Morgunblaðið - 27.05.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.05.1995, Blaðsíða 2
2 D LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Galdurinn að baki Ber- línar sinfóníunni vert er leyndarmál bestu sinfóníuhlj ómsveitar heims, spurði blaðamaður The Daily Telegraph nýverið og fékk aðalstjórnandann, ítalann Claudio Abbado, til að svara spumingunni um galdurinn að baki Berlínarsinfóníunni. „NU, fyrst og fremst eindrægni í hljómsveitinni," segir stjómand- inn. „í fyrsta lagi hafa allir tíma til að leika kammertónlist auk þess að leika í hljómsveitinni og hlusta þannig hver á annan; njóta samver- unnar. Fyrir vikið mæta menn full- ir eldmóðs á æfíngar. Það að leika í hljómsveitinni er ekki eins og hvert annað starf.“ Þá nefnir Abbado ungan aldur hljóðfæraleikaranna en fjórðungur þeirra gekk til liðs við hljómsveitina eftir brotthvarf Herberts von Karajans, sem lést árið 1989. Sá sem leikur á fyrstu flautu er 22 ára, fyrsti sellóleikari er ungur, svo og fyrstu klarinett-, óbó- og hom- leikaramir. Margir stigu sín fyrstu spor í Evrópusambandshljómsveit ungs fólks og Gustav Mahler sinfó- níuhljómsveit ungs fólks. Abbado er að vonum stoltur, enda stofnaði hann báðar hljómsveitirnar. Nú uppsker hann ríkulega af þeim tón- listarfræjum sem hann sáði. Berlínarsinfónían hefur notið mikils velvilja borgaryfirvalda í Berlín, sem hafa ekkert til sparað svo að starfsemi hennar gangi sem best. Sem dæmi má nefna að fjár- framlög til fjögurra sinfóníuhljóm- sveita Lundúnaborgar eru aðeins fjórðungur þess sem Berlínarsin- fónían hefur úr að moða. Þá má ekki gleyma því að þó að Berlínar- sinfónían sé aðalhljómsveit borgar- Claudio Abbado aðal- stjómandi hljómsveit- ar, sem af mörgum er talin sú besta í heimi, segir lykilinn að leynd- armálinu liggja í sátt og samlyndi hljóð- færaleikaranna CLAUDIO Abbado: Það sem meistarinn vill, það fær hann. innar er hún ekki sú eina, auk henn- ar rekur borgin sex aðrar sinfóníu- hljómsveitir og þijú óperuhús. Sem dæmi um velviljann sem Berlínarsinfónían nýtur nefnir Abbado nýlegt dæmi. Þegar aug- lýst var eftir nýjum stjómanda við hljómsveitina fyrir skömmu, þóttu tveir umsækjendur bera af og nær útilokað að gera upp á milli þeirra. Abbado brá sér því á fund borgar- ráðs Berlínar, sem ákvað að ráða báða. Það sem meistarinn vill, það fær hann. Bestur Það orkar vissulega tvímælis að fullyrða að tiltekin hljómsveit sé „best“. Breskum gagnrýnendum, sem hlýddu á flutning hennar á níundu sinfóníu Mahlers fyrir skömmu, blandaðist þó ekki hugur um að betur yrði ekki gert. Abbado yppir öxlum þegar þetta er borið undir hann. „Mahler sinfónía er eins og ópera, fjallar bæði um líf og dauða. Það kann að vera ástæð- an fyrir því að Mahler höfðar svo til ungs fólks." Þrátt fýrir velgengni Abbados hefur hann ekki farið varhluta af gagnrýni. Einna dýpst í árinni tók stjómandi sinfóníuhljómsveitar Cleveland, Christoph von Do- hnányi, sem sagði nýverið að Abbado væri slæmur stjómandi, honum léti illa að æfa hljómsveit- ina, hann segði ekkert um frammi- stöðu hljóðfæraleikaranna sem spil- uðu og spiluðu en tækju engum framförum. Það er ekki laust við að það gæti kaldhæðni í svari Abbados er þessar ávirðingar eru bornar upp á hann. „Hver?“ segir hann og þegir stundarkorn. „Veistu, Dohnányi hlýtur að vera frábær tónlistarmaður fyrst hann stjómar Cleveland sinfóníunni. Og ég að sama skapi óheppinn. Ég hef aðeins tvisvar sinnum heyrt hljóm- sveitina leika. Kannski var það verkefnavalið. Eða undirbúningur- inn. Ég var ekki sérlega hrifinn," segir Abbado og beinir talinu að þeim áhugamálum sem eiga hug hans allan þegar tónlistinni sleppir; ítalskri matargerð og knattspyrnu. Samstarfsverkefni norskra og íslenskra kennaranema Setja söngleik á svið í Tónabæ NEMENDUR í Kennarahá- skóla íslands og Kennara- háskólanum í Elverum í Noregi frumsýna á morgun söng- leikinn „Music Avenue“ í Tónabæ. Hugmyndin að samstarfinu er runnin undan rifjum norsku nem- anna og sóttu þeir fé til íslandsferð- arinnar í sjóði Nordplus. Á fjórða tug leikara og söngvara taka þátt í sýningunni auk fimm manna hljómsveitar. „Music Avenue“ byggir á brotum úr mörgum kunnum söngleikjum sem saman mynda eina heild. Höfðu norsku nemamir veg og vanda af því að raða brotunum saman en sögusviðið er stræti sem er óháð tíma og rúmi. Hóparnir hafa um skeið æft hvor í sínu lagi en Norðmennimir komu til landsins síðastliðinn mánudag. Síðan hefur verið mikill handagang- ur í öskjunni í Tónabæ, að sögn Morgunblaðið/í>orkell KENNARANEMARNIR feta meðal annars i fótspor Johns Travolta og Oliviu Newton- John í söngleiknum „Music Avenue“. Kristínar Valsdóttur sem fer fyrir íslenska hópnum. „Þetta hefur verið alveg ótrúlega skemmtilegt og von- andi er þetta bara byijunin á sam- starfi af þessu tagi.“ Kærkomið tækifæri KHÍ tekur ekki á hveijum degi þátt í uppfærslum á söngleikjum. Kristín segir að þetta tækifæri hafi því verið kærkomið, ekki síst fyrir tónmenntakennaranemana sem em fjölmargir í hvomm hópi um sig. Hún segir jafnframt að kennarar þurfi að vera fjölhæfír og markmið- ið með uppátækinu sé að þeir öðlist reynslu. Söngleikurinn „Music Avenue" verður einungis sýndur í tvígang hér á landi en norsku nemamir fara af landi brott á miðvikudag. Fyrri sýningin verður klukkan 17 á morg- un, sunnudag, og sú síðari á mánu- daginn klukkan 20.30. FERÐ út í sveit frá 1953 eftir franska málarann Fernard Léger. Sígild list í kjölfar stríðs SKIPULEGGJEND- UR mikillar listsýn- ingar, sem nýhafín er í Barcelona, „Evrópa eftir stríð 1945- 1965“, halda því fram að verk þeirrar kyn- slóðar sem þar era sýnd muni teljast sí- gild innan4‘fárra ára. „Ég tel að þeir lista- menn sem við kynnum nú séu við það að verða næsta kynslóð þeirra sem skapað hafa nútíma sígild verk,“ segir Thomas Messer, sem umsjón hefur með uppsetn- ingu sýningarinnar í samtali við The European. Á sýningunni em 527 verk eft- ir höfunda frá 27 löndum. Nefnd fulltrúa frá fjölda landa vann í þijú ár við að velja verk á sýning- una, sem er skipt niður í högg- myndir, ljósmyndir, málverk og arkitektúr. Hafa skipuleggjendur sýningarinnar gætt þess að ein- skorða sig ekki við ákveðin þemu á sýningunni, enda hafí geysilegr- ar íjölbreytni gætt í listsköpun á þessum tíma. Ætlun þeirra er að draga fram dæmi um það besta sem gert var. Á áranum 1945-1965 varð myndlist æ óaðgengilegri og mörg verkanna náðu á sínum tíma nær eingöngu til lítils hóps listunnenda og sér- fræðinga. Þá vilja skipuleggjendur sýna að verk heimsþekktra listamanna sem unnu verk á þessum áram, eins og Picasso, Henry Moore og Braque, eigi í raun ýmislegt sameigin- legt með verkum manna sem talin era skör neðar. Meðal þeirra má nefna Jean Dubuffet, George Mathieu og Antoni Tápie. „Við héldum að við myndum sjá tvær meginlínur, annars vegar verk manna sem byijuðu fyrir stríð og þróuðust áfram og síðan verk nýrrar kynslóðar manna á borð við Dubuffet," seg- ir Luis Monreal, formaður Caxia- listsjóðsins, sem stendur að sýn- ingunni. „Þetta reyndist ekki rétt. Áhrifa einnar stefnunnar gætir í annarri, þrátt fyrir það hversu ólíkar þær vora. Þá voru mun vandaðri en talið var.“ Sýningin er á vegum Caxia- listsjóðsins, sem var stofnaður árið 1990 í kjölfar samruna tveggja stórra spænskra banka. Sjóðurinn hefur frá upphafí ein- beitt sér að því að sýna þau verk sem einhverra hluta vegna ltafa ekki átt inni hjá hefðbundnum listasöfnum. MAURASTÓLL eftir danska hönnuðinn Ame Jacobsen frá 1951. PRESTAR leika knattspymu eftir Ramón Masats. Tekin í Madríd 1957. Norðmenn hafa eignast sakamálahöfund, sem á ýmislegt skylt með hinu sænska Sjöwall og Wahlöö-tvíeyki Glæpir með félagslegu ívafi MAFÍAN hefur náð tökum á stærsta þorpi heims, eins og Ósló hefur gjaman verið nefnd. Sú er að minnsta kosti raunin í fyrstu bók nýjasta sakamálahöfundar Noregs, Anne Holt, sem ber heitið „Blinda gyðjan". Hefur Holt fengið frábærar viðtökur í Noregi, bæði hjá gagnrýnendum og lesendum, sem hafa hlaðið tvær fyrstu bækur hennar lofi. Holt vinnur nú að þeirri þriðju og dreymir um að snúa sér næst að skrifa barnabækur en í samtali við Politiken segir hún ekki vanþörf á að hrista upp í þeirri bókmenntagrein þar sem barnabækur séu flestar hundleiðinlegar. Holt hefur starfað sem blaðamaður og lög- reglufulltrúi og í bókum hennar er Ósló hreint ekki lýst sem sakleysislegu sveitaþorpi, held- ur stórborg þar sem eiturlyijasalar og illa innrættir lögmenn vaða uppi. Sjálf er Holt lögfræðingur og þekkir því vel til þess hvem- ig hlutirnir ganga fyrir sig á bak við tjöldin. Eins og marga blaðamenn dreymdi Holt um að skrifa skáldsögu og ákvað að nýta sér þekkingu sína úr lögreglunni til að byggja fyrstu bók sína á. Aðalsöguhetjan er lögreglu- konan Hanne Wilhelmsen, sem er lesbTsk en það hefur vakið mikið umtal í Noregi. „Saka- málasögur era einkar vel til þess fallnar að vekja athygli á því sem á sér stað í þjóðfélaginu," segir Holt. „Menn tengja eiturlyfjasölu til dæmis aðallega við útlendinga en ég vildi sýna fram á að Norð- menn sjálfír ættu þar ekki síður hlut að máli. Skipuleg glæpasam- tök hafa náð fótfestu í Noregi að mati lögreglunnar þó að ekki séu allir á þeirri skoðun." Holt er ekki síður gagmýnin á starfsemi lögreglunnar en af- brotamannanna og tekur m.a. fyrir hversu erfitt er að fá lög- regluna til að taka fyrir kynferðisafbrot og kynþáttafordóma innan lögreglunnar. Hún dregur þó ekki dár að fyrram samstarfsmönn- um sínum, heldur dregur upp mynd af ósköp venjulegu fólki sem er jafngáttað á þeirri illsku sem fyrirfinnst og aðrir. Holt viðurkennir að hún hafi verið full fordóma er hún hóf störf í lögreglunni en segir að hún hafí þurft að eta þá alla ofan í sig. Gagnrýnendur í Noregi hafa séð margt sameiginlegt með verkum Holt og bandarískra starfssystra hennar en sjálf seg- ist hún vera hrifnust af bókum breskra höfunda og nefnir sem dæmi Minette Walters. Þá slær hún ekki hendinni á móti verk- um norrænna höfunda á borð við Anders Bodelsen, sem ís- lenskum dönskunemum er vel kunnur, og sænska tvíeykisins Sjöwall og Wahlöö, sem hún á ýmislegt sameiginlegt með. Anne Holt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.