Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 B 5 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Sunnudag- ur til sigurs JONATHAN Edwards sem „flaug“ 18,43 metra í þrí- stökki í Frakklandi um helgina, er kristinnar trúar, tekur trú sína mjög alvar- lega, og neitaði lengi vel að keppa á sunnudögum. Missti m.a. af heimsmeist- aramótinu 1991 af þeim sökum þar sem þrístökks- keppnin fór fram á sunnu- degi. Síðan hefur honum snúist hugur og náði löngu stökkunum nú á sunnudag- inn. í báðar greinar MARIE-Jose Perec, sem hefur æft í Bandaríkjunum í vetur hjá John Smith — sem er mjög þekktur 400 m þjálfari — tilkynnti um helg- ina að hún hygðist keppa bæði í 400 m hlaupi og 400 m grindahlaupi á HM í Gautaborg í ágúst. Sigur hennar í grindahlaupinu um helgina var ny'ög auðveldur, en þess má geta að heims- og ólympíúmeistarinn Sally Gunnell frá Bretlandi var ekki með vegna meiðsla. Christie er sá sigur- sælasti LINFORD Christie sigraði í 100 og 200 m hlaupi í Evrópu- bikarkeppninni um helgina, og hefur þar með sigrað í níu einstaklingsgreinum í keppn- inni, fleirum en nokkur annar í sögu keppninar. Metið setti hann reyndar á laugardag er hann fagnaði áttunda sigrin- um, í 100 metrunum, en bætti svo um betur daginn eftir. Christie bætti met þýsku stúlkunnar Göhr Tvö lengstu þrí- stökk sögunnar Jonathan Edwards stal senunni í úrvalsdeild Evrópu- bikarkeppninnar- stökk 18,34 m - en meðvindurvar of mikill til að heimsmet fáist skráð „Antii lóp- u frá- bær MARIE-Jose Perec, hin fótfrá franska hlaupakona, sýndi snilldar- takta í 400 m grindahlaupi á mótinu um helgina. Perec, sem er ólympíumeist- ari í 400 m hlaupi, hafði ekki keppt í niu mánuði þar til hún keppti í 400 m grindahlaupi, í fyrsta skipti, fyrir viku og um helgina gerði hún sér lítið fyrir og bætti 13ára gamalt Frakk- landsmet — í annað skipti sem hún keppti í grein- inni. Illjóp þá á 54,51 sek. Þetta var sjötta franska metið sem „antilópan", eins og Frakkar kalla Perec, setur á glæsilegum ferli. Reuter IMíu gull í einstaklingskeppni LINFORD Christle kemur lang fyrstur í mark í 200 m hlaup- Inu. Hann hefur þar með slgrað í níu elnstakllngsgrelnum í Evrópublkarkeppninni, flelrum en nokkur annar í sögu hennar JONATHAN Edwards, 29 ára Breti, stal senunni íVilleneuve d’Ascq í Frakklandi um helgina er hann stökk tvívegis mun lengra heimsmetinu í þrístökki — lengst 18,43 m — er úrvals- deild Evrópubikarkeppninnar fór fram. Edwards fær árangurinn reyndar ekki skráðan sem met, þar sem meðvindur var of mikill, en sýndi svo ekki verður um villst að hann er til alls líklegur. Landi Edwards, spretthlauparinn Linford Christie, var líka í miklu stuði á mótinu, sigraði bæði í 100 og 200 metra hlaupi auk þess að leiða sigursveit Breta í 4x100 m boðhlaup- inu, og er hann nú sigursælastur allra í einstaklingskeppni Evrópubikarkeppninnar frá upphafi. Þjóðverjar vörðu Evrópubi- kartitil sinn í karlaflokki og Rússar fögnuðu sigri i kvennaflokki. Um er að ræða liðakeppni bestu frjálsíþróttalanda Evrópu, en þrátt fyrir það féll sigur Þjóðveija og Rússa í skuggann fyrir frábær- um árangri Bretans Edwards og góðri frammistöðu Christies. Heimsmet Bandaríkjamannsins Willie Banks í þrístökki eru 17,97 metrar, sett 1985. Edwards, bronsverðlaunahafi frá heims- meistaramótinu 1993, byijaði á því að stökkva 17,90 og var með- vindur þá 2,5 metrar á sekúndu en 2,0 m/sek er leyfilegur vindur. Lengsta stökk sem sögur fara af á Banks einnig; 18,20 metrar árið 1988 en þá var meðvindur 5,2 m/sek. Árangur Edwards um helgina er því mun betri og í minni vindi. í annarri tilraun kom svo sigur- stökkið — risastökk uppá 18,43 metra — en vindurinn var enn of mikill, 2,4 m/sek. Bandaríkjamað- urinn trúði vart eigin augum er vegalengdin kom upp á stigatöfl- una, greip um höfuð sér og lét sig falla til jarðar. Hann stökk 17,72 í þriðju tilraun, þá hafði vindinn lægt og það stökk er nýtt breskt met. Eftir fjórða stökk, sem mæld- ist 18,39 og er því næst lengsta stökk sögunnar — aðeins annað stökk hans í keppninni lengra — hætti hann svo keppni, enda sigur- inn í höfn. Edwards var nánast orðlaus yfir árangrinum. „Það er varla hægt að finna réttu orðin eftir svona frammistöðu," sagði hann. „Ég hafði á tilfinningunni að ég hefði getað bætt heimsmetið í dag, þó svo ekki hefði blásið svona.“ Heims- og ólympíumeistarinn Linford Christie sigraði örugglega í 100 m hlaupinu á laugardag á 10,05 sek. og síðar um daginn hljóp hann síðasta sprett í 4x100 m boðhlaupinu og tryggði Bretum sigur með glæsilegri frammistöðu. Á sunnudag nældi Christie svo í þriðju gullverðlaun sín á mótinu með sigri í 200 m hlaupi. Þar fékk hann frábæran tíma, 20,11 sek. sem er nálægt hans besta. Þykir það tíðindum sæta þar sem hlaup- arinn er orðinn 35 ára. „Ég er mjög hissa að ég skyldi vinna og undrandi á tímanum. En þetta líkar mér við svona helgar — maður kemst í ham vegna frammistöðu annarra," sagði Christie eftir sigurinn í 200 m hlaupinu, og sagði helgina ánægjulega liðsheildarinnar vegna, ekki vegna árangurs ein- staklinganna. ■ Úrslit / B13 ERT ÞU TILBUIN(N) IMOT SUMARSINS? GOLF „» ,BIG BERTHA“ (Meira en 2 miljónir Metal kylfur seldar) Bætist í hóp No.1 Golfmerkjanna okkar PINE (Meira en 2 miljónir járnasetta seld) Golfkúlur og kylfur (Ótaldar miljónir seldar) FootJcy (Mest seldu Golfskórnir) Ef þú ert að leita að því besta fyrir golfíþróttina, þá áttu erindi til okkar. GOLFBÚÐIN Eittífí íslensk///// Ameríska Tunguhálsi 11, Reykjavik Simi: 587-2700 5% AFSLATTUR AF GOLFVORUM GEGN FRAMVÍSUN ÞESSA MIÐA CHRISTIE á nú fleiri Evrópu- bikargull en nokkur annar. Með sigri í tveimur greinum á laugardag jafnaði hann met austur- þýsku hlaupa- drottningar- innar Marli- es Göhr, sem vann til 12 gullverð- launa á sin- um tíma, en Christie nældi svo í 13. gull sitt með sigri í 200 m hlaupinu á sunnudag. Hann á nú sex gullpeninga fyrir 100 m hlaup, þrjá fyrir 200 metra og fjóra fyrir boðhlaup. Marlies Göhr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.