Morgunblaðið - 08.02.1995, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Litlar birgðir af fiskmjöli
Veiðibann við
Perú og Chile
ANSJÓSUVEIÐAR í Perú voru stöðvaðar
17. desember sl. en búist var við, að þær
yrðu leyfðar aftur í skamman tíma í jan-
úar en stöðvaðar aftur snemma í febr-
úar. Fiskmjölsframleiðsla í Perú var til
jafnaðar 58 þúsund tonn á viku á síðasta ári eða 67% meiri en 1993.
Var aukningin mest hjá einkafyrirtækjum en framleiðsla þeirra var 47
þúsund tonn á viku, helmingi meiri en árið áður. Talið er, að fiskmjölsút-
flutningur helstu framleiðslulanda hafi verið 21% meiri á síðasta ári en
1993.
Áætlað er, að fiskmjölsfram-
leiðsla í helstu framleiðslulöndunum
hafí verið um það bil 4,45 milljónir
tonna á síðasta ári en það er 24,8%
aukning frá 1993. Er framleiðsla
Perúmanna einna talin hafa verið
2,2 milljónir tonna, 31% meiri en
1993, og rúmlega 50% af fram-
leiðslu allra aðildarlanda FEO,
Samtaka fiskmjölsframleiðenda.
Áætluð framleiðsla í Chile á síðasta
ári er 1,5 milljónir tonna, 31,2%
meira en 1993, en á Norðurlöndum
var framleiðslan 0,7 milljón tonn,
7,5% minni en 1993.
Auklnn útflutnlngur 1994
Talið er, að fiskmjölsútflutningur
helstu framleiðslulandanna hafí
verið um fjórar milljónir tonna á
síðasta ári en það er 21% aukning
frá árinu áður. Af því fóru um 33%
til Evrópu og um 48% til Austur-
landa fjær. Var búist við metút-
flutningi til Kína, allt að 700 þús.
tonnum, en síðan komu Tævan með
um 295.000 tonn og Japan með
291.000 tonn. Líklegt var talið, að
útflutningur til Bandaríkjanna og
Kanada yrði sá sami og 1993 eða
um 282.000 tonn.
Fiskmjölsbirgðir eru nú litlar og
verða það á næstu mánuðum. Líkur
eru á, að framleiðslan verði minni
á þessu ári en 1994 eins og veiði-
bannið í Perú og Chile líka benda
til. í Skandinavíu var fiskmjöls-
framleiðslan verulega minni í fyrra
en 1993, aðallega vegna lítillar veiði
við Noreg, og við ísland var loðnu-
veiðin í haust lítil sem engin. Veið-
ar Dana gengu þó vel og voru 11%
meiri í nóvember sl. en í nóvember
1993.
•KRAKKARNIR í tiunda bekk
Grunnskólans á Reyðai-firði eru
nú að safna peningum í ferða-
sjóð, en ætlunin er að fara f
hringferð um iandið í lok skóla-
ársins í vor. Þeir afla peninga
meðal annars með þvf að landa
úr frystitogaranum Snæfugli
SU, sem landaði í heimahöfn á
dögunum. Strákarnir eru niðri í
frystilest en steipurnar taka við
fiskikössunum uppi á bryggju
og raða á bretti tíl útflutnings.
Nú eru komhar um 600.000
Morgunblaðið/Muggur
krónur f ferðasjóðinn frá því í
haust og væntanlega verður
sjóðurinn orðinn nægilegar dig-
ur með vorinu. Stúlkurnar á
brygfdunni eru þær Ellen Ósk,
Lára Valdís, Sigrún Birna, Ásta
Kristin, Pálína Maria og Freydís.
SAFNAÐ í FERÐASJÓÐ
Mokfiskirí
við Lófót
■ ÞAÐ er nokkurs konar gull-
grafarastemmning hjá sjó-
mönnum í Lófót og f Vest-
urálnum í Noregi um þessar
mundir. Snurvoðarbátamir
hafa verið að fá átta og tíu
tonn f hali af vænum þorski
og á linunni hafa fengist allt
að sjö tonn á 16 bala.
Gífurlegur bátafjöldi er nú
á þessum miðum ogþorskur-
inn er stór, yfirleitt eru 90%
af honum stærri en 60 sm.
Netabátarair í Vesturálnum
hafa Hka verið að afla vel eða
25 tonn af tveggja nátta fiski.
Það þykir þó merkilegast, að
mikill fiskur er einnig milli
Lófóts og meginlandsins eða í
Vesturfirði.
Það er þó ekkert einsdæmi
að sögn gamaiia sjómanna.
Segja þeir, að gangi þorskur-
inn seint upp að Lófót komi
hann Hka i Vesturfjörðinn en
í fyrra gekk hann djúpt úti af
Lófót og kom ekki upp að fyrr
en við Mæri. Óttast menn nú
helst, að síld á leið út Vestur-
firði dragi þorskinn með sér.
SamtÖk um
dragnótina
■ DRAGNÓTARMENN stofn-
uðu samtök með sér um helg-
ina, Samtök dragnótarmanna.
Tilgangur félagsins er að efla
samheldni með íslenzkum
dragnótarútgerðarmönnum,
gæta hagsmuna þeirra í hví-
vetna, að stuðla að visindaleg-
um rannsóknum áhrifa drag-
nótarveiða á Ufríkið i sam-
vinnu með fiskifræðingum sem
og öðrum áhugamönnum um
vistkerfið. Tilgangi sfnum
hyggst félagið ná með þvi að
skapa jákvæð tengsl milli ann-
arra útgerðarþátta, að efna til
almennra funda um dragnótar-
veiðar og tengd málefni. Fé-
lagið starfar i fullri samvinnu
með hagsmunasamtökum svo
sem LÍU og Fiskifélagi ís-
lands. Það mun upplýsa ráða-
menn og almenning um gagn-
semi og hagkvæmni veiðanna.
Friðrik Halldórsson verður
starfsmaður samtakanna.
Stjórnina skipa Einar Sigurðs-
son, Þorláksson, Ólafur Egg-
ertsson, Reylqavík, Óttar
Gunnlaugsson, Ólafsvik, Jón
Traustason, Akranesi og Sæv-
ar Óskarsson, Grindavík.
50 milljóna króna veltuaukning
varð hjá Póls rafeindavörum hf.
Utflutningnr
snar þáttur
starfseminnar
VELTAN hjá
Póls raf-
eindavörum
hf. var 121
milljón króna
á síðasta ári
sem er 50
milljón króna aukning frá árinu áður. Á sama
tíma jókst útflutningur fyrirtækisins, sem sér-
hæfir sig í framleiðslu á vogum, flokkurum og
samvalsvélum fyrir fiskiðnaðinn, um 42,4 millj-
ónir króna; úr 35,5 milljónum króna í 77,9
milljónir króna.
Að sögn Harðar Ingólfssonar markaðsstjóra
útflutningsdeildar Póls var rekstrarárið 1994
hið besta í sögu fyrirtækisins en það var stofn-
að fyrir fjórum árum. „Við höfum verið að reka
framleiðsluna á 110% afköstum; erum í raun
komin upp í þak. Við ætlum því að fjölga starfs-
mönnum og endurnýja tækjakost á þessu ári í
þeim tilgangi að auka framleiðsluna. Við vorum
mjög fátæklega tækjum búnir og því var veru-
leg þörf fyrir fjárfestingu í tækjakosti." End-
urnýjunin fer fram í áföngum og eru fyrstu
tvær vélamar komnar í hús.
Starfsmönnum Póls hefur fjölgað úr 12 í 23
frá því að fyrirtækið var sett á laggirnar og
segir Hörður að fimm eða sex til viðbótar verði
ráðnir á næstunni. Póls hefur brugðið á það ráð
að virkja undirverktaka til starfa í því skyni að
auka afköstin og kveður Hörður það hafa gefið
góða raun. Hagkvæmara sé þó að halda fram-
leiðslunni innan eigin vébanda. Framleiðsla og
þróunarstarfsemi fyrirtækisins eru til húsa á
Isafirði en markaðaðsmálum er sinnt frá Reykja-
vík og hjá umboðsaðilum erlendis.
Janúar lofar góðu
Þar sem framleiðsluferlið verður tekið til
gagngerrar endurskoðunar á þessu ári gerir
Hörður ekki ráð fyrir meira en 10-15% fram-
leiðsluaukningu. Hann segir þó að fyrsti mánuð-
ur ársins lofi góðu en salan í janúar hefur verið
tvöfalt meiri en meðalsalan á síðasta ári. „Fyrstu
vikur ársins benda því til að aukningin geti orð-
ið meiri á þessu ári en við bjuggumst við.“
Hörður segir að samdráttur hafí staðið ís-
lenskum fiskiðnaði fyrir þrifum á síðustu árum.
Fyrir vikið hafi endurnýjun tækjabúnaðar setið
á hakanum og nú þegar tíðin sé orðin betri standi
fyrirtæki því frammi fyrir uppsafnaðri þörf fyr-
ir endurnýjun. „Sú staðreynd að sjávarútvegur-
inn í heild stendur styrkari fótum í dag er bein-
línis okkar hagur," segir Hörður og vísar til
þeirrar miklu uppsveiflu sem einkennt hefur
starfsemi Póls, máli sínu tii stuðnings. „Útlitið
er því bjart.“
íslenskl markaðurlnn takmörkuð stærð
Stærsti útflutningsmarkaður Póls er Noregur
og gerir Hörður ráð fyrir verulegri aukningu
þar á næstunni. Meðal annarra landa sem sóst
hafa eftir framleiðslu fyrirtækisins má nefna
Bretland, Nýja Sjáland, Frakkland og Rússland.
Útflutningsstarfsemi Póls er í örum vexti og
segir Hörður að markmiðið sé að auka hlutfall
útflutnings í framleiðslunni upp í 80%. „íslenski
markaðurinn er mjög takmörkuð stærð og hefur
fyrir vikið ekki nærri því sömu vaxtarmöguleika
og erlendir markaðir. Einn daginn munum við
standa frammi fyrir því að þær sveiflur sem
verða á heimamarkaði skipta okkur ekki lengur
máli. Markmiðið er með öðrum orðum að geta
lifað af jafnvel þótt íslenski markaðurinn leggi
upp laupana.“
Fréttir vikunnar
Fiskistofa kærir
löndun framhjá
hafnarvigt
■ SJÁVARÚTVEGSRÁÐU-
NEYTiÐ hefur, að beiðni
Fiskistofu, svipt bátinn
Tjaldanes ÍS 522 veiðileyfi
vegna ólöglegrar löndunar á
fiski í Hafnarfirði að nóttu
til fyrir skömmu. Hluta af
afla bátsins var landað inn á
Fiskmarkað Hafnarfjarðar,
en hluti fór í fiskvinnsluhús,
sem ekki hefur leyfi til vigt-
unar afla. Atvikið hefur ver-
ið kært til sýslumannsins í
Hafnarfirði, sem nú hefur
rannsókn málsins með hönd-
um.
Breytingar á
forkaupsrétti
sveitarfélaga?
■ ÞORSTEINN Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra segist
vera tilbúínn til að ræða um
breytingar á 11. grein laga
um stjórn fiskveiða en hún
fjallar um forkaupsrétt sveit-
arfélaga að kvóta sem seldur
er úr bæjarfélagi. Guðni
Ágústsson alþingismaður
segir að dæmi séu um að
fyrirtæki reyni að fara í
kringum forkaupsréttar-
ákvæðið.
Frystiskipum
fjölgi ekki
til aldamóta
■ í DRÖGUM að lagafrum-
varpi sjávarútvegsráðherra
um umgengni um auðlindir
sjávar, sem kynnt hefur veríð
í ríkisstjórn og þingflokkum,
er lagttil að breytingar verði
gerðar á iögum um full-
vinnslu botnfiskafla um borð
í vinnsluskipum þannig að
fram til næstu aldamóta verði
skipum ekki fjölgað. Jafn-
framt er lagt til að frestað
vcrði til 1. janúar árið 2000
að skyida eldri fullvinnslu-
skip til að nýta allan afia og
fiskúrgang, þar sem í Ijós
hafi komið að eldri skip hafl
fæst möguleika á að sinna
slíkri skyldu án verulega
kostnaðarsamra breytinga.
Aflaheimildir
Færeyinga hér
minnka milli ára
■ AFLAHEIMILDIR Færey-
inga hér við land verða þús-
und tonnum minni i ár en á
því slðasta. Alls verður þeiin
leyfilegt að veiða hér 5.000
tonn af botnfiski nú, þar af
1.000 tonn af keilu, 700 tonn
af þorski, 200 tonn af lúðu
og 100 af grálúðu, auk ann-
arra tegunda, aðallega
löngu. Samið var um þetta
milli þjóðánna á fundi í
Reykjavík í vikunni.
„Stefnan
hefur brugðist“
■ „NÚVERANDI sjávorút-
vegsstefna hefur brugðist.
Með löggjöf þarf að koma i
veg fyrir að kvóti safnist á
fáar hendur. Tryggja þarf
stöðu krókaveiða og vert-
íðarbáta, og takmarka veiðar
togara á grunnslóö uns físki-
stofnar rétfa úr kútnum,“
segir í kafla um sjávarút-
vegsmál í kosningastefnu-
skrá Alþýðuflokksins, sem
samþykkt var á aukaflokks-
þinginu um helgina.