Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Endurmat á sjálfsskilningi Menningarmál í víðasta skilningi þess orðs eru á stefnuskrá nýrra ritstjóra Skímis. Jóhann Hjálmarsson hugar að nýjum viðhorfum og gömlum í vorhefti Skímis. MEÐ vorhefti Skírnis 1995 taka nýir ritstjórar við. Jón Karl Helga- son og Róbert H. Haraldsson koma í staðinn fyrir Vilhjálm Árnason og Ástráð Eysteinsson. Jón Karl er doktor í samanburðarbókmennt- um og ritstjóri bókmenntaefnis á Rás 1, Ríkisútvarpinu. Róbert er heimspekingur. Ritstjórarnir árétta í ávarpi að Skímir sé sem fyrr „vettvangur fyrir vandaðar greinar um menn- ingarmál í víðasta skilningi þess orðs, greinar sem snerta lífshætti og veruleikaskynjun nútímafólks". Samkvæmt þessu er vorheftið „að dijúgum hluta helgað umræðu um áhrif þjóðemishyggju á efna- hags- og hugmyndasögu íslands og enduróm hennar í stjórnmála- baráttu samtimans". Að mati ritstjóranna ber umræð- an merki um „það endurmat á sjálfsskilningi íslendinga sem nú fer fram innan sagnfræði, bók- menntafræði og fleiri greina mann- vísinda". , í anda þessa era það ekki fulltrú- ar fortíðarinnar sem leiða umræð- una þótt stundum sé til þeirra vitn- að. Sigríður Matthíasdóttir á rit- gerðina Réttlæting þjóðernis, Guð- mundur Jónsson skrifar um þjóð- ernisstefnu, hagþróun og sjálfstæð- isbaráttu, Amar Guðmundsson fjallar um mýtuna um ísland, Sæv- ar Hrafn Svavarsson um fornfræð- in og nútímann og Jón Karl Helga- son finnur táknrænan gullfót ís- lenskrar seðlaútgáfu. Fleira í Skírni mætti flokka und- ir endurmat, til dæmis umfjöllun Karls Gunnarssonar um landnám í Húnaþingi og ritdóm Guðna Elís- sonar um Máttugar meyjar eftir Helgu Kress. Karl tekur að nokkra Morgunblaðið/Þorkell JÓN Karl Helgason og Róbert H. Haraldsson, ritstjórar Skírnis. undir sjónarmið Einars og Guðni gerir sitt til að réttlæta fræði Helgu. Það sem einkennir umræðuna er að höfundarnir gæta þess yfir- leitt vel að alhæfa ekki, leyfa sem flestum skoðunum að koma fram. Þetta er í fræðilegum anda og skal ekki hallmælt, en oft verður mál- flutningurinn dauflegur fyrir bragðið. Tengsl alþjóðahyggju og þjóðernishyggju Ejóðernishyggja er í senn góð og slæm. Þjóðemishyggja þótt hættuleg sé í vissum tilvikum getur þrátt fyrir allt verið góð í alþjóð- legu samstarfi. Amar Guðmunds- son hefur það eftir Bimi Bjama- syni að þjóðemishyggja í alþjóðlegu samstarfí sé mikilvæg þar sem hún jafngildi gæslu þjóðarhagsmuna: „Hann lýsti heimsmenningunni sem einskonar mósaíkmynd þar sem hver einasta þjóð kemur inn með sín sérkenni og verður því að halda í menningu sína og sjálfsmynd. Það sé framlag hennar til alþjóðlegs samstarfs". Þetta er mikilvægt atr- iði og hefur lítið verið rætt hérlend- is eins og Amar bendir á. Niðurlag Amars felur í sér gagn- rýni sem er harðari en liggur í augum uppi. Hann talar um mis- ræmi eða „eyðu“ í umræðunni sem áhyggjuefni. Að baki pólitískrar orðræðu liggur að hans mati ósagð- ar forsendur um þjóðernið og þjóð- menninguna, forsendur sem mýtan breiðir yfir. Vaxandi þjóðemishyggja gæti með hægu móti umhverfst í útlend- ingahatur og rasisma. Ég er sam- mála því að stjórnmálamennirnir svari því hvernig eigi að bregðast Stofnfundur igs um Listaháskóla íslands verður haidinn mánudaginn 12. jiiní kl. 20.30 í Borgartiíni 6, t W ■ Rúgbrauðsgerðinni • Á dagskrá fundarins eru lög félagsins, kosning til stjórnar og önnur mál. Fundurinn er öllutti opinn. Álmgafóllí um listsköpun og listmennt er sérstaklega hvatt til ad koma, Bandalag íslenskra listamanna. við gömlum draugum sem alþjóða- væðingin vekur upp og era reyndar orðnir ógnvekjandi og áþreifanlegir í nágrannalöndum okkar. Guðmundur Jónsson sýnir fram á takmörk efnahagslegrar þjóðern- isstefnu: „Hversu sterk sem löngun íslendinga hefur verið til að búa sem best að sínu hafa þeir orðið að byggja afkomu sína á öflugum tengslum við útlönd, vegna þess hve hagkerfið er lítið, auðlindirnar fábreyttar, framleiðslan einhæf og heimamarkaðurinn óverulegur". Sigríður Matthíasdóttir fjallar meðal annars um þjóðemishug- myndir Ejóðveijans Johanns Gottli- ebs Fichtes rannar frá Herder og áhrif þeirra hér á landi, einkum á Jón J. Aðils og leiðir í ljós gildi þess síðarnefnda fyrir Jónas Jóns- son frá Hriflu. Niðurstaðan er að sjálfstraust sé þjóðum nauðsyn. Getur vestræn menning hafnað sjálfri sér? Svavar Hrafn Svavarsson heldur uppi vömum fyrir fomfræði og bendir á að sú gagnrýni sé hjáróma að klassískur menningarheimur komi engum við. Vestræn menning getur ekki hafnað sjálfri sér, skrif- ar hann og nefnir Hómerskviður í því sambandi. Eins og til að leggja áherslu á þetta birtir Skírnir þýðingu Hauks Hannessonar úr Eneasarkviðu Virgils með inngangi eftir þýðand- ann. Með Eneasarkviðu vildi Virg- ill keppa við Hómer að sögn, færa Rómveijum álíka listaverk og Hó- mer Grikkjum. Hér verða engir dómar felldir um ritstjómarstefnu nýrra ritstjóra Skírnis. Ritið er fjölbreytt og ekki of þungur pakki. Svifíð á vængjum söngsins SÁLUMESSA og Litanía eftir Wolfgang Amadeus Mozart verða fluttar í tvígang á Kirkjulistahátíð í næstu viku. Meðal söngvara verður Sólrún Bragadóttir sópran, sem er búsett í Þýska- landi. Kom hún gagngert til lands- ins til að syngja á tónleikunum. „Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka mikið til að syngja í Hall- grímskirkju. Þetta eru vandasöm verkefni en tón- listin er ákaflega falleg,“ segir Sól- rún en aðrir sem fram koma á tón- leikunum eru söngvaramir Hrafnhildur Guð- mundsdóttir, Gunnar Guð- Morgunblaðið/Golli Sólrún Bragadótt- ir óperusöngkona. björnsson og Magnús Bald- vinsson, Mótettukór Hall- grímskirlqu og Sinfóníuhljóm- sveit íslands undir stjórn Harðar Áskelssonar. Við sálu- messuna er dansatriði eftir Nönnu Ólafsdóttur, dansað af Islenska dansflokknum. „Það er virkilega gaman að koma heim og hitta þessa ungu söngvara," segir Sólrún. „Auk þess hef ég aldrei séð dans við Sálumessuna og bíð spennt eftir að sjá hvemig hann kem- ur út. Það er alltaf gaman þegar listgreinar sameinast." Sólrún hefur starfað lengi erlendis og meðal annars verið fastráðin við tvö ópera- hús í Þýskalandi. Hún sagði hins vegar stöðu sinni við Hannoveróperuna lausri síðastliðið haust eftir fimm ára annasaman feril. „Ég eignaðist dóttur siðastliðið vor og gat eiginlega ekki hugsað mér að vinna jafn mikiðog ég hafði verið að gera. Ég vil frekar svífa á vængjum söngs- ins en vera pjörvuð einhvers- staðar niður.“ Sólrún viðurkennir þó að það hafi verið erfið ákvörðun að hella sér út í lausamennsk- una. „Ég vil spila eftir eyranu en gallinn er sá að í lausa- mennskunni getur maður ekki alltaf verið öragg- ur með afkomuna. Olnbogarnir þurfa því að vera skarpir ætli mað- ur að koma sér áfram. Þetta hefur þó gengið vel til þessa miðað við það að ég hef lítið auglýst mig.“ Söngkonan býr enn í Hanno- ver ásamt eigin- manni sinum Þór- arai Stefánssyni píanóleikara og fjölmiðlafræði- nema. Hún segir þó að þau muni að líkindum hefja vængina til flugs á næsta ári en óvíst sé hvert stefnan verði tekin. Cosi fan tutte í haust Sólrún flýgur til London strax að loknum tónleikunum í Hallgrímskirkju en þar á hún stefnumót við umboðsmenn. Hún snýr þó skjótt aftur og hyggst dvelja á Islandi út ágúst til að und- irbúa sig fyrir haustið en þá mun hún syngja í Cosi fan tutte eftir Mozart í óperunni í Liege í Belgiu. „Nýtt hlut- verk krefst alltaf mikils und- irbúnings og ég verð að vinna það meira og minna í sumar.“ Sólrún hyggst veija meiri tima í tónleikahald og ljóða- söng á næstunni, auk þess sem hún ætlar að hella sér út í upptökur á geislaplötum sem setið hafa á hakanum til þessa. Meðan á dvöl hennar hér á landi stendur í sumar vonast Sólrún til að geta efnt til ljóðatónleika en staður og stund hafa ekki enn verið ákveðin. Kvennaskólaævintýrið FREYVANGSLEIKHÚSIÐ í Eyjafjarðarsveit sýnir Kvenna- skólaævintýrið eftir Böðvar Guð- mundsson á Stóra sviði Þjóðleik- hússins á sunnudag og mánudag. Leikritið hefur í vor slegið að- sóknarmet í Freyvangi en það var samið sérstaklega fyrir leik- félagið þar á bæ. Þjóðleikhúsið bryddaði á liðnu ári upp á þeirri nýjung að bjóða einu áhugaleikfélagi að setja upp sýningu á Stóra sviðinu. Átta umsóknir bárust að þessu sinni og hreppti Freyvangsleikhúsið hnossið. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir Freyvangsleikhúsið og hleypir eflaust nýju blóði í starf- semina,“ segir Helga Elínborg Jónsdóttir leikstjóri. „Það er auð- vitað spennandi að fá að reyna sig á stóru sviði og þetta er fyrst og fremst umbun erfiðisins fyrir þetta fólk en það hefur lagt mik- ið á sig í sínum frítíma." Helga Elínbqrg er kunnust sem leikari, lengst af við Þjóðleikhúsið. Hún hefur verið aðstoðarleikstjóri í mörgum sýningum en Kvennaskóla- ævintýrið er stærsta verkefnið sem hún tekst á hendur sem leikstjóri. „Þetta var mjög skemmtileg og gef- andi vinna enda kraftmikið fólk á ferð. Veturinn var reyndar mjög erf- iður fyrir norðan og ófærðin setti vissulega strik í reikninginn; frum- sýningin tafðist til dæmis um viku. ,JI, ÞAÐ eru allsberir strákar í laug inni!“ Námsmeyjar í hita leiksins. Fólk lét það hins vegar ekki aftra sér og þetta gekk allt saman upp.“ Kvennaskólaandinn í brennidepli Kvennaskólaævintýrið á sér stað um miðbik aldarinnar og fjallar um það tímabil í sögu íslensku þjóðarinn- ar þegar stúlkur hlutu menntun í húsmæðraskólum sem ýmist voru nefndir kvennaskólar, húsmæðra- skólar eða „grautarskólar" í niðrandi tóni. Skóla þessa sóttu stúlkur úr öllum þrepum þjóðfélagsstig- ans; jafnt vel stæðar stór- bændadætur sem blásnauðar kotbændadætur. Böðvar beinir sjónum að siðvenjum, siðprýði og andanum sem ríkti í skólunum auk þess sem ströngu eftirliti og smámunasemi kennslukvenn- anna eru gerð skil. Heimilda aflaði höfundur með því að ræða við fyrrverandi námsmeyjar og kennslukonur við Kvennaskólann á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. Hann var starf- ræktur um áratuga skeið og var talsverð skrautfjöður og lyfti- stöng fyrir sveitina. Sérstaklega munu piltamir hafa fylgst grannt með komu námsmeyj- anna á haustin og „tóku út“ ár- ganginn hveiju sinni. Hermt er að margir leikhúsgestir hafi bor- ið kennsl á persónur og atburði þegar verkið gekk ítrekað fyrir fullu húsi nyrðra. Kvennaskólaævintýrið er mikið að umfangi en alls hafa um 70 manns lagt hönd á plóginn. 32 leikarar taka þátt í sýningunni og eru þeir á aldrin- um sextán til sextíu ára. Sumir eru vanir sviðsmenn en aðrir að stíga sín fyrstu spor. Þá er tónlistin í hávegum höfð og liðlega tuttugu sönglög eftir heimamennina Eirík Bóasson, Garð- ar Karlsson og Jóhann Jóhannsson eru sungin við texta Böðvars. Tón- listarstjóri er Reynir Schiöth.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.