Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 6
6 B LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNIIMGAR 8. APRÍL
>
N-
Erla
Ingvarsdóttir
Henný Ingvi
Hinz Snorrason
Örvar Þ.
Smárason
Niðurskurðarríkisslj órn-
in - óvinur unga fólksins
NUVERANDI ríkisstjórn hefur
með niðurskurði sínum haft mikil
neikvæð áhrif á líf ungs fólks í
landinu. Þann 8. apríl er komið
að uppgjöri. Við verðum öll að
taka afstöðu.
Eru skólagjöldin og
námslánin að drepa þig?
Við erum mjög ósátt við þá
stefnu núverandi ríkisstjórnar að
menntamál og námsmenn séu það
sem mætt hefur afgangi í fjárút-
hlutunum. Eins og allir nemendur
vita hafa verið lögð á skólagjöld
á nema í framhaldsmenntun og
14% virðisaukaskattur hefur verið
lagður á skólabækur. Einnig hefur
verið komið á eftirágreiðlsum
námslána sem gerir námsmönnum
það nánast ómögulegt að stofna
* fjölskyldur og koma sér þaki yfir
höfuðið samhliða námi. Er þetta
það sem við viljum? Alþýðubanda-
lagið og óháðir vilja breyta þessu.
Komist þeir í ríkisstjóm heyra
skólagjöld, virðisaukaskattur á
námsbókum og eftirágreiðslur
námslána sögunni til.
Hvernig kemurðu 397
nemendum í eina skólastofu?
Eins og stefna núverandi ríkis-
stjómar í menntamálum er hljóta
Tími er kominn til
að kveðja niðurskurðar-
ríkisstjómina, segja
Erla Ingvarsdóttir,
Henný Hinz, Ing’vi
Snorrason og
Orvar Þ. Smárason,
og breyta til.
ráðamenn hennar að hafa svar við
þessari spurningu á reiðum hönd-
um. Niðurskurður þeirra hefur
þegar gengið svo langt að ekki
eru sæti fyrir alla nemendur í
kennslustofum. Er það þetta sem
við viljum? Alþýðubandalagið og
óháðir setja menntamálin í önd-
vegi og ætla að hækka framlög
til menntamála til jafns á við hin
Norðurlöndin. G-listinn gerir sér
grein fyrir því sem virðist hafa
farið framhjá stjórnarflokkunum,
að öflugt menntakerfi er verð-
mætasköpun.
Vilt þú bætast í hóp
atvinnulausra ungmenna?
Nei, ekki við heldur, en stað-
reyndin er sú að í dag er atvinnu-
leysi hjá ungu fólki á aldrinum
20-29 ára 9,8% og hjá 16-19 ára
aldurshópnum 16,8%. Alþýðu-
bandalagið og óháðir eru með
ígrundaða stefnu í atvinnumálum.
Þau ætla sér að útrýma atvinnu-
leysi með atvinnusköpun til fram-
búðar en afneita skammtímala-
usnum eins og þeim sem hægri-
flokkarnir hafa boðið upp á. Er
það ekki ósk okkar allra að fá
örugga atvinnu og mannsæmandi
laun?
Er ekki kominn tími til
að kveðja niðurskurðar-
ríkisstjórnina?
Jú, svo sannarlega. Ríkisstjórn-
in hefur skorið niður það sem
skiptir okkur mestu máli: mennta-
mál og heilbrigðismál. í stjórnartíð
hennar hefur atvinnulausum fjölg-
að svo um munar. Þeir ríku verða
ríkari, þeir fátæku verða fátæk-
ari. Það er kominn tími til að end-
urreisa velferðarkerfið og jafna
lífskjörin. Tökum því vitsmunalega
afstöðu í komandi kosningum.
Vinstra val er eina val ungs fólks
sem horfir til framtíðar. Setjum
því X við G.
Höfundar eru nemendur.
Breimakettir
ÞAÐ ER ekki hægt
að komast hjá því að
taka eftir forsprökkum
stjómmálaaflanna í
landinu þessa dagana,
en í auglýsingatimum
fjölmiðlanna keppast
þeir við að lofa betri
tíð með mörg blóm í
haga hver ofan í annan
og allir eru þeir sam-
mála um að hinir séu
að gera tóma vitleysu,
það er eins og ég hafí
heyrt þetta áður og
auðvitað eru afsakan-
imar á hreinu eins og
vera ber að. loknum
kosningum.
Það má heyra: vinstra vor og
velsæld, sjálfstæði og sæluríki, ESB
og velmegun, konur og kærleikur,
betri tíð með B og allt þar fram
eftir, þar sem allir keppast við að
lofa upp í ermina á sér með andlitið
útglennt af sólskini. Mér datt svona
í hug loforð Alþýðuflokksins um
bætt kjör einstaklinga með innflutn-
ing á neysluvömm sem er aðallega
landbúnaðarvömr sem ættu að
lækka svo mikið í verði að ætla
mætti að hver einstaklingur í land-
inu verði ósjálfrátt milli á eftir, ef
svo er hví ekki að flytja inn opin-
bera þjónustu sem væri hægt að fá
miklu ódýrari ef aflað væri tilboða
erlendis, það mætti flytja inn fisk-
vinnslu sem væri miklu ódýrari,
einnig mætti afla tilboða erlendis
frá í ódýrari raforku til heimilisnota
og svona mætti telja áfram, annars
væri ekki hægt að
flytja inn ríkisstjóm
sem væri ódýrari í
rekstri. Það myndi að
minnsta kosti minnka
umstangið í kosninga-
dansinum og þá þyrfti
fólk ekki að hafa þess-
ar áhyggjur á fjögurra
ára fresti. Hugsið ykk-
ur, það væri hægt að
leggja niður alla at-
vinnu á íslandi og
flytja allt inn miklu
ódýrara og betra en
nokkru sinni' fyrr og
aliir yrðu himinlifandi
af ánægju vegna hinn-
ar miklu hagræðingar
sem innflutningur á lægra verði
myndi skila sér til neytenda í þjóðfé-
laginu.
Lítið á björtustu hliðarnar; minni
vinna, minni tekjur, minni skattar!
Er hægt að hugsa sér eitthvað
betra? Ekki ætla ég að segja fólki
hvað það á að kjósa enda er nóg
af fólki til þess, en eitt er víst að á
bakvið loforð eru svik nær undan-
tekningarlaust og það er lenska í
hverju þjóðfélagi að stjórnmála-
menn keppist við að hagræða sann-
leikanum fyrir kosningar til að koma
sjálfum sér á framfæri enda er þeim
öllum sama hvernig fólk hefur það
svo lengi sem það skaðar ekki þá
sjálfa og á meðan þeir sem setið
hafa í ríkisstjórn til lengri tíma og
ekki þurft að hafa áhyggjaur af því
hvort þeir komist í ríkisstjórn heldur
með hveijum þeir lenda. Þeir verða
Guðlaugur Kr.
Júlíusson
Það er lenska í hverju
þjóðfélagi, segir Guð-
laugur Kr. Júlíusson,
að stjómmálamenn
keppist við að hagræða
sannleikanum fyrir
kosningar.
kærulausir og öruggir með sig inni
enda fara þeir ekki að gera einhver
óþarfa verk eins og að standa við
gefín loforð ef þeir þurfa þess ekki
nauðsynlega, til að halda sæti. Gott
dæmi um það er opinber þjónusta
þar sem einstaklingar þurfa að hafa
viðskipti og eru neyddir til, en áber-
andi er að starfsfólk í hinum opin-
bera geira nýtur þess að vera í ein-
okunarstöðu og spila kónga, geta
sagt einstaklingnum að halda kjafti
vitandi að viðkomandi einstaklingur
verði að segja þakka þér fyrir svo
hann hafi ekki verra af. Einn af
hortugustu geirum hins opinbera
hefur sýnt þess glögg merki en það
var Bifreiðaeftirlit ríkisins sem er
orðin Bifreiðaskoðun íslands og
loksins komin í samkeppni, enda er
ekki hátt á þeim risið í dag. Það
gildir nákvæmlega sama lögmál
með ríkisstjórnir.
Þetta á ekki að vera nein allsheij-
ar úttekt heldur smápunktar til
þeirra sem eru að fara að kjósa og
til þeirra sem eru að fara að kjósa
í fyrsta sinn — ekki kjósa sama og
pabbi, kjósið eftir eigin samvisku,
þið eruð að kjósa fyrir ykkur. . .
Höfundur er rnfvirki.
Bylting í málefn-
um fatlaðra undir
forystu Jóhönnu
JÓHANNA Sigurð-
ardóttir sá til þess að
framlög til málefna
fatíaðra jukust um
52% að raungildi á
árunum 1987-1994,
þrátt fyrir efnahags-
þrengingar. Það gerði
hún með ýmsum
sparnaði í ráðuneytinu
til að hafa svigrúm til
að bæta þjónustu við
fatlaða.
Uppbygging
sambýla tryggð
Samhliða mikilli
aukningu á framlög-
um sem m.a. hefur tryggt upp-
byggingu á sambýlum fyrir fatlaða
sem til eru um land allt, beitti
Jóhanna sér fyrir nýrri löggjöf í
málefnum fatlaðra. Sú löggjöf
tryggði aukna stoðþjónustu, lið-
veislu og réttindagæslu við fatlaða,
átak í aðgengismálum, ný búsetu-
Jóhanna Sigurðardóttir
sá til þess að framlög
til málefna fatlaðra juk-
ust um 52% að raungildi
á árunum 1987-1994,
segir Ásta R. Jóhann-
esdóttir, þrátt fyrir
efnahagsþrengingar.
úrræði með uppbyggingu félags-
legra íbúða, átak í málefnum geð-
fatlaðra og nýjar áherslur í at-
vinnumálum.
Þannig hefur m.a.
orðið til nýr valkostur
í búsetu fatlaðra, fé-
lagslegar íbúðir, sem
þegar hafa sannað
gildi sitt. Ljóst er að
margir þeirra sem nú
dvelja á sambýlum
geta vel nýtt sér fé-
lagslegar íbúðir, eink-
um ef boðið er upp á
heimaþjónustu hjá
sveitarfélögum.
Með nýjum lögum
um málefni fatlaðra
opnaðist leið til að
Ásta R. veija allt að 10% af
Jóhannesdóttir ráðstöfunarfé Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra til lagfær-
ingar á aðgengi opinberra bygg-
inga vegna fatlaðra. Verulegt ijár-
magn til stoð- og liðveislu við fatl-
aða er einnig mikil framför til að
tryggja fötluðum jafnrétti og sam-
bærileg lífskjör við aðra þjóðfé-
lagsþegna og skapa þeim skilyrði
til að lifa eðlilegu lífi.
Réttindamál geð-
fatlaðra stórbætt
Með þessari löggjöf sem Jó-
hanna beitti sér fyrir voru einnig
tekin af öll tvímæli um rétt geðfatl-
aðra til þjónustu samkvæmt lögum
um málefni fatlaðra. Auk þess var
tryggt sérstakt fjármagn til að
bæta þjónustu við geðfatlaða.
Við þurfum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og hennar fólk inn í ríkis-
stjórn til að tryggja áframhaldandi
uppbyggingu í málefnum fatlaðra.
M.a. þannig tryggjum við jafnrétti
í landinu.
Höfundur skipar 2. sæti Þjóðvaka
íRvík.
„Hin umhverfisvæna
Kristín Einarsdóttir“
KRISTÍN Einars-
dóttir skrifaði grein í
Morgunblaðið í gær
undir heitinu: „ Um-
hverfismálin í önd-
vegi. “ Þar lætur húm
svo sem að Kvenna-
listinn, og hún þar
með, sé einstaklega
annt um mengunar-
mál, ekki síst mengun
af völdum kolsýru
Undirritaður
minnir á að í tvö ár
hefur legið tillaga frá
mér og Petrínu Bald-
ursdóttur í umhverfis-
nefnd Alþingis um að settur verði
brennsluhvati í opinbera bíla og
Þetta er klárt,
Kristín, segir Gísli Ein-
arsson, sem hér ræðir
umhverfísmál.
eldsneyti. Hér er upp-
runalega um að ræða
erlenda hugmynd, en
hún hefur verið fram-
þróuð á íslandi. Um-
hverfisnefnd er undir
formennsku Kristínar.
Hún sá þess ekki
nokkurn kost að af-
greiða tillöguna, jafn-
vel þótt umhverfisráð-
herra og iðnaðarráð-
hera tækju mjög undir
gagnsemi hennar, en
lét loks undan þrýst-
ingi og vísaði henni,
23. febrúar, til ríkis-
stjórnarinnar og um-
hverifsráðuneytisins, þar sem það
bíður nýrrar ríkisstjórnar að fjalla
um málið.
Er það þá trúverðugt þegar
Kristín, nú daginn fyrir kjördag,
er að reyna að hefja sig og sinn
lista til vegs á máli sem hún svo
illilega hefur koxað á? Þetta er
klént, Kristín!
Gísli Einarsson
skip til þess að minnka útblásturs-
mengun og jafnframt að spara
Höfundur er þingmaður
Alþýðuflokks í
Vesturlandskjördæmi.
- kjarni málsins!