Morgunblaðið - 19.04.1995, Síða 1
J8o rgtmWaíí it>
B
1995
MIDVIKUDAGUR 19. APRIL
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Reuter
JUVENTUS mætir Parma í úrslitum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu en ítölsku liðin sigruðu mótherja
sína frá Þýskalandl í gærkvöldi. Á myndinni fagna lelkmenn Juve marki Sergios Porrlnis sem er í miðjunni.
Roberto Baggio tryggði
l7ítalskan“ úrslitaleik
Roberto Baggio gerði gull af marki í
gærkvöldi sem tryggði Juventus 2:1
sigur gegn Borussia Dortmund og jafn-
framt tvo úrslitaleiki við Parma í Evrópu-
keppni félagsliða í knattspyrnu. Juve og
Dortmund gerðu 2:2 jafntefli í fyrri leikn-
um en Sergio Porrini skoraði með skalla
fyrir ítalska liðið á 7. mínútu í Dortmund.
Brasilíski varnarmaðurinn Julio Cesar, sem
lék áður með Juve, jafnaði þremur mínútum
síðar eftir vel útfærða aukaspyrnu rétt
utan vítateigs en sigurmark Baggios kom
á 31. mínútu. Hann tók aukaspyrnu nokkra
metra utan vítateigs og skoraði í hornið
uppi. Þar með á Juve möguleika á sigri í
keppninni í þriðja sinn á sex árum en liðið
varð meistari 1990 og 1993. Úrslitaleikirn-
ir fara fram 3. og 17. maí og í þriðja sinn
á sex árum berjast ítölsk lið um sigurinn.
Juve hafði betur gegn Fiorentina 1990 og
Inter gegn Roma árið eftir. Parma og Ju-
ventus leika einnig til úrslita í ítölsku bikar-
keppninni í júní.
Dortmund lék án þriggja lykilmanna í
gærkvöldi. Matthias Sammer, Andy Möller
og Karlheinz Riedle voru í leikbanni og auk
þess voru Stephane Chapuisat og Flemm-
ing Povlsen ekki með vegna meiðsla.
Júrgen Kohler, sem jafnaði 2:2 fyrir Juve
á 88. mínútu í fyrri leiknum, fór meiddur
af velli á 9. mínútu og það hafði slæm
áhrif á gestina sem fengu þegar mark á sig.
„Það var slæmt fyrir okkur að missa
Júrgen Kohler meiddan af velli,“ sagði
Baggio. „Það hvarflaði aldrei að mér að
Dortmund yrði svona stérkt án svo margra
lykilmanna. Við þurftum að betjast allan
tímann en við náðum í úrslitin sem skiptir
öllu.“
Faustino Asprilla frá Kólumbíu var hetja
Parma gegn Leverkusen, gerði fyrstu tvö
mörkin og lagði upp það þriðja fyrir Gianfr-
anco Zola sem byggði upp annað mark ít-
alska liðsins.
Parma vann 2:1 í útileiknum og staða
liðsins vænkaðist þegar á 3. mínútu í gær
þegar Asprilla braut ísinn. Hann var aftur
á ferðinni á 55. mínútu en Zola innsiglaði
öruggan sigur á 67. mínútu.
Fyrir áratug var Parma í 3. deild en það
er 10. liðið til að leika til úrslita í Evrópu-
keppni þijú ár í röð. Liðið varð Evrópu-
meistari bikarhafa 1993 ogtapaði í úrslita-
leik í sömu keppni í fyrra.
„Ég er mjög ánægður fyrir hönd borg-
arinnar og leikmannanna sem hafa staðið
sig mjög vel allt tímabilið," sagði Nevio
Scala, þjálfari Parma. „Árangurinn sem
slíkur skiptir skiptir ekki öllu heldur frekar
ánægja og gleði fólksins héma.“
Blikastúlkur á opið
Norðurlandamót
f SLANDSMEISTARAR Breiðabliks I kvenna-
knattspyrnu taka þátt í opnu Norðurlanda-
móti, sem verður í Þrándheimi í Noregi 20.-23.
júlí í sumar. Fjögur til sex lið taka þátt í keppn-
inni, sem er vísir að Evrópukeppni kvenna í
knattspyrnu. Fyrirhugað er að á næsta ári
taki átta lið þátt í keppninni en þá er ætlunin
að bæta við liðum frá Hollandi, Englandi og
Þýskalandi. _
Alfreð heiðursgestur
á úrslitaleik Bidasoa
í Evrópukeppninni
ALFREÐ Gíslason, þjálfari bikarmeistara og
silfurliðs 1. deildar liðs KA í handknattleik,
var heiðursgestur á fyrri úrslitaleik Evrópu- -
keppni meistaraliða þegar Bidasoa tók á móti
Badel frá Zagreb í Króatíu. Leikurinn fór
fram í Irun á Spáni í fyrrakvöld og' unnu
heimamenn 30:20 eftir að staðan hafði verið
12:12 í hálfleik. „Þetta var eins og í gamla
daga, rosaleg stemmning,“ sagði Alfreð við
Morgunblaðið en sem kunnugt er var hann
einn af lykilmönnum Bidasoa áður en hann
gekk til liðs við KA á ný. Að sögn Alfreðs
var mikið gert úr leiknum og stærsta dagblað-
ið á svæðinu gaf út 60 siðna aukablað þar sem
sérstaklega var fjallað um alla erlendu leik-
mennina sem hafa leikið með Bidasoa. Eftir
að leikmenn höfðu verið kynntir var Alfreð
kallaður út á gólfið til að áhorfendur, sem
troðfylltu höllina í Irun, gætu heilsað honum
og siðan tók spænski kylfingurinn Jose Maria
Olazabal upphafskastið.
Judith Estergal skipti
úr ÍBV í Hauka
JUDITH Estergal gekk frá félagaskiptum úr
ÍBV í Hauka um páskana að sögn Þorgeirs
Haraldssonar, formanns handknattleiksdeild-
ar Hauka. Judith hefur leikið stórt hlutverk
hjá Eyjastúlkum undanfarin ár en hún bjó í
Reykjavík í vetur og vildi breyta til, að sögn
Þorgeirs. Hann sagði að Haukaliðið væri skip-
að ungum og efnilegum stúlkum, stúlkum sem
hefðu verið sigursælar í 2. flokki en þær
þyrftu stuðning leikreyndari leikmanns í
meistaraflokki og Judith Estergal yrði því lið-
inu rnikill styrkur.
Oddaleikur um
sænska meistaratitilinn
REDBERGSLID vann Drott 26:23 í gærkvöldi
og jafnaði þar með metin í úrslitakeppni lið-
anna um sænska meistaratitilinn i handknatt-
leik. Drott vann 40:24 í fyrsta ieiknum en
Redbergslid svaraði með 26:21 sigri á heima-
velli. Drott hafði betur í þriðja leiknum, 26:21,
en Redbergslid sigraði aftur heima í gær-
kvöldi og verður hreinn úrslitaleikur á heima-
velli Drott á morgun.
Steve Davis tapaði
í 1. umferð HM
STEVE Davis, sexfaldur heimsmeistari í
snóker, tapaði óvænt í fyrstu umferð heims-
meistarakeppninnar í Sheffield í Englandi í
gærkvöldi. Bretinn Andy Hicks, sem tekur
þátt í HM í fyrsta sinn, gerði sér lítið fyrir
og vann kappann 10-7. „Ég var sem sofandi
í fyrradag og það var dýrkeypt," sagði Davis
sem var 6-3 undir eftir fyrri keppnisdaginn.
„Sennilega var ég of taugaóstyrkur og ég
einbeitti mér ekki nógu vel en ég er ánægður
með baráttuna seinni daginn. Hins vegar
finnst mér stundum að það taki mig æ meiri
tíma að ná upp rétta keppnisandanum.“ Hicks,
sem er númer 33 á heimaafrekalistanum,
mætir landa sínum Willie Thorne í 2. umferð
sem hefst á föstudag.
SKIÐI: OLAFUR TVOFALDUR MEISTARIISJOUNDA SINN / B3