina
til tvær mælingar á nóttu. ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Prúðbúnar konur í fermingarveislu árið 1994.
isienskar blómarósir við Öxar-
árfoss árið 1930.
íslenskra kvenna þar sem notkun
skautbúningsins var að leggjast af
nema sem tyllidagabúningur. Konur,
sem fæddar voru fyrir aldamótin
1900, áttu sumar aldrei önnur spari-
föt en peysuföt og klæddust margar
þeim fram yfir miðja 20. öld, en
notuðu upphlut hversdags. Það voru
því yngri konur, einkum á lands-
byggðinni, sem hófu upphlutinn til
virðingar um 1900-1910 er þær fóru
að nota hann sem sparibúning. Hafði
hann náð verulegum vinsældum sem
slíkur þegar komið var fram á þriðja
áratuginn."
Að sögn Fríðar er ritið hvorki ein-
hlítt yfírlit um sögulega þróun bún-
ingsins né tæmandi lýsing á vinnu-
aðferðum við gerð hans, heldur er
dregin upp mynd af aðalatriðum og
auðkennum og reynt að koma mikJn
efni fyrir í stuttu máii.
JI
Morgunblaðið/Aldís
Markaðstorg í Hveragerði
Tívolíhúsið í Hveragerði hefur fengið nýtt hlutverk, en þar hefur verið
opnað markaðs- og sýningarsvæði. Það verður opið á föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum. Vonast er til að ferðafólk sem leið á um Suður-
landsundirlendi svo og heimamenn leggi leið sína á markaðstorgið og
nýti sér þá starfsemi sem þar fer fram í sumar.
Um síðustu helgi var torgið opn-
að en unnið hafði verið að undirbún-
ingi hússins. Mikill fjöldi fólks kom
þangað og á milli 30 og 40 buðu
þar vöru til sölu. Þar var að finna
sælgæti, blóm, grænmeti, brauð,
útskurð, heimabakstur, fisk og kjöt
og fleira. Sölubásum er komið fyrir
inn á milli tijágróðurs og göngu-
stíga svo þarna skapast mjög sér-
stakt umhverfi og stemmning. Um
helgina voru einnig sýndir þarna
hús- og tjaldvagnar og börnum
bauðst að fara á hestbak. ■
Aldís Hafsteinsdóttir
Þýskalandsflug Air Atlanta hafid
LEIGUFLUG Air Atlanta til Þýskalands hófst fyrir nokkru. Flugfé-
lagið flýgur um helgar til Frankfurt, Köln, Miinchen og Hamborgar
fram í september. Flug til Stuttgart hefst 8. júlí.
Þrjátíu og fimm ferðaheildsalar
í Þýskalandi og Austurríki standa
að leiguflugi Air Atlanta. Yfirgnæf-
andi meirihluti farþeganna eru er-
lendir ferðamenn. Islendingar í
Þýskalandi nota sér þó þjónustu
þess í auknum mæli. Það er hægt
að kaupa miða aðra leiðina eða frá
einum stað og til baka á annan.
Bergþóra Sigfúsdóttir, starfsmaður
Air Atlanta í Hamborg, sagði að
miðar aðra leiðina væru aðallega
seldir í sambandi við feijuna.
Ferðaheildsalarnir bjóða mis-
munandi verð en meðalverð flug-
miðanna með Boeing 737-þotu Air
Atlanta er um 890 þýsk mörk
(38.270 ísl.kr.) frá Múnchen og 830
mörk (35.690 ísl.kr.) frá hinum
stöðunum. Við það bætast 43 mörk
(1.850 ísl.kr.) í flugvallarskatt. ■
AB
i lerö um
fsland á
ensku og
íslensku
i
FERÐAHANDBÓKIN Á ferð
um Island er nú komin út hjá
Nesútgáfunni. Þetta er hand-
hæg bók fyrir íslendinga á
ferð um landið og unnin og
gefin út í samráði við Ferða-
málaráð. Bókinni er dreift
ókeypis í 20 þúsund eintökum,
einkum á upplýsingaskrifstof-
um um ferðamál, bensínstöðv-
um, hótelum og ferðaskrifstof-
um. Útgefandi er Nesútgáfan.
í bókinni eru
fjölmargir pistlar
um hina ýmsu
staði sem ferða-
menn sækjast
eftir að skoða,
kort af afmörk-
uðum svæðum og
sægur almennra
upplýsinga um
hvem stað. Hall-
dór Blöndal sam-
gönguráðherra
ritar kveðju
Einnig skrifar
Magnús Odds-
son, ferðamála-
stjóri nokkur orð.
Nesútgáfan
hefur einnig gef-
ið út handbókina
Around Iceland þar sem útlending-
ar geta fengið upplýsingar sem
þeir þurfa þegar þeir ferðast um
landið. Í báðum bókunum er einn-
ig mikið af greinargóðum og upp-
lýsandi auglýsingum. ■
Margt í bígerð á Sauðárkróki
Við Hótel Áningu. Vigfús Vigfússon, hótelstjóri, Jón Þór Gunnars-
son, matreiðslumaður, Sigurður Sigurbjörnsson, yfirkokkur,
Hrafnhildur Björnsdóttir, þjónn, og Birna Guðjónsdóttir, mót-
tökustjóri.
SAUÐÁRKRÓKUR hefur tekið
stórt stökk í ferðamálum síð-
ustu ár. Sumarhótelið Hótel
Áning var opnað fyrir sex
sumrum með 72 herbergjum,
flest eru með baði og auk þess
er boðið upp á svefnpokapláss.
Hótelið er í heimavist Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra.
Það hefur verið gróska I hótel-
rekstrinum síðan en þá var orðin
mikil þörf á meira gistirými vegna
ij'ölgunar ferðamanna. Að sögn
Vigfúsar Vigfússonar hótelstjóra
var orðið tímabært að nota hið
vannýtta húsnæði skólans á sumrin
og mæta þannig fjölgun ferða-
manna og þörfum nútíma við-
skiptalífs. Gestum hefur fjölgað
jafnt og þétt síðan hótelið var opn-
að, eða úr 600 gistinóttum fyrsta
sumarið í um 7.000 sl. sumar.
Vegna þessarar velgengni hefur
hótelið fært út kvíarnar og nú í
sumar var opnað hótel í Varmahlíð
með 22 herbergjum og svefnpoka-
plássi á vegum Hótels Áningar og
starfrækt er gistiaðstaða á Hólum
í Hjaltadal með svefnpokaplássi í
skólastofum fyrir allt að 70 manns.
Vigfús sagðist bjartsýnn á þennan
rekstur og á Hólum væri líka vin-
sælt að halda brúðkaup, ættarmót
og aðrar uppákomur.
Vigfús telur að heilsársgisting
sé æskileg fyrir viðskiptalíf á
staðnum og hugmyndir séu um að
byggja heilsárshótel á næstunni
þar sem aðstaða verði fyrir fjöl-
mennt ráðstefnuhald.
Sumarsæla á Króknum í júní
Á Sauðárkróki verður sú ný-
breytni í sumar að hópum verður
boðið upp á erindi um sögu staðar-
ins á ensku, þýsku, frönsku og ít-
ölsku og hægt er að fá leiðsögu-
menn í styttri ferðir.
Vikuna 19,—25.júní verður Sum-
arsæluhátíð á Króknum og verður
m.a. danshátíð eins og áður hefur
verið sagt frá í Ferðablaðinu. Sýn-
ingar verða á verkum Sölva Helga-
sonar og Bólu-Hjálmars, listsýning
Arnar Inga, sem jafnframt er hug-
myndasmiður Sumarsælunnar.
Sælkeraklúbbur verður starfrækt-
ur, þar sem boðið verður upp á
vínsmökkun og nýr bjór kynntur
sem nefndur er Sólon. Einnig verða
sýndir leikþættir.
Jónsmessuferð verður í Varma-
hlíð og farið til Bólu þar sem dag-
skrá verður um Bólu-Hjálmar og
hestaferð frá Grafarkirkju í Hofs-
ós. Sæfati fer í skemmtisiglinu
umhverfis Drangey. Hátíðinni lýk-
ur í íþróttahúsinu með 400 manna
matarveislu og balli þar sem Geir-
mundur Valtýsson og félagar halda
uppi fjörinu.
Þeir sem ekki komast á Sumar-
sæluna geta valið um ýmsa afþrey-
ingu á Sauðárkróki og nágrenni í
allt sumar. Þar er 9 holu golfvöll-
ur, hestaleigur, Drangeyjarferðir,
hestasýningar, og hjólaleiga er í
Varmahlíð svo nokkuð sér nefnt.
ÞHY ■