Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR VIKUIMNAR
Sjónvarpið
FÖSTUDAGUR 10. MARS
VI 9Q Qfl ^.Ógnvænleg leit
lll. LU.ull (Angel Heart) Banda-
rísk spennumynd frá 1987. Einka-
spæjari tekur að sér að hafa uppi á
týndum manni og flækist inn í óhugn-
anlega atburðarás. Kvikmyndaeftir-
lit rikisins telur myndina ekki hæfa
áhorfendum yngri en 16 ára.
LAUGARDAGUR 11. MARS
Kl. 21.10'
Kl. 22.50'
^Paradís Luigis
(Luigis Paradis)
Sænsk bíómynd frá 1991 um ítala sem
rekur pítsustað í Svíþjóð. Dag einn
kemur 17 ára dóttir hans í heimsókn
frá Ítalíu. Feðginin hafa ekki hist síð-
an dóttirin var tveggja ára og heim-
sóknin veldur straumhvörfum í lífi
þeirra beggja.
^Steinar fyrir brauð
(Raining Stones)
Bresk bíómynd frá 1993 sem segir á
gamansaman hátt frá manni sem er
að reyna að brauðfæða fjölskyldu sína.
Myndin keppti til verðlauna á Cannes-
hátíðinni 1993. Leikstjóri er Ken
Loach en á sunnudag kl. 14.50 verður
sýnd heimildarmynd um hann.
SUNNUDAGUR 12. MARS
VI 40 QC ^.í tímahraki (Runn
fct.UU Late) Bresk gsiflg
anmynd um þekktan sjónvarpsmann
sem þarf að ganga í gegnum miklar
þrengingar áður en hann finnur sál-
arró.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 10. MARS f
VI 40 4II ^íbúðin (The Apart-
nl. LL. IU ment) Önnur Óskars-
verðlaunamynd mánaðarins er íbúðin
með Jack Lemmon og Shirley MacLa-
ine. Mjmdin flallar um skrifstofublók-
ina C.C. Baxter sem starfar hjá risav-
öxnu tryggingafyrirtæki í New York.
Hann gerir sér vonir um að fá stöðu-
hækkun og í því skyni lánar hann lykil-
inn að íbúðinni sinni svo yfirmenn
hans geti átt þar náðugar stundir með
ástkonum sínum. Kvöld eitt finnur
Baxter meðvitundarlausa stúlku í
íbúðinni sem reynt hefur að fremja
sjálfsmorð í ástarraunum sínum.
Stöð tvö
VI fl 1C fylgsnum hugans
III. U. IU (Dying to Remember)
Lynn Matthews er farsæll fatahönnuð-
ur sem starfar á Manhattan í New
York. Einhverra hluta vegna er hún
sjúklega hrædd við lyftur og ákveður
að leita sér hjálpar. Lynn er dáleidd
en hverfur þá aftur til sjöunda áratug-
arins og verður vitni að því þegar ung
kona í San Francisco bíður bana eftir
að hafa verið hrint niður lyftustokk
af ókunnum árásarmanni. Stranglega
bönnuð börnum.
^Saga Jackies
er (TcamsterPTftSftT
The Jackie Presser Story) Sannsögu-
leg mynd um Jackie Presser sem þótti
mikill óróaseggur í æsku en komst til
æðstu metorða innan bandarískra
verkalýðsfélaga. Bönnuð börnum.
VI 4 qc ^.New Jack City Nino
M. U.UU Brown er foringi
glæpagengis sem færir út kviarnar
með vopnaskaki og krakksölu.
LAUGARDAGUR11. MARS
1,
VI 04 Jjíl ^Græna kortið
III. L I.4U (Green Card) Gaman-
mynd frá ástralska leikstjóranum Pet-
er Weir (Dead Poets Society) um
Frakkann George Faure sem býðst
starf í Bandaríkjunum en vantar at-
vinnuleyfi þar, hið svokallaða græna
kort. Auðveldasta leiðin til að fá græna
kortið er að giftast bandarískum ríkis-
borgara.
«04 Q|) ^Fórnarlömb (When
• lu.uU the Bough Breaks)
Þegar afskornar hendur af sjö börnum
fmnast í Texas hefst rannsókn á
hroðalegum morðmálum sem valda
óhug um öll Bandaríkin. Fulltrúi hjá
alríkislögreglunni leitar liðsinnis hjá
ungum pilti sem dvelur í einangrun á
geðveikrahæli en virðist búa yfir
furðulegri vitneskju um morðin.
Stranglega bönnuð bömum.
SUNNUDAGUR12. MARS
Kl. 20.55'
, ^.Traust (Faith) Mich-
ael Gambon (The
Singing Detective), Susannah Harker
(Chancer) og John Hannah (Four
Weddings and a Funeral) fara með
aðalhlutverkin í þessari hörkuspenn-
andi og vönduðu bresku framhalds-
mynd. Þingmaðurinn P.J. Morton hef-
ur fórnað öllu, þar með talið fjöl-
skyldulífinu, til að auka veg sinn og
virðingu í heimi stjómmálanna þar
sem valdabaráttan er hörð og mis-
kunnarlaus. En ferli hans er ógnað
þegar ungur blaðamaður fer að vera
með dóttur hans. Seinni hluti er á
dagskrá annað kvöld.
MÁNUDAGUR 13. MARS
VI QQ CC ^.Lífvörðurinn (The III. LU.UU Bodyguard) Fyrrver- andi leyniþjónustumaður er ráðinn líf- vörður ríkrar stórstjörnu eftir að hún hefur ítrekað fengið alvarlegar morð- hótanir.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS
VI QQ Qll wFrambjóðandinn m. Lð.ÚU (Running Mates) Gamansöm mynd um ástarsamband barnabókahöfundarins Aggie Snow og forsetaframbjóðandans Hughs Hat- haway. Það var kært með þeim á skólaárunum og þau taka aftur upp þráðinn þegar þau hittast mörgum árum síðar. Stóra spumingin er bara hvort stjórnmálin muni kæfa ástina þegar álagið verður óbærilegt.
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS
VI QQ 1 fl ^.Umskipti (Changes) III. Lð. IU Melanie Adams er þekkt sjónvarpsfréttakona. Þegar hún fer í fréttaleit til Los Angeles hittir hún Peter Hallam sem er hjartasér- fræðingur í fremstu röð. Með þeim takast kærleikar en um leið koma upp ótal vandamál.
FIMMTUDAGUR 16. MARS
Kl. 23.15-‘
„Blaze Það vakti al-
menna hneykslan í
Louisiana þegar upp komst að fylkis-
stjórinn, Earl K. Long, átti vingott við
fatafellu sem kölluð var Blaze Starr.
Earl var óhræddur við að boða róttæk-
ar breytingar en það hrikti þó í styrk-
ustu stoðum þegar þessi vinsæli og
harðgifti fylkisstjóri féll kylliflatur
fyrir hinni giaðlyndu Blaze.
BIOIN I BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Afhjúpun k kk
Hún tælir hann í ófýrirleitnu valda-
tafli í tölvufyrirtæki. Fyrsta flokks
afþreying í flesta staði.
Leon kk
Ábúðamikil mynd úr furðuveröld Bess-
ons. Góð átakaatriði í bland við
ómerkilegan efnisþráð og persónu-
sköpun. Fríða og dýrið? Varla.
Viðtal við vampíruna kkk
Neil Jordan hefur gert býsna góða
vampírumynd sem lítur alltaf frábær-
lega út og tekur með nýjum hætti á
gamalli ófreskju kvikmyndanna. Brad
Pitt stelur senunni.
Leifturhraði kkk'A
Æsispennandi frá upphafi til enda,
fyndin og ótrúlega vel gerð. Hasar-
mynd eins og þær gerast bestar.
Konungur Ijónanna kkk
Pottþétt fjölskylduskemmtun frá Disn-
ey, prýdd óaðfinnanlegri íslenskri tal-
setningu.
BÍÓHÖLLIN
Gettu betur kkk
Robert Redford hefur gert fína mynd
um frægt sjónvarpshneyksli vestra á
sjötta áratugnum þegar sjónvarpið
eins og missti meydóminn. Góður leik-
hópur sem stendur sig með prýði og
endursköpun fyrst ára sjónvarpsins
er frábær.
Úlfhundurinn 2 'h
Sérlega ómerkileg ævintýramynd um
úlfhundinn væna og indjánaþorpið sem
hann bjargar. Lýjandi.
Banvænn fallhraði k'A
Ekki beinlínis leiðinleg en afar ómerki-
leg formúlumynd sem dandaiast á
mörkum gamans og alvöru. Mynd-
bandaafþreying.
Wyatt Earp kk
Alltof langur vestri um einn frægasta
löggæslumann villta vestursins. Þung-
ur og drungalegur en leikarahópurinn
er glæsilegur og fer Dennis Quaid á
kostum í hlutverki Doc Hollidays.
Pabbi óskast k k
Steve Martin leikur Silas Mamer í
nútímanum í bærilegri mynd um
einbúa sem tekur að sér stúlkubarn.
Ófrjótt en allt í lagi.
„Junior" k'/i
Linnulausar tilraunir Schwarzenegg-
ers til gamanleiks bera hér vonandi
endanlegt skipbrot. Mislukkuð eins-
brandara mynd og afleitlega leikin.
Konungur Ijónanna (sjá Bíóborgina)
HÁSKÓLABÍÓ
Nell kk'h
Forvitnileg mynd frá Jodie Foster sem
framleiðir og fer með titilhiutverk
ungrar konu er hefur ekki komist I
kynni við samtíðina.
Skógardýrið Húgó ★ ★
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum vorum og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og yndisauka
en hinum fullorðnu mest til angurs
og armæðu.
Ekkjuhæð kk'h
Lítil skopleg mynd um smábæjarslúð-
ur í bland við sakamálasögu í ætt við
Agöthu Christie. Góðar leikkonur en
meinlítil mynd.
Hálendingurinn 3 k
Þriðja myndin í flokknum má missa
sín. Innihaldið sérlega rýrt og spennan
lítil.
Klippt og skorið kkk'h
Sérlega kræsileg kvikmyndaveisla frá
meistara Altman sem segir sögur af
hjónum í Los Angeles samtímans.
Leikarahópurinn fjölskrúðugur og
leikurinn frábær.
Nostradamus k
Sæmilega útlítandi en illa leikin og
innihaldsrýr mynd þar sem furðulítið
er fjallað um sýnir sjáandans fræga.
Skuggalendur kkk'h
Gæðamynd byggð á einstöku sam-
bandi bresks skálds og fyrirlésara og
bandarísks rithöfundar um miðja öld-
ina. Það geislar af Anthony Hopkins
og Debru Winger í aðalhlutverkum.
Aukaleikarar ekkert síðri og leikstjór-
anum Attenborough tekst að segja
hádramatíska sögu án þess að steyta
nokkru sinni á óþarfa tilfinningasemi.
Þrfr litir: Rauður k k k'h
Þríleik pólska leikstjórans Kieslowskis
lýkur með bestu myndinni þar sem
leikstjórinn fléttar saman örlögum
persónanna á snilldarlegan hátt.
Forrest Gump kkk'h
Tom Hanks fer á kostum í frábærri
mynd um einfelding sem ferðast um
sögu Bandaríkjanna síðustu þijá ára-
tugina og lendir í ýmsu. Ljúfsár,
skemmtileg, fyndin, gerð með ríkri
saknaðarkennd og einstaka sinnum
ber fyrir sönnum kvikmyndalegum
töfrum.
LAUGARÁSBÍÓ
I/asapeningar k Óttalega ómerki-
leg og væmin mynd um strák sem
finnur nýja konu handa föður sínum.
Corrina, Corrina kk
Meinlaus, gamaldags mynd um sam-
skipti hvítra og svartra á sjötta ára-
tugnum. Helst fyrir smáfólkið.
Timecop kk'h
Tímaflakkarar á ferð með misjafnt í
huga. Útlitið er ágætt, spennan tals-
verð, afþreyingin góð, innihaldið rýrt.
Skársta mynd Van Damme þótt það
segi ekki mikið.
Skógarlíf kkh
Mógli bjargar málunum í áferðarfal-
legri kvikmynd hins sígilda ævintýris
Kiplings um frumskógardrenginn
ramma. Góð bama- og fjölskyldu-
mynd.
REGNBOGINN
/ beinni k'h
Hringavitleysa um þijá þungarokkara
sem yfirtaka útvarpsstöð. Góðir leikar-
ar innanum og eintaka brandarar
hlægilegir en svo er það búið.
Sex dagar, sex nætur k k
Glæsilegar leikkonur eru helsta
augnayndið í frönskum sálfræðitrylli,
sem beygir hryllilega af leið í seinni
hlutanum.
Barcelona kk'h
Afar málglöð mynd um samskipti
ungra Bandaríkjamanna og Börsunga.
Vel leikin, löng en athyglisverð.
Litbrigði næturinnar k k
Langdreginn, götóttur en ekki beint
leiðinlegur sálfræðitryllir kryddaður
óvenju erótískum atriðum.
Reyfari kkk'h
Frábær verðlaunamynd eftir Tarant-
ino um líf og örlög bófa í Los Angel-
es. Einkar safaríkt leikaralið fer á
kostum í vel mótuðum og skrifuðum
hlutverkum og hér endurfæðist John
Travolta. Tarantino er maður framtíð-
arinnar.
SAGABÍÓ
Afhjúpun (sjá Bíóborgina)
Leon (sjá Bíóborgina)
STJÖRNUBÍÓ
Á köldum klaka kkk
Ungur Japani kynnist landi og þjóð í
vetrarham í þessari nýjustu mynd
Friðriks Þórs. Kynni hans af mönnum
og draugum sýnd í skondnu ljósi og
mörg góðkunn viðfangsefni leikstjór-
ans í forgrunni eins og sveitin og dauð-
inn og hið yfirnáttúrulega.
Frankenstein kk
Egóið í Kenneth Branagh fær að njóta
sín til fulls en fátt annað í heldur
misheppnaðri Frankensteinmynd.
Aðeins þú k k
Rómantísk gamanmynd um stúlku
sem eltir draumaprinsinn til Ítalíu.
Lítt merkileg mynd sem byggir á
gömlum iummum ástarmyndanna.