Morgunblaðið - 19.04.1995, Síða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Glæsilegt mark
hjá Sammer
Dortmund hefur náð eins stigs for-
skoti á Werder Bremen
MATTHIAS Sammer var hetja Dortmund — þegar hann skoraði
sigurmark liðsins, 2:1, gegn Karlsruhe með skoti af 25 m færi
þegar fjórar mín. voru til leiksloka. Dortmund, sem stefnir á sinn
fyrsta meistaratitil frá 1963, var undir 0:1 þegar fimmtán mín.
voru til leiksloka. Þá jafnaði Michael Zorc úr vítaspyrnu, en
þess má geta að Claus Reitmaier, markvörður Karlsruhe, varði
vftaspyrnu frá Zorc á sfðustu mín. leiksins.
Dortmund er með eins stigs for-
skot á Werder Bremen, sem
varð að sætta sig við jafntefli, 1:1,
gegn Köln. Varnarleikmaðurinn
Alfons Higl skoraði jöfnunarmark
Köln á síðustu mín. leiksins. Frank
Neubarth skoraði sitt fyrsta mark
í vetur og jafnframt fyrsta mark
Bremen í Köln síðan 1989, á 68.
mín. Þess má geta að Bremen hef-
ur ekki unnið í Köln í ellefu ár, eða
síðan 1984. Heppnin var ekki með
gestunum, því Marco Bode átti skot
sem hafnaði á þverslá og Bernd
Hobsch skalla sem rétt strauk
stöng. Þá varð Bremen að sjá á
eftir Egyptanum Hani Ramzy af
leikvelli — hann meiddist eftir sam-
stuð við Toni Polster.
Fyrirliðinn Uwe Spies skoraði
bæði mörk Freiburg — spútnikliðs-
ins í Þýskalandi, þegar það vann
Hamburger 2:1. Rudi Völler tryggði
Bayer Leverkusen sigur, 1:0, gegn
Bayer Uerdingen með marki úr
vítaspyrnu á 18. mín.
Bayem Miinchen vann Frankfurt
5:2. Matthias Ohms, forseti Frank-
furt, var ekki ánægður með liðs-
skipan Bayern og ætlar að kæra
til þýska knattspymusambandsins;
ákvæði er í reglum þess um að þrír
áhugamenn geti leikið með liði í
deildarleik hvetju sinni. Þrír voru í
byrjunarliði Bayern á laugardag og
Trappatoni þjálfari liðsins gerði
mistök er hann skipti þeim fjórða
inn á, án þess að taka einn hinna
þriggja af velli í staðinn. Forráða-
menn Bayern fengu leyfi hjá knatt-
spyrnusambandinu til að nota fjóra
áhugamanna í leik í fyrri viku,
vegna þess hve margir leikmanna
félagsins em meiddir, en láðist að
sækja aftur um leyfi fyrir leikinn
gegn Eintracht. Því gæti farið svo
að Frankfurt yrði dæmdur sigur —
og liðið fengi bæði stigin.
IAN Wright, miðherji Arsenal var í sviðsljósinu um páskana — skoraði fimm mörk í tveimur li
myndinni er Paul McGrath búinn að fella hann á Villa Park, þar sem Arsena
íttémR
FOLK
Man. City skeltti Blacl
Þegarfjórar umferðireru eftir hefur Blackburn fimm stiga forskot á M;
LEIKMENN Blackburn fóru illa að ráði sínu á heimavelli, Ewood
Park, á mánudagskvöld, þar sem þeir máttu sætta sig við tap
fyrir Manchester City, 2:3. Fyrr um daginn hafði Manchester
United aðeins gert jafntefli, 0:0, gegn Chelsea heima, þannig
að leikmenn Blackburn gátu haldið átta stiga forskoti sínu, með
sigri. Þeim tókst það ekki og þegar fjórar umferðir eru eftir, er
munurinn aðeins fimm stig.
■ GERRY Francis, framkvæmda-
stjóri Tottenham, segir að Jiirgen
Klinsmann hafí hug á að vera
áfram hjá félaginu næsta keppnis-
tímabil. „Hann verður áfram í her-
búðum Tottenham næsta keppnis-
tímabil," sagði Francis. „Klins-
mann hefur sagt bæði mér og Alan
Sugar (eiganda félagsins) að hann
yrði áfram næsta tímabil. Við eigum
ekki von á því að hann gangi á bak
orða sinna,“ sagði Francis.
■ MÖRG félög hafa áhuga á að
fá Klinsmann til liðs við sig, eins
og AC Milan, Borussia Dortmund
og Bayern Miinchen. Franz Beck-
enbauer, forseti Bayern, hefur
sagt að Klinsmann væri velkominn.
■ „ÞAÐ er mikil heiður fyrir mig
þegar maður eins og Franz segist
vilja fá mig,“ sagði Klinsmann,
sem er með það í samningi sínum,
að ef Tottenham nær ekki að
tryggja sér Evrópusæti næsta
keppnistímabil, geti hann farið frá
félaginu.
■ KLINSMANN segir að það sé
mikilvægt fyrir sig að leika í
Evrópukeppni. „Það er þó mikil-
vægara fyrir Tottenham að leika
í Evrópukeppni."
■ NÍGERIUMAÐURINN Daniel
Amokachi skoraði tvö mörk fyrir
Everton, sem vann Newcastle,
2:0, á föstudaginn langa. Amokac-
hi, sem lék sinn þriðja leik síðan
Joe Royle tók við Everton í jan-
úar, skoraði einnig tvö mörk þegar
Mersey-liðið tryggði sér rétt til að
leika bikarúrslitaleikinn á Wembl-
ey, með því að vinna Tottenham
4:1.
■ IAN Wright skoraði þrennu fyr-
ir Arsenal, þegar liðið lagði
Ipswich að velli, 4:1 á Highbury.
Wright skoraði mörkin sín á níu
mín. leikkafla.
■ SKOSKI Jandsliðsmaðurinn
Duncan Ferguson hjá Everton,
lék á ný gegn Sheffield Wed. á
mánudaginn, eftir fjögurra leikja
bann. Hann fór meiddur af leikvelli
og þarf að fara í uppskurð vegna
kviðsslits.
Grenjandi rigning var þegar leik-
urinn fór fram og mættu leik-
menn City ákveðnir til leiks, enda
á fallhættusvæði. Það voru fyrirlið-
inn Keith Curle, sem skoraði úr
vítaspyrnu, Þjóðveijinn Uwe Rösler
og gamla kempan Paul Walsh sem
skoruðu mörk City. Heimamenn
byijuðu leikinn með látum og skor-
aði Alan Shearer eftir aðeins sjö
mín. og síðan kom Colin Hendry
Zamorano hefur skorað 24 mörk
og er markahæstur — með
fjögurra marka forskot á Meho
Kodro hjá Real Sociedad. Michael
Laudrup átti heiðurinn af fyrra
markinu — náði að leika á leik-
manninn, sem elti hann eins og
skuggi, og sendi knöttinn til Za-
morano, sem skoraði. Hann skoraði
seinna markið úr aukaspyrnu.
Deportivo La Coruna vann Real
Sociedad, 3:1, en Barcelona varð
að sjá á eftir enn einu stiginu í
meistarabaráttunni — gerði jafn-
tefli við Real Oviedo, 0:0. Fran
Gonzalez, fyrirliði La Coruna, skor-
aði tvö mörk og Brasilíumaðurinn
Bebeto eitt. „Það er erfitt að ná
Real Madrid, þar sem liðið er ekki
þeim aftur yfir, 2:1. Rösler jafnaði
fyrir City, 2:2, á 57. mín. og sigur-
mark Walsh kom á 71. mín.
Fyrr um daginn hafði Manchest-
er United tapaði dýrmætum stigum
á Old Trafford, þegar Chelsea kom
í heimsókn, 0:0. Þetta var annað
markalausa jafnteflið hjá United á
heimavelli í röð. Heimamenn gerðu
harða hríð að marki Chelsea undir
lok leiksins og náði fyrirliðinn Steve
líklegt til að tapa mörgum leikjum.
Við höldum þó í vonina," Arsenio
Gonzalez, þjálfari La Coruna.
Meðal áhorfenda í San Sebastian
var John Toshack, fyrrum þjálfari
Real Sociedad, sem tekur við af
Gonzalez hjá La Coruna næsta
keppnistímabil.
„Þetta var lélegur leikur, en
sanngjörn úrslit,“ sagði Ronald
Koeman, eftir að Barcelona hafði
gert jafntefli, 0:0, í Oviedo. „Þeir
fengu fleiri tækifæri, en ekki
hættuleg.“ Barcelona komst næst
því að skora þegar skot Hristo Sto-
ichkovs var varið á marklínu. Barc-
elona er átta stigum á eftir Real
Madrid þegar níu umferðir eru eft-
ir á Spáni.
Bruce að skalla knöttinn í netið,
en markið var dæmt af vegna rang-
stöðu.
Leikmenn Arsenal eru búnir að
pússa skotskóna — þeir unnu
Ipswich heima, 4:1, á laugardaginn
og skoruðu einnig fjögur mörk á
Villa Park á annan í páskum, þar
sem þeir unnu 0:4. Ian Wright og
32 leikja sig-
urganga
Nantes
stöðvuð
LEIKMENN Nantes máttu
þola sitt fyrsta tap á keppnis-
tímabilinu, 0:2, gegn Strasbo-
urg. Þar með endaði sigur-
ganga Nantes, sem hafði leik-
ið 32 leiki án þess að tapa,
sem er met í Frakklandi.
Þrátt fyrir tapið getur fátt
komið I veg fyrir að Nantes
vinni sinn fyrsta meistaratitil
frá 1984, þar sem liðið er með
elJefu stiga forskot á Lyon,
sem á leik til góða, en aðeins
fimm umferðir eru eftir.
Síðasta vika var söguleg
fyrir Strasbourg — þjálfari
liðsins, Svisslendingurinn
Daniel Jeandupeux, var rek-
inn, þá kom sigur gegn Metz
i undanúrslitum bikarkeppn-
innar og síðan sigurinn gegn
Nantes.
Enn á ný tefldi París St
Germain fram varaliði sínu,
þar sem leikmenn aðalliðsins
voru hvíldir fyrir Evrópuleik
gegn AC Milan í Milanó á
morgun. Varaliðsmennirnir
fögnuðu sigri, 3:0, gegn
Montpellier.
John Hartson skoruðu sín hvor tvö
mörkin — Wright skoraði fimm
mörk á þremur dögum fyrir Arse-
nal. Dean Saunders hjá Aston Villa
misnotaði vítaspyrnu í leiknum.
Hollendingurinn Jerome Boere
skoraði jöfnunarmark West Ham,
1:1, gegn Ipswich þegar venjulegur
leiktími var úti.
Newcastle tapaði öðrum leik sín-
um i röð á fjórum dögum — og
fyrsta leiknum á heimavelli í fimmt-
án mánuði, þegar Leeds kom í heim-
sókn á St. James’ Park. Öll mörkin
voru skoruð á sex mín. kafla í fyrri
hálfleik. Gary McAllister, fyrirliði
Skotlands, skoraði fyrst fyrir Leeds
úr vítaspyrnu á 25. mín. Robbie
Baggio
Juventi
Roberto Baggio lék aðalhlutverk-
ið hjá Juventus, sem færðist
nær ítalska meistaratitlinum með
því að leggja Reggiana að velli 2:1
á laugardaginn. Baggio skoraði
bæði mörk Juventus, sem hefur ell-
efu stiga forskot á Parma þegar
sjö umferðir eru eftir á Ítalíu. Ju-
ventus hefur ekki orðið meistari
síðan 1986.
Baggio varð fyrsti leikmaðurinn
til að skora tvö mörk á nýjum lei-
kvelli Reggiana — Giglio-vellinum,
sem kostaði 975 millj. ísl. kr. Hann
skoraði fyrra mark sitt eftir sex
mín. og annað á 47. mín.
Inter Mílanó vann nágrannaslag-
inn gegn AC Milan, 3:1, og var
þetta fyrsti sigur Inter á AC Milan
síðan í nóvember 1990. Andrea
Seno, Hollendingurinn Wim Jonk
og Nicola Berti skoruðu fyrir Inter,
en Giovanni Stroppa fyrir AC Milan.
Inter hefur ekki tapað í síðustu
Real Madrid
gefur ekkert eftir
IVAN Zamorano, landsliðsmiðherji Chile, skoraði bæði mörk
Real Madrid, þegar liðið lagði nágrannaliðið Atletico Madrid að
velli, 2:0. Real gefur ekkert eftir í meistarabaráttunni — er með
sex stiga forskot á La Coruna og ætlar sér fyrsta meistaratitilinn
frá 1990.