Morgunblaðið - 27.05.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.05.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995 D 5 fá mig til að skilja sig. Henni fannst enginn hafa skilið sig fram að þeim tíma. Það var eins og allar flóðgátt- ir opnuðust og hún talaði og talaði. Það hvarflaði aldrei að henni að sög- urnar yrðu að bók. Ekki mér heldur á þeim tíma. Mér þóttu þær bara svo áhugaverðar og vildi vita meira um formæður mínar og þess vegna fékk ég móður mína til að tala inn á band þegar ég var að vinna. Hún dvaldi hjá mér í sex mánuði og þegar upp var staðið átti ég sextíu klukku- stundir af efni. Það var mikill léttir fyrir hana að fá að tala og það er ekki bara líf hennar í Kína sem hefur breyst. Hún sjálf hefur gerbreyst. Áður var hún alltaf svo eirðarlaus og þvinguð. En núna þegar hún finnur að ekki bara ég heldur allur heimurinn skilur hana, er hún alsæl - og hún er full- komlega jafnvæg og hamingjusöm.“ Systir Jung Chang býr enn í Kína og hugsar um móður þeirra. Tveir bræður búa í Bretlandi og einn í Frakklandi. „Það er mjög mikið og sterkt samband milli okkar allra. Annar bróðir minn sem býr í Bret- landi þýddi bókina á kínversku og það er sú þýðing sem var gefin út í Hong Kong og Taíwan. Við tölum saman annan hvorn dag að minnsta kosti. Hann er blaðamaður er hefur tekið við ritsjórn kínverks dagblaðs sem er gefið út í Bretlandi." Hvað geturðu sagt mér um næstu bók þína, ævisögu Maós? „Við höfum verið að vinna að henni í tvö ár og eigum að minnsta kosti tvö ár eftir. Okkur hefur tekist að grafa upp ótrúlegt efni. Þegar ég skrifaði Villta svani skildi ég Maó alls ekki en í dag finnst mér ég skilja hann - og þá meina ég sálfræði- lega. Það vantar auðvitað marga bita ennþá í púsluspilið en myndin af honum er að verða nokkuð skýr. Við Jon vinnum mjög vel saman. Ég vissi það reyndar áður en við byrjuðum á þessu verkefni, því hann hjálpaði mér mjög mikið með Villta svani. En þetta er skemmtileg vinna. Við erum eins og tveir njósnarar, alltaf að reyna að finna út „hver gerði hvað;“ síleitandi að forsendum, ástæðum, orsökum, afleiðingum. Þetta er spennandi og við erum svo heppin að hafa nægan tíma til að einbeita okkur. Það sem hefur komið okkur á óvart er þessi skilningur á Maó, hvert er hreyfiafl hans: Hvers vegna hann gerði vissa hlut og hvemig. Bókin er mjög óh'k Villtum svönum sem segir frá því hvernig fólk lifði undir harðstjórn hans. En það ákveður enginn að verða harðstjóri bara til að vera harðstjóri. Það segir enginn, hvorki Stalín, Hitler né Maó: „Ég ætla að skaða þjóð mína og veröld- ina.“ Maó hélt, eins og hinir að hann hefði sérstakt hlutverk í heiminum og var með hálfbakaða hugsjón til að framfylgja því. Honum var and- skotans sama um þær mannlegu fórnir sem þurfti að færa til að fram- fýlgja hugsjóninni. Það snerti hann ekki þótt fjörutíu milljónir létust úr plágu á einu bretti og þótt jafnmarg- ir færust úr hungursneyð. Þrá hans eftir völdum var gríðarlega sterk og hinar skelfilegu áætlanir hans fyrir Kína voru tengd þessari valdaþrá.“ Hver er afstaða kínverskra stjórn- valda til hans í dag? „Það gætir mikillar tvöfeldni. Mjög fáir - og ég mundi fullyrða enginn - myndu vilja lifa aftur við hans stjórn. Ekki einu sinni stjórn- völd. En þeir vilja flagga myndinni af honum. Hann lagði grunninn að kommúnismanum og stjórnvöld vilja ekkert of miklar breytingar. Það væri bylting að taka niður myndina af Maó. Hún er órofa tengd kommúnistastjórn lands- ins og ef þeir leyfa afneit- un á Maó, tapa þeir grund- velli kommúnistaflokks- ins.“ í Villtum svönum kemur fram að kona hans hafi ekki haft minni völd en Maó sjálfur. „Það hefur nú ekki reynst rétt. Hann var alger einvaldur. Hún var hins vegar óhemju grimm og illa innrætt manneskja. Maó nýtti grimmd konu sinnar að fullu og notaði hana til að gera andstyggilega hluti.“ Hafa ekki verið skrifaðar margar bækur um Maó? „Jú, óteljandi, og þær eru allar ein allshetjar lofgjörð. Enda er það svo að ungt fólk í Kína sér hann í miklum ljóma. Það er algerlega ruglað vegna þeirra tvöföldu upplýs- inga sem það fær. Foreldrarnir sem lifðu undir harðstjórn hans segja frá martröðum og hryllingi en svo lesa þau alla þessa upphafningu. Það er mikil framför að fólk skuli geta sagt börnum sínum satt og rétt frá. Það er ekki svo langt síðan enginn þorði að segja börnum sínum neitt, því böm blaðra og enginn tók þá áhættu. Enginn tók heldur þá áhættu að gera börn sín að uppreisnarmönnum. Þegar ég var ung var óhugsandi að foreldrar gerðu börnum sínum grein fýrir þeim hryllingi sem líf þeirra hafði verið. Enginn hefði einu sinni vogað sér að kvarta. Nú má það þó. Hins vegar er það svo að ungt fólk sem er óánægt með núverandi stjórnvöld og þá spillingu sem við- gengst, les allar lofgjörðarbækumar um Maó og stendur fast í þeirri rang- hugmynd að þá hafi allt verið gott; engin spilling, meira jafnrétti og lífið mun auðveldara.“ Heldurðu að þín bók um Maó verði leyfð? „Það er langur tími í að ritskoðun verði aflétt í Kína. Hún er alltaf síð- asti þátturinn. En það kemur. Þróun- in er alltaf í rétta átt.“ MYNPUST Listasafn Rcykjavík- ur - Kjarvalsstaðir IVIÁLVERK Guðmundur Einarsson frá Miðdal Opið alla daga kl. 10-18 til 5. júní. Aðgangur (á allar sýningar) kr. 300 Sýningarskrá kr. 1600 HJÁ OKKUR íslendingum er það fyrst og fremst persónan sem er mælikvarði þeirra hluta sem gerast, og hreyfingar eða almennari þróun er sjaldnast nefnd fyrr en eftir á. Hið sama gildir í listunum; íslensk listasaga er helst rakin sem saga þeirra lista- manna sem mddu brautina, og síðan hinna sem fylgdu á eftir. Hver verð- ugur listamaður á sitt sæti í sögu sem er lýst í ei- lífum hlaupum fram og aftur í tímanum, þann- ig að sjaldnast er staldrað við einn tímapunkt til að ná yfirliti yfir allt sviðið. Samhengi ís- lenskrar lista- sögu er því ekki alltaf ljóst, en hin almenna þróun er kunn. Þannig átti hin íslenska hefð í gerð landslags- mynda nokkuð langa sögu að baki þegar kom að miðri þessari öld, og Guðmundur Einarsson frá Miðdal hafði þar lagt sitt á vogaskálarnar allt frá miðjum þriðja áratugnum. Þegar hann tók að mála vatnslita- myndir sínar um 1950 byggði hann því augljóslega á þeirri hefð fremur en að hann stefni að því að um- breyta því sem tíðkaðist á þessu sviði. Sýningin í vestursal Kjarvals- staða er ein af röð sýninga sem haldnar eru til að minnast aldaraf- mælis hans síðar á þessu sumri, og eru helgaðar hinni fjölbreyttu list sem Guðmundur vann í ýmsa miðla. Efnt hefur verið til sýninga á Akur- eyri, á Grænlandi sem og í höfuð- borginni, og hafa þær vakið umtals- verðan áhuga á þessum listamanni á ný, eftir að list hans hafði legið í þagnargildi um árabil. Vatnslitamyndirnar eru um margt sérstakur kafli í listsköpun Guðmundar, og kemur þar margt til. Guðmundur hafði verið með áhugasömustu ferðamönnum um hálendi íslands í um aldarfjórðung, þegar hann loks hóf að taka vatns- liti með sér og mála á ferðum sín- um. í þessu fylgdi Guðmundur í fótspor Ásgríms Jónssonar, sem málaði mikið með vatnslitum hvert sem hann fór, og helst lagði grunn- inn að þessari grein landslagsmál- unar hér á landi. Einnig ber að líta Glæsi- leiki hefðar- innar til þess að um þetta leyti urðu mestu umskipti sem orðið höfðu í íslenskri myndlist til þess tíma: afstraklistin var að hasla sér völl, og náði á sjötta áratugnum öllum tökum í listalífinu, þrátt fyrir hatramma andstöðu stöku eldri listamanna eins og Guð- mundar, sem fyrir vikið uppskar andstöðu og jafnvel persónulega óvild margra yngri listamanna. Slík staða kann vissulega að hafa litað viðhorf margra til þeirrar listar, sem Guðmundur var að skapa, jafnvel þegar hún nálgaðist í raun mynd- heim afstraklistarinnar, þó undir- staða myndefnisins væri ætíð frá náttúrunni. Á sýningunni getur að líta tæpa sex tugi vatnslitamynda Guðmund- ar frá 1950 fram til 1962. í sýn- ingarskrá bendir Kristín Guðnadótt- ir á að í heild megi greina tvo megin- strauma í þessum myndum. Annars vegar eru myndir sem byggja á tryggð við hina hefðbundnu mynd- byggingu landslagsmyndarinnar, eins og hann hafði lengi unnið í olíuliti; af slíkum myndum má nefna „Útigönguhöfða“ (1955) og „Herðubreið“ sem eru sígild dæmi hefðarinnar um glæstar staðarlýs- ingar. Hins vegar má nefna verk þar sem listamaðurinn fer nær við- fangsefninu - niður á þúfuna í anda Kjarvals - og fyrir vikið leysast formin upp í litaspil, sem ýmist má kenna við árstíðir, veður eða hita. Dæmi um slík verk eru „Laxárgljúf- ur“ (um 1950), „Haustlitir“ og loks „Hauststemning“ (1962), þar sem jafnvel hörðustu afstraklistamenn hefðu átt að finna skyldleikann. Loks má nefna að vatnslitirnir gefa listamanninum tækifæri til að vinna með ljósið, sem aðrir miðlar gáfu ekki. Guðmundur nýtir sér þetta einkum í verkum eins og „Haf- ís við Grænland" (1959), þar sem gegnumlýsingin er áberandi sterk, og jafnvel í mynd eins og „Ás- byrgi" (1956), þar sem klettastálið verður loftkennt og lifandi í bláman- um. Sísta þátt sýningarinnar, og að mati undirritaðs óþarfa viðbót, er að finna í nokkrum mis- jafnlega stirð- legum myndum af fornum torf- bæjum. Sú staðreynd að. margir þessara bæja (t.d. margfrægur „Sölvhóll") voru horfnir af yfirborði jarðar þó nokkru áður en þessi verk voru máluð sýnir að hér lágu önnur við- horf að baki en þau sem snúa að myndgerð- inni, og það rýrir gildi þeirra óneitan- lega. Sýningunni fylgir einföld en vel unnin sýningar- skrá, sem m.a. hefur að geyma nokkurn fjölda ágætlega litgreindra mynda, sem og ritgerð eftir Kristínu Guðnadóttur listfræðing um vatns- litamyndir Guðmundar. Kristín vitn- ar nokkuð í viðtöl listamannsins og greinir ágætlega helstu þræði í myndum hans og viðfangsefnum; það sem helst mætti nefna að vanti er nokkur samanburður við það sem aðrir listamenn voru að fást við á þessu sviði, t.d. Ásgrímur Jónsson og jafnvel Jóhannes Kjarval, sem einnig voru stöðugt að takast á við landið og náttúruna í verkum sínum. Sérstaða og gildi framlags einstakra listamanna kemur oft sterkast fram í slíkum samanburði, og hefði verið fróðlegt að kynnast verkum Guð- mundar enn betur í slíku ljósi. Menn fá best notið vatnslita- mynda Guðmundar frá Miðdal með því að skoða þær milliliðalaust, því ljósmynd á bók nær aldrei að fanga fínustu eiginleika þessa miðils. Deil- ur samtímans eru þagnaðar, ægi- vald hinnar réttu stefnu (hver sem hún er á hveijum tíma) er gufað upp, pólitískir sem og listpólitískir andstæðingar horfnir. Eftir standa myndirnar, glæsileg vitni um sterka landslagshefð í höndum ágæts lista- manns, sem rétt er að hvetja sem flesta til að nota tækifærið og njóta hér. Eiríkur Þorláksson Þær þrjár kynslódir kvenna sem sagan fjallar um segja þó meira en sína eigin sögu. Þær segja sögu kínversku þjóð- arinnará þessari öld. GUÐMUNDUR Einarsson: Útigöngnhöfði. 1955. kaupa til að mynda sinfóníur Brians Havergals þó þær kostuðu mun minna,“ segir hann. Þumalputtareglan er að ef verkið er ekki til á diski, eða upptakan sem til er léleg eða mjög gömul, þá gef- um við verkið út á Marco Polo, en annars á Naxos. Sem dæmi má nefna sinfóníur Rimskíjs Korsakovs. Fyrir fjórum árum hefðum við gefið þær út á Marco Polo, en nú gefum við þær út á Naxos. Sama má segja um sinfóníur Gliéres, fyrst Chandos hefur gefið þær út, gefum við þær út á Naxos í fullri samkeppni," seg- ir hann ákveðinn, en það hefur einn- ig gerst að seljist Marco Polo- útgáfa mjög vel færir Heymann útgáfuna á Naxos til að fylgja vel- gengninni eftir. Ekki að verða uppiskroppa Útgáfur Marco Polo eru á fjórða hundrað, en Heymann segist ekki vera að verða uppiskroppa með verk sem vert sé að gefa út. „Það, eru eflaust hundruð þúsunda verka sem JOSEPH Joachim var einn fremsti fiðluleikari síns tíma og góðvinur Brahms, sem til- einkaði honum ýmis verk. Hann samdi einnig afbragðs fiðlukonsert sem Marco Polo hefur gefið út. BRIAN Havergal var breskt tónskáld sem samdi grúa verka og var sífellt að fram undir nírætt, en tíundu sinfóníu sína samdi hann 87 ára. Þegar hann lést 96 ára hafði hann lokið við 22 til viðbótar. ekki hafa verið gefin út, en sem ættu að fá að heyrast. Það má líkja þessu við listasöfn, því í þeim þús- undum listasafna sem'til eru í heim- inum eru örfá meistaraverk, en grúi verka minni spámanna sem eru þess virði að skoða. Venjan í tónlistarút- gáfu hefur verið að sýna aðeins meistaraverkin, sem gerir fólki erf- itt fyrir að skilja hvað það er sem gerir þau svo merkileg. Éins er með tónlistina; þegar aðeins sjást tind- arnir gerir enginn sér grein fyrir því hvað sé svo merkilegt við fjöll- in.“ Engin heiidarútgáfa Beethovens „Naxos á líka allmikið eftir í út- gáfu, til að mynda á heildarútgáfa á verkum Hayds eftir að halda okk- ur við efnið í nokkur ár, gríðarlega mikið liggur eftir Telemann, sem aldrei hefur verið gefíð út og til að mynda er ekki einu sinni til heildar- útgáfa á verkum Beethovens, þó það geti virst undarlegt. Við eigum eftir að gefa út í 30 til 40 ár í viðbót að minnsta kosti.“ Nax-os útgáfan gerði nýverið samning við Sinfóníuhljómsveit ís- lands um að hljómsveitin taki upp verk eftir Síbelíus og Heymann færir í tal að hann hafi áhuga á að gefa út íslenska tónlist á Marco Polo. „Ef tónlistin er áhugaverð vil ég gjarnan gefa hana út, sérstak- lega ef ekki er búið að gefa hana út nú þegar. Ég þekki því miður ekki mikið til íslenskra tónskálda," segir Heymann og bætir við að hann treysti á sambönd við dreifingarað- ila Marco Polo í hverju landi fyrir sig, að þeir bendi honum á eitthvað sem vænlegt er til útgáfu. Við þá útgáfu segist hann mundu nota ís- lenska listamenn, enda þekki hann vel til Sifnóníuhljómsveitar íslands, til að mynda, sem muni hljóðrita fyrir Naxos verk Síbelíusar á næstu árum. „Og ef verkin seljast vel á Marco Polo, gæti eins farið að ég gæfi þau út á Naxos,“ segir hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.