Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 6
6 C MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MARKAÐIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fískverð hefma
Karfi
Kr./k<
April Maí Júni
17.vl 18.vhsCvl20.vl 21.vl 22,vrU
Alls fóru 133,7 tonn af þorski um fiskmarkaðina þrjá hér syðra
í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnarfjarðar fóru 31,1 tonn á
88,31 kr./kg. Um Faxamarkað fóru 23,4 tonn á 82,58 kr./kg
og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 79,1 tonn á 93,82 kr./kg.
Af karfa voru seld 11,7 tonn. í Hafnarfirði á 69,79 kr. (1,71),
á Faxagarði á 53,15 kr./kg (3,21) en á 70,30 kr. (6,81) á F.
Suðurnesja. Af ufsa voru seld 26,2 tonn. I Hafnarfirði á 51,25
kr. (3,81), á Faxagarði á 63,59 kr. (2,11) og á 47,59 kr. hvert
kíló á Suðumesjum (20,31). Af ýsu voru seld 95,2 tonn á
mörkuðunum þremur hér syðra og meðalverðið 68,32 kr./kg.
Apríl Mai
Júní ..
l£íl30
Ffskverð ytra
Þorskur
Karfi
Ufsi
Apnl
17. vika 18. vika
Eitt skip, Kristbjörg
VE 70, seldi afla í
Bretlandi í síðustu
viku samtals 48,7
tonn. Þarafvoru
15,7 tonn af þorski
á 94,28 kr./kg, og
17,6tonnafýsuá
102,69 kr./kg.
Úr gámum voru
seld 498,5 tonn.
Þar af voru 34,7
tonn af þorski á
98,31 kr./kg og
231,3 tonn af ýsu á
96,39 kr./kg.
Meðalverð á þorski
var 97,05 kr./kg.
Eitt skip seldi afla sinn í Þýskalandi í síðustu viku.
Dala Rafn VE 508 seldi 134,8 tonn á 115,55 kr./kg. Þar af voru
92,8 tonn af karfa á 134,60 kr./kg og 38,6 tonn af ufsa á 63,62 kr./kg.
Útflutningur sjávarafurða 1994
er sá mesti þennan áratuginn
ÞRÁTT fyrir mikinn
Verðmæti útflutningsins sfi?\!TSflaútá
iókst um 15% milli árU flutningur sjávaraf-
“ urða meiri en venð
hefur á þessum áratug enda loðnuveiði sæmileg og úthafskarfaveiði mik-
il. Verðmæti afurðanna var einnig hærra bæði í krónum talið og sé mið-
að við Bandaríkjadollar eða SDR og er það í samræmi við verðmeiri sam-
setningu afurða. Heildarmagn útflutningsins var 640.111 tonn árið 1994
en var 635.368 lestir árið 1993. Magnaukningin er því einungis 0,7%
milli ára. Heildarmagn útfluttra sjávarafurða var 569.979 tonn árið 1992.
Verðmæti afurðanna nam 87,5
milljörðum árið 1994 og samsvarar
það 15% aukningu milli ára. Verð-
mætið nam 76,1 milljarði króna árið
1993 en var 71,3 milljarðar króna
árið 1992. Útflutningurinn jókst að
magni um 20,8% milli áranna 1991
og 1992 en virðið dróst þó saman
um 5,4%. Árið 1991 var útflutningur-
inn 471.646 lestir og var þá að magni
til sá minnsti síðan 1983. Verðmæti
hans náði þó sögulegu hámarki.
Hlutdeild sjávarafurða í heildar-
útflutningi landsmanna hefur verið
nokkuð stöðug á undanfömum árum
þó hún lækki lítilsháttar með ári
hveiju. Hún var 75,5% árið 1994 en
78,7% árið 1993. Árið 1992 var hlut-
deildin 79,6% en 80,0% árið á undan.
Magn
Útflutningur sjávarafurða var í
hámarki hvað magn varðar árin
1985-1990. Þessi ár veiddist mikil
loðna og þá var útflutningur ísfísks
einnig í hámarki. Meðalútflutningur
á ári þessi ár var um 680 þúsund
tonn en hámarki náði útflutningurinn
árið 1986. Það ár nam hann tæpum
719 þúsund lestum. Ástæða þessa
mikla útflutnings umrætt ár er
óvenju mikill loðnuafli sem fram kom
I mikilli sölu á lýsi og mjöli, ásamt
fleiri löndunum loðnuskipa erlendis.
Þá var botnfískaflinn í góðu meðal-
lagi ásamt því að sala sjávarafurða
var meiri en framleiðsla ársins og
gekk því nokkuð á birgðir. Þrátt fyr-
ir ágætan loðnuafla ársins 1992 olli
minni útflutningur ísfisks því að
heildarútflutningur sjávarafurða var
töluvert minni en meðalútflutningur-
in á seinni hluta níunda áratugarins.
Árið 1993 nam útflutningurinn rúm-
um 635 þúsund tonnum og munar
þar mestu um ágætan loðnuafla á
árinu, enda vega lýsi og mjöl þungt
í magni útflutnings. Árið 1994 var
útflutningurinn 640 þúsund tonn.
Loðnuveiði var heldur minni en árið
áður en á móti vegur aukinn sfldar-
afli. Þá var úthafskarfaveiði með ein-
dæmum góð og rækjuveiði mikil.
Verðmætl
Útflutningsverðmætið hefur verið
meira en einn milljarður dollara allt
frá árinu 1987. Arið 1993 lækkar
það í fyrsta skipti milli ára síðan
1989 en það var 1.123 milljónir árið
1993. Lækkunin milli áranna 1993
og 1992, sé miðað við dollara, er
10,4%. Árið 1994 hækkar það aftur
í 1.254 milljarða eða um 11,6%.
Verðþróun
Ljóst er að verðmæti útflutnings
afurðanna ræðst af samspili verðs
og aflamagns. Þannig getur vinnsla
og markaðssetning ráðið miklu um
verðmæti útflutnings ekki síður en
aflamagn og verð einstakra afurða.
Afli er nú nýttur betur en fyrr og
nýjar verðmeiri vörur hafa verið þró-
aðar. Hér eru þó einungis skoðað
verð helstu útflutningsafurða.
Kunnar eru þær verðsveiflur sem
átt hafa sér stað á botnfískafurðum
á síðustu árum og sjást þær vel á
myndunum. Mikil verðhækkun sjó-
frystra afurða fyrstu árin skýrist að
líkindum af vaxandi þekkingu á
markaðssetningu þessara afurða.
Árið 1993 varð áframhaldandi verð-
lækun bæði á frystum og söltuðum
afurðum. Verð á ísfiski hefur þróast
á svipaðan hátt og verð á söltuðum
og frystum afurðum og skreiðarverð
fer lækkandi.
Útflutningsverðmæti rækju er hátt
hlutfall af heildarútflutningsverðmæti
sjávarafurða. Rækjan er að stærstum
hluta gufusoðin og skelflett og er að
jafnaði vísað til þessa hluta sem „pill-
aðrar“ rækju. Hluti aflans er heil-
frystur og er það yfirleitt stærri og
verðmætari rækja. Nokkuð fer einnig
til niðursuðu. Mismunandi verðþróun
skelrækju og skelflettrar skýrist að
nokkru leyti af misgengi gjaldmiðla
en helsta markaðssvæði skelrækju er
Japan og meirihluti skelflettrar rækju
fer til Bretlands. Verð rækjunnar
hefur haldist nokkuð stöðugt síðustu
2 árin.
Verð á mjöli og lýsi sveiflast mik-
ið eftir framoði á heimsmarkaði.
Árið 1994 var verð á lýsi lægra en
árið áður en mjölverð hækkaði.
Útflutningsverð síldar hélt áfram
að lækka og var mjög lélelgt á árinu
1994, bæði á frystri og saltaðri sfld.
Verð á rækju og humri var einnig
undir meðaltali, þó hörpudiskur hafí
hækkað í verði milli ára.
VirAI og hiutfallsleg skipting
eftir verkunargreinum
Virði útflutnings sjávarafurða hef-
ur aukist í samræmi við aukningu
að magni til. Miðað við SDR náði
útflutningsverðmæti sjávarafurða
hámarki árið 1991 þegar það nam
um 930 milljónum. Árið 1992 var
það 887 milljónir SDR en lækkar enn
í 805 milljónir árið 1993 eða sem
nemur 10,2% samdrætti milli ára.
Árið 1994 eykst verðmætið aftur á
móti og verður 876 milljónir SDR.
Verðmætaaukningin milli ára er
þannig 8,8%.
Sé hlutfallsleg skipting í afurða-
flokka skoðuð kemur í ljós að nokkur
breyting hefur orðið milli ára í sam-
ræmi við samsetningu aflans svo og
þróun undangenginna ára hvað varð-
ar vinnslu hans. Þannig var útflutn-
ingsverðmæti frystra afurða 557
milljónir SDR árið 1994 samanborið
við 494 milljónir SDR árið 1993.
Þetta svarar til 12,8% aukningar
milli ára, en hlutdeild þessa afurða-
flokks af heildarverðmætinu hækkar
úr 61,4% í 63,6% og gætir hér vafa-
laust enn aukinna áhrifa sjófrysting-
ar. Árið 1992 var verðmæti þessara
afurða 527 milljónir.
Verðmæti útflutnings saltaðra af-
urða eykst um 16,5%, úr 115 milljón-
um SDR í 134 milíjónir. Hlutdeild
saltaðra afurða af heildarverðmætinu
fer úr 14,3% í 15,3% og er það ekki
í samræmi við áratuga þróun breyttra
vinnsluaðferða og samdrátt þors-
kveiða. Líkleg ástæða er að meira var
saltað af ufsa árið 1994 en venju-
lega. Útflutningsverðmæti saltfísks
var 134 milljónir árið 1994 samanbor-
ið við 115 milljónir árið áður.
ísaðar afurðir aukast hvorki né
minnka að verðmæti miðað við SDR.
Þó dregst hlutdeild í heildarútflutn-
ingsverðmæti saman úr 10% í 9,2%
vegna aukinna heildarverðmæta.
24,3% samdráttur varð í útflutn-
ingsverðmæti skreiðar milli'ára. Hlut-
deild þessa afurðaflokks er undir 1%.
Árið 1994 varð 4,9% samdráttur í
útflutningsverðmæti lýsis og mjöls og
er það í hlutfalli við samdrátt í út-
fluttu magni. Árið 1994 var verð-
mæti útflutnings 75,8 milljónir SDR
samanborið 79,7 milljónir SFR árið
1993 og 71,2 milljónir árið 1992.
Breytingar varðandi lagmeti eru
óverulegar.
Skiptlng útflutnlngs
eftlr markaðssvæðum og
einstökum löndum
Á síðasta ári var hlutfallslegt verð-
mæti til Evrópubandalagsríkja lang-
mest líkt og verið hefur frá því á
seinni hluta níunda áratugarins.
Þannig var hlutfall þessara ríkja
64,1% árið 1994 en 62,7% árið 1993.
Bandaríkin eru næsta markaðssvæði
í röðinni hvað varðar útflutnings-
verðmæti en hlutdeild hennar óx úr
12,9% árið 1992 í 18,0% árið 1993.
Árið 1994 var hlutdeildin svipuð eða
18,1%. Þriðja hæsta útflutningsverð-
mætið fæst frá Asíulöndum en hlut-
deild þeirra er 16,4% og hefur hlut-
deildin einnig vaxið þar. Hún var
13,1% árið 1993._________________
• Byggt á Útvegi 1994
Útflutningur sjávarafurða 1981-1994, magn og verðmæti
1.400
1.200
1 nnn
Heimild: Utvegur,
Hagstofa Islands
Magn í þúsundum tonna
Verðmæti f milljónum SDR—
Verðmæti í miiijónum dollara
1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994
S|ófrysting
Sjófrysting 1982-1994
160
í40þDBotnfiskur
Rækja____
Annað
120
100
80
60
40
20
)ús. tonn -
tpO
nfl
1982 1985 1988 1991 1994
Meira fryst um
borð, minna í gárna
SJÓFRYSTING hefur stöðugt
aukist frá því hún hófst í upp-
hafi síðasta áratugar. í fyrra
nam sjófrysting um 155.000
tonnum og er þá ekki tekið til-
lit til veiða á fjarlægum miðum,
Smugunni og Fæmska hattinum.
Árið 1991 119.500 tonnísjó-
vinnslu. Hlutfall sjófrystingar í
botnfiskvinnslunni hefur aukizt
úr 18% 1991 í 26,1% í fyrra.
Nánast allur úthafskarfinn hef-
ur verið sjófrystur, 65% grál-
úðuaflans og um 25% rækjunn-
ar. Umtalsverður hluti rækjuaf-
lans er frystur úti á sjó.
Útflutningur í gámum
rþus. tonn, botnfiskafli
H
ji i ! |
1982 1985 1988 1991 1994
MIKILL samdráttur hefur orðið
á útflutningi óunnins botnfisks
í gámum síðustu ári. Síðasti ára-
tugur einkenndist af gífurlegir
aukningu þessa útflutnings og
náði hann hámarki í 92.000
tonnum árið 1990. Síðan hefur
dregið hratt úr gámasölunni og
á síðasta ári nam útflutningur
af þessu tagi aðeins um 40.600
tonnum. Skýringin á samdrætt-
inum er bæði tilkom vegna inn-
lendra fiskmarkaða og minnk-
andi aflakvóta. Af einstökum
fiskitegundum er karfinn lang-
viðamestur í gámaútflutningum,
eð aum fjórðungur. Af öðrum
tegundum ná nefna gálúðu og
kola.
# Heimild: Útvegur