Morgunblaðið - 06.12.1994, Síða 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Vamarveggur
Framlokaði
á Víkingana
„ÞETTA vannst fyrst og fremst
á vörninni og markvörslunni,
hitt kom með. Þegar þærtóku
tvær um umferð, gekk það ekki
upp,“ sagði Hafdís Guðjóns-
dóttir leikmaður Fram eftir
18:25 sigur liðsins á Víkingum
í 1. deild kvenna íVíkinni á
laugardaginn. Sókn Víkinga var
gersamlega bitlaus, sérstak-
lega í fyrri hálfleik, gegn ákveð-
inni vörn Fram og þegar skot
slapp í gegn var fyrir Kolbrún
Jóhannsdóttir. Sigurinn skiptir
upp töflunni við toppinn, þar
sem Stjarnan og Fram eru, en
stigin eru ekki mörg og nóg
eftir af mótinu.
Jafnt var á öllum tölum fram að
4:4 en þá skellti Fram vörninni
í lás. Víkingsstúlkum var fyrirmun-
■■■■■■ að að klára sínar
Stefán sóknir þó þeim tæk-
Stefánsson ist að skora eitt og
skrífar eitt mark. Staðan í
leikhléi var 7:11.
Eftir hlé lét þjálfari Víkinga taka
Hönnu Katrínu Friðriksen og Guð-
ríði Guðjónsdóttur úr umferð. Það,
ásamt ágætis kafla, minnkaði mun-
inn í tvö mörk, 13:15, en þá varð
Frömurum ljóst að sigurinn var í
hættu og tóku viðbragð. Fjórir og
stundum þrír náðu gestirnir að
fínna leiðir og einstaklingsframtak-
ið fékk að njóta sín, sérstaklega
hjá Hafdísi Guðjónsdóttir.
„Þegar við vorum að ná þeim,
misstum við leikinn aftur niður. Við
réðum ekki við þær fjórar á móti
fjórum þegar við tókum tvær úr
umferð," sagði Heiða Erlingsdóttir
en hún og Halla María Helgadóttir
tóku einstaka sinnum af skarið í
afar slökum sóknarleik. Vörnin
ágæt og markvarsla Hjördísar Guð-
mundsdóttur góð en leikstjórnanda
vantar tilfinnanlega í liðið því skytt-
an Halla María nýttist ekki í tveim-
ur hlutverkum í einu.
Frábær varnarleikur og frábær
markvarsla fleytir liðum langt eins
og sást hjá Fram í þessum leik. Þó
sóknarleikurinn væri oft stirðbusa-
legur, bættu stúlkurnar það upp
með 6 mörkum úr hraðaupphlaup-
um. Zelka Tosic nýtti sín færi og
Hafdís var góð í annars ágætu liði
en lykillinn að sigrinum var mar-
kvarsla Kolbrúnar. „Við erum að
koma sterkar inn. Sigurinn var
mikilvægur því við megum ekki
missa Stjömuna of langt frá okk-
ur,“ sagði Kolbrún.
Hingað og ekki lengra
Morgunblaðið/Kristinn
VÍKIIMGURINN Heiðrún Guðmundsdóttir lendir á óyfirstíganlegri hindrun þegar hún mætlr Hönnu Katrínu
Friðriksen og Guðríðl Guðjónsdóttur í leik Fram og Víkings á laugardaginn. Þær stöllur í Fram voru teknar
úr umferð í sókninni nær allan síðari hálfleik en það dugði ekki til hjá Víkingum.
Valsmenn aftur á toppinn
VALSMENN endurheimtu fyrsta sætio í 1. deild karla þegar
þeir tóku á móti Haukum á heimavelli sínum á laugardaginn.
Valur sigraði 22:20, f spennandi leik og skemmtilegum.
Pað var augljóslega spenna í
leikmönnum beggja liða því
það voru ekki liðnar nema fimmtán
■■■■■■ mínútur er uppúr
Stefán sauð. Jón Kristjáns-
Eiríksson son var þá eitthvað
skrifar ósáttur við meðferð
Haukanna á sér, og
skeytti skapi sínu á húsgagni í
Valsheimilinu, og fékk umsvifalaust
að líta rauða spjaldið. Valsmenn
virtust tvíeflast við þetta mótlæti
og gerðu fjögur mörk i röð. Munur-
inn var skyndilega orðin fjögur
mörk er tíu mínútur voru til leik-
hlés og átti þessi sprettur eftir að
reynast Valsmönnum dýrmætur.
Haukar náðu takti aftur og minnk-
uðu muninn niður í eitt mark, en
Valsarar gerðu tvö síðustu mörk
hálfleiksins og leiddu í leikhléi 11:8.
Spennan var áfram til staðar í
síðari hálfleik en sigurinn virtist í
öruggri höfn þegar sex mínútur
voru eftir og Valsmenn höfðu
þriggja marka forskot. En Haukar
náðu enn og aftur að klóra í bakk-
ann, minnka muninn í eitt mark,
en Dagur Sigurðsson gerði mikil-
vægt mark úr víti er rúm mínúta
var eftir, sem reyndist vera síðasta
mark leiksins.
„Við héldum þetta út þó þeir
væru aldrei langt undan,“ sagði
Dagur Sigurðsson sem var marka-
hæstur heimamanna með sex mörk.
Hann lék fantavel í vörn og sókn,
en flestir félagar hans áttu góðan
leik í vörninni. Hjá Haukum bar
mest á Gústaf Bjarnasyni, sem
gerði sjö mörk.
Víkingur með tak á ÍR
Við höfum haft tak á ÍR hér í
Seljaskóla og munum hafa það
tak, sagði Reynir Reynisson mark-
vörður Víkinga, sem var liði sínu
mikilvægur í 23:29 sigri á ÍR á
sunnudagskvöldið.
■■■■■■I Bytjun Víkinga lof-
Stefán aði góðu þegar liðið
Stefánsson gerði 5 mörk í 5
sóknum á 5 mínút-
um með góðum
mörkum Rúnar Sigtryggssonar og
Birgis Sigurðssonar en þeir voru
einu leikmennimir sem tóku af
skarið í sókninni. Breiðhyltingar
settu svo fyrir þennan leka og
minnkuðu bilið en staðan í hléinu
var 13:16.
Með góðri baráttu í vörn og sókn
tókst ÍR að komast á siglingu og
ná stöðunni í 18:20, þó að Reynir
verði mörg skot þeirra úr opnum
færum. Þá varð vendipunktur í
leiknum þegar Vikingar gerðu fimm
mörk á móti einu frá ÍR. Undir lok-
in var harkalega barist á báða bóga
en Víkingar héldu fengnum hlut.
„Við tókum okkur saman í síðari
hálfleik, létum boltann ganga og
vörnin small saman,“ bætti Reynir
við en hann varði 15 skot á mikil-
vægum tímum, þaraf þrjú eftir
hraðaupphlaup. Rúnar var einnig
góður ásamt Birgi, Bjarki nýtti
færin sín til fullnustu og Gunnar
Gunnarsson var dijúgur á miðjunni.
ÍR-ingar réðu ekki við að komast
yfir eftir að vinna upp forskot Vík-
inga með ærinni fyrirhöfn. Bran-
islav Dimitrijevic og Guðfinnur A.
Kristmannsson voru óhræddir við
að reyna að skora og Njörður Árna-
son gerði skemmtilega hluti í horn-
inu. Guðmundur Þórðarson, vam-
aijaxl, átti tvær frábærar sendingar
upp völlinn í hraðaupphlaupum en
meira bar á honum í vörninni þar
sem hann lét heldur betur finna
fyrir sér. „Við löguðum vörnina
eftir hlé en þegar tvö mörk skildu
náðu þeir fjórum í röð. Okkur skorti
trúna og það má ekki gegn liði eins
og Víkinga. En ef við hefðum kom-
ist yfir, þá hefðu þeir lent í vand-
ræðum,“ sagði Eyjólfur Bragason
þjálfari eftir leikinn.
Jafnt á Selfossi
Selfoss og Afturelding skildu
jöfn 24:24 á Selfossi á sunnu-
dagskvöld. Afturelding náði ekki
■■■■■■ að rífa sig upp úr
Óskar þeirri lægð sem liðið
Sigurðsson hefur verið í að und-
skrífar anförnu og virtist
það fara í taugarnar
á Guðmundi Guðmundssyni þjálfara
sem fékk að sjá rauða spjaldið eftir
að leiktíminn var liðinn.
„Þetta gekk vel framan af en
síðan misstum við þetta niður og
klikkuðum í sóknarleiknum," sagði
Gunnar Andrésson sem var yfir-
burðarmaður í liði Aftureldingar og
skoraði níu mörk í leiknum.
Jafnræði var með liðunum í byij-
un leiksins. Vamarleikur beggja var
sterkur en aftur á.móti var sóknar-
leikurinn slakur. Um miðbik hálf-
leiksins náði Afturelding þriggja
marka forskoti og undirtökunum í
leiknum. Staðan í hléinu var 12:15.
Afturelding hélt uppteknum
hætti í síðari hálfleik og virtist hafa
leikinn í höndum sér, hafði fimm
marka forskot þegar 10 mínútur
voru eftir. En þá virtist sem Sel-
fossliðið tæki við sér. Hallgrímur
Jónasson tók að veija af miklum
móð og félagar hans nýttu vel
hraðaupphlaupin í kjölfarið. Þegar
um þijár mínútur voru eftir jafnaði
Siguijón Bjarnason 22:22. Síðustu
sekúndumar voru æsispennandi,
Páll Þórólfsson skoraði fallegt mark
úr horninu og staðan var 23:24
þegar 25 sekúndur voru eftir.
Björgvin Rúnarsson jafnaði strax
fyrir Selfoss og Afturelding fékk
síðustu sókn leiksins en náði ekki
að skora.
„Það má segja að liði hafi fengið
vítamínsprautu síðustu 10 mínút-
urnar og þá gekk allt upp með
góðum sóknarleik og markvörslu,"
sagði Björgvin Rúnarsson sem lék
mjög vel í liði Selfoss. Nenad Rado-
saljevic lék einnig vel og fer vax-
andi með hveijum leik.
Naumt hjá FH
að reynir rosalega mikið á þol-
inmæðina að leika gegn liði
eins og KR sem spilar langar sókn-
ir. Framan af leikn-
Frosti um var óðagot á
Eiösson okkur í sókninni en
sknfar við fórum að leika
af meiri skynsemi í
síðari hálfleiknum og eftir að við
komumst yfir var sigurinn ekki í
hættu,“ sagði Guðjón Árnason, leik-
maður FH eftir sigur á KR 22:21
í Laugardalshöll í leik þar sem
FH-ingar náðu forystunni í fyrsta
skipti þegar aðeins tíu mínútur voru
eftir.
Leikmenn KR mættu vel
stemmdir til leiks og höfðu tögl og
hagldir á fyrstu mínútunum. Vam-
arleikurinn sterkur og Gísli Felix
Bjarnason varði flest þau skot sem
komust framhjá vörninni. FH-ingar
skoruðu aðeins fimm mörk á fyrstu
23 mínútunum og það var ekki fyrr
en Guðjón Árnason kom inná í sókn-
arleiknum að hlutirnir fóru að
smella saman.
Munurinn var eitt mark í leikhléi
en KR-ingar höfðu oft 1-2 marka
forskot í síðari hálfleik en sóknar-
leikur liðsins fór yfirleitt að hiksta
þegar liðið komst tveimur mörkum
yfir. Úrslitin réðust síðan á tólf
mínútna kafla. KR hafði 16:14 yfir
og skoraði aðeins eitt mark á móti
sex mörkum Hafnfirðinganna sem
breyttu stöðunni í 17:20. Tveir til
þrír umdeildir dómar Sigurgeirs
Sveinssonar og Gunnars Viðarsson-
ar, góðra dómara leiksins voru svo
ekki til að bæta geð KR-inga. Nokk-
uð var um brottrekstra á lokamínút-
unum fyrir tuð og þjálfari KR, Ólaf-
ur Lárusson fékk að sjá rauða
spjaldið fyrir að kalla inná fúkyrði
til dómarana. Þau breyttu engu um
úrsíit leiksins.
Markverðirnir voru bestu leik-
menn liðanna. Magnús Árnason hjá
FH og Gísli Felix hjá KR.
Stjörnu-
sigur
Stjörnustúlkur áttu ekki i umtalsverðum
erfiðleikum með hið unga lið KR þegar
liðin áttust við í Ásgarði í 1. deild kvenna á
a»- i ■njm laugardaginn. Jafnræði var með
fvar liðunum í fyrri hálfleik en í þeim
Benediktsson síðari kom Stjömuliðið betur
skrifar einbeitt til leiks og skoraði það
fimm mörk í röð. Lokatölur,
19:14.
Sóknarleikur beggja liða var fremur fálm-
kenndur í fyrri hálfleik, en Stjarnan var þó
ævinlega fyrri til að skora og liðið hafði for-
ystu í leikhléi, 9:8.
í síðari hálfleik sýndu Stjörnustúlkur meiri
þolinmæði. Herdís og Laufey létu boltann
ganga betur en áður. Sóknarleikur KR stúlkna
var fábreyttur og áttu heimamenn ekki í erfið-
leikum með að veijast honum. Fimm marka
sigur Stjörnunnar var því sanngjarn.
Sóley, markvörður, Herdís og Guðný voru
bestar í Iiði Stjörnunnar, en Anna, Brynja og
Þórdís voru atkvæðamestar í KR liðinu. Þá
átti Vigdís Finnsdóttir góða kafla í markinu.
KRAFTLYFTINGAR
Auðunn náði
bestum árangri
Auðunn Jónsson, sem keppir í 110 kg
flokki, náði bestum árangri á bikar-
móti kraflyftingasambandsins um helgina;
setti þijú Islandsmet í unglingaflokki, lyfti
350 kg í hnébeygju, 340 í réttstöðulyftu
og alls 890 kg.
Jóhannes Eiríksson bætti íslandsmetið
í réttstöðulyftu í 60 kg flokki í tvígang,
lyfti fyrst 220 kg og síðan 227,5 kg sem
dugði í Islandsmets í samanlögðu, 525 kg.
Björgúlfur Stefánsson setti met í bekk-
pressu í 100 kg flokki, lyfti 208 kílóum.