Morgunblaðið - 30.05.1995, Qupperneq 1
A<?
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHtwgnfiIribifcÍto
B
1995
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ
BLAÐ
FRJALSIÞROTTIR
Glæsilegur árangur Jóns Arnars Magnússonar
Magnús í stað
Marteins sem
þjálfari Fram
í GÆR var ákveðið að Marteinn Geirsson hætti
sem þjálfari 1. deildar liðs Fram í knattspyrnu
og jafnframt var gengið frá ráðningu Magnús-
ar Jónssonar í hans stað. Marteinn sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að hann og fleiri
hefðu verið ósáttir með byrjun liðsins í íslands-
mótinu og það hefði orðið að samkomulagi að
hann hætti sem þjálfari liðsins.
„Mér fannst þetta vera að koma í síðasta
leik, við fengum ekki á okkur mark og hug-
myndin var að færa sig framar í næsta ieik.
Það býr meira í Framliðinu en það hefur sýnt
en við höfum verið að bíða eftir Kristni Hafliða-
syni sem er að ná sér eftir meiðsl. Ég hefði
viljað enda þetta öðruvísi en ef þetta er betra
fyrir Fram þá er það gott og ég vona að Magn-
ús nái þvi út úr liðinu sem í því býr.“
Magnús hefur þjálfað yngri flokka hjá Fram
en var aðstoðarmaður Bjarna Jóhannssonar
þjá 1. deildar liði Breiðabliks þar til í gær.
á
Morgunblaðið/Bjarni
JÓN Arnar Magnússon setti glæsilegt íslandsmet í tugþraut í Austurríki um
helgina og var aðeins 166 stfgum frá Norðurlandametinu. Jón Arnar, sem
hér er í 110 m grindahlaupi, setti einnig íslandsmet í þeirri grein.
■ Þróun íslands-
metsins / B2
■ Úrslit / B10
Island
JÓN Arnar Magnússon, UMSS,
setti tvö glæsileg íslandsmet á
alþjóðlegu tugþrautarmóti í
Götzis í Austurríki um helgina.
Hann bætti eigið met ítug-
þraut um 341 stig, hlaut 8.237
stig og hafnaði í 5. sæti af 36
keppendum og varaðeins 166
stigum frá Norðurlandametinu.
Hann bætti einnig eigið met í
110 metra grindahlaupi um
4/100 hluta úr sek. er hann
hljóp á 14,32 sekúndum.
Jón Arnar var í öðru sæti eftir
fyrri dag keppninnar. Hann
setti íslandsmet í grindahlaupi og
setti persónulegt met í stangar-
stökki, 400 metra hlaupi og kúlu-
varpi. Hann sagðist ánægður með
allar greinarnar nema 1.500 metra
hlaupið. Þess má geta að Jón Arnar
var á undan tveimur mjög þekktum
tugþrautarmönnum; Frakkanum
Christian Plaziat, sem varð Evrópu-
meistari 1990 varð sjötti og Tékk-
anum Robert Zmelik, sem varð
Ólympíumeistari 1992, en hann
varð í 13. sæti.
„Ég er mjög ánægður með þenn-
an árangur og hann kemur íslandi
á kortið í tugþrautinni. Nú þegar
ég hef náð yfir átta þúsund stig
er tekið eftir mér. Þetta vai gríðar-
lega erfitt og það var alveg búið á
tanknum í síðustu greininni. Ætli
það taki mig ekki þijár vikur á ná
mér upp á sama plan eftir þessi
átök. Þessi árangur segir mér að
æfingarnar hafa skilað sér og það
var þess virði að leggja mikið á sig.
Ég hef aldrei æft eins mikið og vel
og í vetur og þetta er uppskeran.“
Hann sagði að mótshaldarar hafi
sagt eftir mótið að það væru tveir
keppendur sem hefðu komið á
óvart. Það væri Eistlendingurinn
Erki Nool sem sigraði og íslending-
urinn Jón Arnar, sem ekki var búist
við að yrði í toppbaráttunni. Nool
náði besta árangri sgm náðst hefur
í langstökki í tugþrautarkeppni er
hann stökk 8,10 metra. „Nú er ég
búinn að gulltryggja farseðilinn á
heimsmeistaramótið í Gautaborg og
hlakka til að mæta þessum köppum
þar aftur,“ sagði Jón Arnar.
Þorbjöm tekur
við landsliðinu
Þorbjörn Jensson, þjálfari ís-
landsmeistara Vals, var á
sunnudaginn ráðinn landsliðsþjálf-
ari íslands í handknattleik. Hann
tekur við af Þorbergi Aðalsteins-
syni sem hætti formlega í byrjun
síðustu viku eftir fimm ára starf.
Samnlngur Þorbjörns er til tveggja
ára, eða fram yfir HM í Japan
1997.
Þorbjörn hefur náð mjög góðum
árangri með Valsliðið, sem hefur
fimm sinnum orðið íslandsmeistari
undir hans stjórn og tvisvar sinnum
bikarmeistari. „Þegar mér var boð-
ið landsliðið þá þurfti ég ekki að
hugsa mig um lengi. Það hlýtur
að vera markmið hvers leikmanns
að spila með landsliðinu og það á
einnig við um þjálfara. Það má
segja að nú sé ég kominn í landslið-
ið. Þetta er spennandi verkefni en
jafnframt krefjandi," sagði Þor-
björn sem verður í fullu starfi sem
landsliðsþjálfari og hefur þegar
hætt sem þjálfari Vals.
Ólafur B. Schram, formaður
IISÍ, sagði að eining hefði verið
innan HSI unr ráðningu Þorbjörns.
„Það er mun hagkvæmara að ráða
íslenskan þjálfara. Þorbjörn hefur
náð frábærum árangri með Valslið-
ið og því lá beinast við að bjóða
honum starfið,“ sagði Ólafur.
■ Spennandi / B2
Morgunblaðið/Svemr
Spáð í framhaldið
ÞORBJÖRN Jensson spáir í nánustu framtíð landsliðsins
ásamt forráðamönnum HSÍ, eftir að gengið var frá ráðningu
hans á sunnudag. Frá vinstri: Kjartan Steinbach, varafor-
maður, Þorbjörn og Ólafur B. Schram, formaður HSÍ.
HANDKNATTLEIKUR
Arni Indriðason
með Víkinga
VÍKINGAR hafa ráðið Árna Indriðason þjálf-
ara 1. deildarliðs félagsins í handknattleik.
Ami, sem hefur áður þjálfað Víkinga og undir
hans sljórn urðu þeir tvisvar íslandsmeistarar,
tekur við starfi Gunnars Gunnarssonar, sem
er orðinn þjálfarí Hauka. Árni þjálfaði Gróttu
sl. keppnistímahil og kom liðinu upp í 1. deild.
Hlynur Birgisson
verður ekki með
HLYNUR Birgisson, leikmaður með Örebro, er
sá leikmaður sem datt úr, er fækkað var um
einn niður átján, í landsliðshópnum í knatt-
spyrnu, sem mætir Svíum í Evrópukeppninni í
Stokkhólmi á fimmtudag. Þeir leikmenn sem eru
í hópnum, eru:Birkir Kristinsson, Fram, Friðrik
Friðreiksson, ÍBV, markverðir. Guðni Bergsson,
Bolton, Kristján Jónsson, Fram, Izudin Daði
Dervic, KR, Sigursteinn Gíslason, ÍA og Ólafur
Adolfsson, ÍA, vamarmenn. Ólafur Þórðarson,
ÍA, Rúnar Kristinsson, Örgryte, Þorvaldur Örl-
ygsson, Stoke, Sigurður Jónsson, ÍA, Arnar Grét-
arsson, Breiðabliki, Hlynur Stefánsson, Örebro
og Haraldur Ingólfsson, ÍA, miðvallarspilarar.
Arnór Guðjohnsen, Örebro, Eyjólfur Sverrisson,
Besiktas og tvíburamir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir, báðir frá Nlirnberg, sóknarleikmeim.
KNATTSPYRNA: IA OG FH EFST MEÐ SEX STIG EFTIR TVÆR UMFERÐIR / B5, B6, B7