Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 C 5 LAUGARDAGUR 10/12 MYNDBÖND Sæbjöm Valdimarsson TVIBURB URVITI HROLLVEKJA Verri lielmingurinn („ The Dark Half“) **'/i Leikstjóri George A. Romero. Handrit George A. Romero, byggt á skáldsögu Stephens King. Aðalleikendur Timothy Hutton, Amy Madigan, Julie Harris, Michael Rooker, Royal Dano. Bandarísk. Orion/TriStar Columbia 1993. Skífan 1994.117 mín. Aldurstakmark 16 ára. Hér taka valin- kunnir hroil- vekjusmiðir, þeir rithöfundurinn Stephen King og leikstjórinn George A. Rom- ero, höndum saman, og út- koman hrylling- ur í góðu meðal- lagi. Verrihelm- ingurinn segir frá rithöfundinum Thad Beaumont (Timothy Hutton), sem er í talsverðum metum en bækur hans seljast hinsvegar lítið. Afkomuna byggir hann á hroll- vekjuskrifum um fjöldamorðingj- ann George Stark, hina óhugnan- legustu persónu sem á miklum vin- sældum að fagna. Þar að kemur að Beaumont ákveður að kveðja Stark og snúa sér alfarið að alvar- legri sköpun, en þá er engu líkara en Stark vakni til lífsins og drápin bytja. Að vissu leyti sjálfsævisöguleg, því King brauðfæddi sína fjöl- skyldu á tímunum fyrir frægðar- ferilinn, á skrifum undir dulnefni. Lengra nær samlíkingin vonandi ekki! Romero hefur tekið þessa miðlungssögu metsöluhöfundarins, sniðið hana mátulega til og gert úr henni prýðis hryllingsmynd. Ekki er hægt að fjalla um afstyrm- ið Stark án þess að frásögnin verði nokkuð blóðlituð, en Romero er hagvanur á þessum slóðum og hefur greinilega róast með árunum svo útkoman er ásættanlega óhugnanleg með tilliti til alls. Held- ur gangandi nauðynlegri hrynjandi allt að endakaflanum en teygir þá óþarflega lopann. Timothy Hutton er vaxandi leikari á ný, eftir mörg mögur ár og hefur ekki staðið sig betur í áraraðir en í tvöföldu hlut- verki Beaumonts/Starks. Hann fær góðan stuðning frá Madigan og Rooke og ef myndin hefði ekki lent í upplausninni sem fygldi gjaldþroti Orion Pictures, hefði hún að öllum líkindum gert það gott í miðasölunni. Þrátt fyrir að vera mikið mun betri en t.d. Nýjasta hrollvekja IVes Cravens, fékkst hún ekki frumsýnd í kvikmynda- húsum víða um lönd. GÓÐUR DRENG- UR9 NORRIS SPENNUMYND Lögreglumaðurinn í Texas („ Som- ethingin the Shadow“) * Leikstjórar Tony Mordente og Michael Preece. Aðalleikendur Chuck Norris, Clarence Gilyard, Noble Willingham, Sheree J. Wil- son. Cannon Video 1994. Warner myndir 1994.85 mín. Aldurs- takmar 16 ára. Þeir skrimta hvor á öðrum, Chuck Norris og Menahem Golam (Cannon Pictur- es). Eina ferðina enn er hin snöf- urmannlega al- þýðuhetja búin að pota sér í gallabuxumar og -jakkann, síða frakkann og háhæluðu leðurstígvél- in. Tilbúinn að beija á andskotum friðar og mannréttinda, eiturlyfja- sölum og öðrum samfélagssýklum niður í Texas. Rangerslögreglulið- inn Walker er kominn á kreik. Fyrir svæsnustu Norrisaðdáend- ur, sem sagðir eru allnokkrir enn, þrátt fyrir afleitt gengi hetjunnar síðari árin. Sem m.a. endurspeglast í því að nú eru myndir þessa smáa en knáa áflogahunds frumsýndar eingöngu á myndbandi. Barsmíðar og byssuleikir. Skúrkarnir hræðast en íðilfagurt kvenfólkið gefur val- menninu hýrt auga. Afar slitið og þreytulegt. UaWas-dúkkan Sheree J. Wilson flikkar uppá útlitið. BEGGJA HANDA JÁRN Rómeó blæðir („Romeo is Bleed- ing“) * * Leiksljóri Peter Medak. Handrit Hilary Henkin. Aðalleikendur Gary Oldman, Lena Olin, Anna- bella Sciorra, Juliette Lewis, Roy Scheider, Will Patton, Ron Pearl- man. Bandarísk. Polygram 1994. Háskólabió 1994.95 mín. Aldurs- takmark 16 ára. Tilveran í lífi alríkislögreglu- mannsins Gary Oldmans er orðin ærið fallvölt, enda orðinn beggja handa járn. Einsog hann segir sjálf- ur, þá lifir hann fyrst og fremst fyrir að fæða hol- una í garðinum sínum með pening- um, þessi breyski laganna vörður er fyrir margt löngu orðinn mútu- þegi mafíunnar. Kjaftar frá hvar lögreglumenn hafa í haldi mafíósa og hefur þessi leki orðið mörgum samstarfsmönnum hans að bana. Það skiptir ekki máli, svo lengi sem hækkar í ruslapokanum í holunni. Kvennamálin eru einnig í ólestri. Hann er giftur Annabellu Sciorru, heldur við gengilbeinuna Juliette Lewis og enn vandast málin er leigumorðinginn Lena Olin kemur til sögunnar. Lagleg mynd fyrir augað, nost- urslega tekin en atburðarásin er slöpp, undarleg blanda óhugnan- legs og ofbeldisfulls raunsæis og slitróttra einræðna Oldmans um líf- ið og tilveruna. Handritið, ásamt ómarkvissri leikstjórn Peters Med- ak, sem byggist mest á innantóm- um stælum (svo virðist sem maður- inn hafi ætlað sér að gera mynd um breskar neðanjarðarpersónur á ameríska vísu), eru höfuðgallarnir. Stór hópur áhugaverðra leikara kemur við sögu og kyntröllið sænska, Lena Olin, stelur senunni af Oldman, Lewis og co. Þó hún sé sannkallað augnayndi nægir það ekki til að forða myndinni frá því að verða úthaldslaus. Kaflaskipt og ofbeldisfull furðusýning. Bleeding BÍÓMYNDBÖND Sæbjörn Valdimarsson TÓNLISTARKROSSGÁTAN NR.44 LAUSNIR SENDIST TIL: BROSSINS HAFNARGÖTU 15 - 230 KEFLAVÍK MERKT: TÓNLISTARKROSSGÁTAN Úr handraðanum Fiskabúr handa flugfisk' um. Brjóstahaldari fyrir sirkuskonur. Spegill fyrir hlé- dræga, mikið úrvai af spegilmyndum. Krákan („The Crow“) * *Vi Hrá og hressileg hrollvekja sem vafalaust verður fyrst og fremst minnst sem síðustu myndar Bran- dons Lee sem leikur hér rokksöngv- ara sem býr í myrkum og grimmum bæjarhluta. Hann er myrtur ásamt fjölskyldu sinni en rís upp frá dauð- um og hefnir harma sinna. Bærilega leikin og gerð af nokkrum tilþrifum. Ofbeldisfull og þijótarnir í góðum höndum. Bein handa hundum og köttum. / Ól fyrir sjávarfiska. Fjölnota bindi. UTVARP Rás 1 kl. 12.45. Helgarúlgálan. Umsjón: Lisa Páls. RÁS 1 FIH 92,4/93,5 6.45 Veðurfregnir. 6.50 Bæn: Séra Helga Soffía Konráðsdóttir flytur. Snemma á laugardagsmorgni. Þulur velur og kynnir tónlist. 7.30 Veður- fregnir. 8.10 Snemma á laugardags- morgni heldur áfram. 9.03 Þingmál. Umsjón: Atli Rún- ar Halídórsson og Valgerður Jóhannsdóttir. 9.25 Með morgunkaffinu - Dans hjarðmeyjarinnar eftir Hugo Alfvén Sænska útvarpshljóm- sveitin leikur; Esa Pekka Salon- en stjórnar. Skógurinn sefur eftir Hugo Alf- vén, Underbart ar kort, eftir Povel Ramel og Vármlandsvisan, sænskt þjóðlag. Anders Andersson, Allmánna- kórinn, Folke Alin og fleiri flytja; Ceeilia Rydinger-Alin stjórnar. Miðsumarvaka_ eftirt Hugo Alfvén Sænska Útvarpshljómsveitin leikur; Esa Pekka Salonen stjórnar. 10.03 Evrópa fyrr og nú. Umsjón: Ágúst Þór Árnason. 10.45 Veðurfregnir. 11.00 I vikulokin. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 12.00 Útvarpsdagbókin og dag- skrá laugardagsins. 12.45 Veðurfregnir og auglýsing- ar. 13.00 Fréttaauki á laugardegi. 14.00 Hringiðan. Menningarmál á líðandi stund. Umsjón: Halldóra Friðjónsdóttir. 16.05 Islenskt mál. Umsjón: Guð- rún Kvaran. (Endurflutt nk. miðvikudagskvöld kl. 21.50) 16.30 Veðurfregnir. 16.35 Ný tónlistarhljóðrit Ríkisút- varpsins. Flutt hljóðrit með leik flautuleikaranna Guðrúnar S. Birgisdóttur og Martial Nardeau og Ónnu Guðnýjar Guðmunds- dóttur píanóleikara. Umsjón: Dr. Guðmundur Emilsson. 17.10 Króníka. Þáttur úr sögu mannkyns. Umsjón: Halldóra Thoroddsen og Ríkarður Örn Pálsson. (Endurfluttur á mið- vikudagskvöldum kl. 21) 18.00 Djassþáttur. Jóns Múla Árnasonar. (Einnig útvarpað á þriðjudagskvöld kl. 23.15.) 18.48 Dáharfregnir og auglýsing- ar. 19.30 Auglýsingar og veðurfregn- ir. 19.35 Óperukvöld Útvarpsins. Ragnarök eftir Richard Wagner, seinni hluti. Frá sýningu á óperuhátíðinni í Bayreuth í sum- ar. 2. og 3. þáttur. Með helstu hlutverk fara: Wolfgang Schmidt, Falk Struckmann, Erick Halfvarsson, Deborah Pol- aski, Anna Linden og Hanna Schwarz.; Kór og hljómsveit óperunnar f Bayreuth ; James Levine stjórnar. Kynnir: Ing- veldur G. Ólafsdóttir. 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfregnir. 22.35 Smásagan Híalín eftir Nirm- al Verma. Þorgeir Þorgeirson les eigin þýðingu. (Áður á dagskrá 18. nóvember sl.) 23.15 Dustað af dansskónum. 0.10 Fimm fjórðu. Djassþáttur í umsjá Lönu Kolbrúnar Eddu- dóttur. (Áður á dagskrá í gær) 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Fréttir 6 RÁS I og RÁS 2 kl. 7, 8, 9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24. RÁS 2 FM 90,1/99,9 8.05 Barnatónar. 9.03 Laugardagslíf. Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir. 12.45 Helgarútgáfan. Umsjón: Lfsa Páls. 16.05 Heimsendir. Margrét Kristín Blöndal og Sigurjón Kjartansson. 17.00 Með grátt í vöngum. Gestur Einar Jónasson. 19.30 Veðurfrétt- ir. 19.32 Vinsældalisti götunnar. Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson. 20.30 Úr hljóðstofu BBC. Umsjón: Andrea Jónsdóttir. 22.10 Nætur- vakt Rásar 2. Umsjón: Guðni Már Henningsson. NÆTURÚTVARPIÐ 1.30 Veðurfregnir. Næturvakt. 2.00Fréttir. 2.05 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. 3.00 Næturlög 4.30 Veðurfréttir. 4.40 Næturlög halda áfram. 5.00 Fréttir. 5.05 Stund með Searchers. 6.00 Fréttir, veður færð og flugsamgöngur. 6.03 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefánsson. (Veðurfregnir kl. 6.45 og 7.30). Morguntónar. ADALSTÖDiN 90,9 / 103,2 9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Á mjúku nótunum með Völu Matt. 16.00 Jenný Jóhannsdótir. 19.00 Magnús Þórsson. 21.00 Næturvakt Aðal- stöðvarinnar. BYL6JAN FM 98,9 7.00 Morguntónar. 9.00 Morgunút- varp með Eiríki Jónssyni. 12.10 í jólaskapi, Valdis Gunnarsdóttir og Jón Axel Ólafsson. 16.00 íslenski listinn. Umsjón: Jón Axel Ólafsson. 19.00 Gullmolar. 20.00 Laugar- dagskvöld á Bylgjunni. Umsjón: Halldór Backman. 23.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. 3.00 Nætur- vaktin. Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30. BYLGJAN, ÍSAFIRÐI FM 97,9 9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9. 20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar Atli með næturvakt. Síminn í hljóð- stofu 93-5211. 2.00 Samtengt Bylgjunni FM 98.9. BROSID FM 96,7 10.00 Lára Yngvadóttir. 12.00 Ókynnt tónlist. 13.00 Böðvar Jóns- son og Ellert Grétarsson. 17.00 Ókynnt tónlist. 22.00 Næturvakt- in. 3.00 Næturtónar. FM 957 FM 95,7 9.00 Steinar Viktorsson. 11.00 Sportpakkinn. Hafþór Sveinjóns- son og Jóhann Jóhannsson. 13.00 Sigvaidi Kaldalóns og Haraldur Daði. 17.00 American top 40. 21.00 Ásgeir Kolbeinsson. 23.00 Á lífinu. TOP-BYLGJAN FM 100,9 7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM 98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP- Bylgjan. 11.00. Samtengt Bylgj- unni FM 98,9. X-IÐ FM 97,7 10.00 Örvar Geir og Þórður Örn. 12.00 Ragnar Blöndal. 14.00 X- Dómínóslistinn. !7.00Þossi. 19.00 Party Zone. 22.00 Nætur- vakt.03.00 Næturdagskrá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.