Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR Styrkleikalistinn á Wimbledon Styrkleikalisti Wimbledon- tenniskeppninnar sem byrjaði í gær (sæti á heimslista í sviga) EINLIÐALEIKUR KVENNA 1 Steffi Graf (Þýskalandi) (1) 2 Arantxa Sanchez Vicario (Spéni) (2) 3 Conchita Martinez (Spáni) (3) 4 Jana Novotna (Tékklandi) (5) 5 MaryPierce (Frakklandi) (4) 6 Kimiko Date (Japan) (6) 7 Lindsay Davenport (Bandarikjunum) (7) 8 Gabriela Sabatini (Argentinu) (8) 9AnkeHuber (Þýskalandi) (10) 10 Natasha Zvereva (Hvita- Russlandi) (11) EINLIÐALEIKUR KARLA 1 AndreAgassi (Bandarikjunum) (1) 2 PeteSampras (Bandarikjunum) (2) 3 BorisBecker (Þýskalandi) (3) 4 Goran Ivanisevic (Króatíu) (6) 5 MichaelChang (Bandarikjunum) (5) 6 Yevgeny Kafelnikov (Rússlandi) (7) 7 Wayne Ferreira (Suöur- Afríku) (8) 8 Sergi Bruguera (Spáni) (9) 9 Michael Stich (Þýskaiandi) (10) 10 MarcRosset (Sviss) (13) Hækkun venölaunafjar á Wimbledon frá 1985 Heimild: The All England Lawn Tennis and Croquet Club Wimbledon m ÁVÍSANAHEFTI enska knattspyrnuliðsins Aston Villa hefur ekki safnað ryki niðri í skúffu á sl. dögum, því í síðustu viku keypti Brian Little fram- kvæmdastjóri Gareth Southgate fyrirliða Crystal Palace, fyrir tæpar 260 milljónir og svo júgó- slavneska framheijann Savo Mi- losevic í gær eins og greint er frá annars staðar í blaðinu. ■ STAN COLLYMORE sem á dögunum var seldur frá Notting- ham Forest til Liverpool fyrir metfé hefur í framhaldinu fengið hjarta forráðamanna beggja fé- lagatil að slá ögn hraðar því um helgina setti hann þau skilyrði fyr- ir samningnum að hann fengi fimm af hundraði þeirrar upphæðar sem hann var seldur á. Liverpool greiddi fyrir hann rúmlega 900 milljónir króna, svo þarna er um verulegar fjárhæðir að ræða. ■ STJÓRNENDUR Forest þver- taka fyrir að Collymore fái krónu því það sé ekki venjan þegar leik- maður er seldur að eigin ósk, eins og gerst hafi í þessu tilfelli. ■ JÚRGEN Kohler, landsliðs- miðvörður Þýskalands í knatt- spyrnu, er farinn frá Juventus í -Þýskalandi til Borussia Dort- mund í heimalandinu - nýbakaðs Þýskalandsmeistara. Kohler er sjötti leikmaðunnn sem kemur til Dortmund frá Ítalíu á skömmum tíma. ■ GRAEME Souness, nýráðinn þjálfari Galatasaray í Tyrklandi, keypti um helgina vamarmann- inn/miðvallarleikmanninn Barry Venison frá Newcastle á 700 þúsund pund og framheijann Mike Marsh frá Coventry fyrir ótil- greinda upphæð. Báðir léku þeir undir stjórn Souness hjá Liverpo- ol fyrir nokkrum árum. ■ FIORENTINA á Ítalíu er sagt hafa áhuga á sænska landsliðs- manninum Stefan Schwartz, sem er á mála hjá Arsenal í Englandi. ■ RONNIE Johnson, varnar- maður hjá Lilleström í Noregi, sem Teitur Þórðarson þjálfar, er sagður undir smásjánni hjá Tott- enham Hotspur í Englandi. ■ BAYERN Munchen í Þýska- landi vill leigja Emil Kostadinov áfram frá Porto í Portúgal. Ko- stadinov, sem er framherji og búlgarskur landsliðsmaður, var hjá Bayern í vetur og kom vel út. ■ ÓVÍST er hvar Maurizio Gaudino leikur næsta vetur. Hann var leigður frá Frankfurt til Man. City í vetur, en verður ekki áfram í Manchester. Forráðamönnum City fannst hann of dýr, starfs- bræður þeirra hjá Frankfurt eru ekkert of áfjáðir í að fá hann aftur. ■ RON Atkinson, þjálfari Co- ventry, gerði tilraun til að kaupa Ian Rush frá Liverpool á dögun- um, en hafði ekki erindi sem erfiði. AUGNABLIK Iþróttir veita mörgum ánægju- legar og ógleymanlegar stundir. Fátt er því líkt að vera með á heimsmeistaramótum og ólympíuleikum — hvert sem hlutverkið er, og fleira mætti nefna. Íþróttalífið á Ís- landi er fjölskrúðugt og eins og annað í þessu jarðlífi býður það upp á mörg eft- irminnileg augnablik ár hvert — augnablik sem sum hver lifa í minningunni allt til æviloka. Það er til dæmis hætt við því að margir þeirra sem hlupu um knattspyrnugrundir í Vestmannaeyjum á poilamótinu um helgina gleymi þeim stund- um ekki alveg á næstunni. Peyj- amir sem þar spreyttu sig hafa ekki verið lengi í eidlínunni, en eiga framtíðina fyrir sér. Mót einsog þetta er sem heimsmeist- aramót eða ólympíuleikar í aug- um þeirra, enda hlakka menn til mánuðum saman. Alveg sama er hvar borið er niður; Andrésar andar leika á skíðum, aldursflokkamót í sundi, pæju- og pollamót í knatt- spyrnu, svo dæmi séu nefnd; þetta eru mikiar hátíðarstundir hjá bömunum og unglingunum, og alis ekki síður — sem ef til gleymist stundum — hjá foreldr- unum. Þeir em famir að taka æ meiri þátt I starfi og leik barn- anna, og það er greinilegt að þeir hafa ekki síður gaman af en ungviðið. Kappið er jafnvel oft meira í þeim fullorðnu þegar þeir garga sig hása á hliðarlín- unni, á sundlaugarbakkanum eða í skíðabrekkunum; þeir gleyma stað og stund ekki síður en keppendumir, sleppa fram af sér beislinu og mega passa sig að vera ekki of grimmir — leggja ekki of hart að bömunum, eins og áður hefur verið varað við á þessum stað. Pollamótið í Eyjum er árvisst og hefur verið í mörg ár og sama er að segja um Andrésar andar leikana á Akureyri. Þessir stór- viðburðir em iíklega hvað fastast skorðaðir í íþróttadaga- tölin, en sambærilegum sam- komum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Og þegar blásið er til leiks setur viðkom- andi keppni stórskemmtilegan svip á bæjarlífið á hveijum stað. Fljótlega verður á Akureyri ár- leg polla-helgi, þar sem yngri pollarnir sýna snilld sína á völl- um KA og þeir eldri á Þórsvöll- um. Þessar helgar em ógleym- aniegar fjöiskylduhátíðir, því í mörgum tílfellum hafa pabbarn- ir spriklað í Þorpinu hjá Þórsur- unum yfir daginn á sama tíma og synirnir keppa á Brekkunni, mömmumar þeysast á milli valla og síðan sameinast allir í skemmtun þegar degi hallar. Þessa umræddu helgi á Akur- eyri er gleðin við völd; hjá stóm strákunum er alvaran skemmti- leg og hjá þeim iitlu skemmtun- in alvarleg. Augnabiik sem ekki gleymast svo glatt. Skapti Hallgrímsson Ógleymanlegar hátíd- arstundir hjá þeim yngri — og eldri Erökuþórinn GUÐBERGUR GUÐBERGSSON langbesturírallíkrossinu? Eiginkonan enn betri ökumaður GUÐBERGUR Guðbergsson vann þriðju rallíkrosskeppnina í röð á sunnudag og er að stinga aðra af í keppninni um íslands- meistaratitilinn. Guðbergur rekur meðal annars Porscheþjón- ustuna á íslandi, sem hann telur reyndar bara áhugamal, og er einn af þeim sem reka rallíkrossbrautina við Krýsuvíkur- veg. Hann hefur lengi verið akstursíþróttafíkill, eins og hann tók til orða, en ekki sá eini á heimilinu því kona hans Krístin Birna Garðarsdóttir hefur unnið til margra verðlauna í móto- krossi á vélhjólum og í rallíkrossi. Guðbergur er 34 ára og eiga þau átta ára dóttur, Önnu Björku, og þriggja ára son, Viktor. Bróðir Kristínar Birnu var Jón S. Haildórsson, sem lést langt um aldur fram, 34ja ára, en hann var einn besti akstursíþróttamaður landsins á sínum tíma. Það liggur beinast við að spyija af hvetju í ósköpunum hann fór í akstursíþróttir? ■■■■■ „Ég bara veit Stefán það ekki. Ég var í Stefánsson fótbolta, handbolta skrífar og júdó en hef allt- af haft dellu fyrir öllu með vél, hef til dæmis prófað að fljúga, sjóskíði og svifdreka en fer alltaf aftur í mótorsportið og þá helst í kringum bílana. Þetta er bara einhver veira.“ Hvað ert þú búinn að vera lengi með bíladellu? „Foreldrar mínir segja að dellan hafi byijað við fæðingu en ég hef- ur verið óslitið að síðan 1975, má segja. Byijaði á skellinöðrunum því þær mátti keyra fyrst og síðan tóku bílarnir við.“ Er þetta ekki stórhættulegt? „Það er einmitt ekki svo því þetta er með hættuminnstu íþrótt- um í heimi með innan við 2 pró- sent slysatíðni á meðan fótboltinn er með um 70 prósent. Þetta hafa erlendar kannanir sýnt og hægt er að spyijast fyrir um þetta hjá ÍSÍ.“ Hefur þú unnið til margra verð- launa? „Já en ég veit bara ekki til hvað margra. I fyrra töldum við um 130 bikara en við Kristín Birna vorum reyndar að tala um að setja upp fleiri hillur. Hún á líklega helminginn af öllum verðlaunum heimilisins." Hvor er betri ökumaður, þú eða hún? „Það er reyndar svo að þegar Morgunblaðið/Golli GUÐBERGUR Guðbergsson er að stlnga af í rallíkrossínu en skiptir e.t.v. I aðra akstursíþrótt fyrir næsta sumar. við höfum keppt á móti hvort öðru, vinnur hún alltaf. Hún er miklu nettari ökumaður en við strákarn- ir vorum með töffaratakta. Ég vil taka fram að þetta er ekki sagt til að losna við einhver heimilis- störf heldur er þetta bara stað- reynd. Yfirleitt hefur það verið í planakstri og svipuðu þar sem þarf að keyra á millin keilna og svoleiðis. Þar hafði hún yfirleitt betur en við Jón bróðir hennar; keyrði yfirleitt á lengri tíma en felldi færri keilur á meðan við keyrðum á fullri ferð eins og aðr- ir bílatöffarar." Verða bömin þá ekki í kafi í aksturíþróttum líka? „Stelpan hefur ekki sýnt neinar tilfinningar í þá áttina en strákur- inn hefur gert það rækilega. Þeg- ar hann var tveggja ára og sá fyrst inn í bílskúrinn sagði hann bara „vá“ og ég ætlaði aldrei að geta slitið hann í burtu.“ Hver er framtíðin hjá þér í sam- bandi við delluna? „Stefnan er að vera að ein- hverju leiti í kringum aksturs- íþróttimar og líklega sjá um und- irbúning fyrir keppni og fleira tengt því. Ætli ég hjálpi líka ekki krökkunum mínum þegar að því kemur þó að ég muni alls ekki ýta þeim útí þetta - það á alls ekki að ýta neinum útí neitt í sam- bandi við íþróttir.“ Lokaspurning Guðbergur, ert þú langbestur í rallíkrossi? „Já, ég er bestur held ég en það er ekki víst að ég verði áfram í rallíkrossinu því ég hef oft skipt á milli akstursgreina, það er nauð- synlegt. Og bíllinn er til sölu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.