Morgunblaðið - 06.12.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994 C 5
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Guðjón sá
um gömlu
félagana
GUÐJÓN Skúlason var í essinu sfnu í upphafi seinni hálfleiks þeg-
ar Grindvíkingartóku á móti gömlu félögum hans úr Keflavík. Á
fyrstu 5 mínútum seinni hálfleiks skoraði hann 17 stig, þar af 5
þriggja stiga körfur, og Grindvíkingar náðu forystu sem þeir létu
ekki af hendi og sigruðu örugglega 91:77. Þetta var þriðji sigur
Grindvíkinga á nágrönnum sínum úr Keflavík í jafnmörgum leikjum
í úrvalsdeildinni fvetur.
Barátta um frákast
Reuter
JAMES Robinson og Buck Williams (nr. 52) berjast um frákast í
leik gegn Milwaukee og virðast hafa betur en Glenn Robinson.
Portland sigraði í leiknum, 106:103.
Sigurganga IR á heima
velli heldur áfram
Eg fann mig vel en fékk auðvitað
góða hjálp frá félögum mínum
í liðinu. Þeir gáfu á mig á réttum
■■■■■■ tíma og hittnin var í
Frímann góðu lagi, sagði Guð-
Ólafsson jón við Morgunblaðið
skynsamlega í fyrri hálfleik, héldu
hraðanum niðri og spiluðu upp á
öruggar körfur. Þeir spiluðu mikið
upp á að nota Lenear Burns í teign-
um og mæddi mikið á honum. Þeir
freistuðu hinsvegar þess að breyta
um leikaðferð í seinni hálfleik.„Við
vorum 10 stigum undir í hálfleik og
ákváðum að reyna að keyra hraðann
upp í seinni hálfleik en það gekk
einfaldlega ekki upp. Svo „kviknaði“
í Guðjóni í upphafí seinni hálfleiks
og þeir náðu það góðri forystu að
þeir gátu leikið afslappaðir það sem
eftir var leiksins," sagði Jón Kr. Gísl-
son þjálfari og leikmaður Keflvík-
inga.
Grindvíkingar mættu ákveðnir til
leiks eftir hlé og góður varnarleikur
og síðan hraðaupphlaup sem Guðjón
Skúlason lauk í upphafí hálfleiksins
og nánast eins og hendi væri veifað
náðu þeir 17 stiga forystu 61:44.
Keflvíkingar náðu að svara fyrir sig
og minnka forystuna í 8 stig, 64:56
en heimamenn bættu í og náðu mest
22 stiga forystu en gáfu eftir á loka-
mínútunum þegar sigurinn var í
höfn.
„Þetta var barningur í fyrri hálf-
leik. Við áttum von á að Keflvíking-
ar yrðu erfiðir. Þetta gekk hinsvegar
betur þegar við tókum vamarieikinn
í gegn og við skoruðum grimmt eftir
að hafa unnið boltann í vörninni. Þar
með sköpuðust færi í sókninni sem
nýttust Guðjóni vel. Við leyfðum
þeim hinsvegar að skora óþarflega
mikið í lokin. Keflvíkingar er með
gott lið en einhvern veginn hefur
þeim ekki gengið vel á móti okkur
í vetur,“ sagði Friðrik Rúnarsson
þjálfari Grindvíkinga. Grindavíkurl-
iðið var jafnt í leiknum og leikmenn
studdu vel hvetjir við aðra. Guðjón
átti stórkostlegan kafla í seinni hálf-
leik og Helgi Jónas sótti sig allan
leikinn. Guðmundur gætti Burns og
fórst það ágætlega úr hendi með
aðstoð félaga sinna. Frank Booker
átti góða spretti en hefur ekki út-
hald í að spila heilan leik.
Lenear Burns var bestur Keflvík-
inga en mátti ekki við margnum.
Sigurður Ingimundarson var dijúgur
í seinni hálfleik en Davíð Grissom
var fjarri góðu gamni og munar um
minna fyrir Keflvíkinga.
ÍA gerði síðustu 13 stigin
kagamenn gerðu síðustu 13 stig
leiksins gegn Haukum á Akra-
nesi á sunnudaginn og það dugði til
sigurs, 75:65. Þeir
Gunnlaugur byijuðu betur og
Jónsson komust í 8:2 en þá
skrifar komu 14 stig í röð
hjá gestunum. Hauk-
ar héldu svo forystunni alveg þar tiÞ
6 mín. voru eftir af fyrri hálfleik en
þá náðu heimamenn forystunni á ný
og héldu henni til hálfleiks.
Liðið skiptust á um forystuna í
síðari hálfleik en þegar 4 mín. voru
eftir og staðan 62:65 fyrir Hauka
þurfti Baldvin Johnsen að yfirgefa
völlinn með fimm villur. Það er
skemmst fá því að segja að Skaga-
menn gerðu öll stigin sem eftir var
leiks og sigruðu 75:65.
Það vekur athygli hve lítið var
skorað í leiknum en baráttan var því
meiri, kanski á kostnað stiganna.
Brynjar Karl var stigahæstur í liði
Skagamanna sem léku ekki vel og
þurfa að taka sig á ætli þeir sér í
úrslitakeppnina eftirsóttu. Pétur Ing-
varsson átti bestan leik Hauka en
það varð þeim að falli að lykilmenn
lentu í villuvandræðum strax í fyrri
hálfleik og við því mega fá lið.
Skemmtilegt, en lítil spenna
Njarðvíkingar sóttu þrjú stig til
Akureyrar er þeir sigruðu
Þórsara í fjörugum leik, 90:105, á
sunnudagskvöld.
Reynir Leikurinn var mjög
Eiríksson skemmtilegur og
skrifar hraður og bauð upp
á allt nema hvað
spennan hefði mátt vera meiri.
Njarðvíkingar komu ákveðnir til
leiks og náðu strax forystunni sem
þeir slepptu aldrei allan leikinn. Þórs-
arar náðu nokkrum sinnum að
minnka muninn, allt niður í þijú stig,
en þá komu leikkaflar þar sem þeir
gerðu mistök sem Njarðvíkingar
nýttu sér vel og náðu ávallt öruggri
forystu á nýjan leik.
Þórsarar létu dómarana oft fara í
taugarnar á sér og við það slaknaði
einbeiting þeirra, og misstu þeir þá
oft tökin á leiknum._ Kristinn Frið-
riksson og Konráð Oskarsson voru
bestir hjá Þór og að venju var Sandy
Anderson gríðarlega öflugur í frá-
köstunum.
Valur Ingimundarson var bestur
Njarðvíkinga, en hann skoraði
grimmt. Einnig léku Ronday Robin-
son og Rúnar Arnason vel.
Auðveldur sigur Skallagríms
Skallagrípiur skaust í annað sæti
a-riðils með sigri á Snæfelli í
Stykkishólmi á sunnudagskvöld. Sig-
■■■■■■ ur Skallagrims var
María öruggur og leikmenn
Guönadóttir Snæfells áttu í mikl-
skrifar Um vandræðum, sér-
staklega með þriggja
stiga skyttur Borgnesinga sem skor-
uðu alls 11 slíkar körfur. Skallagrím-
ur náði fljótlega forystu og á þriggja
mínútna kafla í upphafi fyrri hálf-
leiks skoruðu leikmenn ekki öðruvísi
en úr þriggja siga skotum. Fóru þar
fremstir í flokki Tómas Holton og
Henning Henningsson hjá Borgnes-
ingum og Atli Sigurþórsson hjá
Hólmurum. í seinni hálfleik jókst
bilið enn frekar, Skallagrímsmenn
spiluðu langar sóknir en árangursrík-
ar og tryggðu sér öruggan sigur,
95:79.
Henning og Tómas Holton voru
bestu menn Skallagríms og Ermol-
inski og Gunnar Þorsteinsson léku
einnig vel. í liði Snæfells var Atli
bestur, lék vel bæði í vörn og sókn.
Einnig áttu Daði Sigurþórsson og
Tómas Hermannsson ágætan leik.
Miklu munaði fyrir lið Snæfells að
Ray Hardin var ekki svipur hjá sjón.
Hann skoraði sín fyrstu stig í lok
fyrri hálfleiks og aðeins níu alls.
Munar um minna.
Lið ÍR hélt sigurgöngunni á
heimavelli áfram, þegar það
tók á móti Valsmönnum á sunnu-
■■■■■■■ daginn. ÍR sigraði
Stefán með fimm stiga
Eiríksson mun, 90:85.
skrifar Leikurinn var
lengst af jafn og
skemmtilegur. Valsmenn byijuðu
betur en um miðjan fyrri hálfleik
hrökk allt í baklás hjá þeim og
heimamenn gerðu sautján stig í
röð. Valsmenn voru þó ekki af baki
dottnir og náðu að minnka muninn
sem myndaðist við þennan sprett
heimamanna, en heimamenn höfðu
þó fjögurra stiga forskot í leikhléi,
47:43.
Valsmenn byijuðu siðari hálfleik-
inn af krafti og komust yfir með
þvi að gera sjö fýrstu stiginn.
Heimamenn náðu fljótt aftur undir-
tökunum og um miðjan hálfleikinn
voru þeir komnir með rúmlega tíu
stiga forskot. Valsmenn náðu enn
og aftur að rífa sig upp og minnka
muninn, náðu að jafna þegar fimm
mínútur voru eftir, en heimamenn
áttu einnig svar. Þeir náðu foryst-
unni á ný, héldu henni út leikinn
og sigraðu með fimm stiga mun
eins og áður sagði.
Herbert og Jón Örn voru at-
kvæðamestir heimamanna, en einn-
ig vakti framganga Eiríks Önundar-
sonar athygli. Hjá gestunum var
Bow stigahæstur með 30 stig, en
Bragi Magnússon, sem átti mjög
góðan leik í vörn og sókn, gerði 29
stig.
Verðskuldaður KR-sigur
að var ekki gæðakörfubolti sem
leikmenn KR og Tindastóls
buðu upp á í íþróttahúsinu á Sel-
■■■■■^g tjarnarnesi á sunnu-
Ivar dagskvöldið. Hittni
Benediktsson leikmanna var mjög
skrifar slök og sem dæmi
má nefna að eftir sjö
og hálfa mínútu stóðu leikar, 5:5.
KR-ingar voru þó skárra liðið á
Orlando
með bestan
árangur
Svo virðist sem spádómar sér-
fræðinga ætli að ganga eftir
í NBA deildinni, sérstaklega í Aust-
■■■■■ urdeildinni. Þar hef-
Gunnar ur Orlando bestan
Valgeirsson árangur og sigraði í
Sknfar níunda leiknum í röð
aðfaranótt laugar-
dags er liðið vann New York
125:100. Orlando tapaði síðan mjög ♦
óvænt fyrir Atlanta kvöldið eftir.
Shaquille O’Neal gerði 38 stig
gegn New York en kappinn hefur
verið illviðráðanlegur að undan-
förnu og á mikinn þátt í velgengni
liðsins. Þar koma reyndar fleiri við
sögu og ekki hvað síst framvörður-
inn Horace Grant sem hefur leikið
frábærlega og losað mjög um
O’Neal því Grant getur tekið frá-
köst og því þurfa mótheijarnir að
dekka hann líka, en ekki bara O’Ne-
al. Anfernee Hardaway hefur einn-
ig leikið mjög vel hjá Orlando.
Indiana, sem leikur í miðriðli,
kemur næst Orlando og hefur sigr-
að í níu leikjum en tapað í fimm.
Hafa ber í huga að Indiana hefur *
leikið mikið á útivelli það sem af
deildinni og árangur liðsins því
nokkuð góður. Reggie Miller hefur
leikið manna best þar á bæ.
Þtjú sterkustu liðin í Vesturdeild
eru Houston (11-4), Phoenix (11-5)
og Seattle (10-5). LA Clippers hef-
ur gengið hræðilega og liðið er svo
lélegt að orð fá því vart lýst. Liðið
hefur tapað 15 leikjum í röð í upp-
hafi tímabilsins og tapaði auk þess
síðustu fjórum í fýrra þannig að
tapleikirnir eru orðnir 19 í röð.'
Miami Heat tapaði árið 1988 fyrstu
17 leikjum sínum og nú nálgast
Clippers það met óðfluga.
vellinum og verðskuldaði sigur,
73:62.
Hvorki gekk né rak á upphafs-
mínútnum en þegar frá leið náðu *
KR-ingar forystu. Þeir léku í þess-
um leik án erlends leikmanns og
háði það þeim ekkert að ráðiþví
mótspyrna norðanmanna var lítil.
Staðan í leikhléi var 31:25.
Fljótlega í síðari leikhluta náðu
KR-ingar tíu stiga forystu og héldu
henni átakalítið til leiksloka. Það
var ekki fyrr en langt var liðið á
síðari hálfleik að fjórða leikmanni
Tindastóls tókst að skora, en fram
til þess tíma höfðu Hinrik, Páll og
Torrey skorað stig þeirra.
Hjá KR-ingum bar mest á Ing-
vari Ormarsyni, Fali Harðarsyni og
Ólafi Jóni Ormssyni, en hann var
dijúgur í þriggja stiga körfunum í*-
síðari leikhlutanum.
Páll Kolbeinsson var bestur í liði
Tindastóls og Hinrik Gunnarsson
var sterkur í vörn og sókn. Lítið
fór hinsvegar fyrir Torry John
lengst af í leiknum.
JUDO / SVEITAKEPPNIN
Ármenningar meistarar
Armenningar urðu íslandsmeist-
arar í sveitakeppninrti í judó
sem fram fór um helgina, sigruðu
KA-menn í harðri viðureign. Ár-
menningar sigruðu í þremur viður-
eignum og fengu 30 stig en KA
vann eina viðureign og fékk 10 stig.
Skemmtilegasta viðureignin var á
milli Bjarna Friðrikssonar og Vern-
harðs Þorleifssonar og lauk henni
með jafntefli eftir að Bjarni hafði
sótt nær látlaust.
í þriðja sæti var sveit Selfoss og
B-sveit Ármanns í fjórða sæti.
í keppni yngri en 21 árs júdó-
manna léku sömu félög til úrslita
og að þessu sinni sigraði KA með
37 stigum. KA hlaut 9 vinninga,
Ármann 4 og Selfyssingar einn.
Ein skemmtilegasta glímann var
viðureign Vignis G. Stefánssonar
úr Ármanni og KA-mannsins Sæv-
ars Sigursteinssonar. Glíman var
hröð og reyndu drengirnir mjög að
skora á hvorn annan og lauk viður-
eigninni með jafntefli.