Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 27

Morgunblaðið - 21.07.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1994 27 nema örfáar kennslustundir á hverj- um degi. Við viljum leggja áherslu á að fjölga kennslustundum og nýta betur tímann á hverjum skóladegi. Þannig mætti ná fram fyrirhugaðri lengingu skólaársins í níu mánaða skólakerfmu,“ sagði hún. Unnur segir foreldra vera áhyggjufulla vegna þess að í frum- varpsdrögunum er fellt út ákvæði um hámarksfjölda nemenda í bekkj- um. „Við erum hlynnt auknu sjálf- stæði skólanna en þar sem fjárhag- urinn er svo nátengdur þessum þætti í rekstri skólanna óttumst við að börnum fjölgi í bekkjum. Við vitum af allt of mörgum dæmum þar sem núgildandi lagaákvæði um þetta efni er ekki fylgt,“ sagði hún. Það sé því von hennar og samtak- anna að ákvæði um hámarksfjölda nemenda verði haldið inni í lögum. Dönskukennarar áhyggjufullir Dönskukennarar hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna þess að í nýrri menntastefnu er gert ráð fyr- ir því að enska verði fyrsta erlenda tungumálið sem börn læri í skólum. Kirsten Friðriksdóttir, formaður Félags dönskukennara, segir að fé- --------- lagið hafi þegar mótmælt a verði tillögunum og gerir ráð kennd fyr'r sjónarmið félags- >sj ins verði kynnt enn frekar _______ áður en frumvarpið verð- ur lagt fram. Hún segir tvær meginástæður liggjá að baki mótmælunum. „Ann- ars vegar teljum við að verði Norðurlandamálum ýtt til hiiðar sé vegið að rótum íslenskrar menning- ar,“ sagði hún. „Enn torveldara yrði en nú að treysta tengsl barna og unglinga við samnorrænan menningararf.“ Hún bendir á að Norðurlöndin séu eitt námssvæði og að danska sé eitt af opinberum tungumálum í Evrópusambandinu og því sé mikilvægt að treysta und- irstöðumenntun í norrænum málum. í annan stað hefur miklum tíma og fjármunum verið varið til gerðar námsefnis fyrir dönskukennslu snemma á skólastiginu auk þess sem kennarar hafa sérstaklega menntað sig og undirbúið til að kenna ungum börnum. „Danska hefur mjög lengi verið fyrsta er- lenda málið sem kennt hefur verið og við teljum að dönskukennarar séu betur undir það búnir að kenna börnum á þessu aldursstigi en enskukennarar,“ sagði Kirsten. Sýnataka vegna rannsóknaráætlunar á lífríki hafsins tæplega hálfnuð Botndýrarannsóknir í íslenskri lög'sögu ganga vel Rannsókn á botndýralífi innan íslensku efnahags- lögsögunnar hefur staðið ------------------^---- yfir undanfarin ár. Aætl- anir gera ráð fyrir að rannsóknunum ljúki árið 1998, en vísindamenn víða um heim tengjast þeim. Sverrir Páll Er- lendsson kynnti sér rannsóknaráætlunina og ræddi við Jörund Svav- arsson, prófessor hjá Líffræðistofnun Háskóla íslands NORSKA rannsóknaskipið Hákon Mosby kom til Akureyrar um helgina eftir vikulangan leiðang- ur þar sem safnað var sýnum af botndýrum fyrir austanverðu Norð- urlandi. Þessar rannsóknir hófust 1992 og áætlað er að þeim ljúki 1998. Auk þess sem norska rann- sóknaskipið hefur verið við sýna- töku eru íslensk rannsóknaskip not- uð við það verk, en könnunin er afar umfangsmikil og þar er ætlað að rannsaka og kortleggja botn- dýralíf innan íslenskrar efnahags- lögsögu. Áður ókunnar dýrategund- ir hafa fundist við rannsókn þessa, en sýni eru send til frumgreiningar í sérstakri greiningarstöð í Sand- gerði og fara þaðan til frekari grein- ingar og rannsókna hjá stofnunum víðs vegar um heiminn. Jörundur Svavarsson prófessor hjá Líffræðistofnun Háskóla íslands hefur tekið þátt í þessum rannsókn- um og var með í leiðangri Hákon Mosby að þessu sinni. I þes- sari vikulöngu ferð voru sýni tekin út af austanverðu Norður- landi, á 40-1.300 metra dýpi, frá Þistil- fjarðardýpi og út til hafs. Komið var með sýnin til Akureyrar og þau send þaðan til frumflokkunar í sérstakri stöð sem rekin er á vegum rann- sóknarinnar i Sandgerði. Einstakt framlag Norðmanna Rannsóknaskipið Hákon Mosby er gert út af Björgvinjarháskóla og var hér í fjórða sýnatökuleið- angri sínum vegna þessa verkefnis. Jörundur sagði að rannsóknin hefði hafist 1992 og henni ætti að ljúka 1998. Þátttaka Norðmanna í þessu verki væri ómetanleg og fyrirhug- að væri framhald á henni. Þegar væri byrjað að skipuleggja fimmta leiðangur skipsins, sem væntanlega yrði í ágúst á næsta ári. Þá yrðu sýni tekin á meira dýpi en hingað til og trúlega farið um Reykjaneshrygginn. Jörundur sagði að framlag Norð- manna, með því að leggja fram skipið, og starf vísindamanna og starfsfólks væri ekki einvörðun mikilvægt heldur einnig skemmi legt, ekki síst á þessum tímum Sýni af 40-1.300 metra dýpi A stærð við lófa SÆKÖNGURLÓ er lófastórt dýr, sem lifir á töluverðu dýpi fyrir norðan ís- land. Það er sníkjudýr eða rándýr og lifir á holdýr- um, t.d. sæfíflum. slagsmála milli þjóðanna út af veið- um í Smugunni og víðar. En að þessu mikla verkefni störfuðu ekki aðeins Norðmenn og íslendingar heldur kæmu margar aðrar þjóðir við sögu. Morgunblaðið/Jörundur Svavarsson Veiðin skoðuð FRÆÐIMENN skoða ýmiss konar skrápdýr, sem fengust í Agassiz-troll á norska rann- sóknarskipinu Hákon Mosby fyrir Norðausturlandi. Alþjóðlegar rannsóknir Sýni úr botndýrarann- sóknunum koma til frum- greiningar í Sandgerði, en þar eru þau greind í fylkingar og jafnvel ættir. Þaðan fara sýnin til frekari rannsókna hjá vísindastofn- unum um víða veröld. Jörundur sagði að margir helstu fræðimenn heims á sviði botndýralífs léðu verk- efninu krafta sína og þannig væri það alþjóðlegt. Þegar væru að koma í Ijós niðurstöður þessara nákvæmn- isrannsókna. Þar væri um að ræða staðbundnar niðurstöður um út- breiðslu einstakra dýra- tegunda á hafsbotni við ísland. Heildarsvipurinn yrði hins vegar ekki sýni- legur fyrr en eftir 1988. Jörundur sagði að þess- ar rannsóknir væru gríðarlega stórt verkefni. Sýni yrðu tekin á alls 600 stöðum og sums staðar væru tekin 2-3 sýni á hveijum stað. Alls yrðu þetta um 1.600-1.800 sýni og í hverju þeirra gætu verið allt upp í Frumgreining fer fram í Sandgerði Veiðarfærin AGASSIZ-TROLL er dregið eftir sjávarbotninum í um 20 mínútur. Það grefur sig nokkra cm niður og dýrin á botninum berast inn í það. 100 dýrategundir. „í mörgum sýn- um eru dýr sem þekkjast, en ef við tökum dæmi getum við sagt að í sýni sem tekið er á 2.000 metra dýpi geta komið fyrir tegundir sem við þekkjum ekki. Þá er geysimikil vinna að rannsaka þau, kryfja og teikna og lýsa þannig nýrri dýrateg- und. Vinna við eina slíka nýja teg- und getur tekið allt að mánaðar- tíma.“ íslensk skip einnig við sýnasöfnun Jörundur Svavarsson sagði að íslensk rannóknaskip ættu afar dijúgan þátt í rannóknastarfinu. í ágúst færi Bjarni Sæmundsson til dæmis í vikulanga rannsóknaferð, þar sem beitt væri sömu tækjum og sömu aðferðum og á norska skip- inu. Jörundur sagði að þetta væri sannkallað langtímaverkefni, en því hefði miðað afar vel áfram og nærri lagi að sýnataka væri hálfnuð. „Við erum farin að sjá árangurinn, við erum farin að sjá mjög fjölbreytilegt og skemmti- legt lífríki á hafsbotninum í kring- um landið, þar sem margt kemur á óvart. Og við sjáum glögglega að með þessu verkefni mun aflast gíf- urlega mikil þekking á íslensku hafsvæði."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.