Morgunblaðið - 13.11.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER1994 B 19
ATVINNUAUGl YSINGAR
Litgreining
- tölvuútkeyrsla
Við óskum að ráða mann með mikla þekk-
ingu á litvinnslu í Macintosh tölvum. Starfið
felst í litgreiningu og undirbúningi gagna fyr-
ir útkeyrslu, móttöku viðskiptavina og hönn-
un í tölvu. Góð reynsla og þekking á þessu
svið er algjört skilyrði.
Starfið er laust strax, en hægt er að bíða
eftir góðum manni. Góð laun í boði.
Svör sendist í afgreiðslu Mbl., merkt:
„N - 11640“, fyrir 17. nóvember.
Hússtjóri
Nýja „Miðbæjarhúsið í Hafnarfirði" í Fjarðar-
götu 13-15 leitar að stafsmanni til starfa við
húsvörslu og rekstrarstjórn.
Starfssvið viðkomandi er mjög fjölbreytt,
m.a. við eftirfarandi störf:
• Öryggisgæslu.
• Smá viðgerðir.
• Eftirlit með húseignum.
• Umsjón og eftirlit með framkvæmdum.
• Umsjón með og skipulag á ýmsum uppá-
komum í sameiginlegu verslunarrými.
• Annast ýmis önnur verkefni fyrir stjórn
húsfélagsins.
Leitað er að mjög fjölhæfum og laghentum
einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt og
skipulega, á gott með að umgangast fólk,
hefur frumkvæði og metnað til þess að tak-
ast á við ýmis verkefni.
í boði er krefjandi og fjölbreytt starf, sem
unnið er í dagvinnutíma, ásamt ágætum
launum fyrir réttan aðila.
Umsóknum um starf þetta skal skila á skrif-
stofu mína og þar eru einnig veittar allar
nánari upplýsingar.
Teitur Lárusson,
atvinnuráðgjöf,
Austurstræti 14, 4. hæð,
sími 624550,
101 Reykjavík.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Sfðumúla 39-108 Reykjavík - sími 888500 - fax: 686270
Hefur þú áhuga á
að vinna með börn-
um eða unglingum?
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar
eftir að ráða fólk sem hefur áhuga á mannleg-
um samskiptum til starfa í eftirtalin verkefni:
Tilsjónarmaður/persónulegur ráðgjafi
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér að
hafa tilsjón með börnum og unglingum
20-40 tíma á mánuði. Starfið felur í sér
stuðningshlutverk við barn eða foreldra (skv.
21. gr. laga nr. 58/1992 um vernd barna og
unglinga) og fer vinnan fram bæði utan og
innan heimilis barnsins.
Við leitum eftir fólki, sem hefur áhuga á
málefnum barna, og er æskilegur aldur um-
sækjenda 25 ára og eldri, lágmarksaldur
umsækjenda er 20 ára.
Stuðningsfjölskyldur
Við óskum eftir samvinnu við fjölskyldur á
höfuðborgarsvæðinu, sem geta tekið börn
reglubundið í helgarvistun t.d. eina helgi í
mánuði eða eftir nánara samkomulagi.
Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir verð-
andi stuðningsfjölskyldur.
Allar frekari upplýsingar veita Harpa Sigfús-
dóttir og Rúnar Halldórsson, félagsráðgjafar
vistunarsviðs, í síma 888500 f.h. dagana
14.-18. nóvember.
Reykjavík
Þvottahús
Óskum að ráða starfskraft í þvottahús
Hrafnistu nú þegar.
Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 689500
virka daga frá kl. 8-16.
au
m
*EE»
Lögleg „au pair“
í Bandaríkjunum
Verður þú næst á leið til Bandaríkjanna?
★ Þú eignast hóp af nýjum vinum.
Þú kynnist bandarískum lífsháttum.
Þú lærir enskuna vel.
Þú ferðast og upplifir ævintýri.
Þú dvelur f New York fyrstu 3 dagana
f boði samtakanna.
★
★
★
★
Við völdum „Au pair in America". Engin samtök bjóða jafn örugga,
ódýra og góða þjónustu að okkar mati.
Munið engin umsóknar- eða staðfestingar-
gjöld. Fríar ferðir að dyrum fjölskyldunnar
og fríar sjúkra- og slysatryggingar.
Erum byrjuð að taka við umsóknum fyrir árið
1995.
Fáið heimsenda bæklinga og upplýsingar
strax.
Linda Hallgrímsdóttir,
sími 91-611183.
í atvinnuleit
Ungur maður, með BA próf í rússnesku,
óskar eftir atvinnu.
Upplýsingar í síma 685517 á kvöldin.
UTA LAND
SKRIFSTOFUMAÐUR
Landqræðsla ríkisins í Gunnarsholti
óskar eftir að ráða starfskraft til
skrifstofustarfa sem fyrst og eigi síðar
en 1. janúar 1995. Stofnunin er
deildaskipt og þar starfa um 50 manns
að jafnaði. Góð starfsaðastaða.
Starfssvið:
1. Greiðsla og útskrift reikninga.
2. Færsla og afgreiðsla launa.
3. Umsjón með tölvum og
tölvukerfum.
4. Áætlanagerð.
Við leitum að starfskrafti með
yfirgripsmikla tölvukunnáttu og
fjármálaþekkingu. Æskileg þekking á
launaútreikningum. Starfsreynsla
skilyrði. Framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar "Landgræðslan 390" fyrir 19.
nóvember n.k.
Haevangur M
NQRDISK FQRSKERUTDANNINGSAKADEMI
NorFA leitar að starfsmanni
Staða akademísks ráðunautar (á dönsku; fuldmægtig, norsku; fagkonsulent, sænsku; byradirektör,
norsku; akademisk sagsbehandler) á skrifstofu NorFA í Ósló er hér með auglýst laus frá og með 1.
mars 1995.
Nordisk forskerutdanningsakademi (NorFA) var stofnuð af norrænu ráðherranefndinni árið 1991 og er
markmiðið að styðja hreyfanleika vísindamanna á Norðurlöndum með því að styrkja starfsemi, er miðar
að því að auka menntun norrænna vísindamanna. Á vegum NorFA eru meðal annars veittir styrkir til
norrænna vísindahópa, vísindanámskeiða, vinnuhópa og málþinga sem og persónulegir styrkir vegna
dvalar í öðru norrænu ríki.
í starfinu felst almenn málsmeðferð, umsjón með umsóknum í tengslum við hina þrjá árlegu umsóknar-
fresti vegna styrkja NorFA, sem og undibúningur og úrvinnsla stjórnarfunda NorFA. Þar sem í starfinu
felst að vera í daglegum samskiptum við vísindamenn á öllum Norðurlöndunum, eru gerðar strangar
kröfur til umsækjenda um að þeir geti tjáð sig á greinargóðan hátt um starfsemi NorFA, jafnt munnlega
sem skriflega.
Kröfur:
- Háskólamenntun og reynsla af rannsóknum og stjórnunarstörfum í kringum vísindarannsóknir.
- Góðir greiningarhæfileikar og færni í að tjá sig í máli og riti.
- Auk ensku verður umsækjandi að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku, jafnt munnlega sem
skriflega.
Kaup og ráðningarskilyrði:
Ráðningin er tímabundin og er samningur gerður til fjögurra ára. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi
meðan á ráðningartímanum stendur. Laun samkvæmt samningi.
Skrifstofan er í Ósló og starfa þar nú fimm manns.
Nánari upplýsingar um ráðningarskilyrði er hægt að fá með því að hafa samband við Ulla Bruund de
Neergaard, skrifstofustjóra, í síma 90 47 22 03 75 24 eða hjá Marja Leena Magnusson, fagráðunaut
í síma 90 47 22 03 75 23.
Umsókn:
Umsókn á aö vera póststimpluð í síðasta lagi föstudaginn 2. desember 1994 og hana ber að senda til:
Nordisk forskerutdanningsakademi (NorFA),
Postboks 2714, St. Hanshaugen,
N-0131 Ósló, Noregi.