Morgunblaðið - 06.12.1994, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994 C 3
Viðburðarík
vika hjá Þórði
KIMATTSPYRNA
j Morgunblaðið/Steinþór
Víðir KSI-íþrótta-
fréttamaður ársins
VÍÐIR Sigurðsson, blaðamaður á DV, var útnefndur KSÍ-íþrótta-
fréttamaður ársins 1994 áþingi sambandsins um helgina. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, afhenti Víði áritaðan sjálfblekung í viður-
kennnningarskyni og sagði m.a. að Víðir hefði verið knattspyrnunni
mjög hliðhollur og bækur hans um íslenska knattspyrnu bæru þess
glöggt merki.
Þetta er í þriðja sinn, sem stjórn KSÍ velur fréttamann ársins.
Bjarni Felixson hjá Rikisútvarpinu var útnefndur 1992 og Steinþór
Guðbjartsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, i fyrra.
Á myndinni þakkar Víðir Sigurðsson, til hægri, Eggert Magnús-
syni fyrir útnefninguna og pennann.
KSÍ með átak til að fá
fleiri áhorfendur á leiki
ÞÓRÐUR Guðjónsson, leikmað-
ur Bochum, var á sjúkrahúsi
meira og minna alla síðustu
viku. Hann meiddist í leik liðsins
gegn Karlsruher sl. þriðjudags-
kvöld — rotaðist og var á sjúkra-
húsi fram á föstudag, en fór síð-
an í uppskurð vegna ökkla-
meiðsla í gær. Hann kemur heim
í jólafrí f dag en má byrja að
æfa aftur eftir fjórar vikur.
órður sagði að síðasta vika hafi
ekki verið sú allra skemmtileg-
asta. Hann sagði um atvikið í leikn-
um; „Ég var að hlaupa mig frían í
vítateignum en vissi ekki af fyrr en
ég fékk þrumuskot frá samheija í
hnakkann. Ég var borinn af velli
hálf rotaður þegar fimm mínútur
voru eftir, en rankaði síðan við mér
aftur og kláraði leikinn án þess að
muna nokkuð eftir því. Þegar ég kom
inn í búningsklefa eftir leik hneig
ég niður og var fluttur á sjúkrahús.
ÍÞRÖmR
FOLK
■ KSÍ gerði í byijun árs hagstæðan
samning við þýska fyrirtækið UFA
um sjónvarps- og auglýsingarétt á
heimaleikjum A-landsliðs karla og
gildir liann til fjögurra ára. Á árs-
þingi sambandsins kom fram hjá
Eggerti Magnússyni, formanni
KSI, að sambandið fengi 27 til 28
milljónir árlega frá fyrirtækinu.
■ FYRIR síðasta tímabil gerðu KSÍ
og Samtök fyrstu deildar félaga
samning við Sól hf. þess efnis að
fyrirtækið yrði aðalstyrktaraðili 1.
deildar karla í þijú ár. Samningurinn
stendur ekki áfram þar sem eigenda-
skipti hafa orðið á fyrirtækinu og
er verið að reyna að fínna annan
bakhjarl.
■ ÁRSÞING KSÍ var haldið á
Akranesi í fyrsta sinn og þótti mörg-
um kominn tími til. Guli liturinn var
að sjálfsögðu áberandi, nafnspjöld
fundarmanna voru gul og spjöldin,
sem notuð voru til að sýna samþykki
við atkvæðagreiðslu í sama lit. Flest
mál voru samþykkt samhljóða eða
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða og var „salurinn fallegur"
eins og Guðbjartur Hannesson, for-
seti bæjarstjórnar Akraness og 1.
þingforseti sagði.
■ NÍU leikmenn hafa farið og æft
með erlendum félögum á vegum ís-
landsbanka-KSÍ Akademíunnar, en
KSÍ samdi í fyrra við Feyenoord
og Stuttgart um að taka á móti
strákum héðan. Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, ræddi fýrir skömmu
við forráðamenn Kaiserslautern og
Chelsea um að taka þátt í átakinu
og fékk formaðurinn jákvæðar undir-
tektir.
■ STJÓRNARMENN KSÍ, sem
áttu að ganga úr stjórn, fengu mjög
góða kosningu til áframhaldandi
setu. Sveinn Sveinsson og Ágúst
Ingi Jónsson gáfu ekki kost á sér,
en Elías Hergeirsson, gjaldkeri,
fékk 87 atkvæði af 92 og Stefán
Gunnlaugsson 85 atkvæði en einn
seðill var ógildur. Halldór B. Jóns-
son fékk 74 atkvæði og Róbert
Agnarsson 65. Þeir komu inn í stióm
en Páll Bragason (33) og Arni
Þórðarson (12) náðu ekki kosningu.
■ ELÍSABET Tónmsdóttir fékk
90 atkvæði í varastjórn, Gunnlaug-
ur Hreinsson 88 og Einar Frið-
þjófsson 52 atkvæði, en Atli Þórs-
son fékk 40 atkvæði og komst ekki
inn.
■ JAKOB Ólufsson frá ísafirði var
kjörinn landshlutafulltrúi .Vest-
urlands í stjórninni. Hann tekur
sæti Kristjáns K. Jónassonar, sem
lést af slysförum fyrr á árinu.
Ég vaknaði ekki aftur fyrr en undir
morgun og var á spítalanum fram á
föstudag. Ég fékk heilahristing og
tognaði á hálsi,“ sagði Þórður.
Hann fór síðan aftur inná sjúkra-
hús á sunnudag og var skorinn upp
við ökklameiðslum í gær. Hann seg-
ist hafa átt í ökklameiðslunum frá
því í apríl og átt í vandræðum með
að sparka með vinstri fæti vegna
þess. „Ég geng nú um á hækjum og
má ekki byija að æfa aftur fyrr en
eftir fjórar vikur,“ sagði Þórður.
Bjarki maður leiksins
Núnrberg, lið Bjarka og Arnars
Gunnlaugssona, gerði í gærkvöldi
markalaust jafntefli við efsta lið 2.
deildar, Wolfsburg, á heimavelli sín-
um. Arnar og Bjarki léku báðir með
allan leikinn og að sögn Þórðar Guð-
jónssonar, sem fylgdist með við-
ureigninni í sjónvarpi, var Núrnberg
mun betra liðið. Bjarki var kosinn
besti leikmaður Núrnberg .
Senda má2
lið í bika-
keppni karla
SÚ breyting var gerð á bikar-
keppni karla að félag má nú
senda tvö lið til keppni og verð-
ur þá annað þeirra að vera
skipað leikmönnum 23 ára og
yngri. Hugmyndin með þessu
er að skapa ungum leikmönn-
um fleiri verkefni, en allir leik-
menn félags eru hlutgengir til
leiks með aliði þess nema þeir
sem leikið hafa í sömu umferð
með U-23 ára liðinu. í því má
nota þijá eldri leikmenn.
Innan skamms verður skipuð
markaðsnefnd til að fara ná-
kvæmlega ofan í aðsókn að leikjum
í 1. deild karla í knattspymu og
leita leiða til úrbóta. Gert er ráð
fyrir að fá markaðs- og auglýsinga-
menn utan hreyfingarinnar til að
starfa með nefndinni og á niður-
staða að liggja fyrir ekki síðar en
um mánaðarmótin mars/apríl.
Þetta kom fram í máli Eggert
Magnússonar, formanns KSÍ, á árs-
þinginu á Akranesi um helgina.
Eggert sagði að aðsóknin hefði
sjaldan verið jafn léleg og í ár og
væri það áhyggjuefni þó aðsóknin
hefði ávallt dregist saman, þegar
úrslitakeppni Evrópumóts eða
heimsmeistaramóts færi fram. Egg-
ert sagði að í kjölfar skýrslu sæn-
skrar markaðsnefndar um málið í
Svíþjóð hefðu verið gerðar úrtbæt-
ur, sem hefðu skilað góðum árangri
í bættri aðsókn á sænska deildar-
leiki. Ekki væri hægt að sitja og
Islandsmeistarar ÍA hefja titil-
vörnina á heimavelli og fá
Breiðablik, í heimsókn í 1. umferð
en ráðgert er að hún hefjist í kring-
um 20 maí. Bikarmeistarar KR taka
á móti FH, nýliðar Leifturs eiga
heimaleik gegn Fram, Valur og ÍBV
mætast og nýliðar Grindavíkur
leika gegn Keflavík.
í síðustu umferð leika ÍA og
ÍBV, Fram og Valur, Iæiftur og
bíða eftir að eitthvað gerðist heldur
yrði að drífa í aðgerðum til að auka
aðsókn.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu fyrir helgi var velta KSÍ um
141 milljón krónur á árinu og var
hagnaður ársins eftir fyrningar um
tvær milljónir. Eggert sagði að
starfsemin hefði aldrei verið eins
mikil og áfram yrði haldið á sömu
braut. Fjárhagsáætlun næsta
starfsárs hljóðar upp á liðlega 130
millj. króna veltu með 1,5 millj. kr.
hagnaði og er m.a. gert ráð fyrir
tæplega níu milljónum í fræðslumál.
Eggert minnti á að Knattspyrnu-
samband íslands væri stærsta og
öflugasta félagsmálahreyfing
landsins með hátt í 25 þúsund virka
félaga. Ábyrgðin væri mikil og
starfið látlaust, en svo virtist sem
stjómmálamenn gerðu sér ekki
grein fyrir hvað knattspyrnufélögin
og íþróttahreyfíngin í heild væru
FH, KR og Keflavík og Grindavík
og Breiðablik.
í 1. deild kvenna taka nýliðar ÍBA
á móti íslands- og bikarmeisturum
Breiðabliks, Valur mætir ÍA, Hauk-
ar fá KR í heimsókn og ÍBV sækir
Stjörnuna heim. í síðustu umferð
leika Breiðablik og Stjarnan, ÍBA
og IA, Valur og KR og Haukar og
ÍBV.
í 2. deild karla leika KA og Vík-
með mikið barna- og æskulýðs-
starf. Hann vitnaði í könnun um
gildi íþrótta fyrir unglinga og sagði
að hún sýndi að miklu minni hætta
væri aað krakkar í íþróttum fari í
óreglu, vímuefnaneyslu og aðra
hluti sem skemma fyrir æskunni.
„Bara út frá þessum forsendum,
hvað við erum að vinna mikið
íþrótta- og æskulýðsstarf, þá skil
ég ekki hvers vegna stjórnmála-
menn á íslandi gera sér ekki grein
fyrir mikilvægi þess að láta meiri
fjármuni af hendi rakna til þessara
mála.“
Eggert sagði að stöðugt væri
rætt um hvað heilbrigðiskerfið kost-
aði mikið, „en hvað er betri heilsu-
vernd en að byggja upp líkamann
rétt strax í æsku. Einhvers staðar
stendur „lengi býr að fyrstu gerð“
og ég held að nær væri að setja
peninga í íþróttirnar, því það er
besta forvarnarstarfið í heilbrigðis-
málum."
ingur R. í 1. umferð, Stjarnan og
ÍR, Víðir og Skallagrímur, Fylkir
og HK og Þróttur Reykjavík og Þór
Akuryeri.
í 3. deild karla mætast BÍ og
Dalvík, Höttur og Fjölnir, Ægir og
Selfoss, læiknir Reykjavík og Þrótt-
ur Neskaupstað og Völsungur og
Haukar.
ÍA byvjar gegn Breiðabliki
Blikastúlkur hefja titilvörnina gegn nýliðum ÍBA
Knattspymu-
minjasafn
á Akranesi?
AKURNESINGAR lögðu til á
ársþingi KSÍ um helgina að
stofnað yrði knattspyrnu-
minjasafn og yrði það til húsa
í Byggðasafninu að Görðum á
Akranesi. í tillögunni var gert
ráð fyrir að munum, myndum
og ritum yrði safnað um allt
land til að hafa í safninu, en
starfsnefnd til að annast fram-
kvæmdir skipuð tveimur full-
trúum KSÍ, einum frá ÍA og
einum frá Menningarmála- og
safndeild á Akranesi.
Samþykkt var að vísa tillög-
unni til stjórnar KSÍ, sem á
að kanna hvort grundvöllur sé
fyrir stofnun safnsins.
Áfram átta lið í
1. deild kvenna
TILLAGA um að fækka liðum
I sex úr átta í 1. deild kvenna
var felld á ársþjngi Knatt-
spyrnusambands íslands, sem
fór fram á Akranesi um helg-
ina. Hins vegar var samþykkt
að liðið, sem hafnar í sjöunda
sæti leiki aukaleiki um sæti í
deildinni heima og að heima
við liðið í 2. sæti í 2. deild.
Dregið verður um hvort liðið
á fyrst heimaleik.
Tölvuskráning
verður skylda
KSÍ hefur tengst tölvukerfi ÍSÍ
og á ársþinginu var samþykkt
tillaga þess efnis að mótanefnd
er heimilt að skylda félög í ein-
stökum mótum að skrá upplýs-
ingar af leikskýrslum í tölvu-
gagnasafn KSI og ÍSÍ. KSÍ
átti stóran þátt í að móta kerf-
ið, sem kemur að mjög miklu
gagni fyrir félögin og hreyfing-
una í heild. Kerfið var kynnt
á þinginu en auk upplýsinga-
flæðis fylgir því fullkominn
bókhaldslykill sem auðveldar
félögum öll reikningsskil. Kerf-
ið gerir félögum kleift að halda
utan um félagsmenn og er skýr
greinarmunur gerður á iðk-
anda og félagsmanni. Þessi
skráning verður höfð til hlið-
sjónar þegar fjöldi þingfulltrúa
verður ákveðinn í framtíðinni.
Leikmenn geta
strax orðið hér-
aðsdómarar
BREYTINGAR voru gerðar á
reglugerðum um knattspyrnu-
dómara á ársþinginu. Komið
var á nýju stigi, barnadómara-
stigi, en sá sem lýkur skemmra
dómaranámskeiði má starfa
sem barnadómari og hefur rétt
til að starfa á leikjum í mini-
knattspyrnu.
Næsta stig er unglingadóm-
ari og síðan héraðsdómari, en
leikmaður, sem hefur leikið
með meistaraflokki karla eða
kvenna í deildarkeppni og er
orðinn 24 ára, getur orðið hér-
aðsdómari eftir að hafa sótt
námskeið og staðist próf. Hann
þarf því ekki að byija neðst í
tröppunni eins og áður var.
Hvatt til samein-
ingar ÍSÍ og Óí
ÁRSÞING KSÍ samþykkti eft-
irfarandi ályktun:
„49. ársþing Knattspyrnu-
sambands Islands hvetur til
sameiningar íþróttasambands
íslands og Ólympíunefndar ís-
lands. Nauðsynlegt er að hafa
eina öfluga forystu í íþrótta-
málum í landinu sem sækir á
ríkisvaldið um aukið fjármagn
til íþróttastarfsemi og skapa
þannig öflugan vettvang til
þess að standa betur að stuðn-
ingi og markvissum vinnu-
brögðum í afreksiþróttum."