Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ1994 B 7
MerkingaiLr
flugvalla^^H^ xp
AAK Aranuka, Kiribati
ACA Acapulco, Mexíkó
AEP Buenos Aires, Argentínu
ALP Aleppo, Sýrlandi
ARN Arlanda, Stokkhólmi
BOS Boston, Bandaríkjunum
BXO Bissau, Guinea Bissau
CAI Kaíró, Egyptalandi
CPT Höfðaborg, S-Afríku
FAE Færeyjum
FNJ Pyongyang, Norður-Kóreu
HAM Hamborg, Þýskalandi
HAN Hanoi, Víetnam
HOU Houston, Bandaríkjunum
KEF Keflavík
LHE Lahore, Pakistan
LIS Lissabon, Portúgal
MRU Mauritíus
OSA Osaka, Japan
RAK Marrakesh, Marokkó
TCI Tenerife, Kanaríeyjum
WAW Varsjá, Póllandi
Ný gistiaðstaða
í Bjarkarholti
GISTIHEIMILIÐ Bjarkarholt á
Krossholtum, Barðaströnd, hefur
nú nýja gistiaðstöðu í 200 fm hús-
næði. Þar eru nokkur tveggja
manna herbergi og eitt fjögurra
manna og auk þess herbergi fyrir
svefnpokapláss. í gistiheimilinu
er aðgangur að eldhúsi og sameig-
inleg setustofa er fyrir gestina.
Frá Bjarkarholti er aðeins klukku-
stundar akstur á Látrabjarg og 15
km á Btjánslæk ef menn koma eða
fara með Breiðafjarðarferjunni
Baldri. Golfvöllur er ekki langt undan
og sundlaug er innan seilingar. Einn-
ig útvega húsráðendur veiðileyfi í
nágrenninu ef óskað er og loks má
geta að menn geta komist í sjó-
stangaveiði og á skak. Verð fyrir
manninn er óbreytt og kostar 1.700
kr. í uppbúnu rúmi og svefnpoka-
pláss í rúmi er 1.000 kr. Þá er rétt
að minna á að í grenndinni eru víða
fagrar gönguleiðir og ef pantað er
tímanlega er hægt að fá leiðsögn í
gönguferðir.
Ardrés á fri-
meiki f Bhutan
SMÁRÍKIÐ Bhutan í Hiinalaya-
fjöllum hefur fyrir nokkru gefið
út frímerki með teiknimyndaper-
sónunni Andrési önd.
Ástæðan er ekki sú að Andrés og
fjölskylda séu svona afskaplega vin-
sæl eða fræg og ekki heldur vegna
þess að Andrés átti nýlega sextugs-
afmæli. Síðustu ár hefur Bhutan
getið sér orð fyrir útgáfu nýstárlegra
og óvenjulegra frímerkja og búist er
við að bandarískir frímerkjasafnarar
og fleiri muni sækjast eftir Andrésar-
merkjunum. Raunar er frímerkjaút-
gáfa að verða ein drýgsta tekjulind
þessa litla konungsríkis.
FERÐALÖG
'Morgunblaðið/JK
FERÐIR út í eyðimörkina í furstadæmunum eru eftirsóttar af
ferðamönnum.
Mikil aðsókn á
ferðakaupstefnuna í Dubai
FYRSTA alþjóðlega ferðakaup-
stefnan sem efnt er til í Miðaust-
urlöndum og var í Dubai í Samein-
uðu arabisku furstadæmunum fór
fram með miklum glæsibrag.
Þátttaka var margföld á við það
sem búist var við við og stemmn-
ingin öll hin ánægjulegasta.
Forsvarsmenn ferðakaupstefn-
unnar sem var kölluð The Arabian
Travel Market staðhæfa að þessi
atburður verði ekki aðeins til að
kynna og efia ferðaþjónustu í Mið-
austurlöndum, erlendir fuiltrúar hafi
ekki síður fengið tækifæri til að
kynna sín lönd og það sem þau bjóða.
„Það verður að hafa í huga að ferða-
maður frá þessum heimshluta er
miklu dýrmætari í peningum reiknað
en ferðamenn annars staðar að,
Evrópa meðtalin," var haft eftir
blaðafulltrúa kaupstefnunnar.
Alls komu 7.255 gestir á þessa
kaupstefnu og stóð hún í fjóra daga.
Alls kynntu 300 fyrirtæki frá 52
löndum vöru sína og til þess var
tekið hve mikill áhugi blaðamanna
frá Evrópulöndum var á að sækja
kaupstefnuna og kynna hana í sínum
löndum.
Ákveðið var að næsta ferðakaup-
stefna yrði haldin í Bahrein í mars
á næsta ári. Útlit er fyrir að enn
meiri fjöldi sæki hana því nú er sýn-
ingarpláss að verða upppantað.
Spár margra sérfræðinga í ferða-
þjónustu eru að á næstu tveimur
Frá Dubai.
áratugum verði mest aukning ferða-
manna til Indókínalandanna, til
Austur-Evrópu og til Miðaustur-
landa ef tekst að ganga tryggilega
frá friðarsamningum þar.
Skipulagning og undirbúning
annaðist Reed Exhibition fyrirtækið
í Bretlandi í samvinnu við heima-
menn og var til þess tekið hve allt
gekk snurðulaust fyrir sig. Öllum
gestum gafst síðan kostur á að skoða
sig um í Furstadæmunum. Emirat-
es, flugfélag Dubai gaf öllum þátt-
takendum 50% afslátt á flugmiðum
og öll hótelin höfðu sérstök kjör í
boði.
j.k.
■
Á víkingaslóöum
í Schleswig
ÞJÓÐVERJAR ferðast í auknum mæli til íslands til að njóta
ósnortinnar náttúrunnar og komast í nána snertingu við sögueyj-
una. Að sumu leyti leita þeir Iangt yfir skammt, því þeir eiga sinn
víkingastað í Schleswig í Norður-Þýskalandi, þar sem nóg er af söfn-
um, loftið ferskt og svæðið fagurt, hreint og tært.
Víkingasafnið í Haithabu var
opnað 1985 og er á fornum víkinga-
slóðum, þar sem fornleifafræðingar
hafa komist í feitt. Safnið er eftir-
líking af hinni fornu byggð, þar sem
varpað er ljósi á lifnaðarhætti vík-
inganna fyrir 1000
árum, en fornminjarnar
eru staðfesting á því
sem áður var og er þeim
haganlega fyrir komið.
Þegar íslenskir frétta-
menn voru þar á ferð í
síðustu viku var margt
um manninn og fulltrúi
Ferðamálaráðs Þýska-
lands sagði safnið njóta
mikilla vinsælda enda
hafsjór fróðleiks. Sérs-
takir víkingadagar
verða haldnir þar hátíð-
legir 23. og 24. júlí í
sumar og geta þá allir
sett sig í spor forfeðr-
anna.
Schleswig, sem er
elsta borg Norður-
Þýskalands, er einn af
þessum vinalegu þýsku
bæjum, sem gaman er
að sækja heim. Fyrir
utan víkingasafnið er
fróðlegt að skoða dóm-
kirkjuna, Gottorfkast-
ala og þjóðminjasafnið
þar, en eftir göngu um
miðbæinn og elsta hlut-
ann við sjóinn, sem lítur
út eins og þyrping lítilla
dúkkuhúsa, er fátt
betra en setjast inn á
huggulegt veitingahús,
gefa sér tíma og njóta
réttanna, sem í boði
eru.
Schleswig er
skammt frá orlofs-
staðnum Damp, en
Flugleiðir bjóða nú upp
á sérstakar ferðir þang-
að í tengslum við flugið
til Hamborgar. Það er kjörinn fjöl-
skyldustaður og fyrir þá, sem vilja
skoða sig um í nágrenninu er
Schleswig góður kostur.
Steinþór Guðbjartsson
Morgunblaðið/Steinþór
Þjóðverjar hugsa fyrir öllu. Þessi Lassie-
hundur var á þar til gerðum stað, hunda-
stæðinu, utan við víkingasafnið í Haithabu
á dögunum.
„DÚKKUHÚSIN" í Schleswig.
Með Air Búikína og
Ethiopian frá Ongadnup
til Nairúhi
ÉG sýndi fyrirhyggju og bað Dao bílstjóra, eftir ferðina að vatni
heilögu krókódílanna, að sækja mig á Hotel Independance í Ouga
og keyra mig út á völl. Það kom sér vel, í herberginu var enginn
sími og það gleymdist að senda einhverntil að banka. Ég hrósaði
happi yfir að hafa pakkað kvöldið áður. Á vellinum var ég rukkuð
um 6 þús CFA í flugvallarskatt sem er um 800 krónur. Ég hafði
gefið Dao þessa fáu og verðlitlu alla búrkínsku seðla sem ég átti
eftir en senegalskur kaupsýslumaður bauðst strax til að borga fyr-
ir mig en banki er ekki í flugstöðinni og fúlsað við dollurum og
var það út af fyrir sig frískandi tilbreyting.
Air Búrkína á fáar flugvélar og
smáar og flýgur á mjög fáa áfanga-
staði og bara öðru hveiju. Við milli-
lentum í Bobodialasso, næst-
stærstu borg Búrkína. Flugið tók
góðan klukkutíma. Te og jólakaka
var þegin með þökkum því mér
gafst ekki tími til að fá mér í gogg-
inn á hótelinu.
Í Abidjan varð ég að bíða 10
klukkutíma eftir næsta legg með
Ethiophian Airlines til Nairóbí. Það
var langur og leiðinlegur tími því
aðstaða á flugvellinum í Abidjan
er til vansa. Engin geymsla fyrir
farangur og engin afdrep fyrir bið-
farþega og raunar afleit aðstaða
fyrir alla farþega hvort sem þeir
eru að koma eða fara. Það væri þó
bærilegt ef loftræsting væri fyrir
hendi. Næstu klukkutímar voru því
ekki bara langir heldur afar sveittir.
Á endanum ákvað ég að athuga
hvað kostaði að fljúga á C-klassa
með ET, minnug þess hvað er
þröngt á Y-farrými því flug með
tveimur millilendingum tæki a.m.k.
11 klst. Það kom í ljós að ég þurfti
að greiða um 7500 kr. fyrir, og
var ég ekki lengi að snarast í vesk-
ið. Þá kom á daginn að C-klassi
var fullur, og biðlisti, og þar
með var draumurinn búinn
og ég hírðist í mínu
þrönga sæti.
Eins og venju-—
lega var klukku-^****
tíma seinkum hjá ET. Ung stúlka
frá Ghana, fatahönnuður, búsett í
Zaire en nú á leið til Kenya var
sessunautur minn, skrafhreifín
með þvílíkum afbrigðum að ekki
verður til margs jafnað. Eftir flug-
tak var komið með blöð og síðan
snittur, samlokur og kaffi eða^
te. Ekki sæl-
keramatur en
boðlegur. Flug-
timi til Lagos
var liðlega
klukkutími en
síðan tafðist brottför og það var
enginn asi á þeim farþegum sem
komu inn í Lagos, þeir voru rúm-
lega 2 tíma að tínast í vélina. Ekki
svo mikið sem vatnsdropa var að
fá hjá ET alla þessa bið og urðu
flugfreyjur mjög pirraðar þegar ég
lét í ljós óánægju mína með það.
Þessi kvörtun mín dró dilk á
eftir sér. Þegar loks var lagt af
stað og matur var fram borinn,
„gleymdist“ ég og fékk svarið „rétt
bráðurn," ef ég minnti á mig. Þeg-
ar allir í kringum mig höfðu borðað
steik með baunum eða kjúkling og
eplaköku í eftirmat bólaði enn ekki
á bakkanum mínum og flugfreyjur
farnar í pásu.
Loks var mér hætt að finnast
þetta fyndið, fór og hitti fyrstu
freyju þar sem hún sveif um
á C-farrými og afhenti henni
ákrifleg mótmæli við þessari
fram-
BURKINA k»” bat
skjótan árangur, borðið fylltist af
mat og síðan kom hún alltaf öðru
hveiju frá C-farrými að vita
|hvort mig vanhagaði um
eitthvað.
Lent í Kinshasa eftir
þriggja tíma flug og þá
var ferðin loks hálfnuð.
Sýnd var myndin „Flótta-
maðurinn," með Harrison
Ford og smásnarli og síð-
an reyndu margir að sofa
eftir kvöldkaffið.
Skömmu fyrir lendingu
fengu Y-farþegar djús að drekka
og morgunverðarilm frá C-farrými.
Við lentum í Nairóbi 24 klst. eftir
að ég lagði af stað frá Hotel Inde-
pendance í Ouga og var mikið gleði-
efni að sjá minn elskulega Kingbo
bílstjóra með nafnið mitt á spjaldi
þegar ég kom í gegnum tollskoðun.
Jóhanna Kristjónsdóttir