Morgunblaðið - 02.09.1994, Blaðsíða 1
-
Ljósmynd/Ingólfur Guðmundsson
IJM 14.000 grunnskólanemendur hefja nám innan tíðar og
nú eru fimm skólar á höfuðborgarsvæðinu einsetnir með
samfelldan skóladag.
Einsetinn skóli
og samfelldur skóladagur
hjá fimm reykvískum grunnskólum
VOGASKÓLI, Breiðagerðisskóli,
Lauganesskóli,Vogaskóli og Öldu-
selsskóli bætast nú við einsetna skóla
með samfelldan skóladag. Fossvogs-
skóli hefur verið starfræktur þannig
síðustu ár. „Helsta breyting felst í
að allir nemendur mæta að morgni
og eru að meðaltali 5‘/2 kennslustund
á dag, en áður voru þær tæplega 5
á dag að meðaltali. „Stefnt er að því
að allir grunnskólar verði einsetnir
innan fjögurra til fimm ára,“ segir
Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri.
Einn af liverjum fimm grunnskóla-
nemum þarf sérkennslu að mati
skólastjórnenda í Reykjavíkurum-
dæmi. Um er að ræða 2.400 börn
og hefur fjöldi þeirra verið svipaður
síðustu þijú ár. Að sögn Arthurs
Morthens hjá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis er um 60%
þarfar fyrir sérkennslu mætt. en sú
breyting verður nú á að sérkennsla
verður í boði í Rimaskóla í Grafar-
vogi á þessu skólaári.
Lestrarörðugleikar eru algengast-
ir hjá yngri aldurshópum, en stærð-
fræðiörðugleikar hjá hinum eldri.
Sérkennsla er einnig ætluð þeim sem
eiga í félagslegum örðugleikum, eru
seinþroska, eða hafa lakan mál-
þroska eða hreyfifærni. Arthur segir
að í 6 ára bekki komi nú um 120
börn sem fengið hafa sérkennslu í
leikskólum.
Drög að nýjum grunnskólalögum,
sem nú liggja fyrir, gera ekki ráð
fyrir sérkennslu. „Hugtakið verður
ósýnilegt og við höfum áhyggjur af
því. Ef ekki er gert ráð fyrir sér-
kennslu er hætt við að henni verði
ekki sinnt sem skyldi."
Á síðasta skólaári var atvinnulaust
fólk ráðið til að aðstoða sérkennara
og einnig börn í frímínútum. „Sú til-
raun tókst vel og ég geri ráð fyrir
að nú verði sams konar atvinnubóta-
vinna í boði fyrir yfir 100 manns á
höfuðborgarsvæðinu."
ÍSLANDSVIKA hefst í Árósum 26. sept-
ember og stendur til 2. september. Það er
ekki síst fyrir forgöngu Torbens Rasmundss-
en forstöðumanns Norræna hússins í Reykja-
vík sem er efnt til þessarar kynningar.
Nokkrir danskir blaðamenn hafa verið hér-
lendis síðustu daga og munu skrifa um ís-
landsvikuna þegar heim kemur og væntan-
lega fylgjast með ýmsu sem þar er á boðstól-
um.
Thorkild Simonsen borgarstjóri mun setja
vikuna með viðhöfn. Forsætisráðherrum og
menntamálaráðherrum íslands og Danmerk-
ur er boðið á vikuna.
Fjöldamargir dagskrárliðir verða Islandi
til kynningar. Nefna má sögusýningu, mynd-
listarsýningar og eru sýnd verk listamanna
frá ýmsum tímum. Hver sýning hefur ákveð-
ið heildarstef. Einnig verða kynningar og
sýningar á íslenskri húsagerðarlist. Allmarg-
ar íslenskar kvikmyndir verða sýndar, svo
og tónlistarmyndbönd, stuttmyndir ofl.
Hvers kyns tónlistai-viðburðir eru á vikunni,
geta má tónleika Erlings Blöndals Bengts-
sonar ásamt Ninu Kavataradze á opnunar-
daginn og einnig kórsöngur og rokkhljóm-
sveitarleikur. Einnig verður bókmenntum
sinnt með upplestrum skálda.
íslandsvinafélögin halda árlega fótbolta-
keppni IS-KLAKA og farin er hópreið á ís-
lenskum hestum. Margir fyrirlestrar verða í
tengslum við atriði. í veitingabúð Tónlistar-
hússins verða íslenskir réttir alla vikuna auk
annarra matarkynninga. ■
Isand
,íV\
Vv i/K
> •. V
Tvð þúsund
saeti seld til
Baltimore
RÚMLEGA tvö þúsund far-
miðar hafa verið seldir til
Baltimore eða fjögur þúsund
báðar leiðir, síðan síðdegis á
mánudag á þeim kjörum sem
Flugleiðir buðu þá eða 42.400
fyrir tvo og á Saga-farrými
geta tveir ferðast fyrir um
124.000 kr.
Margrét Hauksdóttir hjá
upplýsingadeild Flugleiða
sagði Ferðablaði að síðustu
sætin mundu að líkindum selj-
ast upp fyrir helgina og að
þessar undirtektir væru meiri
og betri en búist hefði verið
við.
Hún sagði að ýmsir héldu
síðan áfram í framhaldsflug
innan Bandaríkjanna en einnig
væru margir sem hefðu ekki
getað staðist freistinguna þeg-
ar þetta tilboð kom fram og
ákveðið að bregða sér bæjar-
leið. ■
BENEDIKT Kristinsson og Jakobína Guðmundsdóttir hjá SL.
Erlendir ferða- menn í jan.-ágúst 1994 eftir þjóðerni
1. Þýskaland 28.874 21%
2. Bandaríkin 18.413 13%
3. Danmörk 15.036 11%
4. Svíþjóð 14.451 "10%
5. Bretland ' 13.662 10%
6. Noregur 11.787 8%
7. Frakkland 7.585 5%
8. Holland 5.267 4%
9. Sviss 4.364 3%
10. Finnland 2.939 -2%
önnur lönd 18.400 m/
Hjólaferð á íslandi
vekur athygli vestan hafs
FJÖLDI fyrirspurna hefur borist til
Samvinnuferða-Landsýnar upp á síð-
kastið frá fjallahjólaklúbbum og ein-
staklingum í Bandaríkjunum eftir
myndarlega umfjöllun bandaríska
stórblaðsins New York Times um
hjóla- og gönguferð um ísland. Ferð
þessi er ein af mörgum sem innan-
landsdeild SL hefur skipulagt og
markaðssett erlendis.
Umfjöllunin þekur um þtjár síður
í 38 síðna Ferðablaði New York Tim-
es sem út kom þann 26. júní sl. og
er greinin prýdd fjölda mynda. Grein-
ina, sem ber yfirskriftina „Cycling
in the Land of Glaciers11 eða „Hjólað
í landi jökla“, skrifar blaðamaðurinn
John A. Kinch og ljósmyndarinn er
Neal A. Palumbo, en þeir tveir sóttu
fsland heim í fyrrasumar gagngert
til þess að upplifa þessa „náttúru-
períu í norðri“. För þeirra var skipu-
lögð í samvinnu við Ferðamálaráð
íslands í New York.
Blaðamaðurinn lýsir ferðinni í
smáatriðum og fer afar lofsatnlegum
orðum um land og þjóð. Umrædd
ferð tekur tólf daga og ellefu nætur.
Farið er frá Reykjavík og norður
Kjöl og síðan Sprengisandsleið til
baka. Gist er í tjöldutn og með í för
er leiðsögumaður, rúta og bílstjóri,
matartjald og kokkur. Að sögn Jak-
obínu Guðmundsdóttur hjá innan-
landsdeild SL er gert ráð fyrir því
að hjólaðir séu 35-50 knt á dag til
að halda áætlun. „Menn þurfa síður
en svo að vera keppnismenn í íþrótt-
um til þess að taka þátt í slíkum
ferðum þó æskilegt sé að ferðalang-
arnir séu almennt í góðu líkamlegu
ásigkomulagi. Sem dæmi má nefna
tekur gönguferð yfir Fimmvörðuháls
8 klst. og það krefst óneitanlega
ákveðinnar hreysti. Aftur á móti er
aldur mjög afstæður. Við höfum ver-
ið með fólk i þessum ferðum sem er
allt frá 17 ára aldri og upp í tæplega
sextugt án nokkurra vandkvæða."
Jakobína segir að reynt hafi verið
að gera slíkar ferðir eins aðgengileg-
ar og kostur hefur verið. „Ferðamað-
urinn þarf ekki annað en að koma
sjálfum sér til landsins og kannski
svefnpokanum sínum sem líka má
fá leigðan á íslandi. Við sjáum um
allt annað." Innanlandsdeildin vinnur
nú að gerð ferðabæklings fyrir 1995
og verða þar ýmsar áhugaverðar
ferðir í boði, þar á meðal snjósleða-
ferð þvert yfir Vatnajökul.
■