Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ- _ LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 E 7 Skermur. ÁriA 1919. Olíumólverk of Juliet. Celeste est a l'est de l'ouest, frú 1949. um hugmyndum sínum í ljósmynd- unina. Efniviðurinn gat verið um hugmyndir eins og hluti. Áhrif Man Ray á ljósmyndalistina varð- andi gerð ímynda og hönnun á þessari öld hafa verið veruleg og varanleg. Snemma á þriðja áratugnum gat Man Ray sér mikla frægð sem ljósmyndari og verk hans nutu mikillar aðdáunar. Hann var einn- ig orðinn mjög eftirsóttur tísku- ljósmyndari og þekktur fyrir ljós- myndirnar sem hann tók fyrir tí- skutímaritið Harper’s Bazar. Á fjórða áratugnum kom út bók þar sem birtar voru eftir hann 105 ljós- myndir frá 1920-1934. Árið 1935 kom út bókin Facile með ljósmynd- um hans ásamt ljóðum eftir Paul Eluard og ljósmyndir af Nusch Eluard. Þá kom út bókin Les Ma- ins Libres árið 1937, þar voru birt- ar teikningar eftir hann og ljóð Eluard, en það er tvímælalaust með því besta sem Man Ray gerði. Þrátt fyrir miklar annir sem ljós- myndari eru mörg af hans bestu málverkum frá þessu tímabili eins og Le Beau Temps, frá 1939. í seinni heimsstyijöldinni flúði Man Ray til Bandaríkjanna. Hann dvaldi í Hollywood á árunum 1940-1950 og starfaði við kvik- myndagerð. Málverk Man Ray frá Holly- wood og París sem hann málaði á fjórða og fímmta áratugnum hafa lítið verið í umferð en verða boðin upp á uppboðinu. Man Ray hafði verið miðpunktur í mikilvægri þró- un varðandi myndlist þar sem hann tók þátt í fæðingu „Dada- ista“ í New York og „Surrealista" í París. Oðru máli gegndi meðan hann dvaldist í Hollywood, það var eins og hann einangraðist frá helstu alþjóðlegu straumunum í myndlist. Eitt besta málverkið frá Hollywood árunum er „Celeste est a l’est l’ouest". Hann hafði verið í sambandi við listakonuna Juliet Browner sem hann kvæntist árið 1946 í viðurvist Max Ernst og Dorotheu Tanning. Þegar hann sneri aftur til París- ar varðveitti hann flestar ljós- myndir sínar eins og síðar kom fram í vinnustofu hans í París. Árið 1951 flutti Man Ray ásamt eiginkonu sinni, Juliet, í vinnu- stofu við Rue Férou og bjó þar til dauðadags árið 1976. Roland Pen- rose hefur gefið skemmtilega lýs- ingu á heimilisbragnum. „í þröngri götu nálægt Luxem- bourg garðinum hafði hann fundið stórt, hrörlegt, hvítþvegið her- bergi. Þetta hafði verið vinnustofa listamanns í mörg ár. ... Þrátt fyrir mikla vankanta varðandi ýmis þægindi, sá hann möguleika sem staðurinn bauð upp á og hann- aði í samræmi við eigin þarfir.“ Man Ray sagði: „Ég geri engan greinarmun á bókmenntum og myndlist. Málverk verður að vera hugmynd." Árið 1944 skrifaði hann: „Það skiptir ekki máli hvort um er að ræðateikningu, ljósmynd, eða hlut, það verður að vera ögrandi, gleðja augað og skapa umhugsun." Höfundur er fulltrúi Sotheby’s á íslandi. NÁTTÚRU MYNDIR í Gallerí Greip opnar Aðalheiður Valgeirs- dóttir myndlistarsýn- ingu í dag AÐALHEIÐUR Valgeirsdóttir opnar myndlistarsýningu í Gallerí Greip við Vitastíg í dag, laugardag, klukkan 14. Blaðamaður hitti Aðalheiði og spurði hana um sýninguna. Hún sagði þetta vera þriðju einka- sýningu sína, en hún hefði einnig tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis. „Grafíkin hefur verið minn listmiðill. Ég út- skrifaðist frá grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans árið 1982 og hef verið að vinna meira og minna við grafíkina síðan og undanfarin ár af fullum krafti. Á þessari sýningu eru níu verk. Þau eru stór miðað við mín fyrri verk og ekki hrein grafík heldur unnin með blandaðri tækni. Ég vinn þannig að ég þrykki grunn- inn og mála í hann. Því næst skef ég og teikna og þrykki síðan aftur ofan í verkið. Með þessari aðferð fæ ég fram aðra áferð en í grafíkinni, það er meiri efniskennd. Ég legg áherslu á einfaldleikann og nota kraftmikla liti, enda skipta litir mig mjög miklu máli. Fyrir aðra virka verkin mín abstrakt, en fyrir mér eru þetta náttúrumyndir. Ég mála ekki beint landslag heldur reyni að ná fram skynjun, til dæmis á dýpt, ý hafinu, jarðveginum og snjónum. Ég get tekið sem dæmi verkið sem ég nefni reyndar „Djúp“. Þar er það ekki vatnið sjálft heldur dýpið sem ég er að fást við, eins og nafnið á verkinu vísar til. Ég held að allur þessi mikli snjór í vetur hafi haft þau áhrif á mig að ég fór að hugsa meira um hvað undir yfirborðinu er. Fyrir mér eru því myndirnar mjög huglægar. Ég vinn þannig, að meðan ég er að vinna að mynd, er ég byij- uð að hugsa um þá næstu og get varla beðið með að ljúka þeirri sem ég er að vinna með. Þetta veldur því að verkin mín verða heild, eins og ég held að fram komi á þessari sýningu. Mér finnst mjög spennandi að nú eru að opnast nýir möguleikar fyrir okkur grafíklistamenn með til- komu grafíkverkstæðis sem við erum búin að koma okkur upp. Þar verður góð aðstaða og hægt að vinna með margskonar grafíktækni. Ég tel þetta mikla lyftistöng fyrir grafík- Iistamenn og hugsa mér gott til glóð- arinnar í framtíðinni." S.A. Morgunblaðið/Árni Sæberg MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Kjarvalsstaðir Myndir Jóhannesar Kjarvals úr eigu safns- ins. Kristín Jónsdóttir sýnir vefnað og teikn- ingar Johns Lennons til 2. apríl. Ásmundarsafn Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss. og Jóhannesar S. Kjarval til 14. maf. Safn Ásgrfms Jónssonar Vatnslitam. Ásgríms til marsloka. Gerðuberg Pétur Öm Friðriksson sýnir til 23. apríl. Listhúsið Laugardal Guðmunda Hjálmarsd. og Guðrún I. Haraldsd. sýna. Norræna húsið Verk Antti Nurmesniemi til 2. apríl. Nanna Bisp Búchert sýnir í anddyri til 2. apríl. Gallerí Sævars Karls Ljósm.sýn. Báru Kristinsd. til 5. apríl. Gallerí Fold Ingibjörg Vigdfs Friðbjömsd. sýnir í kynningarhomi til 2. apríl. Gallerí Borg Vignir Jóhannsson sýnir til 26. mars. Gallerf Úmbra Margrét Birgisdóttir sýnir til 29. mars. Gallerí Glúmur Jennifer Forsberg og Hlfn Gunnarsdd. sýna 22. mars. II hæð, Laugavegi 37 Verk Josefs Albers. Nýlistasafnið Helgi Þorgils Friðjónsson til 26. mars. Mokka Ljósmyndasýning Sólrúnar Jónsdóttur; ís- land gegn alnæmi. Gerðarsafn Sýning Elíasar halldórssonar. Gallerí Birg- is Andréssonar Fél. úr Myndlista- og handiðask. ásamt Bkgi Andróssyni til 26. mars. GaJIerí Stöðlakot Heiðrún Þorgeirsd. sýnir til 26. mare. Gallerí Greip Aðalheiður Valgeirsdótir sýnir til 9. apríl Listasafn íslands Verk Olle Bajrtlings til 2. apríl. Kirkjuhvoll, Akranesi Sjöfii Haraldsdóttir sýnir tU 9. apríl. Gallerí Allrahanda, Akureyri Gígja Baldursdóttir sýnir til 9. aprfl. Hafnarborg Textíifélagið sýnir til 17. april.____ TONLIST Laugardagur 25. mars Tónleikar Ingibjargar Marteinsdóttur, óperasöngkonu og Lára S. Rafnsdóttur, píanóleikara í Tjamarbiói kl. 16.00 Söngsveitin Fílharmónfa flytur Messías eftir H“andel í Langholtskirkju, kl. 16.30. Einsöngvarar era Elísabet F. Eiríksdóttir, sóperan, Alina Dutíik alt, Kolbeinn Ketilsson tenór, Bjami Thor Kristinsson bassi og Xu Wen sópran. Stjómandi er Úlrik Ólason. Sunnudagur 26. mars. Söngsveitin Fílharmónfa flytur Messías öðra sinni í Langholtskirkju kl. 16.30. Maríustund Hamrahlíðarkórsins í Kristskirkju í Landakoti kl. 17.00. Missa brevis eftir Þorkel Sigurbjömsson flutt. Miðvikudagur 29. mars Gunnar Kvaran leikur svítur fyrir ein- leiksselló eftir J.S. Bach á Háskólatón- leikum, kl, 12.30.__________________ LEIKLIST Þjóðleikhúsið West Side Story lau. og sun. kl. 20.00 Taktu lagið, Lóa! lau. og sun. kl. 20.00 Fávitinn sun. kl. 20.00 Snædrottningin sun. kl. 14.00 Lofthræddi öminn hann Örvar lau. kl. 15.00 Dóttirin, bóndinn og slaghörpu- leikarinn sun. kl. 16.30 Borgarleikhúsið Söngieikurinn Kabarett lau. kl. 20.00 Framtíðardraugar lau. og sun. kl. 20.00. sun., mið, fim., lau. Dökku fiðrildin sun. kl. 20.00. íslenska óperan La Traviata sun. kl. 20.00. Kaffileikhúsið Leggur og skel sun. kl. 15v00. Sápa tvö lau. og sun. kl. 21.00. Leikfélag Kópavogs Á gægjum lau. kl. 20.00 Leikfélag Mos- fellssveitar Mjallhvft og dveigamir sjö lau. og sun. kl. 15.00, Sögusvuntan í húfu Guðs sun. kl. 15. Sýnt að Klíkirkjuv. 11. ___________________________________ LISTAKLÚBBUR Leikhúskjallarinn Tilbrigði við önd mán. kl. 20.00 KVIKMYNDIR Háskólabfó og Kaffi Reykjavik Hinsegin bíódagar; kvikmyndir um sam- kynhneigð frá 25. til 29. mars. MÍR Zúkhov Marskálkur - heimildarmynd um hershöfðingjann sem rak flótta Þjóð- verja allt til Berlínar. Umsjónarmenn listastofnana og sýn- ingarsala! Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrír kl. 16. á miðvikudögum merktar: Morgun- blaðið, menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvk. Myndsendir: 91-691181.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.