Alþýðublaðið - 04.09.1933, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.09.1933, Blaðsíða 3
AlEÍSÝÐUBLAÐIÐ 3 Og nú hefir 4. blaðið bæzt í þenna' Stalinsvinahóp. Það er Framsókn. Ekkert pessara blaða ljær sjálf- stæðismálum íslands nokkru sinni ]iðsyrð,i“. Það er gleðilegt að fá loksi.ns skýringu á hinurn [ft- fergjulega fréttaburði íhaldsblað- anna hér um hungursneyðina í Rússlandi“. Frétt þessi um barna- morð, mannakjötsát og miljóna- horfelli í Rússlandi sést hvergi flutt í nýútkomnum blöðum frá Norðurlöndum, Englandi eða Frakklandi (og hafa pö heims- blöðin stundum séð minna grand í mat sinum) — nei, hún er sem sé eitt af „sjálfstæðismálum Is- lands“. (!) Togarinn Rán kom ti! Hafnarfjarðar á fimtu- dag. Hafði hann fiskað 7200 tn. í salt og 1000 mál í bræðslu. Saltsíldina lagði hann á land í Ingólfsfirði, en bræðslusildina í Krossanes. Ötvarpið Þess er að vænta að' með vetr- inum bæti ríkisútvarpið að ein- hverju; dagskrá sína. Hún hefir mjög verið þur undanfarið og ekki til að vekja athygli á muo- syn útvarpstækis á hverju heim- ili. Dagskrá pessarar viku ber þennan svip. Að vísu flytur Arnór Sigurjónsson erindi, sem margian mun fýsa að heyra:, á föstu- daginn (fr.amhaldserindi). Ste- fán Einarsson flytur erindi á priðjudag, sem hann nefnir úr æfisögu Eiríks Magmissonar. Frið- rik Ásmundsson Brekkan talar á fimtudag urn: ÁfengisbanniÖ o>g atkvæðagreiðsluná, og Haraldur Björnsson les upp á laugardag. Mun marga fýsa að heyra alla þessa menn. Efnið, siem þeir flytja er mjög athyglisvert og nnenn- irnir góðir fyrirlesarar og mjög snjallir. — Getur ekki útvarpið gert eitthvað sérstakt fyrir hina uppvaxandi kynslóð í vetur. Skólakvöld eru ágæt, en það þarf fleira að koma. Stúlkan sem hvarf aðfarainótt fyrra mánudags og leitað var að í höfninni, hefir enn ekki fundist. Það er talið efalaust, að hún hafi drukkniað í höfninni. Eirikur Benidikz og frú hans eru. nýkomin frá Englandi. Hefir frúin, sem er ensk, nýlega lokið kandidatsprófi í ensku við háskólann í Leedis', þar sem Eiríkur hefir verið við nám. „Blossi" heitir æskulýðsblað, ;semi hóf göngu sína fyrir helgina. Ekki vantar í það kraftinn og áhug- ann. Husnœði vantar marga um næstu mán- aðamót, og margir vilja leigja húsnæði. Það er reynsla kaup- sýslumanna, að hvergi sé eins gott að auglýsa og í Alþýðublíað- inu, af þeirri einföldu ástæðu, að> þar týnlst engin auglýsing. Þetta ættu menn að hafa í huga, þegar þá vantar stúlkur í vist, húsnæði eða þurfa að leigja húsnæði. Aug- lýsið í Alþýðublaðinu smáauglýs- ingar undir „Viðskifti dagsins“; semjið um verð og stað og þið verðið fyllilega ánægð. Mikill fjöldi af fólki, sem unnið hefir við síldarvinnu fyrir norðan, kom með Alexandrínu drotningu nu síðast. Hefir blaðið heyrt, að skipið hafi verið alveg troðfuit, er það fór frá Akureyri. og lítið getað tekið af því fólki, sem beiö heimferðar á Siglufirði. — Fer nú að fjölga í borginni úr þess.u, og rniun það bezt sjást í Austur- stræti á kvölddn. — Upp úr miðj- um mánuðinum mun svo unga fólkið koma' í skólana, og alt af setur það sinn sérstaka svip á borgarlífið á vetrum. Mentaskólinn. Þeir nemendur, sem ætla sér að sækja um upptöku í skólann, verða að senda umsóknir sínar sem fyrst, og ekki seinna en 10. þ. m. Umsóknum verða að fylgja skýrnar og bólusetningar vottorð. Komnir heim. Nýkomnir eru til bæjarins þeir Pálmi Hannesson rektor, Finnur Jónsson málari og Magnús Björnssion fuglafræðingur, en þeir voru í sumar við náttúru- fræðirannsóknir á svæðinu fyrir norðan Vatnajökul. Lengst dvöldu þieir í Hvannalindum. Esja fer í kvöld kl. 8 í hringferð austur um land. Ásgeir Ásmundsson er 50 ára í dag. Gálgakross. Nýlega kom þýzkt olíuskip til Stokkhólms og hafði uppi Naz- istafánann með gálgakrossinium, sem er nú anniar ríkisfáni Þjóð- verja. Að tilhlutun kommúnista neituðu verkamenn að afgreiða skipið, meðan það hefði þetta blóðmerki við hún. Þá kom upp úr kafinu, að skipið var með farm til rússneska olíufélagsins „Nafta“ í Stokkhólmi, og fékk það þegar því áorkað við kom- múnista, að skipið var afgreitt.(!) UNGBARNAVERND LIKNAR, Bárugötu 2, er opin hvern fimtu- dag og föstudag kl. 3—4; sömu- leiðis ráðleggingarstöð fyrir barnshafandi konur á sama stað er opin fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Kolaverðlð lækkar! Frá og með deginum á morg- un lækkum vér kolaverðið niður í m krónur SMÁLESTINA og seljum með pessu lága \erði okkar ágætu B. S. Y. A. H. og Robur Kol. Þessi óheyrða lækkun staf- ar af fyrirhuguðum breyt- ingum á kolainnfiutningi vorum. Nú kosta 1000 kíJó kr. 33,00 500 - -' 16,50 250 - - 8,25 Nú er tækifærið til að birgja sig upp með kol til vetrarins. r 1 síana 1120 (4 lfnnr). H.f. KOL & SALT.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.