Morgunblaðið - 13.01.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995 D 3
Ijósmynd/María Ellingsen.
„HÉR MUN ég finna frið,“ segir Henry Miller við komuna til Big Sur.
Staldrað við á
bókasafni Henry Millers
því að halda henni niðri og sú
hugmynd sem tengist þessu máli
er frelsið til að lesa það sem mað-
ur kýs. Með öðrum orðum frelsi
til að lesa það sem er vont fyrir
mann jafnt og það sem er gott
fyrir mann eða það sem er einfald-
lega meinlaust. Hvernig getur
maður varist hinu illa ef maður
veit ekki hvað hið illa er?
En það er ekki neitt illt, ekki
neitt banvænt, sem þessi bók Sex-
us býður norskum lesendum uppá.
Þetta er skammtur af lífi sem ég
hef tekið inn sjálfur og sem ég
ekki einungis lifði af heldur þreifst
á. Vissulega myndi ég ekki mæla
með bókinni fyrir ungabörn en
ekki myndi ég heldur bjóða bami
flösku af ákavíti. Eg get sagt um
hana án þess að roðna; borið sam-
an við atómssprengjuna er bókin
lífkætandi eiginleika.“
Fyrir þá sem kunna að meta
Miller eða vilja kynna sér hann er
gaman að koma við á safninu í
Big Sur litast um á hans slóðum
og virða fyrir sér verk hans. Bóka-
safnsvörðurinn er sænskur og heit-
ir Magnús og getur þulið verk
Millers afturábak og áfram. ■
María Ellingsen.
Morgunblaðið/Sverrir
með vaktafyrirkomulagi. Sérstakir
þjónustusamningar verði gerðir við
þessi heimili þar sem skilgreindar
eru þær kröfur, sem gerðar eru til
þeirra, innlagnarferill og íjárveit-
ingar. Með þessu móti verði dregið
úr stofnanavistun og tryggð hag-
kvæm en vönduð og fjölbreytt með-
ferðarúrræði.
Ýmsu ðbótavant
Yfírstjóm bamavemdarmála var
færð frá menntamálaráðuneyti til
félagsmálaráðuneytis 1. janúar
1993. í kjölfar þess fól ráðherra
félagsmála Hagsýslu ríkisins að
gera úttekt á heildarskipan mála-
flokksins að frumkvæði landsnefnd-
ar um ár íjöiskyldunnar og stjórnar-
nefndar Unglingaheimilisins. Nið-
urstöður sýndu að brýn þörf væri
á að endurskoða skipulag barna-
verndarmála. Bent var á að stjórn-
sýslu málaflokksins væri verulega
ábótavant, sveigjanleika skorti og
samhæfingu þeirra sem að þessum
málum koma, vöntun væri á gæða-
mati og eftirliti með árangri þeirra
stofnana sem ríkið rekur eða styrk-
ir. Verkaskipting ráðuneytis og
undirstofnana var talin samrýmast
illa stjórnsýsluvenjum. Talið var að
aðstoð og eftirliti með bamavemd-
arstarfi sveitarfélaga væri ábóta-
vant. í skýrslunni var bent á að
núverandi meðferðarkerfí ríkisins
væri ófullnægjandi og rekstrarform
meðferðarheimila óhagkvæmt.
Gerðar voru athugasemdir við
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga sem væri óljós og ekki í sam-
ræmi við gildandi lög um vemd
barna og ungmenna og lög um fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga. Einnig
var bent á að hlutverkaskipting
milli félags- og heilbrigðiskerfis í
þessum málum væri óskýr. ■
JII
DAGLEGT LÍF
í heimi Pálu
hjá dúkkum og nornum
INNAN um kertaljós kúra
dúkkur af ýmsum stærð-
um og gerðum, litlar
tuskudúkkur sem prýða
gamla taurullu, aulalegir
en yndislegir englar sitja
á arninum, stór norn held-
ur vörð í eldhúsinu og
önnur stór „pappírskona"
með krullað hár tekur á
móti gestum í borðstof-
unni. Hún Guðrún Pálína
Björnsdóttir er skapari
þeirra.
„Ég hef alltaf haft
gaman af handavinnu og
nota yfírleitt morgnana
þegar yngsta dóttir mín
er í skólanum til að dunda
við dúkkumar eða fást
það sem ég geri mest af
núna, að búa til þvotta-
snúrur," segir hún.
Hún hannar og
saumar, hann smíðar
Það em engar venju-
legar þvottasnúrar sem
Pála, eins og hún er köll-
uð, er að búa til. Eigin-
maðurinn, Þorvaldur
Björnsson rafvirkjameist-
ari, handsmíðar litla
snúrastaura og það sem
meira er að hann hand-
smíðar úr tré pínulitlar
þvottaklemmur sem era
minni en bréfaklemmur.
Pála tekur síðan við og
notar snæri í þvottasnúr-
ur. Það fær hún hjá vini
sínum sem er prestur á
Landakoti, en hann fær
snærið utan af blaðasend-
ingum frá Hollandi. Þegar
hún er búin að festa snúr-
urnar við staurana þá
byijar hún að sauma út í
agnarsmá koddaver og
sauma klemmupoka og
litlar dúkkur sem hún
hengir líka á snúrurnar.
Smáatrlðin úthugsuð
Lítill þvottabali fylgir
með og hann lítur út fyrir
að vera eldgamall en
þannig verður hann þegar
hann kemur úr saltbaði.
Smáatriðin eru svo út-
hugsuð að hún leggur
meira að segja naglana
af snúrastaurunum í salt-
lausn til að þeir virðist
veðraðir.
„Svo undarlega sem
það kann að hljóma þá
hef ég alltaf haft áhuga
á þvotti," segir Pála.
„Strax sem krakki bauðst
ég til að blása á þvottinn
fyrir hana mömmu ef
gegnumtrekkurinn var
Morgunblaðið/Þorkell
EIGINMAÐURINN smíðar snúrustaurana og agnarsmáar tréklemmur, Guð-
rún Pálína tekur við og hengir á snúrumar útsaumuð koddaver, litla klemmu-
poka og dúkku, leggur þvottabalann í salt og svo framvegis.
ekki nægur í þurrkher-
berginu. Það jafnast held-
ur ekkert á við ilminn af
þvotti sem er nýkominn
inn af þvottasnúranum,“
bætir hún við.
Lftil saga á taurullunni
Dúkkumar sem era
allsstaðar í kringum snúr-
umar á taurallunni þróuð-
ust eiginlega með snúran-
um hennar. „Þar sem ég
átti taurallu fannst mér
tilvalið að búa til pínulitla
sveitasögu til að hafa á
rullunni og þannig þróuð-
ust dúkkurnar í kringum
þvottinn."
Flest það sem Pála not-
ar í handavinnuna sína
fær hún hér heima en
aðra hluti þarf hún að láta
senda sér að utan.
Svlpsterkir
leggjalangir englar
- En verður hún aldrei
leið á handavinnu?
„Jú, það kemur fyrir,
sérstaklega ef ég hef lengi
verið að fást við það sama.
Stundum hafa vinir og
kunningjar verið iðnir við
að panta það sem þeir sjá
hjá mér og þegar ég er
farin að gera sama hlutinn
oft þá getur komið að því
að ég þurfi að taka mér
hlé.' Eins og með þessa
aulalegu engla mína,“
segir Pála og sýnir mér
svipsterka leggjalanga
engla sem skarta blúndu-
kjólum og slöngulokkum.
„Ég gerði nokkuð marga
fyrir jólin en hef ekki snert
þá síðan. Þá geri ég bara
eitthvað annað. Ég get að
minnsta kosti ekki verið
róleg lengi án þess að fá
að skapa eitthvað." ■
grg
ÞESSI fríða snót tekur á móti gestum þegar þeir
koma í borðstofuna.
„ENGEARNIR hennar skarta blúndum og silki.
GUÐRÚN Pálína bjó til sveitasögu á taurulluna sína.
Eilíf æsUa ?
Er Q-10 lykillinn að eilífri œshu?
Hlutverk Q-10 í sérhverri frumu líkamans er að
umbreyta þeirri næringu sem að henni berst í orku.
Auk þess hefur það andoxandi áhrif. Eitt hæsta hlutfall
Q-10 í frumum likamans er í hjartanu. Upp úr miðjum
aldri minnkar frmleiðsla þess, sem getur leitt til
minni mótstöðukrafts, skerts starfsþreks og
ótímabærrar öldrunar. Þá sem skortir Q-10 geta
fundið greinilegan mun eftir neyslu þess
í nokkum tíma, í auknu þreki og betri líðan, en
jafnframt stuðlað að heilbrigðari efri árum.
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustíg & Kringlunni