Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 7. JLINÍ 1995 C 7
Skipstiórnarnám
hérlendis of stutt
„Kröfur um bætt fjarskipti auka einnig þörf fyrir
kennslu, einnig í ensku,“ skrifar Skúli Guðbjarn-
arson. „Það er því mjög brýnt að lengja námið í
þessari grein.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
NÝÚTSKRIFAÐIR stýrimenn af 1., 2. og 3. stigi ásamt Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni,
skólameistara Stýrimannaskólans í Reykjavík.
Fjölmörg- námskeið haldin
auk hefðbundna námsins
STÝRIMANNASKÓLAN-
UM í Reykjavík var slitið
2. júní síðastliðinn í 104.
skipti frá stofnun skólans
árið 1891. Skólinn var
settur 1. september í fyrra
og hófu þá 72 nemendur
nám í skólanum. Verkfall kennara setti svip sinn á skólastarfið eins og
í öllum skólum landsins, en nemendur skiluðu sér vel eftir verkfallið
og hættu aðeins fjórir. Með því að kenna alla laugardaga og í pá-
skafríi náðist að kenna 62 kennsludaga á vorönn, en áður voru áformað-
ir 67 kennsludagar.
Stýrimannaskólanum
í Reykjavík slitið
í 104. skiptið
LENGJA þai'f stýrimannanámið
því auknar kröfur hafa verið gerðar
tii stýrimanna síðustu ár og verða
enn gerðar næstu árin. Þetta skeður
án þess að hægt sé
að úrelda eða fella
niður fög til sam-
ræmis, sem hingað
til hafa verið kennd
°g Þykja nauðsyn-
leg í stýrimanna-
náminu. Við stýri-
mannaskólana. eru
kennd fög á I. og
II. stigi sem jafngilda um þriggja
ára námi hjá öðrum framhaldsskól-
um.
Kröfurnar uppfylltar
Þetta er óæskilegt með tilliti til
þess að nemendur okkar koma af
sjó eftir 2ja ára starfsþjálfun og
þurfa strax að fylgja mjög erfiðri
námsskrá. Hingað til hafa flestir
stýrimannanemar getað uppfyllt þær
kröfur sem til þeirra eru gerðar með
stakri prýði, en greinilegt er að álag-
ið á þeim vegna samþjappaðrar
námsskrár er of mikið. Með tilliti til
þess að kröfur til skipstjórnarmanna
munu halda áfram að aukast í ná-
inni framtíð er nauðsynlegt að grip-
ið verði fljótlega til aðgerða við að
bæta úr núverandi ástandi.
Það þarf að bæta námið og setja
inn ný fög. Það sjáum við best á því
að nemar eru að biðja um að fá að
taka aukaáfanga, t.d. í tölvunámi,
jafnframt því að þeir eru í 25 ein-
inga námi á önn. Kröfur um bætt
fjarskipti auka einnig þörf fyrir
kennslu, einnig í ensku. Það er því
mjög brýnt að lengja námið. Slík
aðgerð mun tvímælalaust verða til
bóta og gefa okkur betur menntaða
skipstjórnarmenn.
Auka öryggi
Þannig má auka öryggi sjófar-
enda og afköst dýrra atvinnutækja.
Þess vegna er mjög þjóðhagsiega
ERLEND fiskiskip lönduðu afla sín-
um 33svar sinnum hér á landi í
maímánuði og er það 8 löndunum
fleira en í sama mánuði í fyrra. Alls
lönduðu skipin tæplega 5.000 tonn-
um í ár, en í maímánuði í fyrra lönd-
uðu þau tæplega 4.810 tonnum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Fiskistofu hafa borist frá lönd-
SJÓMANNADAGSBLAÐ Snæfells-
bæjar er komið út. Blaðið er 44 síð-
ur að stærð og fjölbreytt að efni.
Viðtal er_ við Magðalenu Kristjáns-
dóttur í Ólafsvík, en hún missti tvo
syni sína í sjóslysum á fjórum árum.
Þá er grein eftir Alexander Stefáns-
son, fyri'verandi ráðherra, um 75 ára
sögu hafnargerðar í Ólafsvík og við-
tal við Guðmund Kristjánsson, út-
gerðarstjóra frá Rifi- um útgerðar-
sögu föður hans, Kristjáns Guð-
mundssonar, sem hefur gert út í 40
ár. Þá er viðtal við Martein Karls-
son, trillukarl úr Ólafsvík, og einnig
skrifar Skúli Alexandersson, fyrr-
verandi alþingismaður, um Keflavík-
urvör undir Jökli.
Grein er um Bjarna Sigurðsson í
hagkvæmt að bæta skipsstjórnar-
menntunina. Talað hefur verið um
að ienging námsins muni draga úr
aðsókn í skólana. Reynslan sýnir að
endurbætur í námi eru vel til þess
fallnar að auka virðingu starfsstétt-
arinnar sem venjulega skilar sér í
meiri aðsókn þegar til lengri tíma
er litið.
Lengi hefur verið fyrirhugað að
breyta núverandi námsfyrirkomu-
lagi og vonandi sjá þessar breyting-
ar dagsins ljós fljótlega. Það er
óæskilegt að gera stórfelldar breyt-
ingar á námsskrá í einu stökki, þó
er ekki séð hvernig hjá því verður
komist í stýrimannanáminu, svo að-
kallandi eru þær. Til þess að koma
í veg fyrir að það þurfi að taka stór
stökk í framþróun skipstjórnar-
námsins, eins og nú er fyrirsjáan-
legt, verða stýrimannaskólarnir í
landinu að vinna .saman að því að
þróa kennsluhætti og læra hver af
öðrum.
Reynsla annarra þjóða getur líka
oft komið að góðum notum. Slík
samvinna og skoðanaskipti miðla
líka vel reynslu manna um kennslu-
hætti og mannauðurinn nýtist betur.
Það sem mest hefur verið rætt varð-
andi endurbætur í skipstjórnar-
náminu er lenging þess þannig að
kjarnagreinar verði færðar á fyrsta
ár. Þannig má samnýta kennslu með
öðrum útvegsgreinum.
Mikil samstaða
Um þetta er mikil samstaða með-
al þeirra sem hafa gefið stýrimanna-
náminu gaum og ætti því að vera
auðvelt í framkvæmd. Síðan má þróa
námið áfram svo það geti betur sinnt
síbreytilegum atvinnuvegi. Það er
óraunhæft og óæskilegt að ætla að
setja sér endanleg markmið varðandi
þetta nám, því þá er hætt við stöðn-
un. Heldur verðum við að vera sam-
stíga þróun atvinnuvegarins.
Höfundur er kennslustjóri verk-
menntaskólans á Akureyri - sjáv-
arútvegssviös á Dalvík
unarhöfnum um óslægðan afla er-
lendra skipa var í maí landað rúm-
lega 3.606 tonnum af úthafskarfa,
1.104 tonnum af þorski, 150,5 tonn-
um af rækju, 101,8 tonnum af ýsu,
9,5 tonnum af steinbít, rúmlega 1,4
tonnum af lúðu, 995 kílóum af grá-
lúðu, 228 kílóum af ufsa og 21 kílói
af hlýra.
vélsmiðjunni Sindra í Ólafsvík, en
hann smíðaði fyrstu netaskífu og
netadreka, sem nothæfir voru hér
við land. Það var forsenda þess að
hægt væri að stunda þessar veiðar
víða við landið.
Guðrún Tryggvadóttir, sem fór
sem kokkur á síld, aðeins 16 ára
gömul með föður sínum, segir frá
mörgu sem fyrir augu hennar bar
og meðal annars þegar asdik-tækið
var tekið í notkun, en það olli bylt-
ingu við nótaveiðar. Einnig er að
finna í blaðinu fleiri viðtöl og grein-
ar.
Blaðið er gefið út af sjómanna-
dagsráði ÓJafsvíkur og er það prent-
að í prentsmiðjunni Steinprent í Ól-
afsvík.
í upphafi skólaslitaræðu minntist
Guðjón Ármann Eyjólfsson, skóla-
meistari, sérstaklega látinna og
drukknaðra sjómanna og allra ís-
lenskra sjómanna sem fórust á
styijaldarárunum 1939-1945. Gat
hann þess að alls staðar í Vestur
Evrópu hefði sjómanna sem sigldu
í stríðinu verið sérstaklega minnst
á friðardaginn 8. maí síðastliðinn,
og t.d. hefði drottning Danmerkur,
Margrét Þórhildur, talað sérstak-
lega fyrir minningu þeirra við minn-
isakkerið í Nýhöfn í Kaupmanna-
höfn við fjölmenna og hátíðlega
athöfn, og einnig hafi þessa verið
veglega minnst í Osló.
Hið eina raunverulega
striðsminnismerki íslendinga
„En hvað gerðum við íslendingar
til þess að minnast þessara sjó-
manna, lífs og liðinna, sem komu
íslandi á blað þeirra þjóða sem
færðu fórnir í síðari heimsstyijöld-
inni til varnar lýðræði í heimin-
um?,“ sagði Guðjón Ármann. „Þetta
hús sem við erum nú í má fullyrða
að sé í raun og veru hið eina stríðs-
minnismerki íslendinga, reist af
miklum samhug almennings og yf-
irvalda, vígt með viðhöfn af forseta
landsins og ríkisstjórn, Alþingi og
biskupi landsins.
Vel færi á því að sjómannasam-
tökin og allir Islendingar tækju sig
nú saman og hér yrði á góðum stað
komið fyrir minningartöflu yfir alla
þá sjómenn íslenska sem féllu og
fórust í heimsstyijöldinni, en þannig
minningarskyldir er víða erlendis;
t.d. við Löngulínu í Kaupmannahöfn
og víðar. Ég tel okkur hollt að minn-
ast ætíð þeirra fórna, sem þjóðir
heims færðu í þessari miklu styij-
öld til varnar lýðveldi og fijálsri
hugsun gegn ribböldum og einræð-
, isseggjum.“
Sigling til Færeyja
Nemendur Stýrimannaskólans
fóru á hefðbundin námskeið í Slysa-
varnaskóla sjómanna og slysadeild,
en þekktur togaraskipstjóri, Guð-
mundur Jónsson, á Venusi kenndi
nemendum í fiskveiðisamlíki
(hermi) skólans og hélt fyrirlestra
um veiðarfæri og veiðarfæragerð.
Þá fóru nemendur 3. stigs í siglingu
til Færeyja yfir páskana með
Bakkafossi, og í ræðu sinni færði
skólameistari Eimskipafélagi Is-
lands þakkir skólans fyrir að liðka
svo til með þennan nauðsynlega
þátt í skólastarfinu, en félagið tek-
ur aldrei einn eyri hvorki fyrir fæði
nemenda eða kennara.
Fjöimörg námskeið
Auk hins hefðbundna dagskóla
voru á skólaárinu haldin fjölmörg
námskeið fyrir starfandi skipstjórn-
armenn og almenning. Þannig voru
haldin 17 átta daga námskeið í fjar-
skiptum, öryggis- og neyðarfjar-
skiptakerfinu GMDSS, og luku
þeim 145, en frá Eimskipafélaginu
hafa t.d. 40 skipstjórnarmenn lokið
fimm námskeiðum. Ratsjárnám-
skeiði, ARPA námskeiði, hafa 17
starfandi skipstjórnarmenn lokið,
og 18 hafa lokið námskeiði í með-
ferð á hættulegum varningi, IMDG.
Þá hafa 48 manns lokið prófum í
30 rúmlesta réttindanámi.
Á námskeiðum Stýrimannaskól-
ans á síðastliðnu skólaári luku því
auk nemenda* skólans 150 manns
sérstökum námskeiðum. Þetta þýðir
að í Stýrimannaskólanum hafa með
föstum nemendum í dagskóla kom-
ið yfir 200 manns til náms á skóla-
árinu.
Einn með ágætiseinkunn
Skipstjórnarprófi 1. stigs luku
27 nemendur. 'Hæstu einkunn hlaut
Bjarni Friðrik Bragason, Höfn
Hornafirði, með aðaleinkunn 170
stig, 8,95 í meðaleinkunn. Annar
varð Jón Gunnar Björgvinsson,
Reykjavík, með 249 stig, 8,89 í
meðaleinkunn og þriðji varð Þór
Rúnar Öyahals með 225 stig, 8,65
í meðaleinkunn. Mismunur á aðal-
einkunn er vegna þess að í fjölda
almennra greina eru einkunnir úr
öðrum skólum metnar. Níu nemend-
ur fengu yfir 8 og af þeim sem
stóðust prófið voru allir nema þrír
með 1. einkunn eða hærra en 7,25.
2. stigs prófi luku 22. Hæstu
einkunn hlaut Aðalsteinn Bjarna-
son, F'lateyri, með 289 stig, 9,03
sem er ágætiseinkunn. Annar varð
Jón Atli Gunnarsson, Vestmanna-
eyjum, með 231 stig, 8,88 sem er
1. einkunn, og þriðji varð Bjarki
Sæþór Aðalsteinsson, Grundarfirði,
með 269 stig 8,41, sem er 1. ein-
kunn.
6 nemer.dur luku 3. stigs prófi,
og hlaut Þorsteinn Örn Andrésson,
Reykjavík, hæstu einkunn, 228 stig
eða 8,73. Annar varð Sigurður ÓI-
afsson, Hörn Hornafirði, með 208
stig, eða 8,32, en allir 6 hlutu góða
1. einkunn.
Að loknum upptökuprófum má
búast við að fjöldi útskrifaðra stýri-
manna með 1., 2. og 3. stig verði
yfir 60 talsins.
Ýmis verðlaun fyrir
námsárangur
Að venju voru nemendum afhent
mörg og glæsileg verðlaun. Áletrað
armbandsúr úr verðlaunasjóði Guð-
mundar B. Kristjánssonar kennara
fékk Þorsteinn Örn Andrésson, en
hann fékk einnig bikar Eimskipafé-
lags Islands. Óldubikarinn fékk
Aðalsteinn Bjarnason, en hann fékk
einnig glæsileg verðlaun frá LÍÚ,
sjóúr og loftvog með kveðju frá
Kristjáni Ragnarssyni formanni
LIÚ. Sendiherra Dana á íslandi,
Klaus Otto Koppel, afhenti persónu-
lega verðlaun fyrir bestan árangur
í dönsku og var gerður góður róm-
ur að máli hans.
Eidri árgangar gjafmildir
Afmælisárgangar fjölmenntu við
skólaslitin og færðu þeir skólanum
kveðjur. Fyrir 50 ára útskriftar-
nema, sem var síðasti árgangurinn
sem útskrifaðist úr gamla Stýri-
mannaskólanum við Stýrimanna-
stíg, talaði Ólafur Björnsson, Kefla-
vík, og fyrir 45 ára prófsveina tal-
aði Björn Bjarnason, skipstjóri, og
færðu þeir skólanum peningagjöf.
Magni Sigurhansson talaði fyrir 30
ára farmenn og gáfu þeir skólanum
forkunnarfagran skólafána ásamt
30 borðfánum. Fyrir 30 ára fiski-
menn talaði Gylfi Hallgrímsson og
færðu þeir skólanum peningagjöf.
Skólameistari þakkaði góðar gjafir
og hlýhug og sleit síðan skólanum
í 104. skipti.
Fiskiskip 100-200 tonna
Óskum eftir að kaupa skip með eða án kvóta.
Nánari upplýsingar veitir Báta- og kvótasalan
í síma 551 4499.
Erlend skip lönduðu
5.000 tonnum í maí
Sj ómannadagsblað
Snæfellsbæjar komið út