Morgunblaðið - 08.02.1995, Side 8
FOLK
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
SH MEÐ GÆÐAFUND í ROSTOCK
ifl *' WL - 'jhjái .. JPmM ■-•r- ÍMjSf
- jfL . ^ v \ u ir
•SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihós-
anna efndi í janúar til funda um
gæða- og framleiðslumál með
skipstjórum, framleiðslustjórum
og útgerðarstjórum frystiskipa
MHF og PIRO-fisch í Rostock í
Þýskalandi. Um er að ræða árleg-
an fund en SH gekk til samstarfs
við þessar útgerðir á árinu 1993.
Á fundunum var litið yfir farinn
veg og spáð í framvindu mála á
þessu ári. Markaðsmál bar einnig
á góma og tóku fulltrúar frá sölu-
skrifstofum SH í Frakklandi,
Þýskalandi og Bandarikjunum til
máls á fundunum auk þess sem
Helgi Anton Eiríksson þjá söiu-
deild SH fjallaði um starfsemi
söluskrifstofanna í Bretlandi og
Japan. Þá fór Sturlaugur Daðason
framkvæmdastjóri gæðamála hjá
Sölumiðstöðinni í saumana á
HACCP-gæðakerfinu.
Fundina, sem fóru alfarið fram
á þýsku, sátu ríflega fimmtíu
manns og þóttu þcir takast vel.
MHF gerir út sex frystiskip og
PIRO-fisch fjögur og framleiddu
þau um 14 þúsund tonn af afurð-
um á síðasta ári. Þau framleiða
öll samkvæmt stöðlum og undir
merkjum SH og segir Páll Marís-
son hjá SH að sölumiðstöðin sé
nyög ánægð með samstarfið.
Flest skipanna hafa stundað út-
hafskarfaveiðar á Reykjanes-
hrygg, eitt hefur þó verið á þorski
og ýsu í Barentshafi og annað
dregið grálúðu úr sjó við vestur-
Grænland.
Á myndinni eru fulltrúar Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
þýska útgerðarfélagsins MHF sem
sóttu fund um gæða- og fram-
leiðslumál í Rostock á dögunum.
Loðnan
spennandi
■GRANDI hf. kynnir tvo
starfsmenn fyrirtækisins í síð-
asta fréttabréfi. Verið birtir
hér þessar kynningar.
Guðmundur Gauti Guð-
mundsson er 19 ára gamall
Reykvíkingur. Hann hefur
unnið hjá Granda frá því í
mars 1992 en var áður sumar-
starfsmaður. „Ég er ættaður
frá Siglufirði en fluttist suð-
ur með foreldrum mínum þeg-
ar ég var sex ára. Ég byrjaði
svo í Versló en ákvað að
breyta til og fara til Banda-
ríkjanna, þar sem systir mín
býr, og vera þar í skóla í einn
vetur. Mér líkaði það vel. Ég
byijaði svo hér þegar ég kom
að utan og geri ráð fyrir að
vera hjá Granda þar til ég
ákveð hvað ég ætla að gera
í framtíðinni. Nú er loðnuver-
tíðin að byrja og ég hef aldrei
unnið við hana áður svo það
verður spennandi að vita
Rósa Guðmundur
Pétursdóttir Gauti
Guðmundsson
hvernig það verður. Það eru
sjálfsagt bæði kostir og gallar
við hana.“
Rósa Pétursdóttir er 21
árs gamall Reykvíkingur.
Hún stundar nám á snyrti-
braut í FB en ákvað að taka
sér frí frá námi í vetur. Rósa
hefur unnið hjá Granda á
sumrin síðan hún var 16 ára.
„Mér finnst fínt að vinna
héma hjá Granda en þegar
ég var yngri var ég alltaf í
sveit, í Miðjanesi í Reykhóla-
sveit á Króksfjarðarnesi.
Ég á orðið fjölda vina hérna
því það era svo margir ungl-
ingar sem vinna hjá Granda
á sumrin og oft mikið fjör.
Ég hlakka líka til að prófa
að vinna í loðnunni sem er
að byrja því ég hef ekki verið
í henni áður. Annars er ég
aðallega í pökkuninni.“
Arínbjöm kominn í land
■ARINBJÖRN Sigurðsson
landsfrægur aflaskipstjóri, nú
síðast á Grandatogaranum
Engey RE1, hefur lokið sjó-
mennskuferli sínum eftir að
hafa verið til sjós í hálfa öld.
Engey kom nýverið úr síðustu
sjóferð sinni sem ísfisktogari
en skipinu verður nú lagt í
bili. „Þetta hefur verið mér
mjög góður tími og þessi 50
ár, sem ég hef verið á sjónum,
hafa liðið hratt. Engey hefur
í raun verið mitt aðalheimili
í 18 ár og ákaflega góður lífs-
förunautur. En þar sem ég
er að hætta sjómennskunni
kemur sér vel að eiga annan
ekki síðri lífsföranaut, þar
sem konan er,“ segir Arin-
björn í samtali við fréttabréf
Granda. „Engey er ákaflega
gott sjóskip. Við höfum lent
í öllum hugsanlegum vítis-
veðrum á þessum 18 árum
en hún fer svo vel í sjó að
aðeins einu sinni hefur rúða
brotnað.“
Arinbjörn hefur alla tíð
verið á skipum frá Reykjavík.
Hann hóf ferilinn sem háseti
Bá Skutli árið
sextán ára
Arinbjörn fem fáðir
Sigurðsson hans áttl,
þaðan á
Sindra og svo nýsköpunar-
togarann Jón forseta, þegar
hann kom nýr til landsins árið
1948. Af Jóni lá leiðin yfir á
Mars, síðan Júpíter, þá
Hvalfell og loks Ask, þar sem
Arinbjörn var skipstjóri til
árins 1966. Eftir það tók hann
að sér skipstjórn á Sigurði
RE, landsfrægu aflaskipi.
Sigurði var breytt í loðnuskip
árið 1974 og þá var Arinbjörn
sendur til Póllands að ná í
nýtt skip fyrir Hraðfrysti-
stöð Reykjavíkur, Engey RE
1. Hann hefur verið skipstjóri
á Engey síðan, að undan-
skyldum tveimur árum sem
hann var á Elínu Þorbjarn-
ardóttur.
„Ekki þörf á aðgerðum
til fækkunar frystiskipa“
Drög að frumvarpi gera
ráð fyrir stöðvun
fjölgunar frystiskipa
EINAR Svansson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Skagfirðings hf. segir að
miðað við þá þróun sem hafi
orðið innan sjávarútvegs upp
á síðkastið komi bann við
fjölgun frystiskipa fram til
aldamóta, eins og drög að lagafrumvarpi sjávarútvegsráðherra gerir ráð fyrir,
ekki að sök. Hann segir að greinin sjálf hafi stýrt fullvinnsluskipum frá þorski yfir
í karfa og rækju og því sé ekki þörf á stjórnvaldsaðgerðum á þessu sviði. Ás-
geir Guðbjartsson skipstjóri og einn af eigendum Guðbjargar IS segir að nær
væri að draga úr fjölda ísfisktogara því vinnsluskipin hafi skilað sínu. „Menn
verða að fá að ráða sínum gerðum eftir því hvað hagkvæmast er hveiju sinni.
Þegar svo er í pottinn búið að iilhægt er að gera út ísfiskskip verða menn að
bjarga sér á annan hátt,“ sagði Ásgeir.
Skagfirðingur gerir m.a. út Sjóla
sem hefur leyfi til fullvinnslu um borð.
Einar segir að ekki hafi verið sókn
eftir því að komast í fullvinnslu úti á
sjó heldur hafi þróunin verið sú að
hálffrysting um borð hefur aukist.
„Þetta lagaframvarp kemur ekki við
þau skip. Menn hafa verið að breyta
skipum úr fullvinnsluskipum í hálf-
frystiskip, þar sem t.a.m. úthafskarfi
er hausaður og heilfrystur. Þetta hefði
aðeins áhrif ef menn vildu fara út í
flökun á þorski eða ýsu og sú vinnsla
hefur frekar verið á undanhaldi. Veið-
arnar hafa verið að færast út úr lögsög-
unni í karfann. Miðað við þróunina og
þau skip sem hafa verið keypt inn
held ég að lagafrumvarpið hafi ekki
stór áhrif á þróunina næstu árin,“ sagði
Einar.
Einar segir að greinin sjálf hafí stýrt
fullvinnsluskipum frá þorski yfir í karfa
og rækju og því væri ekki þörf á stjórn-
valdsaðgerðum á þessu sviði.
Fjórfalt aflaverðmæti
Ásgeir, sem gerir út vinnsluskipið
Guðbjörgu ÍS, segir að aflaverðmæti
þess sé tvö- til fjórfalt miðað við afla-
verðmæti ísfisktogara. „Það er ekki
undarlegt að menn dragist að þessari
grein því niðurskurðurinn er svo mik-
ill. Menn reyna að ná sem mestum
verðmætum út úr því litla sem þeir
mega draga úr sjónum. Vinnsluskipin
fara ekki verr með miðin en önnur
skip. Ég myndi treysta mér til að fiska
miklu meiri fisk í ísfiskskip en frysti-
skip.“
Asgeir segir að ef stefnan er sú að
veiða engan þorsk hér við land þurfi
þjóðin á engum skipum að halda. „Það
er náttúrulega óþarfi að fjölga í flotan-
um þegar má ekki veiða neinn fisk.
Ég sá að hveiju stefndi og var búinn
að aðlaga mig að þessu kerfi. Ég færði
mig því yfír á þessa grein til þess að
geta svo aftur fært mig yfir í rækju-
og úthafsveiðar. Fullvinnsluskipin hafa
fleiri möguleika, bæði til að gera meiri
verðmæti úr aflanum og til þess að
leita annað þegar dregur úr afla á
heimamiðum,“ sagði Ásgeir.
Gufusoðinn skötuselur
með mangósósu
SOÐNINGIN er að þessu sinni sótt í smiðju matreiðslu-
nema við Hótel- og veitingaskóla íslands. Nokkrir
■ -Jin Pl þeirra tóku á dögunum þátt í kynn-
»í’A*UéiIiF IIU ingu á íslenskum sjávarafurðum í
Brussel og urðu margar nýjar uppskriftir til við það
tækifæri en nemendur skólans eru óspart hvattir til
að láta hugmyndaflugið ráða við matreiðsluna án þess
þó að virða viðurkenndar aðferðir að vettugi. í þennan
rétt þarf:
Skötusel
250 g gulrætur
200 g súkini
200 g kartöflur
skvettu af sítrónusafa
salt og pipar
Skötuselsmedalíurnar eru vætttar með sítrónusafa og
saltaðar en síðan gufusoðnar. Gulræturnar, súkhii og
kartöflurnar tunneraðar og soðnar.
í sósuna þarf:
2 dl hvítvín
50 g lauk
5 dl rjóma
1 dl mangopurré
50 g smjör
salt og pipar
oiíu
Laukuritm fínt skorinn og mýktur í olíu og soðinn nið-
ur í hvftvfni. Rjóma bætt. útí og soðið lítillega niður.
Sósan sigtuð og soðin upp aftur með mangopuréinu.
Bætt með salti og pipar og kláruð með salti og pipar.