Morgunblaðið - 13.11.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1994 B 7
ungis áhorfandi að fjörinu, því Sigur-
jón hafði drjúga búbót af sumardan-
sleikjum sem hann hélt fólki úr
Reykjavík og nærsveitum í stóru
tjaldi á túninu við fossinn. Hann
réði til sín harmóníkuleikara og helgi
eftir helgi flykktist fólk að Álafossi
til að finna draumum sínum útrás.
Okkur verksmiðj-
ustúlkunum bauðst
vinna við að uppvarta
á böllunum og fengum
við þjórfé gestanna að
launum. Stundum
varð afraksturinn eftir
nóttina jafnhár 40
krónunum sem Sigur-
jón greiddi mér í mán-
aðarlaun í verksmiðj-
unni.
Það kom í hlut okk-
ar þjónustustúlkn-
anna á böllunum að
hafa vit fyrir gestun-
um svo þá dagaði ekki
uppi í Mosfellssveit.
Margir þeirra áttu það
til að gerast sv.o örlát-
ir á fé sitt að þeir áttu
ekki fyrir rútunni til
Reykjavíkur um nótt-
ina. Þá gripum við til
þess ráðs að hirða af
þeim rútugjaldið á
meðan þeir vissu hvað
sneri upp og niður á
veröldinni og greidd-
um síðan fyrir þá far-
gjaldið um leið og við
studdum þá í rútuna.
Hvort draumarnir sem
þeir báru með sér upp
á Álafoss náðu að
rætast um nóttina,
ekkert veit ég um það.
Eftir á að hyggja
voru gestirnir í sumar-
gleðskap Siguqons
ekkert annað en ofur-
lítill þverskurður þjóðfélagsins í upp-
hafi kreppunnar miklu á íslandi, og
það var fyrirhafnarinnar virði að fá
að líta þetta fólk. Umkomulitlir
strákar og alþýðustelpur, gróssérar
og fínar frúr, allt veltist það hvað
innan um annað og endaði síðan
viti sínu fjær > ástarleikjum úti í
móa. Fyileríin á Álafossi voru frí-
höfn þessa fólks, þar leyfðist Reyk-
víkingum eitt og annað sem þeir
voguðu sér ekki í bænum, enda urðu
böllin á túninu margri mektarfrúnni
tækifæri til útrásar frá leiðindum
daganna. Fleiri voru þó ólofaðar en
áttu margar hveijar eftir að „giftast
ágætlega" eins og það var kallað.
Eg man að sumar urðu meira að
segja prestsfrúr.
Það var „ástand" á íslandi löngu
áður en íslenskir karlmenn tóku upp
á því að klína þessu nafni á ævin-
týraþrá mannanna barna. Og fylgdi
því mikil ullarlykt.
Engir tímar fyrir drauma
Það var ævintýri á sína vísu að
takast ein á við heiminn í fyrsta
skipti á ævinni og máta mig á mæli-
kvarða hinna fullorðnu, en samt
hvíldi lengst af uggur og þungi yfir
veru minni á Álafossi. Þar var engin
framtíð og ég sá bráðlega að ég gat
ekki gert sjálfri mér það að spinna
lífsvefinn undir þaki Sigutjóns.Mig
dreymdi um að komast í skóla en
vissi þó innst inni að nú voru engir
tímar fyrir drauma.
Algjört verðfall hafði orðið á af-
urðum þjóðarinnar, atvinnuvegirnir
voru í upplausn og upp á Álafoss
bárust fréttir af atvinnuleysi sem
ekki varð séð fyrir endann á. Fjöl-
skylda mín var sundruð og skuggi
óvissunnar vofði yfir. Móðir mín
baslaði á Bíldudal ásamt afa og
yngsta bróður mínum, hin systkinin
björguðu sér sem best þau gátu hjá
vandalausum og pabbi lá sjúkur á
Landakotsspítala. Þrekið var horfið,
hann veiktist meðal annars af berkl-
um í baki og lá mánuðum saman í
gipsi. Af Landakoti átti hann aldrei
afturkvæmt og lést i lok vetrar 1932
eftir átján mánaða sjúkdómsiegu.
. Flestar helgar tók ég áætlunarbíl-
inn til Reykjavíkur til að heimsækja
hann og kostaði ferðin krónu hvora
leið. Þar fór dtjúgur hluti launanna
minna. Mér leyndist ekki þar sem
ég sat hjá pabba í Landakoti að aldr-
ei yrði neitt eins og áður, en pabbi
var samur við sig. í rúminu þýddi
hann kristileg rit fyrir nunnurnar, í
kringum hann reis einn bókastaflinn
af öðrum og efni þeirra varð okkur
óþijótandi umræðuefni — alveg eins
og verið hafði fyrir vestan. Hann
endursagði mér það
sem hann hafði lesið
og lánaði mér þær
bækur sem honum
þótti ég eiga að lesa.
Árni Friðriksson, sem
þá var orðinn fiski-
fræðingur, hafði lært
undir skóla hjá pabba
og heimsótti hann á
spítalann til að færa
honum mikið safn er-
lendra tímarita um
náttúruvísindi. ■ Þetta
lánaði jiabbi mér til að
lesa. Eg man líka að
margar helgarnar í
Landakoti varð Al-
þýðubókin eftir Hall-
dór Laxness okkur
kærkomið tilefni til að
gleyma því sem hrjáði
hann. Þannig miðlaði
hann mér til hins síð-
asta af viti sínu og
þekkingu. Svo kom að
því að hann útskrifað-
ist af spítalanum og
af því tilefni brugðum
við okkur niður í bæ.
Ég sé hann fyrir mér
þar sem hann lítur á
spegilmynd sína í búð-
arglugga í Austur-
stræti og reynir að
bregða á leik, gamall
maður og farinn að
kröftum, rétt hálfsjö-
tugur.
„Sannaðu til, Heiða
mín, í sumar verð ég
búinn að koma mér upp ístru sem
sómir hvaða bankastjóra sem er.“
Við brostum hvort við öðru og
reyndum að trúa á betri tíma, en
það fékk snöggan endi. Pabbi fékk
hjartaáfall og lagðist aftur á Landa-
kotsspítala. Þegar öllum varð ljóst
að endalokin nálguðust var mér
bannað að heimsækja hann. Eldri
systur mínar fengu að hitta hann,
en mér var hann endanlega horfínn.
Ég var sögð of ung til að horfa upp
á dauðastríðið. Það voru reglur
systranna í Landakoti.
Upp í hugann kemur ein af síð-
ustu samverustundum okkar á spít-
alanum. Það var í eina skiptið sem
hann vék að því að nú væri komið
að kveðjum.
„Viltu lofa mér því, Heiða, að
hjálpa henni mömmu þinni til að
halda saman heimilinu eftir að ég
er farinn.“
Ég hét honum þessu og tók loforð
mitt hátíðlega. Gat ég annað gert?
En þetta varð mér býsna örlagaríkt
og lengst af síðan hefur mér verið
illa við hvers kyns loforð og heit sem
eiga að styrkja tilfinningaböndin,
hjúskaparheitið hvað þá annað. Ég
áttaði mig brátt á því að heitstreng-
ingar stríða gegn mannlegu eðli og
hefta þroska okkar. Hver og einn
ætti aldrei að þurfa að standa við
fleira en það sem samviskan býður
honum hveiju sinni.
Alla tíð síðan hef ég reynt að
standast þá freistingu að krefja aðra
um loforð eða skuldbinda sjálfa mig
með stórum loforðum.
Það var snemma morguns seint í
mars þegar ég lá milli svefns og
vöku í rúminu mínu að ég fann hendi
strokið yfir vangann. Á augabragði
kom hugboðið til mín og ég vissi
hvað orðið var — nú var hann far-
inn. Þegar ég leit upp í morgunskím-
unni horfði ég inn i djúp og dökk-
brún augu. Á rúmstokknum sat Ní-
els bóndi á Helgafelli með sitt stóra
og snúna yfirvaraskegg, líkastur
Nikulási Rússakeisara, og horfði
blíðlega á mig. Hann hafði gert sér
erindi niður að Álafossi til að færa
mér fréttina.
Með þessi djúpu b'rúnu augu.
• Veistu, ef þú vin átt — Minning-
ar Aðalheiðar Hólm Spans er 248
blaðsíður. Útgefandi: Forlagið.
Verd: 3.480.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Landstvímenningurinn og
Philip Morris Evróputvímenn
ingurinn — 130 pör í nýju
húsnæði í Þönglabakka 1
Föstudaginn 19. nóvember nk. verð-
ur landstvímenningurinn sem er einnig
Evróputvímenningur spilaður á 17
stöðum á íslandi.
Keppnin er þreföld þannig að í
hveijum riðli er spilað til verðlauna
auk þess sem spilað er um tvöföld
bronsstig, yfír landið er spilað um
gullstig og landstvímenningsmeistara-
titla, og í þriðja lagi er þetta Evrópu-
keppni og spilað um Evrópustig. Þetta
í 20. sinn sem þessi keppni er haklin
í Evrópu og er hún með örlítið breyttu
sniði frá undanförnum keppnum þar
sem útreikningurinn er nú miðaður
við Impa í stað skalans 1-100 og
spilafjöldi sem gildir til lands- og Evr-
ópuútreiknings er festur við 24 spil.
Að venju fylgir með bæklingur með
útskrift spilanna og umsögnum Omars
Sharifs, Pauls Chemla og Barrys Rig-
als;
I Reykjavík verður landstvímenn-
ingurinn vígsluhátíð í nýju og glæsi-
legu húsnæði Bridssambands íslands
í Þönglabakka 1. Þar verður opið hús
fyrir alla bridsáhugamenn frá kl. 19
en spilamennska hefst kl. 20 í stað
19.30 eins og auglýst var áður.
Útlit er fyrir mjög góða þátttöku
enda er takmarkið að setið verði við
hvert spilaborð þetta kvöld.
Skráningin er að nálgast 100 pör
og takmarkið er að a.m.k. 130 pör
spili þetta kvöld í Reykjavík og enn
fleiri úti á landi þar sem þátttaka
hefur alltaf verið góð í landstvímenn-
ingnum.
Skráping er á skrifstofu Bridssam-
bands íslands í síma 91-619360.
Bikarkeppni BSÍ, undanúrslit
og úrslit
Undanúrslit og úrslit Bikarkeppni
Bridssambands Islands verða spiluð í
Þönglabakka 1, helgina 19.-20. nóv-
ember nk. í undanúrslitum laugardag-
inn 19. spila saman sveitir Trygginga-
miðstöðvarinnar og Glitnis og sveitir
Ragnars T. Jónassonar og S. Ármanns
Magnússonar og hefst keppnin kl. 11.
Spiluð eru 48 spil í fjórum lotum og
sigurvegarar úr þessum leikjum spila
síðan til úrslita sunnudaginn 20. nóv-
ember.
Opinn hliðartvímenningur
í tilefni vígslu nýja húsnæðisins í
Þönglabakka 1 verður boðið upp á
ókeypis opinn hliðartvímenning bæði
laugardag og sunnudag. Byijað verður
að spila kl. 13 báða dagana og spiluð
u.þ.b. 30 spil.
Einnig verður hægt að koma og
taka nokkur spil og spila forgefin spil
sem gefið hafa verið stig fyrir til við-
miðunar eins og í Philip Morris og
Epson-tvímsnningunum.
Bridsfélag Kópavogs
Hjá Bridsfélagi Kópavogs er Jokið
Barómeter-keppni félagsins. Úrslit
síðasta kvölds voru:
Dóra Friðleifsd. — Guðjón Ottósson 110
Ármann J. Lárusson - Haukur Hannesson 107
Aron Þorfinnsson — Sverrir Kristinsson 90
Magnús Aspelund - Steingrimur Jónasson 78
Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson 63
Lokastaðan er:
Þröstur Ingimarsson — Ragnar Jónsson 285
Ármann J. Lárusson — Haukur Hannesson 236
Jón St. Ingólfsson - Sigurður ívarsson 226
Erlendur Jónsson — Oddur Jakobsson 217
Ragnar Björnss. - Sigurður Siguijónss. 210
MuratSerdar-ÞórðurBjömsson 210
Næsta fimmtudagskvöid verður
spilaður eins kvölds tvímenningur en
síðan byijar hraðsveitakeppni félags-
ins. Skráning er þegar hafin. Hjálpað
er til við myndun sveita.
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag hófst hraðsveitakeppni
með þátttöku 7 sveita. Staða efstu
sveita eftir fyrsta kvöldið er þessi:
ValdiniarSveinsson 600
UnaÁrnadóttir 583
Friðrik Jónsson 546
Meðalskor 540
Keppnin heldur áfram næsta þriðju-
dag.
Bridsdeild Rangæinga
Eftir fyrstu umferðina í hraðsveita-
keppni félagsins er staða efstu para
þessi:
Sv.LoftsPéturssonar 575
Sv. Lilju Halldórsdóttur 573
Sv. Baldurs Guðmundssonar 564
Sv. Auðuns R. Guðmundssonar 554
Bridsfélag Reykjavíkur
Sl. miðvikudag 9. nóvember hófst
sex kvölda sextíu para Butler-tví-
menningur og eins og við var búist
varð að vísa pörum frá vegna pláss-
leysis. Spiluð eru þijú spil á milli para
og er staðan eftir fyrstu níu umferðim-
ar eftirfarandi:
SverrirÁrmannsson-ÞorlákurJónsson 80
Hjalti Elíasson — Páll Hjaltason 72
Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 61
SigurðurSverrisson-HrólfurHjaltason 59
Matthías Þorvaldsson - Jónas P. Erlingsson 57
Guðlaugur R. Jóhannsson - Öm Arnþórsson 50
JónBaldursson-SævarÞorbjömsson 50
Bridsdeild Húnvetninga
Hraðsveitakeppni hófst miðviku-
daginn 2. nóv.
Urslit:
Sv. Ólafs Ingvarssonar 634
Sv. Gunnars Birgissonar 606
Sv. Steindórs Guðmundssonar 596
Sv. Eðvarðs Hallgrímssonar 594
Önnur umferð miðvikudaginn 9. nóv.
Úrslit:
Sv. V aldimars Jóhannssonar 652
Sv. Kára Siguijónssonar 617
Sv. Eðvarðs Hallgrímssonar 603
Sv. Jóns Sindra Tryggvasonar 599
Staðan eftir 2 umferðir af fimm:
Sv. Kára Siguijónssonar 1209
Sv. Eðvarðs Hallgrímssonar 1198
Sv. Valdimars Jóhannssonar 1192
Sv. Gunnars Birgissonar 1187
Sv. Jóns Sindra Tryggvasonar 1169
Bridsdeild Víkings
Mánud. 7. nóv. var spilaður eins
kvölds 14 para tvímenningur. Úrslit
urðu eftirfarandi:
Jakob Már Gunnarsson - Guðjón Guðmundsson 187
Guðbjöm Þórðarson - Sigfús Óm 179
Soffía Theodórsdóttir—Birgir Jónsson 174
Dóra Friðleifsdóttir - Guðjón Sigurðsson 166
Miðl. 156 stig.
Mánud. 14. nóv. verður spilaður
eins kvölds tvímenningur sem hefst
kl. 19.30 í Víkinni.
Kyrrðardagar verða í Skálholti firá
föstudegi 18. nóvember til sunnudags
20. nóvember og ef næg þátttaka fæst
2.-4. desember.
Dagskrá kyrrðardaganna hefst kl. 18.00 á föstudag og lýkur
um sama leyti á sunnudag.
Umsjón Guðrún Edda Gunnarsdóttir, guðfræðingur, og
rektor skólans, Kristján Valur Ingólfsson. Dvalargjald
er kr. 8.000. Veittur er 15% fjölskylduafsláttur.
Skráning til dvalar fer fram á skrifstofú Skálholtsskóla alla
virka daga kl. 09.00-17.00 í síma 98-68870.
Jóla- og áramótasamvera
verður í Skálholti
29. desember tii 1. janúar
Þátttakendur geta dvalið allan tímann eða hluta hans.
Hápunktur þessarar samven er miðnæturmessa á áramótum.
Dvalargjöld eru kr. 3.200. fyrir einn sólarhring
en kr. 10.000. fyrir allan tímann.
Börn greiða hluta gjalds eftir aldri.
Upplýsingar á skrifstofú Skálholtsskóla
Viltu selja
fínni antikhúsgögn og muni?
TÖKUM í
UMBOÐSSÖLU
Rúmgóð verslun - Glæsileg húsgögn.
OPIÐ ALLA DAGA KL. 12-18.
Faxafeni 5, sími 814400.
Aðalheiður
Hólm Spans
Aðalheiður
á yngri árum.
MU93.