Morgunblaðið - 13.06.1995, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
1
ÍÞRÓTTIR
^ 2:1
Ungverjaland
i Reykjavik,
11.júni 1995
1:1
Svíþjóð
í Stokkhólmi,
2. júni 1995
1:1
Chile
i Temuco,
22. apríl 1995
1 0:1
Svíþjóð
i Reykjavik,
7. sept. 1994
0:1
Sviss
i Lausanne,
16. nóv. 1994
0:5
Tyrkland
í Istanbúl,
12. okt. 1994
■ MAGNÚS I. Stefánsson hand-
knattleiksmarkvörður gekk fyrir
skömmu frá félagsskiptum úr Vík-
ingi í Fylki. „Mér líst vel á, það
er að rísa nýtt íþróttahús og nýir
leikmenn líklega á leiðinni þó
byggja eigi einnig upp á strákum
úr félaginu. Við ætlum upp í 1.
deild,“ sagði Magnús.
■ DAVÍÐ Garðarsson, sem spil-
aði með knattspyrnuliði Vals en
fór síðan til liðs við Hamburg í
Þýskalandi, er kominn til baka
og leikur með Val í sumar. Fyrsti
leikurinn átti að vera gegn FH
annaðkvöld þá þarf Davíð að taka
út leikbann.
■ EYJASTÚLKUR fá frekari
liðsauka við 1. deildarlið sitt þegar
gengið verður frá samning við
serbneskan markvörð, Tatjana
Arsic, í vikunni. Hún lék áður með
Júgóslavneska landsliðinu og
reyndar í sama liði og Svetlana
Ristic, sem þegar er byrjuð að
spila með Eyjaliðinu.
■ AJAX gerði í gær samning til
fjögurra ára við Brasilíumanninn
Marcio Santos sem var í sigurliði
Brasilíu á fjögurra þjóða mótinu
sem lauk í Englandi um helgina.
Hollenska fréttastofan ANP sagði
að kaupverðið hefði verið um 3,2
faómR
FOLK
millj. dollarar (um 203 millj. kr.).
■ TREVOR Francis, fyrrum
framkvæmdastjóri Sheffield
Wednesday sem var rekinn frá
félaginu í síðasta mánuði, ætlar
að höfða mál á hendur félaginu.
Hann segist hafa gert sitt besta
við erfiðar kringumstæður og að
formaðurinn hafi rekið sig án þess
að bjóða nokkrar bætur og neiti
að ræða málin. Félagið bauð David
Pleat, stjóra Luton, starfið.
■ ÞRÍR aðdáendur ítalska liðsins
Genúa, létust af hjartaslagi á
meðan leik Genúa og Padove stóð
á laugardaginn, en Genúa féll í
b-deild. Tveir þeirra, 50 og 42 ára,
fengu slag á leikvanginum og einn
79 ára lést fyrir framan sjónvarpið.
■ GIUSEPPE Signori gæti verið
á förum frá Lazio eftir að Parma
bauð í hann um 945 milljónir kr.
„Það er til tilboð sem ekki er hægt
að hafna og ég er verslunarmaður
sem get ekki lokað augunum fyrir
því,“ sagði Sergio Cragnotti eig-
andi Lazio „en ég er líka aðdá-
andi og langar ekki til að selja.“
■ PARMA lætur ekki staðar
numið og hefur einnig lýst áhuga
á að kaupa bosníska framheijann
Alen Boksic frá Lazio. Sú sala
myndi líklega þýða að Parma
gæti ekki einnig boðið í Roberto
Baggio sem ætlar sér frá Juvent-
us en AC Milan og Inter hafa
einnig spáð í kappann.
■ STEAUA Búkarest varð
Rúmeníumeistari í 17. sinn þegar
liðið vann F.C. Natioanl Búkarest
3:0 á laugardaginn.
■ SLAVA Kozlov skoraði í ann-
arri framlengingu og tryggði
Detroit 2:1 sigur gegn Chicago í
fimmta leik liðanna í úrslitum
Vesturdeildar NHL-íshokkídeild-
arinnar. Detroit leikur til úrslita
um Stanleybikarinn í fyrsta sinn
í 29 ár og mætir Philadelphia eða
New Jersey.
■ KÍNVERSK stúlka, hin 13 ára
Zhang Xilian, er næsta stjarna
Kínverja i körfubolta. Hún er nú
þegar um 2 metrar á hæð en vakti
strax athygli körfuboltaliðs héraðs
síns rúmlega tveggja ára, þegar
orðin 112 sentímetrar á hæð.
RÆKTUN
Að undanförnu hafa svört ský
hrannast upp á íslenskan
íþróttahimin — menn eru ekki
búnir að gleyma árangri hand-
knattleikslandsliðsins í HM og síð-
an komu fréttirnar frá Portúgal,
þar sem íslenska 21 árs landsliðið
mátti þola fimmtán marka ósigur
gegn Portúgölum á Madeira. Þessi
ósigur þýðir að liðið kemst ekki í
heimsmeistarakeppni
21 árs landsliða í Arg-
entínu, en liðið varð í
þriðja sæti í síðustu
HM, í Egyptalandi.
Körfuknattleikslandsl-
iðið stóð sig illa í Sviss,
þar sem liðið lék í Evr-
ópukeppninni og á Smáþjóða-
leikunum í Lúxemborg. í kjölfarið
hafnaði íslenska 22 ára landsliðið
í fimmta og neðsta sæti á Norður-
landamótinu, sem fór fram á Sauð-
árkróki.
I svartnættinu er þó sólargeisli,
það er íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu. Það er greinilegt að knatt-
spyrnuforystan á íslandi hefur lagt
mikla vinnu í að rækta garðinn
sinn og uppskeran er eftir því.
Árangur landsliðsins gegn Svíum
í Stokkhólmi á dögunum var glæsi-
legur, þó svo að menn í arfagrón-
um reiti hafi séð ofsjónir og farið
með dylgjur. Frækileg framganga
íslensku leikmannanna, undir
stjórn Ásgeirs Elíassonar landsl-
iðsþjálfara, gegn Ungveijum, sýnir
að íslensk knattspyrna er á réttri
leið. Ásgeir teflir fram góðri
blöndu af leikmönnum, þar sem
hæfileikar hvers og eins fá að njóta
sín og skapa sterka liðsheild.
Landsliðið getur staðið hvaða liði
sem er snúninginn og barátta leik-
manna liðsins er aðdáunarverð.
íslenska landsliðið í knattspyrnu
er móðurskip íslenskra íþrótta.
Almenningur hefur ávallt gert
miklar kröfur til landsliðsins, en
var þó ekki tilbúinn að svara kalli
landsliðsmanna, sem báðu um góð-
an stuðning fyrir leikinn gegn
Ungveijum — aðeins tæplega
fimm þúsund áhorfendur mættu á
Laugardalsvöllinn, en þeir áhorf-
endur fóru ekki vonsviknir heim.
Löngu eftir að búið var að flauta
leikinn af, stóðu áhorfendur og
hylltu hetjur íslands; þökkuðu
þeim fyrir góða skemmtun með
lófaklappi.
Það er sjálfsagt að gleðjast með
knattspyrnumönnum, en sú gleði
má ekki loka augum manna fyrir
því að það er eitthvað meira en
lítið að í uppbyggingu hjá Hand-
knattleiks- og Körfuknattleiks-
sambandinu. Það er áhyggjuefni
að sjá hvað draumar handknatt-
leiksmanna hafa hrunið — fyrst
missti a-landsliðið af farseðlinum
á Ólympíuleikana í Atlanta 1996
og þá kemst 21 árs liðið ekki á
HM í Argentínu. Menn verða að
setjast niður og kryfja mál sín til
mergjar og finna út hvað hægt
er að gera til að komast upp úr
öldudalnum. Kristján Arason sagði
í viðtali við Morgunblaðið fyrir
hálfu ári, að Handknattleikssam-
bandið mætti ekki týna markmið-
inu — að handknattleikur væri
íþróttastarfsemi. Forystan hefur
sofnað á verðinum, unglingastarf-
ið hefur verið látið sitja á hakan-
um. Unglingalandslið eru ekki
lengur til og það var ekki til að
laða að, þegar unglingum var hald-
ið frá HM á íslandi með of háu
miðaverði. í stað þess að HSÍ rétti
út faðminn og sagði; komið til
mín, var ungviðið lokað úti í svart-
nættinu. Það mun ekki birta til
fyrr en menn leggja vinnu í að
rækta garðinn sinn. Þá fyrst verð-
ur upp skorið.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
Til að árangur náist,
verður að hlúa vel
að ungviðinu
Hvað ætlar kylfingurinn ÖRIM ARNARSOIM að gera í fmmtíðinni?
Þarf að leita
mér að vinnu
ÖRN Arnarson hefur látið mikið að sér kveða á stigamótunum
í golfi á síðustu vikum. Örn hafði aldrei sigrað á stigamóti
þartil i Vestmanneyjum um þar síðustu helgiog um helgina
varð hann íslandsmeistari íholukeppni.
Orn er borinn og barnfæddur
Akureyringur og gat sér
gott orð sem skíðamaður í ungl-
ingaflokkum fyrir
P ft. norðan. Eftir að
Eiðsson hann kynntist golf-
skrifar iou hefur það verið
í fyrsta sætinu.
Hann starfar þessa dagana hjá
íslenskri tækni á Grensásveginum
þar sem hann meðal annars fæst
við að smíða fuglabúr. Örn er
fluttist nýlega suður, í Mos-
fellsbæinn þar sem hann er í sam-
búð með Áslaugu Björnsdóttur og
bíða eftir að fyrsta barn þeirra
komi í heiminn.
Hvernig stóð á því að þú fórst
að leika golf?
„Ég man iítið eftir því hvernig
það byijaði, annað en það að ég
keypti eitthvað notað sett af ná-
granna. Einn vinur minn, Skúli
Ágústsson, gaf mér síðan nýtt
golfsett og eftir það hef ég ekki
getað stoppað og ég kom oft ekki
heim til mín fyrr en á miðnætti."
Varstu fljótur að ná tökum á
golfinu?
„Ég hitti boltann bara ágætlega
til að byija með. Ég var frekar
fljótur að komast niður í tíu í forg-
jöf, ætli það hafi ekki tekið mig
tvö eða þijú sumur. Síðan fór ég
niður í fimm en staðnaði síðan í
tveimur til þremur í forgjöf í tvö
ár.“
Hvað segir þú um kosti þína
og galla sem kylfings?
„Eg er stundum fljótfær og það
er galli. Stundum á ég það til að
taka fullmikla áhættu en það get-
ur stundum komið sér vel. Mér
finnst það vera kostur að ég slæ
þokkalega langt og er orðinn
sæmilega beinn.“
Þú hefur ekki verið hræddur
um að vera kallaður upp á fæð-
ingadeild í miðjum mótshring í
holukeppninni?
Morgunblaðið/Frosti
ÖRN Arnarson smíðar fuglabúr, en hann flutti í vor í Mos-
fellsbæinn og kemur líklega til með að búa þar næstu árin.
„Það var viss hætta á því og
ég átti allt eins von á því að sjá
einhvern koma hlaupandi til mín
út á völl. Við vorum reyndar búin
að ræða málið, ég og kærastan
og hún sagði við mig að ef sú
staða kæmi upp þá gæti ég feng-
ið að klára hringinn, mamma
hennar færi upp á fæðingadeild
með henni.“
Nú eru báðir íslandsmeistara-
bikararnir í vörslu akureyska kylf-
inga. Er mikil samkeppni milli þín
og Sigurpáls Sveinssonar, sigur-
vegara á Landsmótinu í golfi í
fyrra?
„Já það hefur verið barátta á
milli okkar. Reyndar var ég yfir-
leitt betri en hann skaust uppfyrir
mig eitt sumarið og ég átti svolít-
ið erfitt með að sætta mig við það
til að byija með. En við erum frá-
bærir félagar í dag og almennt
má segja að kylfingar á Akureyrir
haldi vel saman. Þess má geta að
Sigurpáll er tvítugur í dag [mánu-
dag], og hann er að vonast eftir
því að barnið komi í heiminn í
dag.“
Hvað með framtíðina hjá þér?
„Ég hef lítið á pijónunum. Sú
vinna sem ég er í er aðeins tíma-
bundin þannig að ég þarf að leita
mér að vinnu þegar þessu verki
er lokið. Ég hef ekki lokið stúd-
entsprófi og hygg ekki á nám eins
og er. Konan er í hjúkrunarfræði
og stefnir að því að fara í sjúkra-
þjálfun og síðan hugsanlega í eitt-
hvert framhaldsnám erlendis.“