Morgunblaðið - 04.04.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________________ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 B 7
KOSNINGAR 8. APRÍL
Gegn fóstureyðingum
MÓÐIR Teresa er
nafn sem allur heimur-
inn þekkir. Þetta er
nafn konu sem hefur
helgað líf sitt Guði.
Auðmýkt, kærleikur
og takmarkalaus
hlýðni við köllun sína
einkennir þessa konu.
Guð hefur kallað hana
til hjálpar hinum
óæskilegu, þeim sem
sjúkdómar og menn
hafa dæmt saklausa
til dauða. Flestar
hjálparstofnanir
treysta sér ekki til, eða
vilja ekki, hjálpa fólki
í vissum kringumstæð-
um. Ýmist af ótta við banvæna
smitsjúkdóma eða af ótta við al-
menningsálit. Móðir Teresa hefur
í áratugi hjálpað fátækum og
holdsveikum í Kalkútta á Indlandi
og hún hefur einnig tekið að sér
að hjálpa eyðnismituðum. Alla tíð
hefur hún barist fyrir rétti allra
ófæddra barna til að fá að lifa.
„Fóstureyðing er mesti óvinur
kærleika og friðar. Hugsum til
þess eitt andartak, með þakklæti
til foreldra okkar, að þau elskuðu
okkur og gáfu okkur þá gleði að
fá að lifa. Því að enginn okkar
væri hér í dag ef móðir okkar
Guðmundur Örn
Ragnarsson
hefði farið í fóstur-
eyðingu.“
Þannig talaði móðir
Teresa til heimsins
árið 1989 er hún heim-
sótti Noreg, en hún
hefur hlotið friðar-
verðlaun Nóbels.
Þúsundir kvenna,
sem látið hafa eyða
fóstri, þjást af mikilli
sektarkennd og skal
engan undra.
Getur Guð fyrirgef-
ið?
„Því svo elskaði
Guð heiminn að Hann
gaf son sinn eingetinn,
til þess að hver sem á
Hann trúir glatist ekki, heldur
hafi eilíft líf“ Jóh 3.16.
Jesú Kristi var fórnað á krossi
fyrir alla menn. Blóði Hans var
úthellt til þess að afmá syndir. Ef
þú biður Jesú (talaðu upphátt) um
að fýrirgefa þér synd þína, fóstur-
eyðingu eða eitthvað annað, og
biður Hann um að koma inn í líf
þitt sem frelsara þinn og Drottinn,
mun Hann gera það á stundinni,
um leið og þú hefur sleppt orðinu.
Hann mun fyrirgefa þér og frelsa
þig, afmá alla sekt þína. Eftir það
getur Hann ekki minnst syndar
þinnar, hún er ekki til.
Það er eitt höfuð-
verkefni K-listans,
segir Guðmundur
Orn Ragnarsson, að
stöðva fóstureyð-
ingar á íslandi.
Þann 8. apríl nk. verður gengið
til Alþingiskosninga. í fyrsta sinn
á íslandi er boðinn fram kristilegur
listi, K-listinn. Þessi framboðslisti
lítur á það sem eitt höfðuverkefni
sitt að koma til leiðar því að fóstur-
eyðingar verði stöðvaðar á íslandi
enda er þetta stærsta réttlætisbar-
áttumál sem háð hefur verið hér,
fyrir börn og mæður og feður, því
að það snýst um grundvöllinn að
öllum öðrum mannréttindum, rétt-
inn til að fá að lifa. Það mun tak-
ast að stöðva fóstureyðingar á ís-
landi með Guðs hjálp og góðra
manna. Ert þú ekki einn þeirra?
Greiddu þá K-listanum atkvæði
þitt.
Höfundur er prestur og skipar 1.
sæti K-listans í
Reykjaneskjördæmi.
Fyrir unga kjósendur
LÝÐRÆÐISLEGAR
kosningar eru með
dýrmætustu réttindum
okkar. Þessi réttindi
leggja á okkur þá sið-
ferðislegu skyldu að
taka yfirvegaða af-
stöðu til allra þeirra
kosta, sem 5 boði eru
við kjörborðið. Þegar
þangað er komið, eru
völdin okkar, og þar
mótum við framtíð
okkar með vali á mál-
efnum og mönnum.
Við kjörborðið getur
ungt fólk haft veruleg
áhrif á lífsskilyrði
ungra fjölskyldna
næstu árin. Þess vegna er mikil-
vægt, að skoða framtíðina í ljósi
stefnumála þeirra, sem í framboði
eru. Framtíðarsýn ungs fólks ætti
að vera afgerandi áhrifavaldur
varðandi niðurstöðu kosninganna
8. apríl nk.
Hér á eftir eru nokkur atriði sem
ég tel skipta máli
varðandi hagsmuni
ungra kjósenda næstu
árin:
* Veldu flokk, sem
aðeins þjónar hags-
munum almennings,
en sinnir engum
þröngum þrýstihóp-
um.
* Veldu flokk, sem
sér aukna almenna
velferð og fleiri íslensk
atvinnutækifæri í
saniningum við EES,
GATT og ESB.
* Veldu flokk, sem
hefur sýnt getu til að
ná fram varanlegri
lækkun vaxta, verðbólgu og verð-
lags.
* Veldu flokk, sem hefur barist
og mun beijast fyrir því, að hús-
næðismál ungra fjölskyldna verði
fjárhagslega viðráðanleg bæði
námsmönnum og launþegum.
* Veldu flokk, sem verndar jafnan
Alþýðuflokknrínn
þjónar hagsmunum al-
mennings, segir Gunn-
ar Ingi Gunnarsson,
en ekki þröngsýnum
hagsmunahópum.
rétt allra gagnvart velferðarþátt-
um þjóðfélagsins, þ.e. heilbrigðis-
þjónustu, almannatryggingum,
menntun og menningu.
* Veldu flokk, sem mun alltaf
berjast fyrir jöfnuði og réttlæti í
íslensku þjóðfélagi.
Ef þú ert sammála um það, að
ofantalin atriði skipti miklu um
lífsskilyrði ungs fólks á Islandi, þá
skaltu nýta þinn dýrmæta kosn-
ingarétt til að kjósa Alþýðuflokk-
inn þann 8. apríl nk.
Höfundur er læknir.
GunnarIngi
Gunnarsson
og sömuleiðis eiga þær
að lýsa ákveðinni van-
þóknun á verknaði.
Refsingar eiga líka að
gegna ákveðnu já-
kvæðu hlutverki en
þannig er hægt að
stemma stigu við eins-
konar faraldri eins og
fíkniefnaneysla virðist
vera orðin í dag. Vand-
inn er fyrst og fremst
sá að það sýnist vera
of auðvelt að smygla
fíkniefnum inn í landið,
þrátt fýrir góða við-
leitni tollvarða til þess
að koma í veg fyrir
það. Áhættan er ein-
faldlega of lítil, því viðurlög við
innflutningi eru of væg og réttar-
framkvæmdin ekki nógu skilvirk.
Refsing 5-10 ár
óskilorðsbundin
Það er eðlilegt, í svona alvarleg-
um málaflokki, að þeir einstakling-
ar sem teknir eru með fíkniefni við
komuna til landsins, hljóti dóm inn-
an fárra daga og fari síðan í afplán-
um í beinu framhaldi af því. Með
hliðsjón af alvarleika brotsins, þ.e.
að þarna er beinlínis, af fullum
ásetningi, verið að flytja fíkniefni
inn í landið, ætlað öðr-
um til neyslu, væri
eðlilegt að jafna þetta
brot við tilraun til
manndráps. Hæfileg
refsing á ekki að vera
minni en 5 ár fyrir
minniháttar brot en
það færi eftir styrk-
leika efnisins og síðan
10 ár fyrir meiriháttar
brot sem væri fyrir
innflutning fíkniefna
af harðari gerð. Þarna
yrði refsing til þess að
gegna jákvæðu hlut-
verki því ef áhættan
er orðin svona mikil,
þá hlýtur það að verða
umhugsunarefni fyrir „burðardýr-
Eðlilegt er, að ein-
staklingar, sem teknir
eru með fíkniefni við
komuna til landsins,
segir Arnþrúður
Karlsdóttir, hljóti dóm
innan fárra daga.
in“, hvort þau fari í innkaupaferð
sem gæti endað á Hrauninu eftir
10 ár. Það er enginn vafi að það
myndi draga úr fíkniefnavanda hér
á landi.
Úrbætur í fangelsismálum
Hinsvegar er það svo að íslensk
fangelsi eru í dag ekki í stakk búin
ti! þess að taka við breytingu sem
þessari. Það hefur sýnt sig að dóm-
stólar eru mun skilvirkari eftir dóm-
stólabreytinguna 1991 og hefur
dómum fjölgað um 30% á sl. 5 árum.
Samt sem áður hefur afbrotum
fjölgað og þau hafa einnig tekið á
sig alvarlegri mynd en áður. Þess
vegna þarf að endurskoða réttar-
framkvæmdina almennt þó svo að
breytingar varðandi refsingar
vegna fíkniefnainnflutnings séu af-
ar brýnar. Það er því nauðsynlegt
að fjölga fangelsisplássum og mætti
t.d. setja á stofn fangelsi sem tæki
sérstaklega tillit til aldurs og teg-
undar afbrota þar sem hægt væri
að veita áfengis- og fíkniefnameð-
ferð og sömuleiðis menntun.
Höfundur er fyrrverandi
lögreglumaður m.a. í
fíknicfna deild, skipar 3. sæti á
lista Framsóknarflokksins í
Rcykjavík fyrir
alþingiskosningarnar.
Arnþrúður
Karlsdóttir
Útrýmum
ofbeldinu!
FYRIR rúmum áratug var mikil
umræða meðal kvenna um stöðu
þeirra í samfélaginu. Fannst mörg-
um ýmsu ábótavant og að taka
þyrfti til höndum. Margvíslegt mis-
rétti var rætt: launa-
misrétti, kvennafæð í
stjórnunarstöðum,
skortur á leikskóla-
rýmum, og ofbeldi
gegn konum, svo að
fátt eitt sé nefnt. Allt
eru þetta viðurkennd-
ar staðreyndir í dag,
enda hafa verið gerðar
ótal kannanir og rann-
sóknir því til staðfest-
ingar. Það er líka við-
urkennt að ofbeldi
gegn konum er gró-
fasta birtingarform
kvennakúgunar, og
því óhjákvæmilegur
hluti umræðunnar um kvenfrelsi
og jafnrétti.
Stofnun kvennaathvarfs
Sumarið 1982 kom saman hópur
kvenna, þverpólitískur, sem hafði
það að markmiði að opna umræð-
una um heimilisofbeldi og að stofna
kvennaathvarf, þar sem þolendur
ofbeldis gætu leitað skjóls. Á þess-
um tíma héldu reyndar margir að
heimilisofbeldi væri bara til í út-
löndum. Strax og umræðan var
komin í gang, voru viðtökur al-
mennings þó góðar. Greinilegt var,
þrátt fyrir þögninga, að margir
þekktu til heimilisofbeldis. Með
samstilltu átaki tókst að koma á
fót kvennaathvarfi í Reykjavík.
Enginn spyr lengur hvort heimil-
isofbeldi sé til. Enginn spyr lengur
hvort það geti verið að konum sé
nauðgað. Enginn spyr lengur hvort
það geti virkilega verið að börnum
sé misþyrmt kynferðislega. Því
miður eru þetta alltof blákaldar
staðreyndir sem sannaðar hafa
verið tölulega ár eftir ár. Þó eru
þær tölur eflaust bara toppurinn á
ísjakanum.
Ofbeldi - smánarblettur. sem
við verðum að viðurkenna
En það var aðeins fyrsta skrefið
að opna umræðuna og gera þær
ráðstafanir sem nauðsynlegar eru
til að plástra sárin. Endanlegt
markmið okkar hlýtur að vera að
útrýma ofbeldinu. Það er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir því að
ofbeldi gegn konum og börnum er
ekki einkamál þeirra sem í því
lenda. Þetta er þjóðfélagslegt mein
sem fyrirfinnst í öllum stéttum, og
sem allar konur og öll börn geta
orðið fyrir. Því ber að meðhöndla
það sem slíkt. Það hljómar raunar
undarlega í þessu sambandi að
segja „geta orðið fyrir“ eða „lent
í“, rétt eins og um sé að ræða
náttúruhamfarir eða slys þar sem
gerandinn er náttúruöflin eða eitt-
hvað annað ámóta óskilgreinanlegt
og óviðráðanlegt. Á bak við hvern
harmleik af þessu tagi stendur
auðvitað mannlegur gerandi, í
langflestum tilfellum karlmaður.
Það virðist vera erfitt að horfast
í augu við þá staðreynd, jafnvel
fyrir okkur konur sem unnið hafa
við þessi mál um langa hríð. Við
tölum gjarnan um að svo og svo
margar konur hafi þurft að flýja
með svo og svo mörg börn í
kvennaathvarfið, í stað þess að
segja að svo og svo margir karlar
hafi beitt ofbeldi. Á sama hátt
tölum við um að svo og svb mörg-
um konum hafi verið nauðgað í
stað þess að þetta margir karlar
hafi nauðgað konum, og að svo
og svo mörg börn hafi orðið fyrir
kynferðislegri misnotkun, í stað
þess að þetta margir karlar hafi
misþyrmt börnum sínum, stjúp-
bömum eða öðrum bömum kyn-
ferðislega.
Það er í sjálfu sér ekkert skrýtið
að okkur skuli fínnast erfíðara að
skilgreina gerendur en
þolendur. Allar tengj-
umst við körlum sterk-
um böndum á einn eða
annan hátt. Þeir eru
feður okkar, eigin-
menn, og synir. Of-
beldið er hins vegar
smánarblettur á karl-
kyninu, sem þeir þurfa
að horfast í augu við
og vinna gegn eins og
konur hafa verið að
gera. Reyndar er hóp-
ur karla innan jafnrétt-
isráðs þegar farinn að
ræða ábyrgð karla á
kynbræðram sínum og
aðgerðir gegn ofbeldi. Er það vel.
Barátta Kvennalistans
gegn ofbeldi
í stefnuskrá Kvennalistans er
að finna ítarlegan kafla um ofbeldi
Nú er kominn tími til
að við öll, konur og
karlar, segir Kristín
Blöndal, leggjumst á
eitt og útrýmum þeim
smánarbletti á þjóðinni
sem ofbeldi gegn konum
og börnum er.
gegn konum og börnum, sem og
tillögur til úrbóta. Það er nauðsyn-
legt að bæta stöðu kvenna og
barna gagnvart réttarkerfinu. Til
þess era ýmis úrræði sem sum
hver kalla á lagabreytingar. Öðrum
má ná með aukinni fræðslu, bæði
til handa almenningi og fagfólki,
s.s. lögmönnum, löggæslumönn-
um, og annarra sem starfa innan
réttarkerfísins. Mikilvægast er að
viðhorfín breytist og að tekið verði
á þessum afbrotum í samræmi við
alvarleika þeirra. í dag er þessu
mjög svo ábótavant, því dómar
fyrir ofbeldisverk era alltof fáir og
vægir.
Markviss fræðsla þarf að fara
fram á öllum skólastigum, að sjálf-
sögðu í samræmi við aldur og
þroska nemenda. Á leikskólastigi
má t.d. leggja áherslu á friðarapp-
eldi, eins og reyndar hefur víða
verið gert mjög markvisst. í grann-
skólum hlýtur athyglin einnig að
beinast að friðsamlegum samskipt-
um og því að ofbeldi sé aldrei rétt-
lætanlegt. í framhaldsskólum get-
ur svo farið fram beinni fræðsla
um ofbeldi og áhrif þess á þá ein-
staklinga sem fyrir því verða.
Tökum höndum saman og
útrýmum ofbeldinu!
Það er réttur hvers einstaklings
að fá að lifa frjáls, og eiga mögu-
leika á því að tjá sig, njóta sín,
og blómstra. Fyrir 12 áram tókst
konum með samstilltu átaki að
stofna kvennaathvarf. Nú er kom-
inn tími til að við öll, konur og
karlar, leggjumst á eitt og útrým-
um þeim smánarbletti á þjóðinni
sem ofbeldi gegn konum og börn-
um er. Með samstilltu átaki er
hægt að gera kraftaverk!
Höfundur er myndlistarkona, ein
af stofnendum Samtaka um
kvennaathvarf, ogskipar‘25. sæti
á Kvennalistanum í Reykjavík.
Kristín Blöndal