Morgunblaðið - 13.01.1995, Blaðsíða 2
2 D FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
Litfríð
og ljóshærð
en feimin, óörugg og bæld
ALHÆFINGAR af ýmsu tagi eru fremur
Sp heimskulegar þegar grannt er skoðað, en
^3 ágætis efni í brandara og skrýtlur. Efa-
“Jlaust hafa flestir heyrt um gribbulegu
tengdamömmuna eða heimsku ljóskuna.
Sérstaklega hafa ljóskurnar orðið fyrir
barðinu á brandarasmiðunum og þeim
25 gjarnan lýst sem litium mannvitsbrekkum,
•5 en þó sjálfsöruggum, opinskáum og jafn-
Ofi vel léttúðugum.
Eitthvað hefur hin ljóshærða og hárprúða
tískusýningarstúlka Jerry Hall viljað bæta
ímynd sína þegar'hún sagði að hún væri ein-
ungis ljóska á yfirborðinu en í rauninni væri
hún dökkhærð gáfukona. Af óútskýrðum
ástæðum hefur ekki þótt eins fyndið að hafa
í flimtingum að ljóshærðir karlmenn væru
gæddir dæmigerðum eiginleikum heimsku ljós-
kunnar.
Nú hefur hópur rannsóknarmanna við Har-
vard-háskóla með barnasálfræðinginn Dr. Je-
rome Kagan í broddi fylkingar komið fram
með nýja kenningu, sem í fljótu bragði virðist
alhæfa um þá ljóshærðu. Niðurstöðurnar gefa
þó engar vísbendingar um gáfnafarið. Hins
vegar benda þær til að ljóshærð og fölleit börn
séu öðruvísi skapi farin en þau dökkhærðu.
Rannsóknin leiddi í ljós að hægt var að flokka
börnin í tvo algjörlega andstæða hópa eftir
persónuleika og virtist hár- og hörundslitur
skipta þar töluverðu máli.
RANNSÓKNIR undir handleiðslu barnasálfræðingsins Dr. Jerome Kagan benda til að
Ijóshærð, bláeyg og fölleit börn verði feimin og óörugg þegar þau vaxa úr grasi.
Tveir hópar
í öðrum hópnum voru bæld, feimin og óör-
ugg börn, en í hinum voru andstæðurnar;
sjálfsörygg, ófeimin og allsendis óþvinguð
böm. Þessir eðlisþættir reyndust vitaskuld ekki
einhlítir, en rannsóknarmönnunum þótti engu
að síður athyglisvert hversu skörp skilin voru.
Þau börn sem alla jafna flokkuðust í fyrri
hópinn áttu sameiginlegt að vera bláeyg, föl
yfirlitum, mjóslegin í andliti, há og grönn. Svo
undarlegt sem það kann að virðast voru enni
þeirra yfirleitt heitari hægra megin og hjart-
sláttur þeirra örari en hjá börnunum í hinum
hópnum.
Mismunandi hraður hjartslattur hjá fjögurra
mánaða börnum var augljós. I rann-
sókn fjórtán árum síðar á sömu
börnum kom sami munur í ljós. Því
segist Kagan geta með nokkurri
vissu sagt til um hversu ungbörn
yrðu sjálfsörugg á táningsaldri.
í bók sinni „Galen’s Prophecy:
Temperament and Human Nature"
eða „Spádómur Galens: Skapferli
og mannlegt eðli“ útskýrir Kagan
hvernig ýmis önnur einkenni virðast
tengjast feimni og óframfærni.
Hann veltir fyrir sér hvort hið dæmigerða nor-
ræna útlit samfara framangreindum eðlisþátt-
um og hröðum efnaskiptum líkamans hafi ráð-
ið úrslitum um að þetta fólk þraukaði kuldann
á síðustu ísöld.
Ljóshærö og
fölleit börn
viröast ööru-
vísi skapi farin
en þau dökk-
hæröu.
Líkamsstarfsemi og útlit
Kagan lætur ekki staðar numið í vangavelt-
um sínum, m.a. getur hann sér til um að lík-
amsstarfsemi skýri bæði útlit og tiltekna eðlis-
þætti mannsins. Kenning hans er sú að í fóst-
urvísum sé hópur fruma, svokallaður tauga-
kambur, sem haldi áfram að mynda bæði
andlitsbeinin og ákveðinn hluta heil-
ans. Sá hluti stjórni starfsemi boðefn-
is, náskyldu adrenalíni, og hafi því
áhrif á sjálfsöryggið. Þetta boðefni
telur hann ennfremur ráða úrslitum
um hár- og augnlit.
Kagan dregur þá ályktun að innan
tíðar verði hægt að rekja hvernig ein-
föld efnafræðileg starfsemi heilans
móti eðli einstaklingsins. Hann gerir
sér í hugarlund að slíkt sé hægt á
einfaldan hátt líkt og sá mikilsmetni,
gríski læknir Galen (um 130-200 e.K.) setti
fram kenningar um að ákveðnir eðlisþættir
manna réðust af blóði, lit meltingarvökva og
jafnvel kvefslími.
Þýtt og endursagt/Flugblað KLM.
VIÐ BÆKUR
BÓKASAFN tileinkað minningu
skáldsins Henry Miller er að finna
í litlu timburhúsi í Big Sur í Kali-
forníu, einum fallegasta stað í
heimi þar sem háir klettar skaga
út í Kyrrahafið.
Miller kom til Big Sur 1944 til
að heimsækja vin sinn listamann-
inn Jean Varda og varð svo heillað-
ur af náttúrufegurðinni að hann
ákvað þegar að flytja þangað.
Hann skrifaði af þessu tilefni:
„Hér mun ég fínna frið. Hér mun
ég finna styrk til að vinna það
verk sem ég var skapaður fyrir.“
Miller var á þessum tíma efnalít-
ill en fljótlega fóru ritlaun frá
Evrópu að streyma inn. Hann
keypti sé lítið hús við hafið þar sem
hann bjó næstu tuttugu ár og fékk
innblástur fyrir margar bækur sín-
ar. Allmargir listamenn höfðu að-
setur í Big Sur á þessum tíma þar
á meðal Emil White sem varð vin-
ur Millers meðan báðir lifðu. Eftir
dauða skáldsins 1980 opnaði Emil
hús sitt sem safn til heiðurs Miller
og tók persónulega á móti gestum
til dauðadags 1989. Þarna er að
finna allar bækur Millers, auk fjöl-
margra málverka eftir hann.
Bækur hans voru umdeildar og
þóttu hlspurslausar
Miller fæddist í New York 1891.
Bækur hans eru sjálfsævisöguleg-
ar, mjög hispurslausar og voru
margar þeirra bannaðar í áratugi.
Ýmsir töldu hann siðlausan og
jafnvel hættulegan samfélaginu.
Til dæmis var bókin Sexus bönnuð
í Noregi árið 1957 og vegna þess
átti Miller í skemmtilegum bréfa-
skriftum við yfirvöld þar. í niður-
lagi eins bréfsins segir hann: „Þið
getið ekki út- máð hugmynd með
Barnaverndarstofa
tekur brátt við verkefnum
skv. lögum um mál barna og unglinga
SKIPULAGSBREYTINGAR verða
í málefnum um vernd barna og
ungmenna á næstunni, ef stjórnar-
frumvarp um þetta efni verður sam-
þykkt. Sérstakri Barnaverndarstofu
er ætlað að verða einskonar miðstöð
í barna- og unglingamálum og er
ætlað að taka að mestu við þeim
verkefnum, sem félagsmálaráðu-
neytið hefur haft á grundvelli laga
um vernd barna og ungmenna. Þá
skal Barnaverndarstofa sinna
nokkrum þeim verkefnum, sem
Unglingaheimili ríkisins fór með
áður. Verkefni þess verða flutt yfir
til nýrrar Meðferðarstöðvar ríkisins
fyrir unglinga. Loks mun Barna-
verndarstofa taka að sér yfirumsjón
fósturmála, sem áður voru í höndum
barnaverndarnefnda sveitarfélaga.
Það felur m.a. í sér að hún á að
sjá um að hæfir fósturforeldrar séu
ávallt fyrir hendi og nauðsynlega
fræðslu þeim til handa.
Barnavemdarstofa mun bera
ábyrgð á að samræma stjórnsýslu
málaflokksins, veita heimilum,
stofnunum og bamaverndamefnd-
um faglega aðstoð og sjá um eftir-
lit með þessum aðilum'. Barnavernd-
arstofa hefur fengið aðsetur að
Suðurgötu 22, en hefur ekki form-
lega tekið til starfa ennþá. Þá var
ákveðið að bíða með ráðningu yfir-
manns uns Alþingi hefði afgreitt
málið. Aftur á móti er sú deild inn-
an félagsmálaráðuneytisins, sem
vernd barna og
nýja húsnæðið
farið hefur með
ungmenna, flútt í
og er byijuð að undirbúa starfið.
Verkefni Meðferðarstöðvarinnar
verða að veita sérhæfða þjónustu,
s.s vímuefnameðferð og vistun í
bráðatilvikum. Gert er ráð fyrir að
stöðin komi í staðinn fyrir þrjár
meðferðardeildir Unglingaheimilis
ríkisins, þ.e. meðferðarheimilið í
Sólheimum 7, móttöku-
deildina í Efstasundi 86
og vímuefnadeildina á
Tindum á Kjalamesi.
Rekstur þessara deilda
verður þó óbreytt fyrst um
sinn, en fé hefur verið
veitt af fjárlögum til ný-
byggingar fyrir hina nýju
meðferðarstöð. Langtíma-
vistun unglinga fer ein-
göngu fram á meðferðar-
heimilum, sem rekin verða
á fjölskyldugrunni, eins og_
nú er að Torfastöðum, Árbót og
Geldingarlæk og stofnunum með
vaktafyrirkomulagi verður fækkað.
Barnaverndar-
stof u er ætl-
aö að verða
einskonar
miðstöð í mól-
um barna- og
unglinga.
Skýrari verkaskipting
Kostnaður við þennan rekstur
nam 186 millj. kr. árið 1993 og 225
millj. kr. 1994. Með sameiningu á
að ná fram hagræðingu í rekstri
sem nýtt skal_ til að reka barna-
verndarstofu. í frumvarpi til fjár-
laga fyrir árið 1995 er gert ráð
fyrir 252 millj. kr. til þessa mála-
flokks, þar af er kostnaður vegna
húsbyggingar nýrrar Meðferðar-
stöðvar 30 millj. kr. sem einnig
verður fjármögnuð með sölu hús-
eigna Unglingaheimilis ríkisins.
Gert er ráð fyrir 44,5 störfum á
Barnaverndarstofu, Meðferðarstöð
og meðferðarheimilum. Nú eru þrjú
heimili fyrir börn og unglinga rekin
skv. samningum við einstaklinga.
Frumvarp um breyt-
ingar á barnaverndarlög-
um er nú til umíjöllunar
í félagsmálanefnd Al-
þingis. Það var samið af
nefnd, sem félagsmála-
ráðherra skipaði sl. vor
til áð endurskoða lög um
vernd barna og ung-
menna. Það miðar að því
að gera skipulag þessara
mála markvissara og
verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga skýrari
og í meira samræmi við anda núver-
andi bamaverndarlaga.og laga um
félagsþjónustu sveitarfélaga. Skv.
frumvarpinu verður yfirstjórn hjá
ríkinu sem fyrr og ber það ábyrgð
á sérhæfðum meðferðarheimilum,
þar sem fram fer skipulagt með-
ferðarstarf, unnið af sérmenntuðu
starfsfólki.
BARN AVERNDARSTOFU er m.a. ætlað að tryggja að ávallt séu
til reiðu hæfir fósturforeldrar.
þjónusta sem felur í sér ráðgjöf og
aðra félagslega aðstoð. Öll úrræði,
þar sem ekki er um sérhæfða með-
ferð að ræða, verða viðfangsefni
sveitarfélaga svo og ráðgjafarþjón-
usta fyrir almenning. Þar af leiðandi
verður stefnt að því að ráðgjöf Ungl-
ingaheimilis ríkisins verði lögð nið-
ur. Bamavemdarstofa mun taka að
sér yfirumsjón fósturmála, m.a. sjá
um að meta hæfni væntanlegra fóst-
urforeldra og veita þeim fræðslu.
Þetta eru verkefni, sem fæst sveitar-
félög hafa haft aðstöðu til að sinna
með góðu móti. Þess má vænta að
ráðgjöf til bamaverndarnefnda og
starfsmanna þeirra, sem hefur verið
takmörkuð, eflist með tilkomu
Bamaverndarstofu.
ilum sem ríkið rekur eða styrkir.
Senda á umsóknir um innlagnir á
þessar stofnanir og heimili, Barna-
verndarstofu til ákvörðunar og sér-
stakt fagteymi mun gefa umsagnir
um allar umsóknir. Þannig fær stof-
an nauðsynlega sýn yfir öll með-
ferðarúrræði og hvernig þau skuli
nýtt. í núgildandi skipulagi fer
Unglingaheimili ríkisins bæði með
eftirlit og rekstur meðferðarheim-
ila. I því nýja verða þessir þættir
aðskildir. Eftirlit verður í höndum
barnaverndarstofu en meðferðar-
starf í höndum stofnananna, sem
eingöngu munu sinna því hlutverki.
Hæfni fósturforeldra
Önnur verkefni verða i höndum
sveitarfélaga, þar á meðal grunn-
Gerðar em tillögur um ýmsar
endurbætur á núverandi meðferðar-
kerfi. Barnaverndarstofa hefur eft-
irlit með öllum stofnunum og heim-
Fram kemur í greinargerð að góð
reynsla hafi verið af þeim þremur
einkareknu meðferðarheimilum,
sem nú starfa, bæði hvað snertir
meðferð og í fjárhagslegu tilliti.
Haldið verði áfram á þessari braut
og slík heimili komi í stað stofnana