Morgunblaðið - 21.07.1994, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forstöðumanni húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar sagt upp störfum
100 milljónir
þarf til að greiða
skuldir nefndar
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar
ákvað á fundi sínum sl. mánudag
að segja Jónu Ósk Guðjónsdóttur,
forstöðumanni húsnæðisnefndar
bæjarins og forseta bæjarstjórnar
á seinasta kjörtímabíli, upp störf-
um. Var Jónu boðið að taka við
byggðasafni bæjarins og vinna að
menningarmálum, en eftir að hún
hafnaði því boði var ljóst að upp-
sögn var ekki umflúin, að sögn
Magnúsar Gunnarssonar, for-
manns bæjarráðs.
Arsreikningar
Fyrir skömmu voru ársreikn-
inga húsnæðisnefndar fyrir 1993
lagðir fram og er beðið eftir upp-
gjöri fyrir fyrra hluta árs 1994,
en ljóst er að fjármálastjórn og
staða nefndarinnar er mjög slæm
og hefur verið lengi, að sögn
Magnúsar. Hann segir að leggja
þurfi nefndinni til 100 milljónir
króna til að greiða skuldir hennar
og koma rekstri í eðlilegt horf.
„Allt frá upphafi voru menn
mótfallnir því að ráða pólitískt í
þessa stöðu, og kröfur gerðar um
að forstöðumaður hefði reynslu
af fjármálastjórnun. Meirihluti
Alþýðuflokks ákvað hins vegar að
ráða þáverandi forseta bæjar-
stjórnar, Jónu Ósk, gegn vilja
meirihluta húsnæðisnefndar á sín-
um tíma. Við erum því einungis
að gera það sem við töldum eðli-
legt fyrir fjórum árum síðan, í
þeim tilgangi að koma á markviss-
ari fjármálastjórn og stöðva frek-
ari hallarekstur hjá nefndinni, auk
þess sem ýmis mál sem varða sam-
skipti við viðskiptavini nefndarinn-
ar- eru óuppgerð. í þeirri úttekt
sem nú er verið að gera á fjármál-
um bæjarins verður að sjálfsögðu
farið í saumana á málefnum
nefndarinnar," segir Magnús.
„Siðlaus aðför“
Á fundi bæjarráðs óskuðu full-
trúar Alþýðuflokks eftir því að
bóka traustyfirlýsingu á starf for-
stöðumanns húsnæðisnefndar.
„Aðför meirihluta Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks að for-
stöðumanni húsnæðisnefndar er
siðlaus og ber vott um pólitískt
ofstæki þar sem einn starfsmaður
bæjarins er hrakinn frá störfum á
pólitískum forsendum," segir í
bókun þeirra. Aðspurður um hvort
uppsögn forstöðumanns hús-
næðisnefndar sé upphaf að pólí-
tískum hreinsunum nýs meirihluta
í Hafnarfirði, kvað Magnús rangt
að nefna uppsögnina því nafni,
staðreyndin sé sú að tekið hafi
verið við afar skuldsettu búi og
hlutverk nýs meirihluta sé að rétta
stöðuna og taka af festu á þessum
málum sem öðrum í því sambandi.
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
starfsmannastjóri Hafnarfjarðar-
bæjar, segir að stað forstöðu-
manns verði auglýst laus til um-
sóknar innan tíðar. Ætlunin sé að
ráða hæfasta umsækjandann í
stöðuna en láta ekki stjórnmála-
tengsl hafa áhrif á valið. Einnig
verði ráðinn tæknimenntaður
starfsmaður til nefndarinnar.
Loðnuverksmiðjan á Þórshöfn komin í gagnið eftir breytingar og endurbætur
Þórshamar landar
fyrsta farminum
Þórshöfn, Morgunblaðið.
LOÐNUVERKSMIÐJAN á
Þórshöfn byrjaði loðnubræðslu
á þriðjudag. Það var Þórsham-
ar sem átti fyrsta farminn í
verksmiðjuna eftir breytingar
og endurbætur sem hafa staðið
yfir síðan í vor.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið stíft að því að ljúka verk-
inu svo hægt yrði að taka á
móti loðnu. Gagngerar breyt-
ingar voru gerðar á því sem
snýr að vökvahlið verksmiðj-
unnar, svo sem á dælum og
lögnum og einnig stækkun
eimingartækja og er verk-
smiðjan því vel undirbúin til
móttöku hráefnis.
Þórshamar var aðeins sólar-
hring að ná 600 tonnum og er
tiltölulega stutt sigling af
loðnumiðunum inn til Þórs-
hafnar en loðnan veiðist nú
aðallega norðaustur af Langa-
nesi. Fjöldi skipa er á loðnu-
miðunum.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
mgiöjorg ðoirun
Borgarstjóri lofaði ekki
fjölnota íþróttahúsi
Barði
KóporA
Bjar^tangar ^ J X
Hafís fyrir
Vestíjörðum fy
20. júlí 1994 : ;
HAFÍS hefur aftur Qarlægst
Vestfirði en í byrjun mánaðarins
var hann næst 16 sjómílur
undan landi. ísjaðarinn er nú 50
sjómflur norðvestur af Baróa, 28
sjómflur norður af Kögri og 38
sjómflur norður af Horni.
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-SÝN, fór í ískönnunarflug í
gær norðvestur og norður af
Vestfjörðum. Vegna þoku var
einungis um radarathugun að
ræða.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði við Morgunblað-
ið í gær að afstaða sín varðandi
aðstöðu vegna heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik á
næsta ári hefði ekki breyst. I kosn-
ingabaráttunni fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor hefði hún
verið jákvæð gagnvart hugmynd
um yfírbyggðan völl, sem tæki
7.000 áhorfendur, og væri það
enn, en hún hefði engu lofað í því
efni. Hins vegar væri ljóst að þar
sem um mikið mannvirki væri að
ræða leysti borgin það ekki upp á
eigin spýtur og ríkið yrði að koma
inn ef framkvæmdir ættu að verða
að veruleika.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði í Morgunblaðinu í gær
að bygging fjölnota íþróttahúss
hefði komið upp í kosningabarátt-
unni, „þegar frambjóðendurnir í
Reykjavík, þar á meðal Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, lýstu því yfir
fyrir kosningar að þeir væru til-
búnir að reisa hús yfir íþróttastarf-
semina í borginni." Borgarstjóri
áréttaði í gær að í kosningabarátt-
unni hefðu báðir aðilar lýst sig
tilbúna til að skoða hugmynd um
yfiroyggðan völl, en hvorugur
hefði bundið sig við að reisa mann-
virkið.
Tíu nýframkvæmdir
Sjónvarpið greindi frá sænsku
tilboði um yfirbyggðan knatt-
spyrnuvöll 20. maí sl. og þá sagði
Arni Sigfússon, þáverandi borgar-
stjóri, að stefnt væri að 10 nýfram-
kvæmdum í íþróttamálum á næsta
kjörtímabili og þar á meðal væri
þessi framkvæmd. Hann lagði
samt áherslu á innlenda hönnun,
en taldi mikilvægt að ráðast í
framkvæmdina, því tölur bentu til
þess að hægt væri að ná inn allt
að 100 milljóna króna tekjuauka
með henni vegna HM.
Ingibjörg Sólrún var einnig
hlynnt hugmyndinni, því „þama
væri hægt að slá tvær flugur í
einu höggi, standa sómasamlega
að HM í handknattleik og fá yfir-
byggðan fótboltavöll,“ sagði hún
þá og bætti við að vegna þess
hvað tíminn væri naumur kæmi
vel til greina að taka sænsku til-
boði.
Keyptisig
frá framkvæmdum
► m* m* msh.«
|
■
r:
SPRENGISANDI
Borgarstjóri sagði í gær að rík-
ið hefði ætlað að taka þátt í fyrr-
nefndum framkvæmdum á sínum
tíma, en keypt sig frá þeim. „Ef
þetta á að gerast verður ríkið að
koma inn aftur,“ sagði Ingibjörg
Sólrún. Hún sagðist geta séð fyrir
sér eignarhaldsfélag um bygging-
una, en ekki væri hægt að bíða
mikið lengur með að taka ákvörð-
un og ef þetta gengi ekki yrðu
menn að finna aðra lausn.
Veltaí
Heiðmörk
FIMM ungmenni meiddust
þegar bíll þeirra lenti út af
vegi í Heiðmörk í fyrradag.
Slysið varð um fimmleytið
síðdegis þegar fólkið var á leið
úr vinnu í Heiðmörk. Bíllinn
kom yfir blindhæð þar sem við
tekur kröpp beygja ofarlega í
Vífilsstaðahlíðinni. Ökumað-
urinn náði ekki beygjunni og
rakst bíllinn á stóran stein
utan vegar og valt á hliðina
ofan í gjótu.
Fólkið hlaut allt skrámúr
og meiðsli, sem ekki voru talin
alvarleg að sögn lögreglu. Bíll-
inn er stórskemmdur.
Valt með
timburfarm
VÖRUBÍLL skemmdist og
tengivagn eyðilagðist þegar
trossa sem bundin hafði verið
um timburfarrm á bilnum
slitnaði þannig að bíllinn valt
á Óseyrarbraut í Hafnarfirði
síðdegis í fyrradag.
Bíllinn var á leið frá hafnar-
svæðinu í Hafnarfirði og var
í beygju þegar haft utan um
farminn gaf sig með fyrr-
greindum afleiðingum. Óku-
maðurinn meiddist, en ekki
alvarlega samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu.
Bræðsluofn
Hringrásar hf.
Samþykki
bundið við
málmbræðslu
HOLLU STU VERND ríkisins
segir, að ekki hafi verið sótt
um sérstakt leyfi fyrir
bræðsluofn Hringrásar, sem
innsiglaður var að ósk stofn-
unarinnar og því virðist hann
ekki hafa verið notaður sam-
kvæmt þeim forsendum sem
kynntar voru upphaflega fyrir
Hollustuvernd ríkisins.
Hermann Sveinbjörnsson
framkvæmdastjóri Hollustu-
verndar ríkisins segir þetta í
athugasemd vegna fréttar
Morgunblaðsins fimmtudag-
inn 14. júlí sl, þess efnis að
Hollustuvernd ríkisins hefði á
sínum tíma samþykkt kaup á
málmbræðsluofni hjá fyrir-
tækinu Hringrás hf.
Bræðsla en ekki brennsla
í athugasemdinni segir Her-
mann að rétt sé að Hollustu-
vernd hafi 14. maí 1991 veitt
leyfi fyrir notkun á málm-
bræðsluofni hjá Hringrás hf.
Samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum hafi ofninn verið ætl-
aður til endurbræðslu málma
svo sem kopars, járns og áls.
Samþykki hafi byggst á þeirri
forsendu að einungis væri um
að ræða bræðslu málma, en
ekki brennslu ýmissa efna svo
sem plastefna. „í gögnunum
kom ekki fram að ofninn væri
ætlaður til að endurheimta
málma úr notuðum rafmagns-
strengjum en slíkt hefur óhjá-
kvæmilega í för með sér
brennslu einangrunarefna úr
plasti. Brennsla efna er háð
sérstöku starfsleyfi sbr. gr-
2.9. í starfsleyfi Hringrásar
hf. frá 10. apríl 1991.“