Morgunblaðið - 06.12.1994, Síða 8
2lfov0uitMstfrU>
KNATTSPYRNA
Æfingamar
em lamar
að skila sér
- sagði Gerry Francis eftir
stórsigur Tottenham
Teddy Sheringham var með þrennu í 4:2 sigri Tott-
enhahi gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á
laugardag. Blackburn vann Wimbledon 3:0 og er áfram
átoppnum. Manchester United sigraði í 10. heimaleikn-
um í röð og hélt hreinu sem fyrr, en liðið vann Norwich
1:0 með marki Frakkans Erics Cantona. Ian Rush
gerði fjórða mark sitt á fjórum dögum, þegar Liverpo-
ol gerði 1:1 jafntefli í Coventry.
Gerry Francis, yfirþjálfari Tottenham, hefur lagt
áherslu á að þétta vöm liðsins og telur sig vera á réttri
leið, en hann hefur stjómað Jiðinu í fjórum leikjum og
fagnaði fyrsta sigrinum. „Ég hef látið leikmennina
gera hluti í miðri viku sem ég held að þeir hafi ekki
gert hér í tvö eða þrjú ár eða jafnvel aldrei. Ég hef
látið þá hlaupa og ég kalla það uppáhalds þriðjudaginn
minn. Þeir gera ekkert annað en hlaupa þann dag og
ég trúi að það hafi gert þeim gott.“
Newcastle var í efsta sæti deildarinnar þar til í bytj-
un nóvember, en hefur ekki náð að sigra í síðustu fjór-
um leikjum.
Blackburn fagnaði sigri í Wimbledon í fyrsta sinn,
en Mark Atkins, Jason Wilcox og Alan Shearer gerðu
mörkin.
Bruce Grobbelaar mátti sætta sig við að hirða bolt-
ann úr netinu hjá sér í fyrsta sinn í síðustu þremur
leikjum, en Chelsea vann 1:0 í Southampton.
Arsenal án sjö landsliðsmanna náði 2:2 jafntefli í
Nottingham. Stuart Pearce og Brian Roy gerðu fyrstu
mörk Forest í síðustu sjö leikjum. Martin Keown og
Paul Davis gerðu mörk Arsenal með skalla.
Alex Ferguson, yfirþjálfari Manchester United, hrós-
aði mönnum sínum í hástert eftir sigurinn gegn
Norwich. „Við vorum frábærir í fyrri hálfleik og sýnd-
um knattspymu eins og hún best gerist,“ sagði hann.
En sigurinn var dýrkeyptur. Andrei Kanchelskis varð
að fara magaveikur af velli þegar 20 mínútur voru til
leiksloka og sagði Ferguson óvíst hvort hann, Roy
Keane, Peter Schmeichel, Paul Parker, Lee Sharpe eða
Ryan Giggs gætu leikið gegn Galatasaray í síðasta
leik úrslitakeppni Evrópumóts meistaraliða á Old Traf-
ford á morgun. United hefur aðeins fengið mörk á sig
í Evrópukeppninni á heimavelli í vetur, en liðið vann
Gautaborg 4:2 og gerði 2:2 jafntefli við Barcelona.
United verður að sigra tyrkneska liðið og vona að
Gautaborg sigri í Barcelona til að eiga möguleika á
að komast áfram í átta liða úrslit.
Miklar vonir verða bundnar við
Reuter
LandsliAsmennirnir Andreas Möller og Karlhelnz Riedle hjá Dortmund fögnuðu.
Þrfr leikmenn létu ekki
sjá sig hjá Frankfurt
Anthony Yeboah, fyrirliði Einstracht
Frankfurt, þýski landsliðsmaðurinn
Maurizio Gaudinog og Jan Jay Okoch frá
Nígeríu hafa verið settir á sölulista, en þeir
mættu ekki í leik liðsins gegn Hamburg í
þýsku deildinni á laugardag. Eftir tiikynningu
félagsins sagði Yeboah að hann væri hættur
sem fyrirliði og vildi fara aftur heim til Ghana.
„Ég var bara fyrirliði að nafninu til, því þjálf-
arinn virti mig ekki viðlits," sagði hann. Fé-
lagið sektaði Yeboah fyrir að mæta ekki í
leikinn en hinir höfðu tilkynnt veikindi.
Matthias Dhms, forseti félagsins, sagði að
það þarfnaðist ekki lengur þjónustu leikmann-
anna og ekki væri mögulegt að semja við þá.
„Framkoma leikmannanna var ósættanleg.
Þetta er í fyrsta sinri sem svona gerist í deild-
inni.“
Þýski landsliðsmaðurinn Christian Ziege
gerði tvö mörk á þremur mínútum þegar
Bayern Miinchen vann Dynamo Dresden 2:1.
Lothar Matháus, fyrirliði Bayern, fékk sex
leikja bann fyrir ósæmilegt orðbragð um dóm-
ara og tók út fyrsta leikinn. Mario Kem hjá
Dresden fékk að sjá rauða spjaldið á 79.
mínútu, en sjö mínútum síðar minnkaði Pól-
vetjinn Andrzej Lesiak muninn.
Gladbach var tveimur mörkum undir í hálf-
leik gegn Stuttgart en vann 4:2 og er í þriðja
sæti með jafn mörg stig og Bremen.
FOLK
■ STEVE McMahon, fyrrum leik-
maður Liverpool, Manchester
City og enska landsliðsins, en nú
yfirþjálfari og leikmaður Swindon
lék fyrsta leik sinn með liðinu um
helgina. Hann náði samt ekki að
ljúka leiknum í Southend, því dóm-
arinn sýndi honum rauða spjaldið á
73. mínútu.
■ ALLY McCoist tókst ekki að
gera 300. mark sitt, þegar Ran-
gers vann Dundee United 3:0 í
skosku úrvalsdeildinni þó hann hafi
fengið þijú góð tækifæri. Hann fór
meiddur af velli eftir 37 mínútur.
■ GIANLUCA Vialli gerði tvö
mörk fýrir Juventus í 3:2 sigri
gegn Fiorentina og þar með hefur
hann gert 101 mark á ferlinum.
■ ÞETTA var fyrsti leikurinn á
tímabilinu þar sem Batistuta skor-
aði ekki fyrir Fiorentina.
■ KAZUYOSJI Miura varð fyrsti
Japaninn til að skora í ítölsku
deildinni, en hann kom Genúa á
bragðið gegn Sampdoria. Það var
samt skammgóður vermir því
Sampdoria svaraði með þremur
mörkum frá Pietro Vierchowod,
Attilio Lombardo og Riccardo
Maspero áður en Fabio Galante
minnkaði muninn, 3:2.
■ ÞETTA var fjórði leikur Miu-
ras, en hann hefur verið frá vegna
meiðsla. Hann gerði 20 mörk í 36
leikjum, þegar Kawasaki Verdy
varð japanskur meistari á síðasta
tímabili.
■ JULIO Salinas skoraði fyrir
Deporivo La Coruna á síðustu
mínútu og tryggði liðinu 1:1 jafn-
tefli við Spánarmeistara Barcel-
ona. Ronald Koeman skoraði úr
aukaspyrnu af 25 metra færi á 33.
mínútu fyrir Barcelona.
■ JUAN Canales, markvörður La
Coruna meiddist eftir hlé og var
borinn af velli. Hann verður frá í
sex vikur, en aðalmarkvörðurinn
Francisco Liano, sem hefur verið
meiddur, fór í markið.
■ MEHO Kodro frá Bosniu skor-
aði fyrir Real Sociedad á síðustu
stundu og náði markvörður Real
Madrid ekki að ná í boltann áður
en flautað var til leiksloka. Fern-
ando Hierro skoraði fyrir Real úr
vítaspyrnu um miðjan seinni hálf-
leik.
■ MICHEL hjá Real sleit kross-
bönd í hné í leiknum. „Ég verð ekki
í hvíta búningnum meira á tímabil-
inu, en ég get ekki kvartað mikið,“
sagði hann. „Ég hef verið atvinnu-
maður í 14 ár og ekki fyrr meiðst
alvarlega.“
Cantona, sem gerði áttunda mark
sitt á tímabilinu. Ferguson sagði
að ekki hefði verið hægt að fá betri
undirbúning en leikinn við Norwich.
„Norwich er þekkt fyrir að leika
góða knattspymu. Leikmennimir
gáfu ekkert eftir og létu svo sannar-
lega finna fyrir sér. Þetta er besta
lið sem ég hef séð á Old Trafford
á tímabilinu og ég dáðist að því.“
SKIÐI
Tomba byijar tímabilið vel
Vantraust
á Cantona
Eric Cantona, franski leikmað-
urinn hjá Manchester Un-
ited, er ekki vinsæil í heimalandi
sínu ef marka má skoðunarkonn-
un sem franska_ dagbláðið I’Equ-
ipe birti í gær. í könnun blaðsins
kemur í Ijós að Frakkar vilja
Cantona út úr landsliðinu og vilja
kenna honum um slakt gengi liðs-
ins í undankeppni EM. 50,57%
aðspurðra sögðu að það ætti að
setja hann út úr landsliðinu og
70,02% sögðu hann ekki hæfan
sem fyrirliða landsliðsins.
ÍTALINN Alberto Tomba byrjaði
keppnistímabilið vel í heimsbik-
arnum íalpagreinum. Hann sigr-
aði með yf irburðum í fyrsta svig-
móti vetrarins í Tignes í Frakk-
landi á sunnudag og varð fjórði
í stórsvigi á sama stað á laugar-
dag. Hann segir að þessi vetur
gæti orðið hans síðasti í heims-
bikarnum.
Tomba, sem verður 28 ára í næstu
viku, segir markmiðið í vetur
að verða heimsmeistari, en það er
nokkuð sem hann hefur ekki upplif-
að. „Það eru allir að segja við mig
að halda áfrarn næstu árin, en ég
er sá sem stend á skíðunum. En „sá
gamli“ er kominn aftur á fullu og
veður með í vetur, ég lofa ekki
meiru,“ sagði Tomba eftir sigurinn
í sviginu á sunnudaginn. Hann var
rúmlega sekúndu á undan Michael
Tritscher frá Austurríki, sem varð
annar.
í stórsvigskeppninni á laugardag-
inn var Tomba aðeins með 20. besta
tlmann eftir fyrri umferð, en sýndi
og sannaði það í síðari umferð hversu
sterkur hann er. Hann náði lang
besta tímanum og skaust við það upp
í 4. sæti — var aðeins hálfri sekúndu
frá því að komast á verðlaunapallinn.
Tomba virðist eiga mörg ár eftir
á toppnum ef marka má árangur
hans um helgina. Hann segist sjálfur
vera orðinn svolítið þreyttur eftir að
hafa verið á toppnum í sjö ár, eða
frá því hann vann fyrsta heimsbikar-
mótið I Sestriere árið 1987. Síðan
þá hefur hann unnið 34 heimsbikar-
mót, 23 í svigi og 11 í stórsvigi og
auk þess þrenn gullverðlaun á
Ólympíuleikum. Að eigin sögn á hann
ekki möguleika á að slá met Ingem-
ars Stenmarks, sem vann samtals
Alberto Tomba
86 heimsbikarmót, þar af 40 í svigi.
„Þetta var mun auðveldara þegar
Stenmark var upp á sitt besta þó ég
sé ekki að gera lítið úr afrekum hans.
Það er ékki slæmt að standa 86 sinn-
um á efsta þrepi verðlaunapallsins,“
sagði Tomba, sem hefur 64 sinnum
verið á meðal þriggja efstu í heims-
bikarmótum. Hann hefur hins vegar
aldrei náð að vinna stigakeppni
heimsbikarsins, en þrisvar orðið í
öðru sæti; 1988, 1991 og 1992. Þess
má geta að Tomba keppir ekki í bruni
og risasvigi vegna slysahættu.
Gustavo Thöni, sem var einn besti
skíðamaður heims fyrir 20 árum,
hefur verið þjálfari Tomba undanfar-
in ár og' er hann samningsbundinn
fram á lok næsta árs. Thöni segir
að Tomba geti haldið sér á toppnum
til 1997, en sjálfur kjósi hann hætta
að þjálfa og eyða meiri tíma með
fjölskyldu sinni eftir að samningi
hans lýkur við ítalska skíðasamband-
ið. _________________________
Urslit / C7
ENGLAND: X11 X22 21X 2122 ITALIA: 1 X X 12 1 1 1 X X