Morgunblaðið - 08.04.1995, Side 4
4 B LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNIIMGAR 8. APRÍL
Hvað er vinstri o g hvað er
hægri og hvað á nú að kjósa?
EKKI er óalgengt að
heyra að skiptingin í
vinstri og hægri sé að
verða úrelt í stjórnmál-
um; í staðinn séu komin
ný deilumál sem skipti
fólki í ólíkar fylkingar;
t.d. landsbyggð/höfuð-
borgarsvæði; með ESB
eða gegn ESB; með
núverandi stefnu í sjáv-
árútvegsmálum eða á
móti. Telja má fleiri
pólitísk ágreiningsefni
sem ganga þvert á
flesta stjórnmálaflokka
og skipta þeim.
Eigi að síður er
skiptingin í vinstri og hægri meira
á dagskrá í þessum kosningum en
oft áður. Alþýðubandalagið boðar
þannig „vinstra vor“, Sjálfstæðis-
flokkurinn varar sérstaklega við
vinstri flokkum og vinstri stefnu
(og skilgreinir sig þannig óbeint
sem hægri flokk) og Framsóknar-
flokkurinn er fyrst og fremst
„frjálslyndur miðjuflokkur" sam-
kvæmt eigin skilgreiningu í kosn-
ingabaráttunni.
Er hér fyrst og fremst um að
ræða pólitískan áróður í hentug-
leikaskyni fyrir kosningar eða eru
skörp skil hér á landi milli vinstri
stefnu og hægri stefnu? Ef við
veljum síðari skýringarkostinn,
eins og ég geri, er ljóst að skil-
greina þarf hvað sé hægri, miðja
og vinstri í íslenskum stjómmál-
um. Hér verður í
stuttu máli reynt að
koma með slíka skil-
greiningu, sem gæti
skýrt málin nokkuð.
En rétt er að koma
fyrst með tvo fyrir-
vara:
1. Skiptingin í
vinstri og hægri get-
ur ekki útskýrt öll
ágreiningsefni í ís-
lenskum stjórnmál-
um, eins og fyrr hef-
ur verið vikið að. Eigi
að síður er það álit
mitt að djúpstæðaSta
ágreiningsefni ís-
lenskra stjórnmála sé hvort hér
eigi að ríkja vinstri- eða hægri-
stefna.
2. Hér á eftir verða talin upp
helstu forgangsmál vinstri aflanna
og hægri aflanna. Hér er ekki um
að ræða einhveija algilda lýsingu
á skoðunum sérhvers vinstrimanns
eða hægrimanns.
Forgangsmál vinstri stefnu:
Meginmarkmiðið er jafnrétti í tekj-
um, menntun og annarri samfé-
lagsaðstöðu. Styrkja þarf stöðu
verkalýðsfélaga og einstakra laun-
þega gagnvart atvinnurekendum
bæði í launum og starfsöryggi.
Með aðgerðum opinberra aðila
skal bæta stöðu bama og aldr-
aðra, sjúkra og tekjulítilla hópa.
Forgangsmál hægri stefnu: Vel-
ferð einstaklinga er mest komin
Stefnum á sameiningu
vinstri manna, segir
Gísli Gunnarsson, sem
hvetur til stuðnings við
Alþýðubandalagið.
undir góðri stöðu fyrirtækjanna í
landinu. Takmarka ber opinber
afskipti af fyrirtækjarekstri og
velferðarmálum. Einkaeign skal
efld sem mest. Ríkið á ekki að
stuðla að sem mestum jöfnuði í
samfélaginu því að hver er sinnar
gæfu smiður.
ítrekað skal að hér ræði ég um
forgangsmál. Flestir vinstrimenn
og hægrimenn geta samþykkt
ýmis forgangsmál hvors annars
en sett þau neðarlega á lista sinn
um æskileg stefnumál. En það sem
hefur forgang ræður auðvitað
mestu um stefnuna og í þessari
röðun æskilegra markmiða felst
mismunur vinstristefnu og hægri-
stefnu.
Það er auðvitað fullkomlega
eðlilegt að margir kjósendur reyni
að búa til eigin samsuðu úr hægri
og vinstri og telji sig því vera
miðjumenn enda sýna skoðana-
kannanir að rösk 40% þjóðarinnar
telja sig tilheyra miðjunni í stjórn-
málum. Að öðru leyti er skiptingin
jöfn milli vinstri og hægri.
Það fer varla milli mála að helsti
hægri flokkurinn er Sjálfstæðis-
flokkurinn enda lýstu nær allir
hægrimenn því yfir í nýlegri könn-
un DV að ætlun þeirra væri að
kjósa þann flokk, raunar um þriðj-
ungur miðjumanna einnig! í miðj-
unni eru tveir flokkar, Framsókn-
arflokkur og Alþýðuflokkur. Þetta
eru í raun og veru mjög líkir flokk-
ar og þurfa því til aðgreiningar
hvor frá öðrum að leggja mikla
áherslu á ágreiningsefni sín á milli,
sbr. landbúnaðarmál. (Spáný
ESB-stefna Alþýðuflokksins er að
mjög miklu leyti kosningabrella,
sem er samin til að skapa sérstöðu
í kosningum í mjög krappri stöðu
flokksins eftir alvarlegan klofning,
spillingarumræðu og fjögurra ára
setu í tvímælalausri hægri stjórn.)
Ljóst er að Alþýðubandalagið
er kjölfestan í íslenskri vinstri
stefnu; helstu stefnumál þess
flokks eru vinstri ættar. En meðan
Sjálfstæðisflokkurinn nánast ein-
okar hægra fylgið stendur Alþýðu-
bandalagið í harðri samkeppni við
aðra flokka um nánast hvert
vinstra atkvæði. Kvennalistinn
veitti flokknum hér lengi vel hörð-
ustu samkeppnina en nú er Þjóð-
vaki aðallega kominn í þá stöðu.
Fyrir tilstuðlan Kvennalistans
hefur konum fjölgað mjög í hópi
atvinnustjórnmálamanna undan-
farin 12 ár, þó síst í Sjálfstæðis-
flokknum. Að öðru leyti er mjög
erfitt að greina áhrif Kvennalist-
ans. Flokkurinn hefur lítið end-
Gísli
Gunnarsson
urnýjast, jafnt í hugmyndum sem
einstaklingum, og nýlegt klúður
hans í framboðsmálum í Reykja-
neskjördæmi er varla traustvekj-
andi. Uppruni Þjóðvaka er eins og
kunnugt er persónulegar deilur
Jóns Baldvins Hannibalssonar og
Jóhönnu Sigurðardóttur, þar sem
Jón hafði betur. Síðan hafa marg-
ir gengið til liðs við Jóhönnu og
sumir þeirra farið frá henni fljótt
aftur. Eins og sakir standa eru
fyrrverandi félagar í Alþýðu-
bandalaginu sterkasta aflið í Þjóð-
vaka enda er mér ómögulegt að
sjá hvaða málefni greinir Þjóðvaka
frá Alþýðubandalaginu.
Að lokum vil ég draga saman
persónulegar niðurstöður mínar
af þessum hugleiðingum.
1. Það er æskilegt að vinstri
menn sameinist í einn flokk í eng-
um minna mæli en hægri menn
hafa gert í Sjálfstæðisflokknum.
2. Alþýðubandalagið gerði til-
lögu um sameiginlegt framboð
vinstri manna, þ.e. sín, Kvenna-
lista og Jóhönnu Sigurðardóttur í
alþingiskosningunum og átti þetta
að vera upphaf að sameiningu
vinstri manna í einn flokk. Eins
og kunnugt er höfnuðu bæði
Kvennalistinn og Jóhanna þessari
tillögu Alþýðubandalagsins.
3. Alþýðubandalagið hefur
fengið til liðs við sig nýtt fólk sem
ekki er flokksbundið og hefur
þannig aftur sýnt vilja sinn til
vinstri sameiningar. Við myndun
framboðslista hafa tengsl flokks-
ins við verkalýðshreyfínguna
styrkst.
Styrkjum því vinstri sameiningu
og vinstri stefnu í alþingiskosning-
unum og kjósum lista Alþýðu-
bandalags og óháðra.
Höfundur er háskólakennari.
Utflutningnr á
læknisþj ónustu
MIKIÐ starf bíður
okkar á komandi
árum við atvinnu-
uppbyggingu og ný-
sköpun. Aðalverk-
efni okkar á komandi
árum verður að
stuðla að því, að
samfélagið skapi hér
fleiri störf. Við þurf-
um einnig að sjá til
þess að þessi störf
verði til við öflun
gjaldeyristekna og
að það verði hálauna-
störf. Þar hljótum við
fyrst og fremst að
horfa til einkarekins
atvinnurekstrar eins
og aðrar vestrænar þjóðir. Við eig-
um líka að horfa til þess hvernig
þessar sömu þjóðir hafa nýtt sér
til tekjuöflunar og gjaldeyrisöflunar
þær ríkisstofnanir og fyrirtæki sem
sátt er um í samfélaginu að verði
áfram á vegum ríkisins.
Eitt af þessu er að bjóða erlend-
is þjónustu íslenska heilbrigðiskerf-
isins, í þeim greinum þess, þar sem
við stöndum hvað fremst.
Læknisfræðin er ein _ af elstu
kennslugreinum Háskóla íslands og
eitt af því, sem við íslendingar
kunnum og gerum vel, er að veita
læknum góða menntun. Þeir fara
síðan til framhaldsnáms í bestu
háskóla Evrópu og Bandaríkjanna.
Þar hljóta þeir jafnframt starfs-
þjálfun á mörgum bestu sjúkrahús-
um í heimi. Þetta höfum við gert
vel á undanförum áratugum en við
höfum ekki haft þörf fyrir allt þetta
góða fólk hér heima og því hafa
verið settar fjöldatakmarkanir á
læknanema. í íslensku læknastétt-
inni er því búið að vera árum sam-
an mikið dulið atvinnuleysi sem leitt
hefur til þess að mikill fjöldi þessa
fólks er búsett erlendis og vinnur
þar sín störf því það fær ekki störf
hér heima við sitt hæfi.
Ef við ætlum að
byggja þetta land verð-
um við að nýta okkur
þær auðlindir sem í land-
inu eru og í fólkinu býr
og það gerum við ekki
öðruvísi í dag en að snúa
vöm í sókn. Við eigum
að mennta fleiri lækna
og selja þeirra þjónustu.
Við eigum að bjóða það
sem við kunnum og
þekkjum og gerum vel.
í öllum hinum vest-
ræna heimi er verið að
glíma við sameiginlegt
vandamál og það er sí-
vaxandi kostnaður vegna
aukinnar heilsugæslu. Það sem við
íslendingar eigum að gera í þessari
baráttu er að vera réttu megin við
borðið, við eigum að bjóða öðrum
þjóðum læknisþjónustu. Við eigum
að vera seljendur en ekki alltaf að
Útflutningur á læknis-
þjónustu er, að mati
Friðriks Hansens
Guðmundssonar,
leið til að fjölga störfum
í landinu.
vera kaupendur. Við eigum að byija
á þeim sviðum þar sem við stöndum
hvað fremst.
Ef hagkvæmt reynist, þá á að
byggja hér hátæknisjúkrahús með
250 til 300 rúmum/herbergjum sem
vinnur á alþjóðlegum markaði, þ.e.
sinnir sjúklingum hvaðanæva úr
heiminum. Rekstrarformið gæti
verið sjálfseignarstofnun og rekið
innan íslenska heilbrigðiskerfísins.
Friðrik Hansen
Guðmundsson
Þetta yrði „non profit“ stofnun, þ.e.
tekjur yrðu látnar standa undir
gjöldum ásamt endurnýjun á tækj-
um og húsnæði og ekki gert ráð
fyrir hagnaði af rekstrinum.
Á slíkum spítala þarf að gera ráð
fyrir að hver sjúklingur verði í sér
herbergi sem verði útbúið á svipað-
an hátt og gott hótelherbergi, þ.e.
með baðherbergi, sjónvarpi, útvarpi
o.s.frv.
Gera má ráð fyrir að ef slíkur
spítali væri rekinn með fullum af-
köstum þá myndi hann skapa hér
störf fyrir um 500-1.000 manns,
næstu 20 til 30 árin, þar af um 100
til 150 lækna. Búast má við að hing-
að til lands kæmu árlega 7.000 til
14.000 manns vegna þessa reksturs
ef aðstandendur sjúklinga eru tald-
ir með.
Til þess að rekstur spítalans
gangi vel þarf stöðugt að vinna að
öflugu erlendu markaðsstarfí.
Væntanleg markaðssvæði í upphafi
væru Norðurlöndin, Evrópa og
Bandaríkin.
íslendingar hafa yfir að ráða allri
tækni, kunnáttu og getu til að
byggja og reka slíkan spítala og
gæti slíkur spítali þess vegna aðeins
verið upphafið að áframhaldandi
markaðssókn á þessari braut, ef
rétt er að staðið í upphafi. Það er
hér í upphafi verkefnis sem við
þyrftum þó á utanaðkomandi aðstoð
að halda. Ef vilji er fyrir því að
vinna að þessu máli af alvöru þá
þarf að leggja í þetta verkefni
áhættufjármagn til að standa
straum af kostnaði í upphafi við
vandaða markaðs- og hagkvæmnis-
könnun.
Slík hagkvæmisathugun er dýr
og slíkir ráðgjafar kosta mikla fjár-
muni og það er einnig ljóst að ef
niðurstaðan verður neikvæð þá er
þetta tapað fé. Ef hún verður já-
kvæð getum við verið að horfa upp
á, að þessi spítali skapi 500 til 1.000
störf og 2 til 4 milljarða á ári í
hreinar gjaldeyristekjur. Bygging
spítalans sjálfs myndi skapa um 300
til 400 ársverk og gæti henni verið
lokið á tveimur til þremur árum.
Höfundur er í 5. sæti á lista
Sjáifstæðisfiokksins í
Norðuriandskjördæmi vestra.
Framtíðin
er þín
ÞAU eru 16.000
ungmennin sem hafa
nú í fyrsta sinn á ævi
sinni rétt til að kjósa
í alþingiskosningum.
Það er vissulega mikils
krafist af þessu unga
fólki sem hingað til
hefur ef til vill ekki
fylgst með stjórnmál-
um svo nokkru nemi.
Kosningarétturinn er
ekkert gamanmál og
ber að höndla af fullri
alvöru. Hér er um
framtíðina að tefla og
ég hvet ungt fólk að
hafa það hugfast að
þó að það sé ef til vill erfitt að
gera upp hug sinn þá er mikilvægt
að nota kosningaréttinn því annars
getur svo farið að sá kostur sem
það síst vildi standi með pálmann
í höndunum eftir kosningar. Það
Sextán þúsund
ungmenni kjósa nú í
fyrsta sinni. Ásta Þór-
arinsdóttir hvetur þau
til að vanda vegferð sína
inn í framtíðina.
er því mikil ákvörðun að kjósa
ekki.
Ungt fólk hugsar meira um það
sem framtíðin ber í skauti sér en
hvað fortíðin hefur að geyma.
Fyrir þeim er það grundvallarat-
riði að vandamálum líðandi stund-
ar sé ekki ýtt yfir á framtíðina.
Við höfum séð það undanfama
daga á kosningaloforðum vinstri
flokkanna hve auðvelt það er fyrir
stjómmálamenn að
eyða í dag og senda
reikninginn til al-
mennings á morgun.
Ungt fólk er helsta
fórnarlamb slíkrar
hegðunar. Það er því
nauðsynlegt að ungt
fólk skoði vandlega
hvað er á bak við lof-
orðin, hvað hafa menn
raunverulega gert og
hvað era þeir líklegir
til að gera.
Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur á undan-
förnum Qórum áram
búið í haginn fyrir
bjartari framtíð og nú geta íslend-
ingar farið að horfa bjartsýnum
augum á framtíðina. Undanfarin
fjögur ár hefur matarverð og vext-
ir lækkað, verðbólgan verið nánast
engin og í fyrsta sinn í sögu lýð-
veldisins greiddi þjóðin niður er-
lendar skuldir sínar þijú ár í röð.
Þó ýmislegt megi betur fara þá
verður ekki annað sagt en að með
ábyrgri stefnu ríkisstjómar Davíðs
Oddssonar hafí forsendur skapast
fyrir bjartsýni á framtíðina og á
þeim forsendum verður sótt fram
á næsta kjörtímabili.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
sannað það að honum er best
treystandi til að gæta hagsmuna
ungs fólks og búa í haginn fyrir
það. Það era 80% þjóðarinnar sem
vilja tveggja flokka stjóm og
meirihluti þjóðarinnar vill Davíð
Oddsson sem forsætisráðherra.
Setjum X við D á kjördag 8.
apríl. Við höfum ekki efni á vinstri
stjóm.
Höfundur er formaður
kjördæmasamtaka ungs
sjálfstæðisfólks IReykjanesi og
skipar 13. sæti á listanum.
Ásta
Þórarinsdóttir