Morgunblaðið - 11.10.1994, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
102 Sigurleikir í Evrópukeppnum
félagsliða í handknattleik
íslensk félagslið hafa leikið 231 leik,
unnið 102, tapað 113 og gert 16 jafntefli
FH vann fyrsa Evrópuleikinn,
19:15 gegn Fredensborg
v/\ 1965 í Laugardalshöll
Valur lék fil úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða 1980, -tapaði
12:21 fyrir Grosswallstadt
Selfoss náði 100. sigurleiknum,
32:20 gegn Pick Szeged frá
Ungverjalandi í Kaplakrika
Víkingur Stjaman KR
Fram lék fyrsta Evrópuleikinn
í Danmörku 1962,
-tapaði 27:28 fyrir Skovbakken
í framlengdum leik
Þróttur Haukar Selfoss Fram
ti db
UBK IBV
■ ÁGÚST Hauksson, sem þjálfaði
og lék með 2. deildarliði Þróttar frá
Reykjavík í knattspyrnu, sem hefur
verið endurráðinn þjálfari liðsins.
Samningurinn er til tveggja ára. _
■ FJOLNIR átti að leika við ís-
firðinga í 2. deildinni í handknatt-
leik á sunnudaginn. Leikmenn lögðu
af stað með flugi en vegna snjókomu
varð að lenda á Patreksfirði og
flaug liðið því til baka til Reykjavík-
ur. Með í för voru formaður HSI
og landsliðsþjálfari, Ólafur B.
Schram og Þorbergur Aðalsteins-
son. Þeir ætluðu að_ vera viðstaddir
fyrsta deildarleik BI.
■ ÚKRAÍNSKA liðið Olympia
SKA Lviv sem lék gegn Haukum
í Evrópukeppni félagsliða um helg-
ina, lenti í Keflavík aðeins fjórum
klukkustundum áður en fyrri leikur-
inn átti að hefjast. Liðið átti að baki
þriggja sólarhringa ferðalag, fyrst
tóif tíma rútuferð til Varsjár, þar
ínémR
FOLK
þurfti iiðið að bíða í sólarhring eftir
flugi til Kaupmannahafnar, og
þegar þangað var komið missti liðið
af fluginu til íslands. Ferðalagið tók
á og var augljóst í fyrri leiknum að
liðið var þreytt.
■ FORSVARSMENN Hauka
tóku sig til og buðu rúmlega fimm-
tíu skipveijum á rússneskum togur-
um sem lágu við Hafnarfjarðar-
höfn á síðari leikinn. Skipveijamir
settu mjög skemmtilegan svip á leik-
inn, hvöttu sína menn ákaft áfram
og voru með marga fána ýmissa
nýfijálsra fyrrum Sovétþjóða sem
þeir veifuðu, auk þess sem einn var
með sovéska fánann.
■ ÚKRAÍNUMENNIRNIR léku í
slcærgulum búningum með _ auglýs-
ingu frá versluninni Bónus. Ástæðan
var sú að í samningum sem gerður
var við liðið þegar heimaleikur þeirra
var keyptur hingað var ákvæði um
að Haukar útveguðu þeim Adidas-
búninga. Liðið mun síðan leika í
þessum búningum á næsta tímabili
og auglýsa Bónus í Ukraínu.
■ FRED Lebow, hlaupstjóri New
York maraþonsins til fjölda ára, lést
um helgina eftir langa barátta við
krabbamein. Hann var 62 ára.
Lebow kom hingað til lands fyrir
nokkrum árum og tók þátt í Reykja-
víkurmaraþoni.
■ TONYA Harding fyrrum
skautadrottning er ekki sú vinsæl-
asta í Portland þessa dagana.
Aðdáendaklúbbur var stofnaður þar
þegar hún var uppá sitt besta og
þegar best lét voru um 2.000 manns
í honum. Á fimmtudaginn kom
Harding hins vegar til formannsins
og vildi fá peninga þá sem hún
hélt að klúbburinn ætti. Formaður-
inn brást hinn versti við og klúbbur-
inn var lagður niður og íbúar Port-
land eru mjög argir út í skauta-
drottninguna sína.
BREYTINGAR
Ekkert er sjálfgefíð í þessum leikinn til sögunnar, þar sem
heimi. Eitt af því er að þó menn „eru kældir“ í tvær mínút-
knattspyman hafi lengi verið ur fyrir gróf brot) Kefsingin er
vinsælasta íþróttagreinin, verð- þvi tekin út strax; mótheijinn
ur hún það ekki endilega að hagnast á henni en ekki annar
eilífu. Þess vegna huga forystu- mótheiji hins brotlega liðs í
menn knattspyrnumála stans- framtíðinni. Þegar menn hugsa
laust að því hvemig viðhalda málið hlýtur þetta að vera rök-
megi vinsældunum og jafnvel rétt.
gera íþróttina enn
tLiJ&STSi Athygliyerð hugmund
of róiega ganga að um „skammarkrok"
‘TSr-Í knattspymumanna
bannaði markvörð-
um að taka knöttinn upp eftir Þjálfarinn kunni Arsene
að samheiji spyrnir til þeirra, Wenger — nú reyndar nýlega
er dæmi um vel heppnaða breyt- brottrekinn úr starfi hjá Món-
ingu. Leikurinn gengur hraðar akó — setti ekki alls fyrir löngu
fyrir sig. fram hugmynd um að gerð yrði
Nokkrir evrópskir landsliðs- sú tilraun að leika með tiu menn
þjálfarar komu saman til skrafs í hveiju liði i stað ellefu. Rök
og ráðagerða fyrir skömmu og hans voru þau að leikmenn í
komu sér saman um nokkrar dag væru mun betur þjálfaðir,
athygiiverðar tillögur. Mark- sterkari og fljótari en um sið-
miðið er að fá menn til að ieggja ustu aldamót, en samt sem áður
meiri áherslu á sóknarknatt- væru jafn margir í liði og þá.
spymu en nú er, og eitt af því Menn hefðu því langt i frá nægi-
sem þeir lögðu til er að harðar legt pláss á vellinum í dag til
verði tekið á „tæklingum" — að athafna sig; um leið og leik-
ekki bara aftan frá, eins og á maður fengi boltann væri kom-
HM, heldur einnig framan frá inn mótheiji til að stöðva hann.
og frá hlið. Sannarlega tímabær Wenger sagði reyndar um
hugmynd enda markmiðið aðal- tvennt að ræða; annað hvort að
lega að vemda sóknarmenn svo stækka vellina eða fækka um
þeir fái meiri frið og þannig er einn í liði. Hið fyrra er ómögu-
vonast eftir fleiri mörkum. Sem legt þar sem leikvangar vfða
sagt: þau lið sem mæta til leiks um heim bjóða hreinlega ekki
til að vinna verði verðlaunuð, upp á það. Það ætti hins vegar
en ekki þau sem mæta til þess að vera auðvelt að fækka leik-
að tapa ekki. mönnum; a.m.k. í orði þó ekki
Einnig er sú hugmynd þeirra sé víst að svo verði á borði. Það
athygliverð að leikmaður sem er með öðrum orðum ekki víst
fær gult spjald verði sendur í að félög leikmanna sætti sig við
„skammarkrókinn" þegar í tillöguna, en hún er þó umhugs-
stað; fari af veili í t.d. tíu mínút- unarverð...
ur, svipað og tíðkast í íshokki. Skapti
(Einnig mætti nefna handknatt- Hallgrímsson
Erlandsliðskonan RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR alltafmeð hugann við fótboltann?
Vagninn þekkt-
ur á Stjömuvelli
RAGNA Lóa Stefánsdóttir er ein þekktasta knattspyrnukona
landsins. Hún er fædd á Akranesi og lék lengst af með liði
ÍA. Nú hefur hún verið samtals ífjögur ár með Stjörnunni í
Garðabæ, og er orðin „Stjörnumaður í gegn,“ eins og hún
segir. „Hjartað slær fyrir Stjörnuna," bætir hún við, enda starf-
ar hún fyrir félagið sem þjálfari auk þess að leika með meist-
araflokki. Ragna Lóa, sem er lærður leikskólakennari, er í
sambúð með Birni Bjartmarz, leikmanni Víkings, og saman
eiga þau dótturina Elsu Hrund Bjartmarz. Fyrir átti Ragna Lóa
soninn Stefán Kára Sveinbjörnsson, sem er átta ára.
Ragna Lóa lék ágætlega gegn
Englandi í átta liða úrslitum
Evrópukeppni landsliða um helg-
ina, en íslenska
Skapti liðið tapaði. Morg-
Hallgrímsson unblaðið spjallaði
skrifar við hana í gær og
spurði hvort hún
væri ekki svekkt yfír að hafa
tapað þessum mikilvæga leik.
„Ég var aðallega svekkt yfir
að skildum ekki sýna hvað við
getum. Við höfum fengið mikla
athygli og umfjöllun að undan-
förnu, og ekki að ástæðulausu
finnst mér, og það hefði verið
gaman að fylgja þessu eftir. En
það varð spennufall. Ég vil þó
meina að þetta sé ekki búið, þó
svo margir virðist á því. Ef við
verðum samstíga í seinni leikn-
um og spilum eins og við getum,
eigum við að geta unnið þetta
lið 2:0. Þær eru alls ekki ósigr-
andi. Við erum betri en við sýnd-
um um helgina — lykilmenn í
Iiðinu áttu því miður ekki góðan
dag, en það getur alltaf komið
fyrir.“
Þið voruð greinilega alveg
rosalega stressaðar, ekki satt?
„Við vorum bara ekki með í
byijun! Fórum alveg á taugum.
En um leið og við sáum að þetta
lið var ekkert svo miklu betra en
við, fórum við að sýna okkar rétta
andlit; ég vil meina að undir !ok
fyrri hálfleiks höfum við spilað
vel, en svo gerðist eitthvað í seinni
hálfleik, þannig að hann var
hræðilegur."
Hvað þarf helst að laga fyrir
seinni leikinn að þínu mati?
„I raun og veru er það aðallega
sjálfstraustið sem þarf að laga;
um leið og við öðlumst það kemur
hitt sjálfkrafa."
Við hvað starfarðu?
Morgunblaðið/Kristinn
Ragna Lóa Stefánsdóttir. Boltinn er aldrei langt undan enda
snýst líf hennar um knattspyrnuíþróttina um þessar mundir.
„Ég er verkefnisstjóri átaksins
Hreyfing til frambúðar, sem er
átak til að auka hreyfingu leik-
skólabarna. Þetta gengur mjög
vel, ég held fyrirlestra um málið
á leikskólum og bendi á mikil-
vægi hreyfingar. Tala um þessa
hluti við leikskólakennarana;
þetta átak er hvatning til þeirra.“
Verðurðu mjög vör við, í þessu
starfi, að börn hreyfi sig of lítið?
„Já, það þarf að auka við hreyf-
ingu vegna þjóðfélagsaðstæðna."
Svo ertu að þjálfa...
„Já, ég þjálfa stráka hjá Stjörn-
unni, litlar „snúllur“, sex til átta
ára.“
Hvernig tóku þeir því að þjálf-
arinn þeirra væri kona?
„Ég held þeir hafi fengið áfall
til að byija með! En svo snérist
þeim fljótlega hugur og voru
flestir á landsleiknum um helgina
held ég. Þeir eru ábyggilega
flestir búnir að gleymá því núna
að ég sé kvenkyns og þetta geng-
ur mjög vel. Þetta er skemmti-
legasti aldurinn til að þjálfa; það
er svo mikil gleði hjá þessum
aldurshóp, þeir hafa svo mikla
ánægju af þessu. Alvaran er enn
fjarri.“
Heimilislífið hlýtur að snúast
að verulegu leyti um fótbolta.
„Já, lífið snýst um fótbolta.
Við erum bæði að þjálfa auk þess
að spila og svo er strákurinn á
fullu í þessu líka. Börnin hafa
alist upp á fótboltavellinum og
barnavagninn er orðinn þekktur
á Stjörnuvellinum. Ég hef meira
að segja gleymt honum þar — en
mundi reyndar eftir barninu...“