Morgunblaðið - 18.03.1995, Síða 6
6 D LAUGARDAGUR 18. MARZ 1995
S
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ATRIÐI úr leikverkinu
Þú ert í blóma fíflið þitt.
„Þú ert
í blóma
fíflið þitt“
Vestmannaeyjum - Nem-
endur Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum héldu árs-
hátíð sína um helgina. Árshá-
tíðin hófst með sýningu leik-
ritsins „Þú ert í blóma fíflið
þitt“ sem leikið var af nem-
endum skólans í Bæjarleik-
húsinu en að sýningu lokinni
var borðhald, skemmtidag-
skrá og dans á Höfðanum.
„Þú ert í blóma fíflið þitt“
er eftir Davíð Þór Jónsson en
Jóhanna Guðmundsdóttir,
formaður Leikfélags Vest-
mannaeyja, leikstýrði verk-
inu. Þetta er annað verkið sem
nemendur Framhaldsskólans
í Eyjum setja upp því í fyrra
settu þeir upp Hrollinn, litlu
hryllingsbúðina. „Þú ert í
blóma fíflið þitt“ fjallar um
líf stúlku fýrstu tuttugu árin,
frá fæðingu til stúdentsút-
skriftar, og eru ýmsar að-
stæður dregnar fram á ýktan
og bráðfyndinn hátt. 22 nem-
endur taka þátt í sýningunni.
Nemendur Framhaldsskól-
ans kunnu vel að meta flutn-
ing leikritsins á árshátíðinni.
Skemmtu sér konunglega og
gátu hlegið mikið að mörgum
atriðum leikritsins enda voru
leikendur vel hylltir í leikslok.
Gunnar R. í
SPRON
SÝNING á verkum Gunnars
R. Bjamasonar verður opnuð
í útibúi Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis við Álfa-
bakka 14 í Mjódd á morgun,
sunnudag, kl. 14.
Gunnar nam leikmynda-
teiknun hjá Þjóðleikhúsinu
árið 1953 og stundaði jafn-
framt nám í Myndlista- og
handíðaskólanum. Hann nam
við Konstfackskolan í Stokk-
hólmi og hefur auk þess farið
í námsferðir erlendis.
Hann hefur starfað sem
leiktjaldamálari og sem leik-
mynda- og búningahönnuður.
Sýningin stendur til 9. júní
og verður opin frá kl. 9.15-16
alla virka daga.
Sýningu
Þórdísar
að ljúka
í GALLERÍ Greip, Hverfis-
götu/Vitastígsmegin, stendur
nú yfir fimmta einkasýning
Þórdísar Rögnvaldsdóttur,
þar sem hún sýnir vatnslita-
myndir.
Þórdís hefur einig tekið
þátt í samsýningum hér
heima og erlendis og í kynn-
ingu segir að myndirnar á
sýningunni séu ólíkar olíu-
verkum hennar hvað vinnslu
og tækni varði, en sem fyrr
nálgist hún myndefnið á per-
sónulegan og nærgöngulan
hátt.
Sýningunni lýkur á sunnu-
dag.
Glæsilegur Chopin
TÓNLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt verk eftir Magnús Bl. Jó-
hannsson, Chopin og Lutoslawsky
Einleikur: Grigory Sokolov. Stjórn-
andi: Osmo Vanska. Háskólabíó.
Fimmtudagurinn 16. mars, 1995
TÓNLEIKARNIR hófust á
Adagio, stuttum en hljómfögrum
hljómsveitarþætti eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson. Þetta fallega
verk var frábærlega vel mótað af
stjómandanum, Osmo Vánská.
Annað viðfangsefnið var píanókon-
sertinn í f-moll, eftir Chopin og er
óþarft að fjalla sérstaklega um
þetta meistaraverk. Fyrsti kaflinn
hefur yfirskriftina Maestoso og
merkir að hann skuli vera mótaður
af tiginleik og það einkenndi leik
Sokolvs en auk tignarlegs flutnings
ríkti rósemi, sem á köflum var við
hægari mörkin. Annar þátturinn
er eins konar flúr-aría, form sem
Chopin lék sér t.d. með í „Nocturn-
um“ sínum og var leikur Soklovs
ef til vill einum of haminn og jafn-
vel á köflum litlaus. Síðasti kaflinn
er Allegro vivace og þar sýndi Sok-
olov yfírburðatækni sína. Það fer
ekki á milli mála að Sokolov er
frábær píanóleikari og í
heild var flutningurinn
glæsilegur en hann snerti
þó ekki við þeim undar-
legu leyndardómum og
ástríðum, sem rómantísk
tónlist er þrungin af og
þá sérstaklega verk Chop-
ins.
Lokaverk tónleikanna
var fjórða sinfónían eftir
Lutoslavsky, en hann gaf
öllum kenningum og tón-
smíðaaðferðum langt nef
og í raun hafnaði þeim
„conceptisma", sem tröll-
reið allri listsköpun og
lýsti sér í því, að alls konar bygg-
ingarfræðilegar útskýringar voru
forsenda og markmið listsköp-
unarinnar en tónlistinni var svo
troðið inn í þessi hönnunarkerfí.
Lutoslawsky ásamt Ligety náðu
að frelsa tónlistina undan því til-
fínningaleysi, sem einkenndi
hönnunartónverkin og, eins einn
tónlistarsagfræðingur sagði, „á
síðustu stundu“. Þrátt fyrir að
Lutoslavsky hafí hafnað „miðstýr-
andi“ kenningum notaði hann það
sem honum fannst
nýtilegt í nýjum
vinnuaðferðum en
þá á þann hátt er
gaf honum frelsi
til að túlka tilfínn-
ingar og leika með
tónmálið á músi-
kantískan máta.
Fjórða sinfónían,
eftir Lutoslawsky,
er glæsilegt verk
og var sérlega vel
flutt undir stjórn
Osmo Vánská.
Jón Ásgeirsson
Grigory Sokolv
„Land míns föður“
MYNPLIST
Listhúsið Borg
MÁLVERK
VIGNIR JÓHANNSSON
Opið frá 12-18 rúmhelga daga. 14-18
laugardaga og sunnudaga. Til 26.
mars. Aðgangur ókeypis.
MYNDLISTARMAÐURINN
Vignir Jóhannsson er vanur að
koma á óvart með hverri einustu
sýningu sem hann opnar í iisthúsum
borgarinnar og ekki telst hann
bregða af venjunni að þessu sinni.
Væri frekar að sýningin í listhúsinu
Borg hafi komið mönnum í opnari
slqöldu en allar aðrar sýningar hans
samanlagt.
Vignir hefur sem kunnugt er
verið búsettur í í New York og
Santa Fe í Nýju Mexíkó til margra
ára, eða allt frá 1971, og einungis
brugðið sér heim til sýningahalds
og í stuttar heimsóknir af og til.
Nú virðist hann alkominn og er
meira að segja er vinnustofa í sjón-
máli með aðstoð góðra manna, eins
og það heitir. Kannski er það í og
með þess vegna sem minni úr ís-
lenzkri myndlist eru honum skyndi-
lega svo hugstæð, að hann ræðst í
að að stækka nokkur landskunn
málverk. Bæta svo við atriðum sem
hann kýs að nefna „meiningar“,
sem telst þó dálítið óljós og snubb-
ótt skilgreining.
Vignir hefur gengið í gegnum
flest stig myndlistarinnar, en hann
útskrifaðist úr grafíkdeild MHÍ
seint á áttunda áratugnum og hafði
þá borið mikið á þessum athafna-
sama og frísklega manni innan
veggja skólans. Málverkið fór þó
fljótlega að sækja á er til Vestur-
heims kom og síðan höggmyndalist-
in og við sáum dæmi um athafna-
semi hans á því sviði í þeim miklu
hring- og sporöskjulaga skálum
sem til sýnis voru í listhúsinu Borg
í desember sl.
Listamaðurinn er líka mikill í
fyrirferðinni um þessar mundir og
sennilega vekur stærsta myndin
sem nefnist „Við Jón á bökkum
Þjórsár" (3) mestu athyglina. Ekki
þó einungis fyrir stærðina heldur
áhrifamátt og skýrleika í útfærslu
og er auðséðað hann hefur lagt
einna mesta vinnu í þá mynd.
Sennilega hefur hugsunin að baki
framkvæmdanna farið fyrir ofan
garð og neðan hjá mörgum sem eru
stórhneykslaðir á meðferðinni á
landsþekktum lykilverkum í list
genginna málara. Við því hefur
listamaðurinn vísast fullnægjandi
svör og gæti einfaldlega gagnspurt;
hvað hafa verið málaðar margar
myndir af Monu Lisu eftir Leon-
ardó?
Mönnum hefur einfaldlega ekki
hugkvæmst fyrr að fara þannig að
innlendum listaverkum og má færa
nokkur rök fyrir því, að það telst
fremur ávinningur okkar en hitt
miðað við meðferðina á Monu Lisu
á stundum.
Hins vegar er mönnum fijálst
að vera með meiningar og það sem
mun liggja að að baki þessum
vinnubrögðum er, að þegar Vignir
kom heim í desember sl. virkuðu
þessi íslenzku málverk gömlu meist-
aranna svo undarlega á listamann-
inn í honum eftir hina langa úti-
veru. Þessum sérstöku áhrifum vildi
hann koma frá sér og er í fullum
rétti, enda trúlega engin óvirðing
að baki, öllu frekar lokið upp nýju
sjónarhorni og önnur viðhorf viðruð.
Eðlilegt er að þessi viðhorf komi
ýmsum spánskt fyrir sjónir og sjálf-
ur er ég naumast búinn að melta
þau til fulls, þrátt fyrir margar
heimsóknir á staðinn.
Allar eru myndirnar málaðar
síðan Vignir kom heim í desember
og teljast það mikil átök og bráðl-
át, því að áberandi er hve mjög
þær myndir bera af sem hann hef-
ur unnið af mestri yfirvegun og
alúð.
Bragi Ásgeirsson
VIÐ Jón á bökkum Þjórsár. 200X490.1995.
Lína Rut Karls-
dóttir sýnir á
Kaffi Mílanó
LÍNA Rut Karlsdóttir Wilberg opnar
sína fyrstu einkasýningu á Kaffi Mílanó,
Faxafeni 11, í dag, laugardag.
Lína Rut útskrifaðist sl. vor frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands, málara-
deild. A sýningunni eru um tólf olíumál-
verk sem voru unnin á sl. ári.
Lína Rut rekur förðunarskóla í
Reykjavík og hefur starfað við förðun
hér heima og erlendis síðastliðin tíu ár.
Sýningin stendur yfir um óákveðinn
tíma og er opin á afgreiðslutíma kaffi-
hússins.
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Myndir Kjarvals. Kristín Jónsdóttir sýnir
veftiað. Teikningar Johns .
Ásmundarsafn
Samsýn. á verkum Ásmundar og
Kjarval.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitam. Ásgríms til marsloka.
Gerðuberg
Jessie Kleemann sýnir til 19. mars.
Listasafn Sigurjóns
Norræn höggmyndasýn.
Listhúsið Laugardal
Guðmunda Hjálmarsd. og Guðrún I.
Haraldsd. sýna.
Norræna húsið
Verk Antti Nurmesniemi. Nanna Bisp
Biichert.
Galleri Sævars Karls
Ljósm.sýn. Báru Kristinsd. til 5. aprfl.
Gallerí Fold
Ingibjörg Vigdís Friðbjörhsd.
Gallerí Borg
Vignir Jóhannsson.
Gallerí Úmbra
Margrét Birgisdóttir.
Hafnarborg
Norræn höggmyndasýn.
Listhús 39
Sveinn Björnsson sýnir til 20. mars.
Gallerí Glúmur
Jennifer Forsberg og Hlín Gunnarsdd.
H hæð, Laugavegi 37
Verk Josefs Albers.
Nýlistasafnið
Helgi Þorgils Friðjónsson.
Mokka
Bjarni Sigurbjömss. sýnir til 19. mars.
Gerðarsafn
Sýn. „Wollemi furan“ til 19. mars.
Gallerí Birgis Andréssonar
Fél. úr Myndlista- og handíðask.
ásamt Birgi Andréssyni.
Gallerí Stöðlakot
Heiðrún Þorgeirsdóttir.
Gallerí Greip
Þórdís Rögnvaldsdóttir.
Listasafn íslands
Verk Olle Bærtlings til 2. apríl.
Kirkjuhvoll, Akranesi
Auður Vésteinsdóttir.
TONLIST
Laugardagur 18. mars.
Barokktónl. í Borgameskirkju kl.
15.30. Píanótónl; Grigory Sukolov í
ísl. óperunni kl. 14.30. Finnskur
karlakór í Fjölbrautask. Suðurlands,
Selfossi. Selló og píanó í Kirkjuhvoli
kl. 17.
Sunnudagur 19. mars
Tónl. i Deiglunni, Akureyri kl. 17.Vor-
tónl. Karlak. Stefnis í Langholtskirkju
kl. 17. Skagfírska söngsveitin í Fé-
lagsh. Drangey kl. 14. Kór Tónlist-
arsk. á Kjarvalsstöðum kl. 16. Tón-
smiðurinn Hermes í Gerðubergi kl. 15.
Miðvikudagur 22. mars
Verk eftir Britten og Mozart á Há-
skólatónl. kl. 12.30.
Laugardagur 25. mars
Tónl. í Tjarnarleikhúsinu kl. 16.
Söngsv. Fflharmónía ásamt kam-
mersv. í Langhóltskirkju kl. 16.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
West Side Story lau. 18., sun., fim., fös.
Taktu lagið, Lóa! lau. 18. mars., sun.,
fim, fös., lau.
Fávitinn lau. 25. mars.
Snædrottningin sun. 19. mars kl. 14.
Lofthræddi öminn hann Örvar lau.
18. mars kl. 15., lau.
Borgarleikhúsið
Söngleikurinn Kabarett lau. 18.
mars., fim., lau.
Leynimelur 13 fös. 24. mars.
Ófælna stúlkan þri. 21. mars.
Framtíðardraugar lau. 18. mars, sun.,
mið, fim., lau. Dökku fiðrildin sun. 19.
mars.
Norræna menningarhátíðin; Ballett frá
Finnlandi, Noregi þri. 21. mars, mið.
íslenska óperan
La Traviata lau. 18. mars, fös.
Sólstafir, Kroumata og Manuela Wiesler
sun. 19. mars kl. 14., Ljóðatónleikar sun.
19. mars kl. 20.
Kaffileikhúsið
Leggur og skel sun. 19. mars.
Alheimsferðir Ema, lau. 18. mars.,
fim. Sápa tvö sun. 19. mars, lau.
Leikfélag Kópavogs
Á gægjum sun. 19. mars, fös.
Leikfélag Mosfellssveitar
Mjallhvít og dvergamir sjö Iau. 18.
mars. kl. 15, sun. kl. 15.
Snúður og Snælda
Reimleikar í Risinu sýn. alla þrid.,
fim. og lau. kl. 16., sun. kl. 18.
Sögusvuntan
í húfu Guðs sun. kl. 15. Sýnt að Frí-
kirkjuv. 11.
Leikhúskjallarinn
Dóttirin, bóndinn og slaghörpuleika-
inn sun. 19. mars kl. 16.30.
Norræna húsið
Dönsk fjölskyldum. sun. 19. mars kl. 14.
Umsjónarmenn listastofnana!
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega
fyrir kl. 16. á miðvikudögum.